Morgunblaðið - 31.03.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
IDAG
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 73
FRETTIR
Arnað heilla
n ÁRA afmæli. 2. ap-
I U ríl nk. verður sjötug
Elsa P. Níelsdóttir, mat-
ráðskona leikskólanum
Ásborg, Skálagerði 3,
Reykjavík. Eiginmaður
Elsu er Hermann Ólafur
Guðnason. í tilefni dags-
ins taka þau á móti gestum
á morgun, 1. apríl, milli kl.
17-20 í Félagsheimili
Hreyfils, Fellsmúla 26.
Óska þau eftir að sem
flestir ættingjar, vinnufé-
lagar fyrr og nú, vinir og
vandamenn sjái sér fært
að mæta og fagna afmæli
og starfslokum Elsu.
BRIDS
IJmsjón Guðmundur
Páll Arnarson
MARGIR nota opnanir á
fjórum laufum og fjórum
tíglum til að sýna átta
slaga hönd í hálit. Þessi
sagnvenja var upphaflega
hluti af hinu forkostulega
kerfi Reese og Flints,
Litla majórnum, en hefur
hlotið heitið „Namyats" í
bridsheiminum, sem er
„Stayman" skrifað afturá-
bak, enda var það Samuel
Stayman sem fyrstur
kynnti þessa sagnaðferð
fyrir Bandaríkjamönnum.
Eins og allar yfirfærslu-
sagnir hefur Namyats
þann ókost að gefa mót-
herjunum aukið svigrúm
til að blanda sér í sagnir.
Zia og Robson nýttu sér
það vel í þessu spili frá
Cap Gemini-keppninni í
Hollandi:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G765
v K842
♦ Á
+ ÁK76
Vestur Austur .
* 8 *
ÁKD109432
v D975 v G3
♦ 1087654 ♦ K2
* 54 *10
Norður
* -
v K842
♦ DG93
♦ DG9832
Vestur Norður Austur Suður
hanzarotti Zia Buratti Robson
- - 4tíglar* Dobl
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Passa 61auf Allirpass
* Namyats, átta slagir í
spaða.
Til eru tvær aðferðir til
að verjast Namyats: Önn-
ur er sú að dobl á gervi-
sögninni (fjórum tíglum
hér) sýni viðkomandi lit,
en hin aðferðin felst í því
að dobla með létta úttekt á
hálitinn. Robson og Zia
uota síðarnefndu aðferð-
ina, og þess vegna doblar
Robson í suður. Zia krefur
síðan með fjórum spöðum
°g lyftir í slemmu þegar
Robson velur lauflitinn.
Slemman er auðunnin eftir
niörgum leiðum og Rob-
sons var (aldrei þessu
vant) fljótur að taka tólf
slagi: 920 og 9 IMPar til
Zia og Robsons.
n A ÁRA afmæli. í dag,
I V/ föstudaginn 31.
mai’s, er sjötugur Gunnar
Pétursson, Hlíðarvegi 17,
ísafirði. Eiginkona hans
er Sigríður Sigurðardótt-
ir. Taka þau ásamt fjöl-
skyldu sinni á móti gestum
í Oddfellow-húsinu á ísa-
firði kl. 20 á afmælisdag-
pT A ÁRA afmæli. í dag,
tJ U föstudaginn 31.
mars, er fimmtugur Krist-
ján Gunnarsson, pípu-
Iagningameistari, Eski-
holti 21, Garðabæ.
Eiginkona hans er Anný
Antonsdóttir.
Með morgunkaffinu
COSPER
Bless mamma og takk fyrir tímann sem við áttum
saman.
SKAK
IJmsjón llelgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
VIKTOR Korchnoi hefur
staðið lengi í eldlínunni á
meðal bestu skákmanna
heims. í meðfylgjandi stöðu
hafði hann hvítt gegn ung-
verska stórmeistaranum
Lajos Portisch á IBM-mót-
inu í Reykjavík 1987. 43.
Hxg7+! Kxg7 44. Bd4+ Kg8
45. Dc6+ Kh7 46. Df7+ og
svartur gafst upp enda mát i
næsta leik.
Ást er..
12-29
að halda á henni hita
Frábært! Ég er búinn að
uppgötva lækningu við
sjúkdómi sem er enn ekki
búið að uppgötva.
Þú hafðir rétt fyrir þér pabbi. Það
_ er ótrúlegt hvað maður verður
«*+ skynsamur eftir að maður kvænist,
Því miður er það bara of seint.
LJOÐABROT
SMALADRENGURINN
Út um græna grundu
gakktu, hjörðin mín.
Yndi vorsins undu.
Eg skal gæta þín.
Sól og vor ég syng um,
snerti gleðistreng.
Leikið, lömb, í kringum
h'tinn smaladreng.
Steingrímur Thorsteinsson.
STJÖRIVUSPÁ
eftir Franees Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ákveðinn í að sigrast
á öllum þeim hindrunum,
sem á vegi þínum verða.
Sýndu tillitssemi.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Nú er að duga eða drepast.
Þetta verkefni, sem þú hefur
fengið, á hug þinn allan og allt
í lagi með það því þú hefur alla
burði tii þess að vinna það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sá sem alltaf er tilbúinn til át-
aka við aðra, verður að reikna
með misjöfnu gengi. Þú vinn-
ur sumt og tapar öðru.
Reyndu að slípa á þér homin.
Tvíburar . ^
(21. maí-20. júní) "A A
Oft var þörf, en nú er nauðsyn
á því að þú haldir haus og
leysir verkefni þín með ís-
kaldri skynsemiA Svo má
hjartað ráða stund þegar allt
er í höfn.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Þótt þú vitir eitt og annað er
ekid þar með sagt, að aðrir
kunni ekki að búa yfir meiri
reynsiu en þú. Vertu hógvær
og lærðu af þeim, sem geta
kenntþér.
Ljón
(23.júií-22. ágúst)
Þú þarft að fara ákaflega var-
lega í viðkvæmu einkamáli,
sem hefur komið til þinna
kasta. Vertu ekki að flagga
þvi að þú hafir nú vitað betur.
Meyja -j;
(23. ágúst - 22. sept.) uObL
Það getur reynzt gagnlegt að
hta í kringum sig og hugleiða,
hversu fastheldinn maður vih
vera á hlutina. Það segir okk-
ur margt um okkur sjálf.
(23. sept. - 22. október) m,
Mundu að sönn vinátta er
gulls ígiidi. En hún getur
aldrei verið bara á annan veg-
inn; sá, sem þiggur, verður að
vera tilbúinn að gefa af sér.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki persónuleg kynni
hafa áhrif á framgöngu þína á
vinnustað. Sinntu starfinu af
kostgæfni og einkamálunum
utan þess. Annars er hætta á
rugh.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) A3
Það er öruggiega einhver,
sem biður í ofvæni eftir því að
heyra frá þér; annaðhvort í
síma eða bréfleiðis.Mundu
hvað þér leiddist slík bið!
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Græddur er geymdur eyrir
var einu sinni sagt. Sýndu að-
gæzlu í fjármálum og farðu
ekki út í neinar skuldbinding-
ar nema þú sért með allt á
hreinu.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) CSw
Gefðu vinum og vandamönn-
um allan þann tíma, sem þú
mátt. Þeir eru það bakland
sem þú þarft að rækta, hversu
vel sem þér gengur á öðrum
sviðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það ætti að vera ofarlega á
dagskrá þinni í dag að rétta
einhverjum hjálparhönd. At-
hugaðu samt mjög vel þinn
gang, því ekki er allt sem sýn-
ist.
Stjömuspána á að lesa sem
grunm
legra staðreynda.
Handverksmarkaður
í Bessastaðahreppi
HANDVERKSMARKAÐUR
verður haldinn á vegum Kvenfé-
lags Bessastaðahrepps laugar-
daginn 1. apríl kl. 11-17 í Hátíða-
sal íþróttahússins.
Á boðstólum verða margir hlut-
ir til skrauts og gjafa. Selt verður
á staðnum vöfflur, kaffi og gos.
Allir velkomnir.
Glæsilegar PAS buxur
í vorlitum — gott verð
Rita
TÍSKUVERSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
/Imerískir lúxus nuddpottar
Acrylpottur í rauðviðargrind.
Innb. hitunar- og hreinsikerfi.
Vatns- og loftnudd.
Engar leiðslur nema rafm.
16 amp. Einangrunarlok með
læsingum. Sjálfv. hitastillir.
Við seljum ekki ódýra potta, við seljum potta ódýrt!
VE5TAM ehf. Auðbrekku 23, Kópavugi,
sími 554 5171. farsími 898 4154
N amskeið/einkatimar
simi 694 5494
Ny namskeið hefjast 12. apn'l
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum. —
Hringdu nuna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
15-40%
afsláttur af allri Jotun málningu