Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lögreglan leitar tveggja árásarmanna
Alvarlegar líkams-
árásir um helgina
UNGLINGSPILTUR lagði til
leigubílstjóra með kjöthníf sl.
laugardagskvöld en komst undan á
hlaupum. Atburðurinn átti sér stað
á biðstöð við Hvassaleiti. Stöðvaðist
Kleifaheiði
Lægsta
tilboð 76%
af kostnað-
aráætlun
FIMM tilboð bárust Vegagerð-
inni í Barðastrandaveg um
Kleifaheiði að vestan og átti
Norðurtak ehf. á Sauðárkróki
lægsta boð, bauð rúmar 62,4
milljónir, sem er 76% af kostn-
aðaráætlun.
Aðrir sem buðu voru Völur
hf. Reykjavík, sem bauð 91,5%
af kostnaðaráætlun, Berglín
ehf. og Hjarðarholtsbræður
ehf. Hornafirði, sem buðu 99%
af áætlun, Bergbrot ehf. Kópa-
vogi, sem bauð 104% af áætlun
og Klæðning ehf. Garðabæ,
sem bauð 108,4,% af áætlun.
lagið á rifbeini bílstjórans og brotn-
aði hnífsblaðið, sem var um 20 senti-
metra langt. Að sögn lögreglu er
málið í rannsókn en ekki hefur náðst
til piltsins.
Unglingspilturinn kom að bíl bíl-
stjórans og bað um að fá skipt 5.000
krónum þar sem það hefði ekki verið
hægt í sjoppu í nágrenninu. Er bíl-
stjórinn opnaði veskið dró pilturinn
hins vegar upp hníf og heimtaði pen-
inga. Renndi bílstjórinn sér í piltinn
sem rak þá hnífinn á móti honum
með fyrrgreindum afleiðingum.
Þess varð bílstjórinn reyndar
ekki var fyrr en hann hafði reynt að
hlaupa á eftir piltinum en orðið að
hætta er pilturinn hvarf sjónum.
Bílstjórinn taldi að nokkrir vitorðs-
menn piltsins hefðu beðið eftir hon-
um skammt frá.
Brotið hnífsblaðið féll í sæti leigu-
bílsins og lögregla fann skeftið svo
seinna skammt þar frá.
Gert var að sárum bflstjórans á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Meiðsl hans reyndust ekki alvar-
legri en svo að hann hélt áfram
akstri fram eftir nóttu.
Hrottaleg líkams-
árás í Eyjum
Maður á fimmtugsaldri varð fyrir
hrottalegri líkamsárás í Vestmanna-
eyjum aðfaranótt sl. laugardags er
maður sparkaði í höfuð hans svo að
hann hlaut talsverða áverka. Árás-
armaðurinn flúði af vettvangi en
sjónarvottar gátu gefið greinargóð-
ar lýsingar á honum. Lögreglan hef-
ur boðað árásarmanninn í skýrslu-
töku og gæti svo farið að
ákæruvaldið legði sjálft fram kæru
á hendur honum þar sem talið er að
um meiriháttar líkamsárás hafi ver-
ið að ræða sem brýtur gegn 218.
grein hegningarlaga. Viðuriög geta
verið allt að 16 ára fangelsi.
Árásarmaðurinn er um tvítugt og
hefur áður komið við sögu lögreglu.
Hann mun m.a. hafa sparkað í höfuð
fórnarlambsins þar sem það lá. Lík-
amsárásin átti sér stað að nóttu til.
Veittist að konu
á Laugavegi
Á laugardagsmorgun réðst maður
á konu sem var á leið til vinnu sinnar
í fyrirtæki við Laugaveg klukkan
7.45. Maðurinn sem virtist í annar-
legu ástandi veittist að kor.unni með
hnífi. Réðst hann að konunni og
veitti henni grunna skurðáverka á
hendi en hún komst inn í fyrirtækið
og hringdi þaðan á lögreglu. Hefur
hún greinargóða lýsingu á ódæðis-
manninum en hann hvarf á braut og
er hans leitað.
Morgunblaðið/Golli
Magnús Elíasson
heiðraður fyrir
ljóðalestur
ÞEGAR Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Ástríður Thorarensen,
eiginkona hans, heimsóttu Ottawa,
höfuðborg Kanada, fyrr í þessum
mánuði heilsuðu þau upp á Vestur-
Islendinga. Meðal þeirra sem heim-
sóttu þau var Magnús Elíasson, sem
lengi var borgarfulltrúi í Winnipeg.
Magnús er orðinn 89 ára og hefur á
gamalsaldri orðið kunnur fyrir frá-
bæran flutning á ljóðum Guttorms
Guttormssonar skálds. Nokkrir vin-
ir hans tóku sig til og hljóðrituðu
upplestur Magnúsar og gáfu hann
út á disk. Á myndinni er Ástríður
að þakka Magnúsi fyrir upplestur-
inn.
Magnús kom til íslands á 200 ára
afmæli borgarinnar árið 1986 og
hitti þá m.a. Davíð Oddsson borgar-
stjóra. Hann hafði því mikinn
áhuga á að hitta hann aftur í Kan-
ada þegar forsætisráðherra var
viðstaddur upphaf landafundaaf-
mælisins. Þeir höfðu gaman að því
að spjalla, en Magnús er hins vegar
ekki sammála Davíðí stjórnmálum
og sagði við hann. „Ég þarf nú að
fara að kenna þér sitthvað í pólitík,
drengur minn.“
Á föstudaginn langa var gengin iðrunarganga frá Lögbergi að Brennugjá.
Sameinuðu þjóðirnar
Ráðherrar
funda um sjálf-
bæra þróun
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra situr ráðherrafund nefndar
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun í New York dagana 25.-28.
aprfl. Meginverkefni nefndarinnar er
að fylgja eftir framkvæmdaáætlun
um sjálfbæra þróun, sem samþykkt
var á Ríó-ráðstefnunni árið 1992.
í frétt frá ráðuneytinu segir að á
fundinum fari fram fyrsta umræða
um hvemig skuli meta árangur til
sjálfbærrar þróunar, en það mat eigi
að fara fram árið 2002 þegar tíu ár
eru liðin frá ráðstefnunni í Ríó. ís-
land hafi stutt þá stefnu að haldin
verði alþjóðleg ráðstefna af þessu til-
efni og að hún fari fram í einhverju
þróunarríkjanna ef kostur er. Þar
muni gefast mikilvægt tækifæri til að
meta árangur á þeim árum sem liðin
eru frá ráðstefnunni í Ríó og jafn-
framt til að leita leiða til að stuðla
enn frekar að sjálfbærri þróun um
allan heim.
Messa við sólarupp-
rás á páskadag
Um tvöhundruð manns fylgdust með sólarupprásinni á Þingvöllum að
morgni Páskadags.
Fíkniefni tekin
í Miðgarði
HELGIHALD var með nokkuð
óvenjulegu sniði á Þingvöllum um
páskana en á föstudaginn langa var
gengin iðrunarganga frá Lögbergi
að Brennugjá og á páskadag var
haldin messa við sólarupprás.
„Um allan heim eru haldnar mess-
ur snemma morguns á páskadag og
þama var þetta gert við sólarupp-
rás, en sólin reis um hálfsexleytið,"
segir sr. Bernharður Guðmundsson,
verkefnisstjóri Kristnihátíðar á
Biskupsstofu.
Bernharður segir að morgun-
stund þessi á Þingvöllum hafi án efa
verið ógleymanleg reynsla öllum
sem þar voru. „Tæplega 200 manns
keyrðu austur í rökkrinu á mót
hækkandi sól. Það var mjög fallegt
þarna í kyrrðinni á Þingvöllum, fjöll-
in endurspegluðust í vatninu og svo
byrjaði sólin að birtast og skoppaði
upp á bjargbrúnina. Sólin dansaði
virkilega þarna og þá höfðu menn
þessa kveðju; Kristur er upprisinn".
Þegar sólin var risin var gengið til
kirkju og haldin messa þar sem
meðal annars var lesið úr Hómilíu-
bók og páskapredikun eftir Jón
Vídalín.
Á föstudaginn langa var gengin
iðrunarganga þar sem farið var frá
Lögbergi að Drekkingarhyl, Högg-
stokkeyri og Brennugjá.
„Á hverjum stað var lesinn ritn-
ingarstaður með iðrunartón og svo
lásu allir bænavers úr passíusálm-
unum þar sem beðið var fyrir þeim
sem þarna hafa liðið,“ segir Bern-
harður.
Sauðárkrdki. Morgiinblaðið.
FJÖLMENNI var á dansleik með
hljómsveitinni Skítamóral í félags-
heimilinu Miðgarði að kvöldi síðasta
vetrardags og þurfti lögreglan að
hafa allnokkur afskipti af samkomu-
gestum vegna ölvunar og átaka sem
upp komu bæði á dansleiknum og
einnig utandyra eftir að samkomunni
lauk. Þá handtók lögreglan þrjú ung-
menni vegna gruns um fikniefna-
neyslu og fannst í fórum þeirra á ann-
MIKIÐ tjón varð af völdum elds og
reykjar í matvöruversluninni Tang-
anum á Grundarfirði aðfaranótt sl.
sunnudags. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu er talið fullvíst að eldur-
inn hafi kviknað út frá rafmagn-
stengli. Mestar urðu skemmdimar í
sjálfri versluninni en talið er að vöru-
lager hafi að mestu leyti sloppið
an tug e-taflna og nokkurt magn
annarra efna sem talin eru vera mar-
ijúana. Gistu ungmennin fanga-
geymslu lögreglunnar og var rann-
sókn málsins ekki lokið fyrr en undir
páska.
Mikil umferð var um Skagafjörð
um páskahelgina og á annan í páskum
höfðu verið teknii- á annan tug öku-
manna og sá sem hraðast ók var á um
150 km hraða og var aðeins 17 ára.
óskemmdur. Slökkvilið staðarins er í
næsta húsi við verslunina og gekk vel
að slökkva eldinn og reykræsta húsið.
Tanginn er eina matvöruverslunin
á Grundarfirði, en starfsemin var í
gær opnuð tímabundið í öðru hús-
næði í bænum. Þar hafði rekstri ann-
arrar matvöruverslunar verið hætt
fyrir nokkru síðan.
Eldur í Tanganum
á Grundarfirði