Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
95. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nasdaq
hækkar
áný
New York, Seattle. AFP, AP.
NASDAQ-hátæknivísitalan tók
stökk upp á við í gær og hækkaði um
228.64 punkta eða 6,75% og er það
önnur mesta hækkun vísitölunnar
frá því 18. apríl sl. Með þessu náði
Nasdaq, sem stendur nú í 3,711.12
punktum, að vinna upp tap sitt á
mánudag, þegar vísitalan féll um
4.43%. Þá hækkaði Dow Jones-iðn-
aðarvísitalan um 220.89 punkta í
gær, eða 2,02%, og stendur nú í
11.127.67 punktum.
15,7% fall á verðbréfum Microsoft-
hugbúnaðarfyrirtækisins átti sinn
þátt í falli Nasdaq á mánudag. Bréf
fyrirtækisins hækkuðu síðan aftur
nokkuð í verði í gær þótt ekki hafi
náðst að vinna upp tap mánudagsins.
Fregnir af að Microsoft kunni að
verða skipt upp í smærri einingar
eru taldar eiga sinn þátt í lækkun
bréfanna. Að sögn Bills Gates,
stjórnarformanns Microsoft, verður
þó barist gegn öllum slíkum tilraun-
um og sagði hann í viðtali við AP-
fréttastofuna að neytendur biðu hvað
mestan skaða yrði fyrirtækinu skipt
upp. „Windows væri ekki til í dag ef
það hefði ekki verið fyrir samvinnu
starfshópa Windows og Office,“
sagði Gates. „Það voru hugmyndirn-
ar sem kviknuðu innan fyrirtækisins
þegar ákveðið var að leita eftir nýj-
um snertifleti við neytendur sem ollu
því að við náðum að skapa Windows."
■ Róttæk tillaga/22
• •
Oldungadeildin hyggst
yfírheyra Janet Reno
Kúbverjar í Miami leggja niður
vinnu í mótmælaskyni
Washinirton, Miami. AP, AFP.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings hugleiðir nú að efna tU yfir-
heyrslna vegna valdbeitingar yfir-
valda er „Kúbudi-engurinn“ Elian
Gonzalez var tekinn frá ættingjum
sínum í Miami og færður foður sínum
á laugardag. Skoðanakannanir sýna
þó að meirihluti Bandaríkjamanna er
hlynntur þeirri ákvörðun Janet Reno
dómsmálaráðherra að senda vopnað
lið að sækja Elian.
Reno fiindaði í gær með þinginu
vegna fyrirspurna sem borist höfðu
frá báðum deUdum þess og varði þá
aðgerðimar í Miami. Hún neitaði að
ræða við fréttamenn að fundi loknum,
en öldungadeUdarþingmaðurinn og
demókratinn Patrick Keahy sagði
Reno hafa verið hlutlausa. „Lögum
var fylgt,“ sagði Leahy og kvað mUda
hlutdrægni þó enn ríkja í þingheimi.
Trent Lott, leiðtogi repúblikana í
öldungadeUd, sagði þingheim myndu
yfirheyra Reno, innflytjendaeftirUtið
og mögulega einhverja ættingja Eli-
ans í Miami í næstu viku um valdbeit-
ingu yfirvalda og Connie Maek, öld-
ungadeildarþingmaður Flórída, sagði
það áhyggjuefni að ríkisstjómin hefði
látið vopnaðar sveitir fjarlægja sex
ára barn af heimili fjölskyldu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hvatti fjölmiðla í gær til að gefa Elian
og fjölskyldu hans frið næstu daga og
hrósaði Reno og innflytjendaeftirht-
inu fyrir aðgerðimar. „Þau áttu mjög
erfitt verk fyrir höndum og það var
enga auðvelda lausn að finna,“ sagði
CUnton. „Ég er þeim þakklátur fyrir
að hafa tekist að sameina drenginn og
föður hans.“
Friðsamleg mótmæli í Miami
Þúsundir kúbverskra innflytjenda
í Miami mættu ekki til vinnu í gær til
að mótmæla því að Elian skyldi tek-
inn með skyndiáhlaupi. Hundruð fyr-
irtækja í Litlu-Havana vom lokuð og
margar götur auðar á meðan fjöldi
fólks safnaðast saman við Flagler
Street og þeytti bílflautur í mótmæla-
skyni. Víða mátti sjá límmiða með
áletrunum á borð við „Þeytið flautuna
fyrir réttlætið" og „Frelsið Elian“.
Að sögn lögreglu var útUt fyrir að
mótmæUn fæm friðsamlega fram,
þótt lögregla væri við öUu búin. „Við
vonum að þetta sé í raun og vem dag-
ur íhugunar og sorgar, líkt og
kúbverskir innflytjendur hafa boð-
að,“ sagði Bill Schwarts aðstoðaryfir-
lögregluþjónn.
■ Farið fram/26-27
AP
Kúbverskir innflytjendur í New York mótmæla því að ríkissljórnin
skyldi senda vopnaðar sveitir að sækja Elian Gonzalez til ættingja sinna.
Hundruð
minnast
Stevens
HÁTT í þúsund manns tóku í gær
þátt í minningarathöfn um David
Stevens, hvítan bónda í Zimbabwe
sem myrtur var af landtökumönn-
um. Að sögn hvítra bænda er
ástandið í landinu nokkru stöðugra
eftir að Mugabe fundaði með leið-
togum nærliggjandi ríkja á föstu-
dag. Sfjórnarandstöðuflokkurinn
MDC greindi þó frá því í gær að
tveir af stuðningsmönnum flokks-
ins hefðu verið myrtir af stuðnings-
mönnum stjómarinnar á mánudag.
AP
Tony Blair kvadd-
ur til kviðdóms
London. Morgunblaðið.
TÖLVUR fara ekki í manngrein-
arálit. Tölvan í Southwarkdóm-
húsinu í London hikaði ekki við
að senda Tony Blair kviðdóms-
kvaðningu og lét fylgja þau skila-
boð, að ef hann ekki mætti 12.
júní yrði hann að greiða sekt,
nema orsök fjarvistanna væri
frambærileg.
Bréfið var stílað á Anthony C.
Blair, Downingstræti 11, þar
sem forsætisráðherrahjónin búa
með bömum sínum. Blair þarf þó
ekki að leggja höfuðið í bleyti til
að ftnna frambærilega fjarvistar-
orsök, því sem lögfræðingur og
þingmaður er hann undanþeginn
kviðdómsskyldu. Það hindraði þó
ekki tölvuna í að senda honum
kvaðningu og það á eftir að koma
í Ijós, hvaða brögðum tölvan beit-
ir, þegar Blair mætir ekki í dóm-
húsið á tilsettum tíma.
Þetta er í fyrsta skipti sem
forsætisráðherra Bretlands er
kvaddur til kviðdóms.
Útgáfa lýðræðissinnaðra dagblaða í
Iran bönnuð og úrslit kosninga ógild
Harðlínu-
menn þrýsta á
umbótasinna
Teheran. AP, AFP.
HARÐLÍNUMENN í íran juku enn
þrýsting á Mohammad Khatami, um-
bótasinnaðan forseta landsins, er þeir
ógiltu í gær kosningu umbótasinnans
Mohammads Farrokhis á þing. Á
mánudag bönnuðu þeir útgáfu þrett-
án lýðræðissinnaðra dagblaða og
tímarita og mótmælti fjöldi náms-
manna þessum aðgerðum harðlínu-
manna í gær með fjöldafundum þar
sem Khatami var hvattur til dáða.
Námsmenn fylktu liði víða í höfuð-
borginni Teheran og í borginni Shir-
az sögðu námsmenn alla háskóla
borgarinnar verða lokaða í dag í
kjölfar fjöldafundanna í gær.
Valdamikil klerkastétt
Herferð harðlínumanna gegn
fjölmiðlum, handtaka tveggja blaða-
manna og ógilding kosningaúrslita
þykja endurspegla völd hinnar ráð-
andi klerkastéttar þrátt fyrir stórfellt
tap harðlínumanna í þingkosningum í
febrúar. Sigur umbótasinna er sagð-
ur hafa vakið harðlínumönnum ótta
og hafa þefr í kjölfarið hert herferð
sína gegn Khatami og stuðnings-
mönnum hans.
Æðstaráðið ógilti til að mynda ný-
lega úrslit kosninga um tólf þingsæti
sem umbótasinnum höfðu hlotnast,
nú síðast kosningu Farrokhis. Tveim-
ur þingsætanna hefur þegar verið út-
hlutað harðlínumönnum, en kjósa á
aftur um hin sætin tíu. Æðstaráðið
hefúr þó sagt að það muni ekki ógilda
úrslit kosningar um 30 þingsæti í
Teheran, þótt 29 sæti hafi fallið um-
bótasinnum í skaut.
„Harðlínumenn eru örvæntingar-
fullir. Þeir vilja halda fast í völd sín
jafnvel þótt það þýði að þeir skapi
hættu í landinu,“ sagði Hamid Khors-
and, einn rúmlega 300 námsmanna
sem söfnuðust saman við Khajeh
Naseer-tækniháskólann í Teheran í
gær. „Það skiptir engu hvað harðlínu-
menn gera, umbætur eru óumflýjan-
legar.“
Samstarfs-
maður
Milosevics
myrtur
Belgrad. AP.
ZIKA Petrovic, forstjóri hins rík-
isrekna flugfélags Júgóslavíu og
einn helsti samstarfsmaður
Slobodans Milosevics Júgóslavíu-
forseta, var myrtur í gærkvöldi að
því er Studio B-sjónvarpsstöðin í
Belgrad greindi frá.
Petrovie er sagður hafa verið
skotinn fyrir utan heimili sitt, en
ekki var vitað hver eða hverjir
stóðu að baki tilræðinu. Vitni
kváðust hafa heyrt skothvelli en
ekki séð til árásarmannsins.
Lögregla í Belgrad sagði í gær-
kvöldi að um hryðjuverk væri að
ræða, en vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um rannsókn málsins.
Petrovic, sem var meðlimur í ný-
kommúnistaflokki Miru Markovic,
eiginkonu Milosevics, var betur
þekktur sem vinur Milosevic-fjöl-
skyldunnar en vegna starfa sinna
fyrir flokk Markovic.
MOROUNBLAÐIÐ 26. APRÍL 2000
1
5"6 90900»0 90000