Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 27
mánudag á vegum CNN og Gallup
sýnir að mikill meirihluti aðspurðra
er óánægður með framgöngu Als
Gores, varaforseta og væntanlegs
forsetaefnis demókrata, í máli Eli-
ans. Gore hefur ekki stutt stefnu
stjórnvalda í málinu en viljað að Eli-
an fengi varanlegt landvistarleyfi í
Bandaríkjunum.
Aðgerðin tók
þijár mínútur
Aðgerð sérsveitarmannanna á
laugardagsmorguninn kom ættingj-
um Elians og stuðningsmönnum
þeirra í opna skjöldu. Meira en 130
starfsmenn INS tóku þátt í aðgerð-
inni, sem átti sér stað um klukkan
5:10 að staðartíma. Atta vopnaðir og
sérstaklega útbúnir lögreglumenn
ruddust inn á heimili ættingjanna og
miðuðu sjálfvirkum hríðskotabyssum
á húsráðendur tii að knýja þá til að
afhenda drenginn. Kona úr hópi sér-
sveitarmanna bar drenginn í fanginu
út í bifreið en á meðan var mann-
fjölda, sem haldið hefur til umhverfis
hús ættingjanna síðustu mánuði,
haldið frá með táragasi. Aðgerðin tók
aðeins um þrjár mínútur og var þeg-
ar í stað flogið með drenginn til
Washington þar sem hann hitti föður
sinn á Andrews-herflugvellinum.
Nokkrir ættingjar Elians, þeirra á
meðal 21 árs gömul frænka hans,
Marisleysis Gonzalez, sem sögð er
hafa gengið honum í móðurstað,
flugu á sunnudag til Washington og
kröfðust þess að fá að hitta drenginn.
Fulltrúar ættingjanna hafa sakað
stjómvöld um að hafa látið til skarar
skríða meðan samningaviðræður
voru enn í fullum gangi en vitað er að
skömmu áður en sérsveitarmenn
brutu upp dymar á heimih ættingj-
anna í Miami hafði Janet Reno til-
kynnt þeim að tími viðræðna væri út-
mnninn. Rétt áður en brottnámið var
framkvæmt höfðu viðræðurnar
snúist um mögulega málamiðlun sem
hefði falið í sér að bæði ættingjar Eli-
ans og faðir hans fengju að umgang-
ast hann í Bandaríkjunum um óá-
kveðinn tíma.
Marisleysis Gonzalez, frænka Elians, með mynd af brottnámi hans á
fréttamannafundi á páskadag.
AP
Fólk af kúbverskum ættum á Miami mótmæli brottnámi Elians, m.a.
með því að fleygja sorpgámum og öðru lauslegu út á götur.
bæru ábyrgð á dauða fólksins ef
fréttamönnum hefði verið leyft að
vera viðstaddir aðgerðimar.
George W. Bush, frambjóðandi
repúblikana til embættis forseta
Bandaríkjanna, sagði á mánudag að
bandarísk yfirvöld ættu að reyna að
fá Juan Miguel Gonzalez til að setjast
að og ala Elian upp í Bandaríkjunum.
„Ég vona að stjómvöld útskýri fyrir
föðumum að ef hann vill geti hann al-
ið upp son sinn í frelsi, að faðirinn
geti fengið að setjast að hér í Banda-
ríkjum Ameríku. Það er mikilvægt að
stjómvöld muni að móðirin var að
flýja til að öðlast frelsi, til að fara með
son sinn í frelsið," sagði Bush.
Skoðanakönnun sem gerð var á
Þrándur í götu
...annarra í umferðinni
Úr 3. málsgrein
27. greinar umferðarlaga
nr. 50/1987
• Eigi má stöðva ökutæki
eða leggja því á gangstétt
eða gangstíg, nema
annað sé ákveðið.
• Sama á við um umferðar-
eyjar og svipaða staði.
Lögreglan
í Reykjavík
Veður og færð á Netinu
vg>mbl.is
B ó k a
ngrásin 2000
2 6
3 0. a p r í I
Gefðu bókunum þínum
tl TTT!
Þ ú qetur hjálpað:
með því að koma til okkar og gefa bækur, gamlar
eða nýjar íslenskar eða erlendar, innbundnar eða
kiljur, fáar eða margar og leggja þar með þitt
af mörkum til styrktar góðu málefni. Og hver veit
nema þú finnir gersemar á borðum okkar...
Aðeins eitt verð
500 krónur kílóið!
QQ
Sala þessara bóka fer fram dagana
26.-30. apríl og rennur allur ágóði
óskiptur til Geðhjálpar.