Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 23
VIÐSKIPTI
Hlutabréf Kög- ^
unar skráð á YÞI
HLUTABRÉF Kögunar hf.
verða skráð á Aðallista Verð-
bréfaþings íslands á morgun,
fimmtudaginn 27. apríl, og er
skráð hlutafé 90 milljónir króna
að nafnverði.
Félagið verður tekið inn í
Heildarvísitölu Aðallista og Vísi-
tölu upplýsingatækni miðviku-
daginn 3. maí.
Kaupþing seiur eigin bréf
Samkvæmt samþykktum Kög-
unar hf. er tilgangur félagins að
annast gerð og viðhald á hug-
búnaði fyrir ratsjár- og varnar-
keríí hvers konar, auk hönnun-
ar, smíði og rekstrar á hvers
konar búnaði til rafrænnar
vinnslu. I samræmi við þennan
tilgang skal félaginu m.a. heimilt
að eiga frumkvæði að og/eða
taka þátt í stofnun, endurskipu-
lagningu og sameiningu félaga,
að kaupa hlutabréf og/eða
skuldabréf atvinnufyrirtækja,
hafa frumkvæði að samvinnu
hugbúnaðarfyrirtækja í mark-
aðsmálum, þróunarvinnu og á
tæknisviði og að taka lán til eig-
in þarfa og til endurlána.
Kaupþing hf. er umsjónaraðili
skráningar Kögunar hf. á Verð-
bréfaþing Islands, og í skráning-
arlýsingunni kemur m.a. fram að
i tengslum við skráningu félags-
ins hyggist Kaupþing hf. selja
4-5 milljónir króna að nafnvirði
af eigin hlutabréfum í Kögun hf.
Fyrirhugað er að selja bréfin í
að lágmarki einnar milljónar
króna einingum að nafnvirði til
aðila sem stunda eignastýringu
og/eða verðbréfamiðlun. Bréfin
verða seld með því skilyrði að
kaupendur selji hlutabréfin
áfram í dreifðri sölu til við-
skiptavina sinna, en Kaupþing
hf. hefur það að markmiði að
fjölga með þessu hluthöfum
Kögunar hf. um 300-700. Til-
kynnt verður um niðurstöðu af
söluáformum þessum í við-
skiptakerfi VÞI áður en hluta-
bréf Kögunar hf. verða tekin til
skráningar.
íslensk
endurtrygging hf.
Hagnaður
af rekstri
163,6
milljónir
HAGNAÐUR af rekstri ís-
lenskrar endurtryggingar hf. á
síðasta ári nam 163,6 milljónum
króna og hefur þá verið tekið til-
lit til reiknaðs tekjuskatts og
eignarskatts að fjárhæð 79,4
milljónir króna. Hagnaður fé-
lagsins árið 1998 var 85,3 millj-
ónir króna.
Eigið fé félagsins í árslok 1999
nam 675,3 milljónum króna að
meðtöldu hlutafé að fjárhæð
374,4 milljónir króna. Hluthafar í
árslok voru 59 og fækkaði þeim
um fjóra frá fyrra ári. Fjórir
stærstu hluthafarnir í árslok
voru Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., Tryggingamiðstöðin hf. og
Vátryggingafélag Islands hf. með
27,1% hlut hvert félag og Trygg-
ing hf. með 9% hlut.
Vorferðir til Prag, Noregs og Búdapest
Bjóðum spennandi vorferðir til Prag, Noregs og Búdapest með viðkomu í Vínarborg.
8. maí, 7 daga ferð: Vor í Prag
Höfum bætt við sætum vegna eftirspurnar
Flogið til Frankfurt og ekið þaðan til ævintýraborgarinnar Prag í Tékklandi. Á sjötta degi er svo ekið aftur
áleiðis til Frankfurt og gist síðustu nóttina í Þýskalandi.
Verð kr. 63.800
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður, akstur og skoðunarferð um Prag.
27. maí, 8 daga ferð: Búdapestnœð viðkomu f Vínarborg
Flogið í beinu leiguflugi til Vínarborgar °SijjSW^SEptt- Á öðrum degi er borgin skoðuð og ekið
síðan til Búdapest þar sem dvalið verðujfyQpJuígTSÍðasta daginn er svo ekið afturtil Vínarþorgar
og deginum eytt þar uns flogið verður imJ>JPfn<völdið.
Verð kr. 64.350
Innifalið í verði er ftug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður,
akstur og skoðunarferðir um Vínarborg og Búdapest.
6. júní, 10 daga ferð: Vorferð til Noregs
Enn eru sæti iaus
Flogið til Ósló, borgin skoðuð og gist þar eina nótt. Síðan er ferðast um Lillehammer til Prándheims,
Ándalsness, Förde og Bergen. Frá Bergen verður svo sigit þann 13.05. til íslands með viðkomu (
Færeyjum og tekið land á Seyðisfirði að morgni þess 15. maí. Paðan er svo ekið samdægurs til
Reykjavíkur.
Verð kr. 87.100
Innifalið í verði er flug, flugvaliaskattar, gisting, morgunverður á hótelum, allur akstur,
fargjöld á ferjum í Noregi og sigiing frá Bergen til Seyðisfjarðar.
Bjóðum einnig vikuferðir í beinu leiguflugi til Prag þann 4. og 25.
ágúst (uppseid) og til Búdapest þann 9. september.
Leitið nánari upplysinga
hjá utanlandsdeild okkar.
Guðmundur Jónassson
ferðaskrifstofa,
Borgartúni 34,
sími 511 1515.
Fjögur frábær fyrirtæki
1. Vel þekkt og vinsæl veisluþjónusta með góða aðstöðu og öil tæki
sem þarf. Mikið um góða fasta viðskiptavini. Er einnig með mat-
vælaframleiðslu. fyrirtæki með gott orð á sér fyrir frábæra þjón-
ustu og veitingar.
2. Sérverslun í miðborginni sem flytur inn allar sínar vörur sjálf og er
einstaklega vel staðsett. Sérhæfir sig í fallegum og sérkennilegum
gjafavörum og öðruvísi búsáhöldum. Verslun sem talað er um.
Selst strax af sérstökum ástæðum á mjög góðu verði.
3. Þekktur skyndibitastaður, aðallega með kjúklinga. Er hvorutveggja
take a way og hefur einnig mörg sæti. Mikið af góðum tækjum.
Mjög góð velta sem fer enn vaxandi. Frábær staður fyrir þá sem
vilja þéna peninga og nenna að vinna því nóg er að gera.
4. Og rúsínan i pylsuendanum. í ár verður meira myndað en nokkru
sinni fyrr í sögunni. Og meira framkallað. Til sölu stór og þekkt
framköllunarstofa sem einnig stækkar myndir og hefur stúdíó. Inn-
römmun á staðnum. Mikil vinna þegar byrjuð og verður út árið. Ein-
staklega góð framlegð og lítill tilkostnaður sem þýðir mikill
hagnaður. Vilt þú komast í feitt?
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRjMSSON.
.. .an narra g tm
Úr í. málsgrein
28. greinar umférðartaga
nr. 50/1987
Lögreglan
í Reykjavík
• Eigi má stöðva ökutæki
eða leggja því á vega-
mótum eða í minna
en 5 metra fjarlægð
frá næstu brún akbrautar
á þvervegi.
Bflastæðasjóður
Mikilvægasta öryggistækí hjólandi barna f umferöinni er hjólið sjálft
Veljum þaö því af kostgæfni og höfum þaö meö fótbremsum.
Hin margrómuðu Trek hjól eru framleidd fyrir krakka með öryggi og
endingu í huga. Ævilöng ábyrgö á stelli og gafflt ber vitni um þaö.