Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 11
FRÉTTIR
Grétar Ali Kahn og Jóhanna Berta Bernburg.
Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir.
^Þorleifur og
Asta sigurveg-
arar í Blackpool
Blackpool. Morgunblaðið.
FYRSTI dagur alþjóðlegu dans-
keppninnar í Blackpool var sl.
mánudag. Þetta er ein sterkasta
danskeppni sem haldin er fyrir
börn og unglinga í heiminum. Is-
lendingar hafa löngum fjölmennt
á þessa keppni og svo er einnig
nú. Fyrsta daginn gekk allt vonum
framar og í heild má segja að ís-
lensku dansararnir hafi dansað
vel. Þorleifur Einarsson og Ásta
Bjamadóttir fóru alla leið á efsta
þrep verðlaunapallsins.
Islensk pör kepptu í tveimur
flokkum á mánudaginn, í flokki 11
ára og yngri var keppt í Jive og í
flokki 12-15 ára var keppt í Vín-
arvalsi. I flokki ellefu ára og yngri
kepptu sjötíu pör og voru átta pör
frá Islandi. Þau komust öll í aðra
umferð og tvö þeirra fóru áfram í
24 para úrslit, þau Baldur Kári
Eyjólfsson og Erna Halldórsdóttir
og Þorleifur Einarsson og Ásta
Bjarnadóttir. Þau síðarnefndu
gerðu sér lítið fyrir og fóru alla
leið í úrslit og fóru þar með sigur
af hólmi.
Að sögn mæðra dansparsins,
Sigrúnar Guðmundsdóttur og
Jónu Ástvaldsdóttur, var þessi
dagur alveg ótrúlegur. „Frábært
að sjá þau innan um þessa góðu
dansara í þessum glæsilega sal.
Þetta er alveg einstök upplifun,
við erum öll í sjöunda himni.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þorleifur Einarsson nuddar axlirnar á Jóni Pétri Úlfjótssyni danskenn-
ara og Kara Amgrímsdóttir danskennari horfir á.
í flokki 12-15 ára kepptu sjö ís-
lensk pör, en 150 pör allt í allt. 011
sjö íslensku pörin fóru áfram í
aðra umferð og Grétar Ali Khan
og Jóhanna Berta Bernburg kom-
ust í tólf para undanúrslit með
glæsilegum Vínarvalsi.
Hljóðið í Islendingunum er gott
og menn yfir sig ánægðir með úr-
slit fyrsta dagsins. Keppt verður
nú á hverjum degi fram á laugar-
dag.
Barist við
sinuelda
víða vestan-
lands
LÖGREGLA og slökkvilið í Borgar-
nesi hafa átt annasama daga að
undanförnu við að beijast gegn
sinueldum. Kveiktir voru eldar í
sinu í Skorradal og á orlofshúsa-
svæði BSRB í Stóra-Skarði um
helgina og er talið að talsverðar
skemmdir hafí orðið á kjarri á báð-
um stöðum.
Mikill sinueldur var kveiktur við
Vesturlandsveg gegnt Korpúlfs-
stöðum á sunnudagskvöld með
þeim afleiðingum að þykkan mökk-
inn lagði yfír veginn. Greip lög-
regla til þess ráðs að hægja á um-
ferð um veginn beggja vegna
makkarins vegna lélegs skyggnis
þar sem hann lagðist yfir veginn.
Komst eldurinn í mosa sem gerði
slökkvistarf erfiðara þar sem fátt
dugar á mosann annað en að rcnn-
bleyta hann.
Slökkviliðið var nokkrum sinnum
hvatt út vegna sinuelda um helgina
en mikið hefur verið um fkvcikjur í
Barist var við sinubruna í Grafarvogi.
sinu í borginni undanfarna daga. Þá
gh'mdi slökkvilið Hafnarfjarðar við
Morgunblaðið/Ömar
mikla sinu- og gróðurelda í Garða-
bæ og Hafnarfirði á sunnudag.
Talið að
tímarofi í
ísskáp hafí
kveikt eldinn
TALIÐ er að tímarofi í ísskáp hafi
valdið íkveikju í rokgjörnum efnum
í húsi við Dugguvog 2 í Reykjavík á
föstudaginn langa. Mikið tjón varð í
eldsvoðanum og er það talið nema
nokkrum milljónum króna. Inni í
húsinu voru m.a. ökutæki og verk-
færi.
Allt tiltækt slökkvilið var kvatt út
um kl. 21 á föstudag og einnig auka-
lið. Mikinn reyk lagði upp úr húsinu
en slökkviliðið í Reykjavík náði
fljótt tökum á eldinum. Eldurinn
kom upp í trésmíðaverkstæði en
fjöldi fyrirtækja er í húsinu, m.a.
saumastofa, bílaverkstæði, blikk-
smiðja, þungaflutningafyrirtæki og
heildsölur. 35-40 slökkviliðsmenn
voru á vettvangi við slökkvistörf
þegar mest var.
„Við vorum tiltölulega fljótir að
afmarka eldinn í ákveðnu rými.
Þetta leit ekki vel út í upphafi því
reykurinn var mjög dökkur og þak
hússins úr strengjasteypu, sem
skapar vissa hættu á hruni. En það
voru stórar dyr á húsinu sem við
komumst í gegnum og nánast beint
að eldinum. Það má segja að við
höfum ratað strax á réttu lausnina
því við vorum fljótir að ráða niður-
lögum eldsins. Þá kölluðum við út
allan tiltækan mannskap og bak-
vaktir og skiluðu menn sér fljótt og
vel á vettvang svo við vorum vel
mannaðir til að takast á við eldinn,“
sagði Jón Viðar Matthíasson vara-
slökkviliðsstjóri.
Tilkynnt var um brunann um
klukkan 21 og fyrstu bílar slökkvi-
liðsins voru komnir á vettvang
klukkan 21:11. Tuttugu mínútum
seinna hafði eldurinn verið slökkt-
ur.
---------------
Slökktu eld í
sumarbústað
SNARRÆÐI hjóna sem voru að
huga að sumarbústaðalóð sinni við
Vesturhópsvatn varð til þess að
bjarga tókst sumarbústað sem
byrjað var að loga í skammt frá er
þau komu á vettvang.
Eigendur bústaðarins voru í
honum um helgina. Er þeir fóru
báru þeir ösku úr kamínu út í
kassa fyrir utan og töldu alveg
slokknað í henni. Þegar þau yfir-
gáfu bústaðinn var logn en síðan
tók að blása og þá hefur líklega
blásið í glæðurnar þannig að úr
varð bál.
Að sögn lögreglu á Blönduósi
læsti eldurinn sig í bústaðinn og
logaði í klæðningu upp eftir stafn-
inum. Fólkið var búið að slökkva
hann að mestu með snjó þegar lög-
reglu og slökkviliðið á Hvamms-
tanga bar að og hefði örugglega
farið illa ef snarræði þess hefði
ekki komið til.
---------------
Ungmenni
tekin með
1,5 kgaf
hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli fann 1,5 kg af hassi á tveim
mönnum á þrítugsaldri, sem voru
að koma frá Kaupmannahöfn á
mánudag. Kona um tvítugt var
með mönnunum og var handtekin
ásamt þeim.
Þau voru yfirheyrð hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík
þar sem þau gerðu grein fyrir
fíkniefnunum. Þeim var sleppt úr
haldi að loknum yfirheyrslum og
telst málið upplýst. Ekkert þeirra
hefur komið við sögu fíkniefna-
mála áður.