Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 >------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR, frá Teygingarlæk, síðast til heimilis í Engihjalla 3, Kópavogi, verður jarðsungin frá Hjallakirkju, Kópavogi, fimmtudaginn 27. apríl kl. 13.30. Margrét Runólfsdóttir, Jón Steinþórsson, Þurfður Runólfsdóttir, Bjarni Ó. Runólfsson, Erla Stefánsdóttir, Sigurður B. Runólfsson, María Emma Suarez, Dagbjartur Sigursteinsson, Bjargey Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, INGÞÓR LÝÐSSON, Vallarbraut 1, Akranesi, sem lést að kvöldi laugardagsins 15. apríl sl., verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag, miðvikudaginn 26. apríl, kl. 14.00. Vigdís Matthíasdóttir, Jóhanna Lýðsdóttir, Hlynur Eggertsson, Sigmundur Lýðsson, Þorgerður Benónýsdóttir, Edda Lýðsdóttir, Finnbogi Sigurðsson, Ingveldur Sveinsdóttir, Guðni Jónsson og frændsystkin. + Þökkum ionilega samúð og vináttu við andlát og útför BALDVINU MAGNÚSDÓTTUR. Snæbjörn Pálsson, Magnús Snæbjörnsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Páil Snæbjörnsson, Guðrún Dóra Gfsladóttir, Sigrún Birna Magnúsdóttir, Daði Snær Pálsson, Arna Pálsdóttir. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, ÞORSTEINS HELGASONAR PhD prófessors í verkfræði, Hvassaieiti 87, Reykjavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga Hjúkrunarþjónustu Karitas. Elfsabet Einarsdóttir, Svava Þorsteinsdóttir, Helgi Þór Þorsteinsson, Einar Baldur Þorsteinsson. Helgi J. Þórarinsson, Guðrún Jónsdóttir, Kristín H. Nickerson, David Nickerson, Kirstín Lydia Nickerson, Louise Valgerður Nickerson. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is ANNA VIGDÍS OLAFSDOTTIR + Anna Vigdís Ól- afsdóttir fæddist í Reykjavík 4. júní 1917. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 12. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ólöf Sveinsdóttir, f. 6. september 1881 í Neskaupstað í Norð- firði, d. 3. apríl 1937, og Ólafur Dan Daní- elsson, stærðfræði- kennari við Mennta- skólann í Reykjavík, f. 31. október 1877 í Viðvík í Skagafírði, d. 10. desem- ber 1957. Systkini Önnu Vigdísar voru: Sveinn (1904-1910), Svan- hildur (1905-1954), Daníel (1908-1948), Snorri (1910-1997), Þorbjörg (1914-1928), Sigrún (1919-1920) og Kristin Ólafsdótt- ir Kaaber, f. 12. október 1922, búsett í Reykjavík. Árið 1943 giftist Anna Vigdís Bald- vini K. Sveinbjörns- syni apótekara, f. 8. febrúar 1909, d. 9. júní 1980. Þau eign- uðust eina dóttur, Ólöfu Vigdísi, lyfja- fræðing, f. 15. apríl 1944. Hún er búsett í Reykjavík. Maður hennar er Kristinn R. Gunnarsson apó- tekari, f. 8. júní 1944. Börn þeirra eru: Anna Vigdís viðskiptafræðingur, f. 3. maí 1972, sambýlismaður hennar er Jón Helgi Jónsson, f. 10. júní 1973, Baldvin Jóhann, tölvumað- ur, f. 10. maí 1974, og Ragna Sig- ríður nemi, f. 19. nóvember 1976. Útför Önnu fór fram frá Foss- vogskirkju 25. apríl. í gær var jarðsungin móður- systir mín, Anna Vigdís Ólafs- dóttir, sem ég minnist með ást og virðingu. Með henni er horfið síð- asta systkini móður minnar sem nú er ein á lífi af börnum Ólafar Sveinsdóttur, ömmu minnar og Ólafs Dan Daníelssonar, afa míns. Auk móður minnar kynntist ég fjórum þessara systkina. Tvö þeirra eru löngu horfin og eru mér aðeins í barnsminni. Þau voru Daníel Ólafsson kaupmaður sem dó langt fyrir aldur fram ár- ið 1948 og Svanhildur Ólafsdóttir, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, sem lést árið 1954. Þó að þau tvö hafi látist á meðan ég var á barnsaldri hafa þau engu síður haft mikil áhrif á líf mitt. Fyrsta minning mín tengist rausn og gjafmildi Daníels. Svanhildur móðursystir mín var brautryðj- andi í eðli sínu, sérstök kona og langt á undan samtíð sinni á margan hátt. Ég hef oft notið þess að bera nafn hennar. Hin tvö, Snorri Ólafsson læknir og Anna Vigdís Ólafsdóttir, og fjölskyldur þeirra voru hins vegar alla tíð aðal frændgarður minn í móðurætt. Snorri var glaði, góði frændinn að norðan. Þegar hann kom í heimsókn var jafnan slegið upp veislu. Móðir mín og hann töl- uðu líka oft saman í síma - stund- um lengi - og mér þótti gaman að fylgjast með samtölum þeirra. Þá var ekki aðeins daglegt amstur til umræðu heldur ekki síður fólk og fyrirbæri sem bæði höfðu áhuga á. Snorri var glaður lífsnautnamaður. Hann var farsæll og virtur læknir á Kristneshæli í Eyjafirði í marga áratugi og lést hátt á níræðisaldri árið 1997. Anna Vigdís frænka mín var hins vegar nærstödd allt mitt líf - bæði hversdags og til spari. Þær systur, móðir mín og hún, áttu að mínu viti einstakt systra- samband og deildu lífi hvorrar annarrar eins og best gerist í fjölskyldum. Anna Vigdís var næstyngst í röð þeirra systkina sinna sem náðu fullorðinsaldri. Að loknu hefðbundnu skólanámi hóf hún störf í Búnaðarbanka Islands. Hún var eftirsóknarverður vinnu- kraftur, m.a. vegna þess að hún hafði lært hraðritun sem í þá daga var mikilvæg í öllum skrif- stofustörfum. Hún var frábær vélritari, einstaklega fljótvirk og nákvæm svo af bar. Slíkir banka- starfsmenn eru mikils virði í tæknivæddum nútímabönkum, en þeir voru líka áreiðanlega gulls ígildi á þeim árum þegar allt var handfært í bönkunum og öll fjár- málaviðskipti þeirra byggðu á samviskusemi og nákvæmni starfsmanna. Anna Vigdís vann í Búnaðarbankanum í u.þ.b. áratug eða þar til hún hætti störfum til að stofna heimili með manni sín- + Elskuleg systir og mágkona okkar, ÓLÖF KRISTINSDÓTTIR frá Núpi, Dýrafirði, Reynimel 63, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 17. apríl. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju í dag, mið- vikudaginn 26. apríl, kl. 13.30. Guðný Kristinsdóttir, Valdimar Kristinsson, Áslaug Jensdóttir. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru dóttur, systur og sambýliskonu, ÖNNU SIGRÚNAR WIIUM KJARTANSDÓTTUR, övre Holmegade 9a, Stavanger, Noregi. Sigfríður Inga Wiium, Kjartan Smári Bjarnason, Kristján Smári Wiium Kjartansson, Chris Backman. um eins og tilhlýðilegt þótti á þeim árum. Eiginmaður Önnu Vigdísar var Baldvin K. Sveinbjörnsson apó- tekari og eignuðust þau eina dóttur, Olöfu Vigdísi. Þau hjón voru alla tíð ákaflega samhent og sýndu hvort öðru takmarkalausa tillitssemi og virðingu, þó að mér virðist þau reyndar hafa verið ólík um margt. Frænka mín var viðkvæm, blíð og hógvær, maður hennar ákveðinn og framsækinn, áhugasamur um tækni og opinn fyrir nýjungum. Heimili þeirra bar glöggan vott þessara eigin- leika þeirra beggja. Hvergi hef ég kynnst annarri eins natni ög nákvæmni í heimilishaldi og hvergi eins framandi nýjungum. Sjónvarp sá ég þar á heimilinu í fyrsta sinn og undratækið ör- bylgjuofn átti stað í eldhúsi frænku minnar löngu áður en fólki almennt hugkvæmdist að elda mat öðruvísi en sjóða hann í potti. Anna Vigdís ferðaðist víða um heim með manni sínum. A þeim árum voru utanlandsferðir langt frá því eins almennar og nú er og því mikið ævintýri að takast ferð á hendur til Ameríku eða Austur- landa nær eins og þau hjón gerðu. Sennilega hafa ferðalög þeirra reyndar verið mest að frumkvæði manns hennar, því frænka mín var heimakær kona og ekki mikið fyrir að takast á við framandi að- stæður. Utreiðar á úlfaldabaki voru t.d. áreiðanlega ekki sá ferðamáti sem þessi kyrrláta kona hefði helst valið sér - enda þóttu móður minni undur og stórmerki að sjá ljósmynd af systur sinni á þess háttar reiðskjóta. En það var lífsviðhorf Önnu Vigdísar að taka þátt í því sem maður hennar sýndi áhuga og það viðhorf hafði hún alla tíð í heiðri. Móðir Baldvins og systur hans bjuggu líka í skjóli þeirra og nágrenni og nutu ekki síður manngæsku frænku minnar en ættrækni Baldvins og elsku- semi. Á uppvaxtarárum mínum bjuggu þau Anna Vigdís og Baldvin og foreldrar mínir á svipuðum slóð- um og mikill samgangur var milli fjölskyldnanna. Allar hátíðir voru haldnar sameiginlega til skiptis á þessum tveimur heimilum, merkis- daga var minnst eða tekið á móti sameiginlegum vinum og kunningj- um. Móðir mín og frænka áttu margar sameiginlegar vinkonur frá æskuárum sínum og ræktuðu vel garð bernskuvináttunnar. Þá má líka minnast þess að stundum var tekið í spil, en Anna Vigdís var slyngur bridgespilari og þótti sú íþrótt öðrum skemmtilegri. Spila- mennskan var ein helsta skemmt- un hennar þegar hún var komin á efri ár. Frænka mín var líka glæsileg kona og hún sinnti útliti sínu af sömu nákvæmni og öðru. Þegar ég var barn dáðist ég alltaf að því hvað hún var falleg og vel klædd, ekki síður hversdags en á hátíðsidögum. Núna veit ég að slíkt útlit öðlast enginn nema með markvissri snyrtimennsku og stöðugri umhyggju. Þessir þættir í fari frænku minnar urðu líka til þess að um árabil rak hún og hafði umsjón með vandaðri snyrti- vörudeild í apóteki eiginmanns síns. Þar eins og annars staðar báru störf hennar vott nákvæmni og alúðar. Sú staðreynd hvað þeim hjónum hélst einstaklega vel á starfsfólki sínu ber gleggstan vott um hvað vel rekið fyrirtæki Holtsapótek var á þeim árum þeg- ar þau réðu þar húsum. Þegar ég heimsótti frænku mína í síðasta sinn, nokkrum vikum fyr- ir andlát hennar, lá hún í rúmi sínu og svaf, öldruð kona og varla þessa heims lengur. En hárið var greitt og húðin slétt ekki síður en á meðan hún stóð fyrir heimilis- haldi og verslunarrekstri. Með henni er nú horfinn einn þráðurinn úr þeirri uppistöðu sem myndaði nánustu fjölskyldu mína og dætra minna. Við geymum og metum minninguna um þessa góðu og tryggu frænku okkar. Hvíli hún í friði. Svanhildur Kaaber.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.