Morgunblaðið - 31.03.2000, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 43
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Arvakurhf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MIKILVÆG
STEFNUBRE YTIN G
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hefur boðað
mikilvæga stefnubreytingu vegna áforma um stórvirkj-
un og álver á Austurlandi. í viðtali við Morgunblaðið í gær
skýrði iðnaðarráðherra frá því, að í stað Fljótsdalsvirkjunar
yrði nú stefnt á Kárahnúkavirkjun til þess að tryggja raforku
fyrir stærra álver á Reyðarfirði en aðallega hefur verið rætt
um. Lykilatriði í þessum nýju áformum er að Kárahnúka-
virkjun fer í hið svokallaða lögformlega umhverfismat í sam-
ræmi við lögin frá 1993. Deilurnar um Fljótsdalsvirkjun hafa
fyrst og fremst staðið um þá ákvörðun ríkisstjórnar og Al-
þingis að ráðast í þá virkjun án þess að fram fari lögformlegt
umhverfismat á fyrirhuguðum virkjunarframkvæmdum en sú
afstaða hefur byggzt á bráðabirgðaákvæði í lögunum frá 1993.
Morgunblaðið hefur barizt fyrir því, að Fljótsdalsvirkjun
færi í umhverfismat þrátt fyrir þetta bráðabirgðaákvæði á
þeirri forsendu, að breytt viðhorf í umhverfis- og náttúru-
verndarmálum hafi komið til sögunnar frá því að Landsvirkj-
un fékk leyfi til þess að hefja framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun.
Tilefni þessarar stefnubreytingar ríkisstjórnarinnar er
vilji væntanlegra fjárfesta til þess að kanna hagkvæmni
stærra álvers en aðallega hefur verið rætt til þessa en fjár-
festarnir vilja ræða byggingu 240 þúsund tonna álvers, sem
síðan yrði stækkað í 360 þúsund tonn. Jafnframt hefur komið
fram, að Norsk Hydro gæti hugsað sér að eiga allt að 40% í
slíku álveri en hingað til hafa þeir viljað takmarka eignaraðild
sína mjög.
Morgunblaðið fagnar þessari stefnubreytingu ríkisstjórn-
arinnar. Með henni er tryggt að mat fer fram á áhrifum nýrr-
ar virkjunar á Austurlandi á náttúruna og umhverfið í sam-
ræmi við þau lög, sem Alþingi hefur sett. Þau lög marka þær
leikreglur, sem ber að fylgja í samfélagi okkar. Verði niður-
staða umhverfismatsins jákvæð eru til staðar forsendur fyrir
því að byggja virkjunina út frá sjónarmiðum umhverfis- og
náttúruverndar. Verði niðurstaða matsins neikvæð eru þær
forsendur ekki fyrir hendi. Slíkri niðurstöðu, á hvorn veg sem
hún kann að verða, hljóta menn að hlíta.
Jafnframt er ljóst að með svo mikilli þátttöku Norsk Hydro
er áhætta væntanlegra íslenzkra fjárfesta ekki eins mikil og
ella og það er líka skref í rétta átt miðað við þær umræður,
sem fram hafa farið.
Með þeim hugmyndum, sem Valgerður Sverrisdóttir hefur
kynnt eru umræður um byggingu stórvirkjunar og álvers á
Austurlandi komnar í alveg nýjan farveg. Það er fagnaðarefni
og mun stuðla að meiri sátt í samfélaginu. Það sem skiptir
máli er að farið sé að settum leikreglum og með því að setja
áform um Kárahnúkavirkjun í lögformlegt umhverfismat er
það gert.
SAMRUNIÍSLANDS-
BANKA OG FBA
ÞÆR viðræður, sem nú standa yflr um sameiningu íslands-
banka og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hafa að vonum
vakið mikla athygli. Hingað til hefur athyglin beinzt að hugsan-
legum samruna Landsbanka og íslandsbanka. Ljóst er að for-
ystumenn íslandsbanka hafa ekki verið tilbúnir til þess að bíða
eftir ákvörðunum stjómvalda í þeim efnum og í stað þess horft til
annarra átta.
Augljós rök eru fyrir því að hagkvæmt sé að sameina Islands-
banka og FBA, þótt þau rök séu annars eðlis en rökin fyrir sam-
einingu Landsbanka og Islandsbanka.
Með sameiningu íslandsbanka og FBA verður til mjög öflugt
fjármálafyrirtæki, hið stærsta á íslandi. Hið sameinaða fyrirtæki
hefur möguleika á að fá hagkvæmari lánakjör í útlöndum, jafn-
framt því að veita stómm fyrirtækjum á íslandi betri þjónustu.
Að auki er margvísleg önnur hagkvæmni í sameiningu þessara
banka. Þess vegna verður að ætla, að þær viðræður, sem nú
standa yfír, leiði til jákvæðrar niðurstöðu.
Jafnljóst er að sameining bankanna tveggja setur Landsbanka
íslands og Búnaðarbanka Islands í erfíða stöðu. Hugmyndir um
sameiningu þeirra tveggja hafa lengi verið til staðar og möguleik-
ar á hagræðingu í rekstri þeirra augljósir. Hins vegar má velta
því fyrir sér, hvort sameining þeirra á meðan ríkið er meirihluta-
eigandi að báðum bönkunum verður á of pólitískum forsendum.
Alla vega má færa rök fyrir því að skynsamlegt geti verið að
einkavæða bankana að fullu og láta síðan einkavædda banka um
að finna sér farveg í hinu nýja fjármálaumhverfi á Islandi.
En hvað sem því líður er ljóst, að íslandsbanki og FBA hafa
leikið óvæntum leik á taflborði fjármálafyrirtækjanna og það
verður ekki auðvelt íyrir aðra þátttakendur að fínna sannfærandi
mótleik.
Forsætisráðherra líst vel á viðræður um sameiningu FBA og Islandsbanka
Sameining ríkisbank-
anna skoðuð rækilega
Bankaráð Landsbankans
hefur lýst eindregnum
áhuga á samruna Lands-
bankans og Búnaðar-
bankans í kjölfar tilkynn-
ingar um sameiningar-
viðræður Islandsbanka
og FBA. Davíð Qddsson
forsætisráðherra segir
að sameining Lands-
banka og Búnaðarbanka
verði skoðuð rækilega.
DAVIÐ Oddssyni forsætis-
ráðherra líst vel á þær við-
ræður sem standa yfir um
hugsanlega sameiningu
FBA og íslandsbanka. Hann segir
jafnframt að ríkisstjómin muni skoða
rækilega hvort ekki sé rétt að sameina
Landsbankann og Búnaðarbankann.
„Mér líst ágætlega á þessar viðræð-
ur og held að þetta geti orðið mjög at-
hyglisverð sameining, ef hún á sér stað,
og jafnvel tiltölulega aðgengileg," sagði
Davíð um viðræður stjómenda FBA og
íslandsbanka. „Þar með yrði til mjög
stór og öflugur einkabanki. Eg tel að
þetta geti því verið mjög jákvætt ef vel
tekst til og hluthafar beggja verða
ánægðir með samninga,“ sagði hann.
Davíð sagðist aðspurður vera þeirr-
ar skoðunar að hagræðing og samlegð-
aráhrif af sameiningu íslandsbanka og
FBA yrðu ekki mjög mikil í saman-
burði við sameiningu banka sem em í
hefðbundnum og svipuðum rekstri.
SAMANBURÐUR BANKANNA
L
"Sé;
Eignir Eigið fé Hagnaður Arðsemi
31.12.99 31.12.99 1999 eiginfjár
m.kr. m.kr. m.kr. 1999
Hlutafé
Nafnverð
m.kr.
Gengi
29.3.00
Markaös-
virði
29.3.00
Markaðs-
Gengi virði
30.3.00 30.3.00
FBA 92.338 9.331 1.206 13,6% 6.800 4,72 32.096 5,09 34.612
íslandsbanki 134.038 9.141 1.752 26,4% 3.877 7,85 30.438 8,80 34.122
Búnaðarbankí 117.659 7.072 1.221 20,0% 4.100 5,55 22.755 5,60 22.960
Landsbanki 193.095 11.391 1.520 15,6% 6.500 4,70 30.550 4,70 30.550
„Engu að síður held ég, eins og við-
skiptalffið hefur þróast, að sé kostur að
hafa mjög öflugan banka, sem getur
tekist á við erfið verkefni og þá jafnvel
fengið hagstæðari lánakjör á erlendum
mörkuðum fyrir vikið vegna stærðar
sinnar," sagði Davíð.
Má ekki kenna neinu um
Davíð var spurður hvort stjómvöld
myndu í framhaldi af þessum fregnum
snúa sér að sameiningu Landsbankans
og Búnaðarbankans og sagðist hann
telja að sá kostur lægi einna beinast
við. „Ég geri ráð fyrir að á meðan við
eram stærsti aðilinn í Landsbanka og
Búnaðarbanka, hljótum við að skoða
mjög rældlega hvort ekki eigi að sam-
eina þá banka. Ég tel eðlilegt að við fór-
um að athuga þau skref,“ sagði hann.
Davíð sagðist jafnframt telja heppi-
legast að þetta yrði gert tiltölulega
fljótlega tii að tryggja stöðu þessara
banka.
Davíð var ennfremur spurður hvort
viðræður íslandsbanka og FBA væra
ekki til vitnis um að stjómvöld hefðu
verið svifasein í ákvörðunum um upp-
stokkun og sameiningu í bankakerfinu.
„Það held ég ekki,“ svaraði hann. „Það
þarf að huga að mörgum hlutum. Þetta
er hins vegar miklu einfaldari samein-
ing sem þama ásér stað, ef hún gengur
eftir, sem ég geri fastlega ráð fyrir og
ég held að það megi ekki kenna neinu
um það.“
Forsætisráðherra var einnig spurð-
ur hvort hann væri þeirrar skoðunar að
sú leið hefði verið ófær að sameina Is-
landsbanka og Landsbanka vegna ák-
væða í samkeppnislögum, eins og við-
skiptaráðherra hefur haldið fram.
„Því hafði alls ekki verið hafnað en
hins vegar vildu menn skoða það ræki-
lega hvort það væra einhverjir annm-
arkar á því. Það var hins vegar kannski
ekki á þeim hraða sem íslandsbanka-
mönnum hentaði. Ég held að það sé
ekki hægt að kenna því um, enda tel ég
ekki ástæðu til að kenna einu eða neinu
um. Þetta er atburðarás sem á sér stað
og ég held að þó hún komi mönnum
kannski frekar á óvart þá sé hún frekar
jákvæð," sagði Davíð Oddsson.
Valur Valsson bankastjóri íslandsbanka
Samlegðaráhrif kæmu fyrst
og fremst fram á tekjuhlið
VALUR Valsson, bankastjóri íslands-
banka, segir að samlegðaráhrif af
hugsanlegri sameiningu Islandsbanka
og FBA komi fram bæði á kostnaðar-
og tekjuhlið, en fyrst og fremst á
tekjuhlið. Samlegðaráhrif af samein-
ingu viðskiptabanka hafa frekar verið
talin koma fram á kostnaðarhlið. Val-
ur telur leyfi FBA til viðskiptabanka-
starfsemi fremur auðvelda sameining-
arviðræður en hitt.
Valur segir að í umræðu um það
hagræði, sem skapast gæti af samein-
ingu íslenskra banka, hafi ekki verið
gert ráð fyrir þeim möguleika að Is-
landsbanki og FBA myndu sameinast.
„Þetta er allt annars konar sameining
en sameining tveggja viðskiptabanka.
Áhrifin verða með öðram hætti en
engar aðrar viðræður era í gangi og
því höfum við engar viðmiðanir í þeim
efnum,“ segir Valur.
Aðspurður segir hann tilganginn
með sameiningarviðræðunum að
mynda samkeppnishæft fyrirtæki
sem geti keppt við alþjóðlegar að-
stæður. „FBA er mjög góður banki og
við teljum það leiða til styrkingar
beggja íyrirtækja að vinna sarnan,"
segir Valur. Sameinað fyrirtæki verð-
ur hið stærsta á VÞI, að markaðsverð-
mæti yfir 60 milljarðar. „Fyrirtæki af
þessari stærð hefur afl til að taka þátt
í alþjóðlegri samkeppni." segir Valur.
Hann segir aðdragandann að við-
ræðum forsvarsmanna bankanna
skamman. „Svona viðræður byrja
með því að menn hittast til að fara yfir
stöðu mála og svo fæðast hugmyndir."
Þegar viðræður bankastjóranna
leiddu til þess að fleiri þyrftu að koma
að, hefði tilkynning verið send til VÞÍ.
Valur segir að góður andi hafi verið í
viðræðunum, niðurstaðna af þeim er
að vænta innan fárra daga og að sögn
Vals er áætlað að vinna hratt. Gengi
hlutabréfa beggja bankanna hækkaði
verulega í gær og Valur segir það ekki
koma á óvart að fjárfestar telji hugs-
anlega sameiningu góð tíðindi.
Hann segir of snemmt að ræða
eignarhald og fyrirkomulag á samein-
uðu fyrirtæki. „Við nálgumst þessar
viðræður út frá því að þetta sé á jöfn-
um granni gert vegna þess að mark-
aðsverðmæti fyrirtækjanna er svip-
að.“ Nákvæmt skiptihlutfall hefur
ekki verið ákveðið fremur en annað,
að sögn Vals. Hann segir ótímabært
að ræða hugsanlega markaðshlutdeild
sameinaðs banka en telur að hann
hefði ekki yfirburðamarkaðshlutdeild
á neinum sviðum. Það kæmi honum
ennfremur á óvart ef sameiningin
skapaði erfiðleika gagnvart sam-
keppnisyfirvöldum.
ff
■ & *
BU; -ll 't ?s& f
IL'* 4 ^ - -
xmrnm
ísw mmM
Valgerður
Sverrisdóttir
HaUddr J.
Kristjánsson
Stefán
Pálsson
Steingrímur J.
Sigfásson
Sverrir
Hermannsson
Bjarni Ármannsson forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
Hagkvæmt á alþjóðlegan mælikvarða
BJARNI Armannsson, forstjóri Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins, segir
samrana FBA og íslandsbanka fyrst
og fremst hugsaðan til að auka tekjur
sameinaðs banka. Hann segir að sé lit-
ið til rekstrarkostnaðar sameinaðs fyr-
irtækis yrði hann hagkvæmur á alþjóð-
legan mælikvarða. „Undirrót við-
ræðnanna og tilgangur er að sjá hvort
hægt er að búa til fyrirtæki sem getur
tekist á við þær breytingar sem era að
eiga sér stað á fjármálamarkaðnum,
hvort sem það er í breyttu hegðunar-
mynstri almennings vegna nýrra
sparnaðarleiða eða aukinna þarfa fyr-
irtækja og atvinnulífs, aukinnar sérf-
ræðiþekkingar þar og stækkandi ein-
inga,“ segir Bjarni. „Það er ljóst að það
verður um uppstokkun að ræða á fjár-
málamarkaðnum og markmið hvers og
eins er að reka fyrirtæki sem verður
samkeppnishæf eining inn í framtíð-
ina,“ segir Bjami og telur sameinað
fyrirtæki Islandsbanka og FBA geta
orðið slíkt fyrirtæki.
„Það er mikil alvara í viðræðunum
og fullur vilji til þess að þeim ljúki far-
sællega,“ segir Bjarni en hann telur
þann fyrirtækjabrag, sem ríkir innan
Islandsbanka, samræmast FBA vel.
Bjami segir of snemmt að tala um efn-
isatriði samkomulagsins. Hann telur
hækkun á gengi hlutabréfa bæði Islan-
dsbanka og FBA gefa til kynna að
markaðurinn taki fréttunum vel.
FBA veitt starfsleyfí
sem viðskiptabanki
FBA hlaut í gær starfsleyfi sem við-
skiptabanki frá viðskiptaráðuneytinu
og telst bankanum því heimilt að
stunda alla starfsemi sem viðskipta-
bönkum er heimil. Frá sama tíma gilda
lög um viðskiptabanka og sparisjóði
um starfsemi FBA. Bjami segir þetta í
beinu framhaldi af samþykkt aðalfund-
ar FBA um að breyta samþykktum fé-
lagsins. „Við eram að undirbúa sókn
inn í geira eins og einkabankastarfsemi
og aukin viðskipti við ákveðna hópa
einstaklinga. Þetta er liður í að okkur
verði gert það kleift og við eram ánægð
með skjót viðbrögð ráðuneytis og fjár-
málaeftirlits,“ segir Bjami. Hann segir
leyfið ekkert hafa að segja fyrir hugs-
anlega sameiningu við Islandsbanka.
Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra
Gdð tíðindi
fyrir fjármagns-
markaðinn
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra segir að viðræður
stjómenda íslandsbanka og FBA um
mögulega sameiningu bankanna séu
góð tíðindi fyrir fjármagnsmarkaðinn.
Valgerður segist hafa fregnað fyrst af
þessum viðræðum í gærmorgun þegar
henni var tilkynnt að þær stæðu yfír.
Einnig kom fram í máli hennar að
viðskiptaráðuneytið hefði í gær veitt
FBA starfsleyfi til almennrar við-
skiptabankaþjónustu.
Sameining fslandsbanka og
Landsbanka var ófær
„Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar
að það þurfi að hagræða á markaðinum
og það er ákveðin hagræðing fólgin í
þessu, þó hún sé kannski ekki eins mik-
il eins og ýmsir aðrir kostir hefðu getað
leitt af sér,“ sagði Valgerður í samtali
við Morgunblaðið. „Sá kostur sem mest
hafði verið í umræðunni, um samein-
ingu Islandsbanka og Landsbanka, var
í sjálfu sér ófær vegna samkeppnis-
laga.“
Aðspurð um hvort það hafi verið orð-
ið alveg Ijóst sagði Valgerður: „Já, það
var svona um það bil ljóst.“
Valgerður var spurð hvort þessi tíð-
indi af viðræðum FB A og Islandsbanka
væra ekki tO marks um að stjómvöld
hefðu verið svifasein til ákvarðana um
uppstokkun og sameiningu í banka-
kerfinu og misst af strætisvagninum.
,Auðvitað er það þannig að þegar
ríkið á í hlut taka hlutimir lengri tíma
vegna þess að það þarf að viðhafa lýð-
ræðisleg vinnubrögð. Ég vil benda á
hvað gerst hefði ef við hefðum gengið
að tilboði íslandsbanka í Búnaðarbank-
ann fyrir rúmlega hálfu öðra ári síðan
en það hljóðaði upp á átta milljarða
króna. í dag er Búnaðarbankinn talinn
24 milljarða króna virði. Það er a.m.k.
stundum betra að taka sér tíma,“ sagði
Valgerður.
Aðspurð hvort hugsanlegur samrani
íslandsbanka og FBA verði til þess að
flýta fyrir mögulegri sameiningu
Landsbankans og Búnaðarbankans,
sagði Valgerður mikilvægt fyrir ríkis-
valdið, sem ætti mikinn meirihluta í
báðum þessum bönkum, að átta sig á
því hver eigi að vera stefnan til framtíð-
ar.
„Ef niðurstaðan verður sú að Is-
landsbanki og FBA sameinast, sem era
að markaðsvirði um 60 milljarðar, og
slíkur banki kemur fram á sjónarsviðið,
er mikilvægt að hann fái verðugan
samkeppnisaðila. Hvemig nákvæm-
lega sá samkeppnisaðili verður búinn
til er ég ekki tilbúin að segja til um
núna en það er vonandi að það verði
ekki mjög langt þangað til það verður
ljóst.“
Hæpið að ætla að ná fram laga-
breytingu fyrir þinglok
Þegar Valgerður var beðin um nán-
ari svör við því hvenær niðurstöðu yrði
að vænta sagði hún að stutt væri eftir
af þingtímanum og því væri hæpið að
ætla að ná fram lagabreytingum á
þinginuívor.
„En hveitibrauðsdögunum er lokið
og nú er að móta stefnuna,“ sagði hún.
Aðspurð að því hvort sjálfgefið sé að
þessi þróun mála leiði beinlínis til þess
að farið verið að vinna að sameiningu
Landsbanka og Búnaðarbankans sagði
Valgerður að það væri eitt af þeim mál-
um sem aldrei hefði verið útilokað og
hefði í sjálfu sér alltaf verið inni í um-
ræðunni líka.
Stefán Pálsson bankastjóri
Búnaðarbankans
Fleiri hljóta að
hugsa sitt ráð
STEFÁN Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbanka íslands hf., segir að ef til
sameiningar íslandsbanka og Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins komi sé
ljóst að til verði gríðarlega öflug ein-
ing á markaðinum.
Stefán segist telja að þessir atburð-
ir muni hafa þau áhrif að ýta undir
frekari sameiningu fjármálastofnana í
bankakerfinu. „Maður getur ekki lok-
að augunum fyrir því að þegar svona
öflug eining er komin þá hljóta fleiri
að hugsa sitt ráð,“ sagði hann.
Stefán var spurður hvort hann
væri hlynntur sameiningu Búnaðar-
bankans og Landsbankans og sagði
hann að með slíkri sameiningu yrði
einnig til mjög sterk eining á markað-
inum.
Stefán benti á að eignarhlutur rík-
isins í Búnaðarbanka og Landsbanka
væri 72%, „og auðvitað fara ekki við-
ræður af stað nema í samráði við
stærsta eigandann. Það er ekkert far-
ið af stað ennþá,“ sagði hann.
Aðspurður sagði Stefán að fregnir
af óformlegum viðræðum bankastjóra
FBA og íslandsbanka um hugsanlega
sameiningu hafi ekki komið sér mjög
á óvart. „Ég trúi því að það sé ein-
hver aðdragandi að þessu, þó það hafi
ekki farið hátt,“ sagði Stefán.
Guðmundur Hauksson
sparisjóðsstjóri SPRON
Veldur ekki bylt-
ingu á markaðnum
AÐ mati Guðmundar Haukssonar,
sparissjóðsstjóra SPRON og stjómar-
formanns Kaupþings, mun sameining
íslandsbanka og FBA ekki valda bylt-
ingu á fjármálamarkaðnum á Islandi.
„Ef hluthafar beggja félaga telja þetta
hagkvæmt er auðvitað sjálfsagt að
þeir sameini fyrirtækin,“ segir Guð-
mundur. Hann segir áhrif sameining-
arinnar á sparisjóðina eða Kaupþing
ekki umtalsverð.
Hann segir jafnframt að sparisjóð-
irnir þurfi ekki að grípa til sérstakra
aðgerða vegna væntanlegrar samein-
ingar íslandsbanka og FBA. Guð-
mundur segir að sparisjóðimir muni
halda áfram umræðu um innbyrðis
sameiningar og hlutafélagavæðingu
sparisjóðanna en sameining spari-
sjóða við viðskiptabanka hafi ekki ver-
ið rædd. „Sparisjóðir hafa sameinast
undanfarin ár og umræður um mögu-
lega breytingu yfir í hlutafélagsform
eða annað rekstrarform hafa staðið yf-
ir og munu halda áfram en það er allt
of snemmt að kveða upp úr um hvern-
ig sú umræða þróast," segir Guð-
mundur.
Bankaráð Landsbanka íslands
Við blasir samruni
Landsbanka og
Búnaðarbanka
BANKARÁÐ Landsbanka íslands
fundaði í gær og í yfirlýsingu frá
bankaráðinu kemur fram að sá kostur
blasi við að sameina Landsbanka og
Búnaðarbanka, en veralegt hagræði
muni leiða af slíkum samrana. Sam-
keppni muni aukast veralega með sam-
rana íslandsbanka og FBA. í yfirlýs-
ingunni segir einnig að nýlegar
yfirlýsingar forsvarsmanna stærri
sparisjóða um hlutafjárvæðingu þeirra
og hugsanlegan samruna gæti einnig
skapað nýja möguleika til hagræðingar
á markaði.
Landsbankinn fagnar því að skriður
er kominn á samrana og sameiningar-
mál á íslenskum fjármálamarkaði og
telur brýnt að stjómvöld greiði fyrir
ákvörðunum til að stuðla að frekari
hagræðingu í bankakerfinu. „Lands-
bankinn sem stærsta fjármálafyrirtæki
landsins mun áfram kanna allar leiðir
til samstarfs og samrana á innlendum
markaði," segir í yfirlýsingunni.
í yfirlýsingunni er einnig vísað til nið-
urstaðna athugana sérfræðinga bankans
á samruna banka á Islandi og hagræð-
ingu í bankakerfinu en þær hafa bent til
þess að hagræðing af samrana einhverra
af viðskiptabönkunum þremur geti num-
ið allt að 35% af rekstrarkostnaði minni
einingarinnar sem sameinuð er. Hag-
kvæmni af sameiningu viðskiptabanka
og fjáiíestingarbanka, eins og um ræðir í
tilviki Islandsbanka og FBA er minni að
því er athuganir Landsbankans hafa leitt
í ljós, eða á bilinu 5-10% af rekstrar-
kostnaði minni einingarinnar. í yfirlýs-
ingunni kemur fram að tveir mjög
áhugaverðir kostir til samruna hafi kom-
ið til greina fyrir Landsbankann, annars
vegar sameining við íslandsbanka, hins
vegar við Búnaðarbanka., AUk eru þess-
ir bankar líkir að uppbyggingu með úti-
búanet um allt land og með áþekka starf-
semi,“ segir í yfirlýsingunni.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbanka íslands, segir í samtali við
Morgunblaðið að bankaráð Landsban-
kans telji að sameining Búnaðarbank-
ans og Landsbankans blasi við sem
mjög vænlegur kostur í kjölfar þess að
sameiningarviðræður standi yfir á milli
FBA og Islandsbanka. „Það reynir nú
hins vegar á viðhorfin í Búnaðarbank-
anum og hjá stærsta hluthafa beggja
bankanna," segir Halldór og að hans
mati er hagsmunum hluthafa bankans
best þjónað með því að kannaðar verði
forsendur fyrir sameiningu Búnaðar-
banka og Landsbanka.
Halldór segist ekki ósáttur við gang
mála, þar sem Landsbankinn fái tæki-
færi til að sameinast öðram viðskipta-
banka. „Og sameining tveggja við-
skiptabanka er hagkvæmari kostur en
t.d. sameining viðskiptabanka og fjár-
festingarbanka," segir Halldór.
„Ég hafði lýst því sem minni skoðun,
að það væri rökrétt að taka tO athugun-
ar þá kosti sem vegna stærðarhag-
kvæmni skiluðu mesta hagræðinu og
það var ljóst að sameining Landsbank-
ans og Islandsbanka gæti verið mjög
hagkvæm,“ segir Halldór. „Búnaðar-
bankinn er stór eining og það munar
ekki öllu um hagræðið sem fæst út úr
sameiningu Landsbankans við Búnað-
arbankann annars vegar eða samein-
ingu við íslandsbanka hins vegar.
Þetta era áþekkir kostfr og góðir báð-
ir.“
Hann segir minni sparnað felast í
sameiningu FBA og Islandsbanka en
sameiningu Landsbankans og Búnað-
arbankans. Þetta er í samræmi við yfir-
lýsingu bankaráðs þar sem fram kem-
ur það mat að mest hagræði skapist af
sameiningu tveggja viðskiptabanka en
mun minna í sameiningu viðskipta-
banka og fj árfestingarbanka. *
Géngi hlutabréfa Landsbankans
lækkaði nokkuð fyrrihluta gærdagsins
en var undir lokin óbreytt frá fyrri degi
eða 4,70. Halldór segir að fjárfestar
virðist hafa metið yfirlýsingu bankar-
áðs Landsbanka Islands sem jákvætt
útspil.
Stjórnarandstaðan dæmir ekki
um sameiningaráform einkabanka
Eðlilegft að huga
að sameiningu
ríkisbankanna
MARGRÉT Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingar, segir að henni
finnist eðlilegt að einkabankar sem
starfi á fjármagnsmarkaði eigi við-
ræður um sameiningu og leiðir til hag-
ræðingar. Um leið hljóti hins vegar
ríkisstjómin að skoða vel möguleik-
ana á því að sameina Búnaðarbanka
og Landsbanka í einn öflugan banka.
„Það er náttúrlega engin glóra í því
að ríkið eigi meirihluta í og reki tvo
banka á íslenskum fjármagnsmar-
kaði,“ segir Margrét. Segir hún eðli-
legt að ríkisstjómin sameini ríkis-
bankana tvo og skoði síðan í framhaldi
hvort rétt sé að selja hlutafé í bankan-
um eða halda honum áfram í ríkiseigu.
Er Margrét fremur jákvæð gagn-
vart viðræðum Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins og íslandsbanka. „Þó að
við viljum hafa hér ákveðna sam-
keppni þá verðum við að viðurkenna
um leið að markaðurinn er tiltölulega
lítffl og rúmar kannski ekki mörg stór-
fyrirtæki í bankastarfsemi."
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segir það ekki í
sínum verkahring að dæma um hugs-
anlega sameiningu íslandsbanka og
FBA enda sé þar um tvo einkabanka
að ræða. „Ég hef hins vegar sagt sem
svo að ef ég ætti langmestan meiri-
hluta í Landsbanka og Búnaðarbanka
og hægt er að stórgræða fé á því að
sameina þá, þá myndi ég sem eigandi
gera það en ekki rétta þann ágóða yfir
til íslandsbanka," segir Sverrir.
Vissulega verði með sameiningu
íslandsbanka og FBA til afar stór ein-
ing á bankamarkaðnum en Sverrir
telur ekki að menn þurfi svo mjög að
óttast fákeppni þar sem erlendir
bankar geti vel komið sér fyrir á
markaðnum hér á landi. Hins vegar
verði að gæta að því að sameining svo
stórra banka valdi ekki þenslu í efna-
hagslífinu.
„Það er búið að einkavæða FBA og„
mér finnst þetta að mörgu leyti eðli-
legri þróun heldur en ef Islandsbanki
færi að renna saman við annan hvorn
ríkisbankann,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs. Kveðst
hann ekki sjá ástæðu til að hafa mikla
skoðun á því hvað einkaaðilar á fjár-
magnsmarkaði í þessu efni en minnir
á að hann hafi gert miklar athuga-
semdir við hugmyndir um sameiningu
íslandsbanka og Landsbanka.
„Og ég man að ég svaraði því til að
mér þætti það að mörgu leyti eðlileg
þróun að hér yrðu þrjár sæmilega öflj.
ugar bankakeðjur, þar sem ein væri
einkabankakeðja, önnur væri þjóð-
banki eða ríkisbanki, og sú þriðja að
uppistöðu til sparisjóðirnir, sem ég
held að sé mikil þörf á að verði áfram
öflugir til að tryggja samkeppni og
fjölbrejdni í þessari þjónustu."
Éinsýnt sé hins vegar að skoða þann
kost að sameina ríkisbankana tvo. ?