Morgunblaðið - 31.03.2000, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
Kirkjugöngur
Safnaðarstarf
9 MORGUN, laugardag 1. apríl,
verður tólfta kirkjugangan og jafn-
framt sú næstsíðasta sem farin verð-
ur að þessu sinni á vegum Reykja-
víkurprófastsdæma.
Kirkjugöngumar hófust við Sel-
tjarnarneskirkju í lok október 1999
og lá leiðin þaðan um vesturbæinn,
miðbæinn, Skólavörðuholtið og
Norðurmýrina í Laugames. Um
Laugardal í Langholt, um Grensás í
Bústaði. Síðan í Grafarvog, um Árbæ
og Breiðholt í Kópavog, þar sem
gangan er nú stödd. Komið var við í
nánast öllum kirkjum á leiðinni. Áð
var yfir jól og áramót í Laugarnes-
kirkju, en ferðirnar hófust aftur þar
nú um miðjan febrúar. Nú á laugar-
daginn kemur verður farið frá
Hjallakirkju, komið verður við á Dal-
veginum hjá KEFAS, þaðan verður
haldið í Hlíðasmára og komið við hjá
Boðunarkirkjunni og Krossinum,
síðan verður haldið til Digranes-
kirkju. Síðasta gangan verður hinn
8. apríl nk. en göngunum lýkur í
Kópavogskirkju. Fólk er hvatt til að
kynna sér auglýsingar í kirkjunum
og koma og taka þátt í gefandi og
fræðandi starfi.
Ganga nr. 12. Lagt verður af stað
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10 og
hefst gangan við Hjallakirkju.
Gengið verður frá Hjallakirkju um
Dalveg, þar verður komið við hjá
KEFAS, þaðan verður haldið í
Hlíðasmára og komið við hjá Boðun-
arkirkjunni og Krossinum, gangan
endar í Digraneskirkju. Hreyfing,
fræðsla og bænahald.
Veitingar í boði sóknarnefndar
Digraneskirkju.
Þátttökugjald kr. 500, frítt fyrir
böm undir 15 ára í fylgd með full-
orðnum.
Kristnihátíð
í Norð-
fjarðarkirkju
Kristnihátíðin hefst með morgun-
stund í barnastarfi kirkjunnar kl.
10.30 f.h. í Safnaðarheimilinu. Þá
kemur Sunnudagaskóli Eskifjarð-
arkirkju í heimsókn til okkar. Verð-
ur margt í boði sem tengist hefð-
bundnu sunnudagaskólastarfi.
Hátíðarguðsþjónusta verður í
kirkjunni kl. 14.
I guðsþjónustunni verða formlega
teknir í notkun söngpallar fyrir
kirkjukórinn, sem keyptir hafa verið
með stuðningi safnaðarfólks og fyr-
irtækja. Helguð verða altarisklæði
fyrir föstu og aðventu, og nýir altar-
iskertastjakar. í tilefni hátíðarársins
hafa þessir gripir verið gefnir
kirkjunni sem minningargjafir. I
guðsþjónustunni prédikar séra
Svavar Stefánsson, fv. sóknarprest-
ur, en hann þjónaði Norðfjarðar-
prestakalli í fimmtán ár.
Frumfluttur verður sálmur í til-
efni kristnihátíðar; Guð heilagi faðir;
ljóðið er eftir sr. Sigurð Rúnar
Ragnarsson sóknarprest og lagið er
eftir Daníel Þorsteinsson píanóleik-
ara sem verður viðstaddur flutning-
inn. Kór Norðfjarðarkirkju flytur.
Bamakór er til aðstoðar og einnig
tekur Kór eldri borgara þátt í at-
höfninni. Höfðingleg gjöf hefur einn-
ig borist kirkjunni. Er það fom alt-
aristafla úr gömlu Skorra-
staðarkirkju og verður hún til sýnis
af þessu tilefni, en hún hefur nú verið
afhent Norðfjarðarkirkju til varð-
veizlu. Mun hún vera frá því um
1700, eða frá svipuðum tíma og
predikunarstóll kirkjunnar. Altar-
istaflan var í eigu Ragnars Ásgeirs-
sonar ráðunautar um árabil og nú
síðast í eigu hjónanna Úlfs Ragnars-
sonar og Ástu Guðvarðardóttur í
Reykjavík.
I tengslum við hátíðina verður op-
in yfir helgina farandsýning Hins ís-
lenska Biblíufélags, og sýndar verða
fjölmargar biblíur frá ýmsum lönd-
um, sem em í einkaeign. Farandsýn-
1UL /t/ KRÍSTIN TRÚ í ÞÚSUND ÁR ÁRÍÐ 2000
ing á kirkjum á Austurlandi verður
einnig opin yfir helgina. Þá verður
Fannardalskrossinn einnig til sýnis
en hann er merkur gripur, frá því um
1300, sem varðveittur hefur verið í
Norðfirði í einkaeign, en honum fylg-
ir merkileg þjóðsögn.
Að messu lokinni verður boðið til
kirkjukaffis í Egilsbúð þar sem flutt
verða tónlistaratriði í tengslum við
hátíðina og þar koma fram ýmsir
nemendur úr Tónskóla Neskaup-
staðar og Kór Norðfjarðarkirkju.
Allir em boðnir velkomnir til
kirkjunnar og hátíðarinnar sem
sóknarnefnd Norðfjarðarkirkju
stendur að.
Hallgrímskirkja. Lestur passíu-
sálma ki. 12.15.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin
til bænagjörðar í hádeginu. Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 12-12.30, org-
elleikur og sálmasöngur. Eftir
kyrrðarstundina er létt máltíð í boði
í safnaðarheimili kirkjunnar. Verð
veitinga er 500 kr. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 11-13. Kaffi er alltaf á
könnunni, gott er að hittast og
spjalla saman. Síðan er heilsupistill,
létt hreyfing, kristin íhugun og slök-
un. Ki. 12 er gengið til kyrrðar- og
fyrirbænar í kirkjunni. Eftir kyrrð-
arstundina sameinast starfsfólk
kirkjunnar, sjálfboðaliðar og kirkju-
gestir yfir kærleiksmáltíð. Lestur
passíusálma er kl. 18.
Laugameskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10. Kaffispjall fyrir mæður,
góð upplifun fyrir böm.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
laugardag kl. 12.30. Jóna Hansen
kennari sýnir litskyggnur. Fram
verður borðin tvíréttuð heit máltíð.
Allir velkomnir. Frank M. Halldórs-
son.
HafnarQarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Á
morgun er Steinþór Þórðarson með
prédikun og Þórdís Malmquist með
biblíufræðslu. Barna- og unglinga-
deildir á laugardögum. Súpa og
brauð eftir samkomuna.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
ÍPfjiSSpsfBf
Okkar
innlegg til
bætrar
heilsu
Wm
?X°ðtæk/
Stoðtækni og Borgar apótek
bjóða 50% afslátt af kostnaði
við Álags- og göngugreiningu.
Rétt skóinnlegg getur minnkað álag á hné,
fáetur og bak og komið í veg fyrir verki og
óþægindi sem eru því samfara. Við álags
og göngugreiningu er notast við byltingar-
kenndan búnað sem greinir álagsdreifingu,
göngulag, og stöðu og gerir vinnu við sér-
smíðaða skó, innlegg og spelkur auðveldari.
Stoðtækjafræðingur
á staðnum
Borgar
OPIÐ TILl
KL 24.00
ollkvöld
Álftamýri 1 Reykjavík, sími:585 7700.
■
■BB
ssa
HH
■H
BHH
mm
■
BM
Hn
BBB
K
:
j§f
| *
m
APÓTEK
■ LSi'Svv
RONTGENSTOFA
Höfum opnað röntgenstofu að
Álftamýri 5 Reykjavík
Beina- og lungnamyndatökur
siíi
Timapantanir 5200 100
íslensk Myndgreining ehf
Eftirtaldir
læknar starfa á
Læknastöðinni
Álftamýri 5
Reykjavík
(við hliðina á Borgarapótek)
Bæklunarskurðlæknar
Arnbjörn Arnbjörsson
Ágúst Kárason
Brynjólfur Jónsson
Jón Ingvar Ragnarsson
Ragnar Jónsson
Rögnvaldur Þorleifsson
Stefán Carlsson
Svavar Haraldsson
Yngvi Ólafsson
Bæklunar- og
handarskurðlæknir
Magnús Páll Albertsson
<0
Læknastöðin
Álftamýri 5, Re_ykjavík
■ .
11(1
H!
■
p p n -4
Heila- og
taugaskurðlæknar
Aron Björnsson
Bjarni Hannesson
Svæfingalæknar
-verkjameðferð
Bjarni Valtýsson
Ragnar Finnsson
Svæfingalæknar
Björn Tryggvason
Sighvatur Snæbjörnsson
Framkvæmdarstjóri
Sigurður Ásgeir Kristinsson
Tímapantanir
alla virka daga í
stma 520 0100
(jit
: ..
ggp
&