Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 63^
Subaru-sveitin
Islandsmeistari
BRIDS
B r i d s h « 11 i n
bönglabakka
MASTERCARDMÓT
Tíu sveitir t(5ku þátt í mótinu sem
haldið var 19.-22. apríl 2000.
SUBARU-sveitin sigraði í Mast-
erCardmótinu, 10 sveita úrslita-
keppni um Islandsmeistaratitilinn í
brids sem lauk sl. laugardag. í sveit-
inni spiluðu Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson auk landsliðs-
mannanna Sverris Armannssonar,
Aðalsteins Jörgensen og Matthíasar
Þorvaldssonar.
Það gekk á ýmsu í mótinu sem var
skipað mjög sterkum spilurum. Sveit
Ferðaskrifstofu Vesturlands byrjaði
mótið mjög vel og hafði forystu eftir
5 umferðir með 97,5 stig. Sveit Skelj-
ungs var helzti keppinauturinn með
90 stig og Þrír Frakkar og Flugleiðir
frakt með 80,5 stig og 80 stig. Sigur-
vegarar mótsins voru þá meðal
neðstu sveita með 66 stig og höfðu
tapað þremur af fimm fyrstu leikjun-
um. Það vakti og athygli að íslands-
meistarar síðustu tveggja ára voru
einnig neðarlega og höfðu einnig
tapað þremur leikjum.
I sjöttu umferð fór ýmislegt að
gerast. Ferðaskrifstofa Vesturlands
spilaði við íslensk verðbréf sem var
skipuð spilurum að norðan og þar
hittu þeir ofjarla sína og urðu að
sætta sig við 4,5 stig úr úr viðureign-
inni á meðan helzti keppinauturinn á
þeirri stundu, sveit Skeljungs, fékk
24 stig á móti Selíyssingum og tók
þar með afgerandi forystu í mótinu.
Sveit Skeljungs hafði nú 114 stig en
Ferðaskrifstofan 102. Fimm aðrar
sveitir voru með í baráttunni með
90-95 stig en þeirra á meðal var Sub-
aru-sveitin með 91.
í sjöundu umferðinni gerði Skelj-
ungur jafntefii á meðan Ferðaskrif-
stofa Vesturlands og Subaru-sveitin
sem loksins virtist hafa áttað sig á að
setja í fjórhjóladrifið unnu sína leiki.
í áttundu umferðinni spiluðu Skelj-
ungur og ferðaskrifstofan saman.
Þeim leik lauk með sigri Skeljungs
17,5-11,5 en á meðan saxaði sveit
Subaru enn á forskot sveitanna og
fyrir síðustu umferðina vai' staða
efstu sveita þessi:
Skeljungur 146,5
F erðaskrifstofa Vesturlands 138,5
Subaru-sveitin 138
Morgunblaðið/Amór
íslandsmeistaramir í sveitakeppni árið 2000. Frá vinstri eru Sigurður
Sverrisson, Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson, Matthías Þorvaldsson
og Aðalsteinn Jörgensen.
Þröstur Ingimarsson og Sævar Þorbjömsson
voru efstir í tvímenningsútreikningi mótsins og
fengu að launum páskaegg.
Þrír Frakkar 132,5
Samvinnuferðir/Landsýn 128
Fjórar sveitir áttu fræðilega
möguleika á sigri í mótinu. Subaru-
sveitin spilaði gegn sveit Landsban-
kans á Selfossi sem mætti vængbrot-
in til leiks þar sem þeirra sterkasti
spilari, Sigtryggur Sigurðsson, gat
ekki spilað vegna veikinda. Ferða-
skrifstofa Vesturlands spilaði gegn
Flugleiðum frakt, Samvinnuferðir/
Landsýn spiluðu við Þrjá Frakka og
Skeljungur við Norðlendingana sem
sýnt höfðu að þeir voru sýnd veiði en
ekki gefin.
Það var ljóst í hálfleik að mótinu
var ekki lokið. Subaru-sveitin var yf-
ir í sínum leik en Skeljungur og
Ferðaskrifstofan undir. Þá var einn-
ig svo komið að Þrír Frakkar voru
einnig með í keppninni um titilinn.
Reyndar kom fram hjá keppnis-
stjóm að um tíma voru Þrír Frakkar
í góðu sigurfæri í mótinu. Það kom
svo í Ijós síðar að
svo hafði ekki verið.
Hins vegar færðist
Subaru-sveitin nær
titlinum við hvert
spil sem lauk í mót-
inu. Þegar örfá spil
voru eftir treysti
enginn í salnum sér
til að spá um loka-
úrslit og loftið var
rafmagnað. Allt
gekk Jóni Baldurs-
syni og félögum
hans í hag í lokaorr-
ustunni og sigurinn
var þeirra. Otrúleg
lokastaða sem eng-
inn sá fyrir eftir
fjórðu umferð þessa
skemmtilega móts.
Lokastaðan varð annars þessi:
Subaru-sveitin 160
Skeljungur 157,5
Ferðaskrifstofa Vesturlands 157,5
Þrír Frakkar 150,5
Jóhann Þorvarðarson 142
Samvinnuferðir/Landsýn 140
íslensk verðbréf 129,5
Flugleiðir frakt 114
íslandsbanki Selfossi 92
Nýherji 89
Keppnisstjóri var Sveinn Rúnar
Eiríksson, mótsstjóri Stefanía
Skarphéðinsdóttir og tölvumeistari
Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir.
Gefin voru út 4 mótsblöð sem fyrr-
nefndir aðilar höfðu umsjón með.
I Butler-útreikningi mótsins sigr-
uðu Sævar Þorbjörnsson og Þröstur
Ingimai-sson, Jónas P. Erlingsson og
Steinar Jónsson urðu í öðru sæti og
Guðmundur Páll Amarson og Þor-
lákur Jónsson þriðju.
Arnór Ragnarsson.
Arnar og
Tómas sigra
í áskorenda-
flokki
SKAK
Félagsheimili TR
SKÁKÞING ÍSLANDS:
ÁSKORENDA-OG
OPINNFLOKKUR
15.-23. apríl 2000
ARNAR E. Gunnarsson og Tó-
mas Bjömsson urðu efstir í ás-
korendaflokki á Skákþingi ís-
lands sem haldið var um páskana.
Með þessum árangri fengu þeir
báðir réttindi til að taka þátt í
landsliðsflokki Skákþings Is-
lands, sem fram fer í haust. Ar-
angur Arnars þarf ekki að koma
á óvart, enda hefur hann teflt
mikið að undanförnu og nær und-
antekningalaust náð mjög góðum
árangri. Tómas Björnsson hefur
hins vegar teflt minna, en hann
er fyrsti félagsmaður Grandrokk
sem vinnur sér inn sæti í landsl-
iðsflokki með frammistöðu sinni í
áskorendaflokki. Stefán Krist-
jánsson varð í þriðja sæti, vinn-
ingi á eftir þeim Amari og Tóm-
asi. Stefán hefur náð góðum
árangri í áskorendaflokki undan-
farin ár og sigraði t.d. í flokknum
1998. Röð efstu manna:
1.-2. Arnar E. Gunnarsson,
Tómas Björnsson 7V4 v. 3. Stefán
Kristjánsson 6‘/2 v. 4.-5. Davíð
Kjartansson, Kjartan Guðmunds-
son 6 v. 6.-9. Jón Árni Halldórs-
son, Guðjón H. Valgarðsson, Ól-
afur Kjartansson, Sævar
Bjarnason 514 v. 10.-14. Sigurður
P. Steindórss., Jóhann H. Ragn-
arsson, Bjarni Magnússon, Grím-
ur Daníelsson, Víðir S. Petersen
414 v. o.s.frv. Þegar litið er yfir
þennan lista vekur góð frammi-
staða þeirra Kjartans Guðmunds-
sonar og Ólafs Kjartanssonar at-
hygli. Þá er einnig gaman að sjá
hversu góðum árangri Bjarni
Magnússon, aldursforseti móts-
ins, nær.
Dræm þátttaka í mótinu olli
vonbrigðum, en aðeins tóku 26
skákmenn þátt í því. Af þeim sök-
um greip skákstjóri til þess ráðs
að sameina áskorenda- og opinn
flokk, en það hefur ekki verið
gert áður.
Færeyska
meistaramótið
Það er vinsælt að halda meist-
aramót um páskana og Færey-
ingar héldu vel sótt mót 15.-22.
apríl. Alls tóku 58 skákmenn þátt
í mótinu, þar af 10 í meistara-
flokki. Þrír urðu jafnir og efstir í
meistaraflokki: John Rodgaard,
Flóvin Þór Næs og Torbjorn
Thomsen. Þeir hlutu 614 vinning
af 9 mögulegum. Þeir verða því
að tefla til úrslita um meistara-
titil Færeyja.
Danska
meistaramótið
Danir héldu meistaramót sitt
um páskana eins og venja er til.
337 skákmenn tóku þátt í mótinu
í fjölmörgum flokkum, þar af
tefldu 9 í landsliðsflokki, en Bent
Larsen varð að hætta í mótinu
vegna veikinda. Curt Hansen
sigraði í landsliðsflokki og er því
skákmeistari Danmerkur. Röð
efstu manna í flokknum varð
þessi:
1. Curt Hansen 6 v.
2. Peter Heine Nielsen 514 v.
3. -5. Lars Schandorff, Henrik
Danielsen og Lars Bo Hansen 414
v.
Karpov í Kína
Eftir sigur Karpovs gegn Xie
Jun dvaldist hann áfram í Kína
og tefldi annað stutt einvígi. Að
þessu sinni mætti hann kínverska
stórmeistaranum Ye Jiangchuan
(2.616). Tefldar voru fjórar skák-
ir, tvær kappskákir og tvær at-
skákir. Jafntefli varð í kappskák-
unum, en Karpov vann báðar
atskákirnar. Úrslitin urðu þvi
3-1, Karpov í vil.
Skákmót á næstunni
28.4. Skemmtikvöld skák-
áhugamanna
28.4. SA. 15-mín. mót
30.4. SÁ Fischer-klukkumót
Daði Orn Jónsson
SUÐLl R L ANDSÐRAUT 2 6
O 5 6Q 1950
TEPPABUÐIN
2 /r
hdsindraðar,
frostþolnar
postulínsf lísar
þykkt: 8,5 mm.
5 mismunandi litir.
30 x 30 & 20 x 20 sm.