Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 20
t O rir,rr. ■’TfTfTfi rt-* *. o" nT^’mtT*-
20 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Ingþór Bjamason Ljósmynd/Haraldur ðm ólafsson
Óhætt er að fullyrða að Haraldur hafí brugðið sér á skíði um páskana eins og margir landsmenn auk þess sem Þegar skiðað er í slæmu færi eykst álagið mikið á sleðann. Sleði Haraldar
hann iðkaði fleiri páskasiði eins og þann að borða páskaegg sem Ingþór færði honum. var orðinn mjög hrörlegur þegar hann fékk nýjar vistir á skírdag.
Vakir hættu-
legar á loka-
kaflanum
Með hverjum deginum styttist leiðin sem
Haraldur Örn Olafsson á eftir ófarna á
norðurpólinn. Enn eru kílómetrar á
áfangastað þó hátt í 300 og vakir og ýms-
ar hættur á leiðinni. Svíarnir sem náðu á
pólinn í síðustu viku voru orðnir illa til
reika er þeir komu þangað og vegna mik-
ils ísreks þurftu þeir að eyða talsverðum
tíma í að fínna sjálfan pólpunktinn.
Ljósmynd/Haraldur Öm ólafsson
Mest hætta stafar af vökum úti á ísnum, þó þessi sé ekki mikill farartálmi. Margar þeirra eru geysibreiðar og ill-
færar. Haraldur er einn fárra pólfara á þessu ári sem ekki hefur dottið í vök.
HARALDUR Örn Ólafsson pólfari
og bakvarðasveit hans á Islandi
telja sig nú sjá fyrir endann á
norðurpólsleiðangrinum. títlit er
fyrir að honum Ijúki á tilsettum
tíma eða í kringum 10. maí að
öllu forfallalausu.
Að loknu vel heppnuðu birgða-
flugi á skírdag snýr bakvarða-
sveit hans sér að næsta verkefni,
sem felst í að undirbúa flug út á
ísinn til að sækja Harald f leið-
angurslok.
Hann hefur lagt að baki 495
km og á 281 km eftir ófarinn.
Gott veður hefur verið á í'snum
undanfarna daga þótt ísinn hafí
verið fremur torfær. Haraldur
ski'ðaði þó í góðu færi á mánudag
og lagði þá að baki 17,5 km.
„Maður er farinn að hugsa um
hvenær leiðangrinum Ijúki og
vonandi lýkur honum samkvæmt
áætlun. Það er í rauninni ekki
svo langt eftir á pólinn ef maður
heldur þessum hraða. Maður
verður kominn á pólinn fyrr en
varir. Það er þó margt sem getur
tafíð förina svo það er betra að
gera sér ekki miklar væntingar
en þetta h'tur ekki illa út,“ sagði
Haraldur við bakvarðasveitina í
gær. Hann sagðist ekki hafa sofíð
vel í fyrrinótt vegna slappleika.
„Mér líður þó vel núna og á ekki
von á öðru en að allt verði í Iagi,“
sagði hann í gærmorgun aftir
andvökunóttina.
Kærkomnar birgðir bárust hon-
um út á ísinn á skírdag en búnað-
ur var farinn að láta verulega á
sjá eftir álag síðustu vikna. Ing-
þór Bjarnason flaug út á ísinn til
Haraldar þar sem hann var
staddur við 87. breiddargráðu.
Fagnaðarfundir á skírdag
„Við þurftum aðeins að skima
eftir honum úr lofti og flugum
lágt yfir svæðið," sagði Ingþór í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þegar sást til tjalds Haraldar var
hugað að lendingu, sem tókst
ágætlega að sögn Ingþórs. „Þeg-
ar vélin var lent kom Haraldur
hlaupandi að vélinni og urðu þá
miklir fagnaðarfundir. Við höfð-
um hins vegar nauman tíma og
þurftum að hafa hraðar hendur
við að afferma flugvélina. Harald-
ur fékk bréf og blöð, ávexti og
fleira góðgæti auk nýs búnaðar.
Hann leit vel út og var vel á sig
kominn þótt hann hefði lagt tals-
vert af og fengið smákalblett á
Námskeið fyrir eldri borgara...
• Gruwdvailaratriði upplýsingataektii ... 60 ára Og eldri
• Windows stýrikerfið
• Word ritvinnsla
• Notkun Internetsins
Námskeiðið hefst 2. mai og likur 1. júni.
Kennt verður á þriðjudögum og
fimmtudögum frá ki. 9:00 til 12:00
Nánari upplýsingar og innritun
í símum 555 4980 og 544 4500
illy Nýi tölvu- &
111V viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hllðasmára 9- 200 Kópavogi - Slmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimaslða: www.ntv.is