Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 67
FRÉTTIR
Skuldbindingum
Ríó-ráðstefnunnar
verði fylgt eftir
PULLTRÚAR sveitarfélaga á ráð-
stefnu staðardagskrárverkefnisins
fyrir nokkru hafa sent frá sér eft-
irfarandi ályktun:
„Vinna við gerð Staðardagskrár
21 er liður í framkvæmdaáætlun
ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra
þróun, sem byggir á samþykktum
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um umhverfi og þróun í Ríó
1992. í ljósi þess beina fulltrúar
sveitarfélaga á ráðstefnu íslenska
staðardagskrárverkefnisins í
Hafnarfirði 4. apríl 2000 þeim
eindregnu tilmælum til ríkisstjórn-
ar íslands að hún fylgi þessum
skuldbindingum eftir í nánu sam-
starfi við samtök sveitarfélaga,
með myndarlegum stuðningi við
þau sveitarfélög sem vinna að gerð
Staðardagskrár 21. Þetta verði
gert með eftirfarandi hætti:
Tryggt verði fjármagn til að
ráða starfsmann í framtíðarstarf
við samræmingu, ráðgjöf og stuðn-
ing við þau sveitarfélög sem vinna
að gerð Staðardagskrár 21. Jafn-
framt verði tryggt fjármagn til
nauðsynlegs þróunar-, kynningar-
og útgáfustarfs 1 tengslum við
starfið.
Kostnaður sveitarfélaga við gerð
Staðardagskrár 21 verði tekinn
sérstaklega fyrir í viðræðum um
verkaskiptingu og tekjustofna rík-
is og sveitarfélaga sem nú standa
yfir.
Stofnaður verði sérstakur sjóður
til að veita styrki til sveitarfélaga
vegna verkefna og fjárfestinga
sem miða að því að nálgast
markmiðið um sjálfbæra þróun.
Sérstaklega verði tekið tillit til
sérstöðu fámennra sveitarfélaga
og þeirra vandkvæða sem þau eiga
við að glíma við áætlunargerð til
langs tíma.
Veitt verði árleg viðurkenning,
íslensku staðardagskrárverðlaun-
in, til þess sveitarfélags sem best
hefur unnið að gerð Staðardag-
skrár 21. Jafnframt verði veittar
viðurkenningar fyrir áhugaverð-
ustu verkefnin sem unnið er að í
anda Staðardagskrár 21.
Lögð verði áhersla á að umsjón
með gerð Staðardagskrár 21 er
ekki aðeins verkefni ráðuneytis
umhverfismála, heldur einnig ann-
arra ráðuneyta.
Stefnt verði að stofnun sérstakr-
ar landsnefndar um sjálfbæra þró-
un (NCSD) í samræmi við sam-
þykktir Ríó-ráðstefnunnar.
Stefnt verði að undirritun yfir-
lýsingar UNEP um hreinni fram-
leiðslutækni til að undirstrika enn
frekar vilja stjórnvalda til að hafa
fyrirbyggjandi aðgerðir að leiðar-
ljósi við stefnumótun og áætlunar-
gerð.
Gerð Staðardagskrár 21 er ekki
og getur aldrei verið átaksverk-
efni, heldur er um að ræða heild-
aráætlun um þróun samfélaga
fram eftir 21. öldinni. Mikilvægi
staðardagskrárstarfsins endur-
speglast í þeirri staðreynd."
Fræðafundur
Lögfræðinga-
félagsins
LÖGFRÆÐINGAFÉ LAG íslands
stendur fyrir fræðafundi miðviku-
daginn 26. apríl nk. kl. 20.30. Fund-
urinn verður haldinn í stofu 101 í
Odda, Háskóla íslands.
Fundarefni að þessu sinni er:
Frumvarp til laga um persónuvernd
og meðferð persónuupplýsinga og
helstu breytingar frá gildandi rétti
samkvæmt lögum nr. 121/1989.
Framsögumenn verða: Páll
Hreinsson, prófessor við lagadeild
Háskóla íslands og formaður Tölvu-
nefndar, og Sigrún Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Tölvunefndar.
Að loknum framsöguerindum verða
almennar umræður og fyrii'spurnir.
-----PM-------
Fundur um átak
gegn ofbeldi
ALMENNUR félagsfundur Menn-
ingar- og friðarsamtaka íslenskra
kvenna verður haldinn fimmtudag-
inn 27. aprfl kl. 20 í MÍR-salnum,
Vatnsstíg 10 (bakhús). Þetta er
fimmti fundurinn í fundaröðinni um
Frið: Átak gegn ofbeldi.
Gestur fundarins verður Konráð
Kristjánsson, deildarstjóri á Innan-
landsskrifstofu Rauða Kross Islands.
Hann er verkefnisstjóri í verkefni
Rauða Kross íslands sem nefnt hefur
verið Átak gegn ofbeldi. Á fundinum
mun Konráð kynna verkefnið en
einnig fjalla um niðurstöður nýlegrar
rannsóknar um ofbeldi og unglinga.
Að lokinni framsögu verður boðið
upp á almennar umræður. Kaffiveit-
ingar. Öllum frjáls ókeypis aðgangur.
I tilefni af
35 ára afmæli
okkar ætlum við að bjóða
20% afslátt
af öllum vörum í
tvo daga
í dag og á morgun.
SKÓVERSLUN
KÓPAV0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 554 1754
QUELLE.
! fflSLUN, DMVEGI2
: KOPAVOGLS: 564 2000
Enn
betra verb
Höfum lœkkaö verbin í öllum listum
okkar vegna hagstœöara gengis! Þú fœrö
ekki meira úrval, þýsk gœöi eru ótvírœö og
veröiö enn betra!
I tilefni sumarkomu
Stór Space-byssa
með 8 hljóðum og
blikkandi Ijósum. Verð kr. 198.
Fótboltasett, bolti,
hanskar, pumpa.
Verð kr. 798.
Búðu til eigin hálsfesti
og armbönd.
Verð kr. 298.
Vandað barnaþríhjól.
Verð kr. 998.
Kr. 198
Sippuband.
Verð
kr. 98.
Garðsett.
Verð kr. 98.
Tennisspaðar + bolti.
Verð kr. 398.
KRINGLUNNI,
s. 588 1010
LAUGAVEGI,
s. 511 4141
KEFLAVÍK,
s. 421 1736
Allar vörur í
verslunum okkar
eru frá kr. 198
til 998
KONFEKTMÓT
páska-
GGJAMÓJ
PIPAR OG SALT
MATARLITIR
Póstsendum
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 1
Endurmenntun fyrir kennara
Vor- og sumarnámskeidin hefjast 15. maí
1. Tölvugrunnur fyrir byrjendur (60 stundir)
2. Námskeið fyrir lengra komna (40 stundir)
3. Stök framhaldsnámskeið (20 stundir hvert)
Hringdu núna í síma 561 6699 og fáðu nánari upplýsingar.
l -
Tölvuskóli Reykjavíkur
Borgartúni 28 ■ Sími 561 6699
tolvuskoli@tolvuskoli.is • www.tolvuskoli.is
Horfðu til framtíðar