Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 68
68 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 Nú er tækifærið... til að eignast ekta pels Öðruvísi Ijós og klukkur Síðir leðurfrakkar Handunnir dúkar og rúmteppi Sófasett og þrjú borð á aðeins kr. 157.000 Viðskiptanetið Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 Sigurstjama Aðalfundur Samtaka um tónlistarhús verður haldinn miðvikudaginn 3. maí nk. kl. 20.00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, 4. hæð. Dagskró samkvæmt félagslögum. Stjórn Samtaka um tónlistarhús BlOflex seguldýnur með BlOflex segulbúnaði Eigum fyrirliggjandi 12 sýningardýnur sem við seljum með 10.000 kr. afslætti. Upplýsingar og pantanir hjá i&d ehf. í síma 588 2333 og 588 2334 í dag og á morgun. Árið 2000 Veldu ^Jeit i n y a k ú s mánaðarins * * * ■m ■~k ^ og þú gætir unnið kvöldverð fyrir tvo! _______________________________________________________ Sendist til: Morgunblaðsins, merkt "Veitingahús mánaðarins''. Kringlunni 1, 103 Reykjavík Veitingahús mánaöarins er: -k * m Nafn: Kennitala: Sími: Heimilisfang: Umsögn: Wi Einnig hægt aö velja á ieclandic-chefs.is Gildir út áriö 2000. Skilist fyrir 1. hvers mánaöar. YK J AVÍ K MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ættleiðingar barna ÉG hreinlega get ekki orða bundist vegna með- ferðar Alþingis á máli sem snertir mjög hagsmuni barna. Það hefur verið nánast ótrúlegt að fylgjast með umfjöllun Alþingis um ættleiðingar. Börnin hafa hreinlega verið gerð að skotspóni pólitískra hagsmuna. Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem fylgst hafa með meðferð málsins að umræðan á Al- þingi og annars staðar hefur tekið hagsmuni samkjmhneigðra fram yfir hagsmuni barna. Málefna- leg og fagleg umfjöllun hefur verið nánast engin. Fáir virðast hugsa dæmið til enda og hugleiða lang- tímaafleiðingar þess að leyfa samkynhneigðum að ættleiða börn. Einungis ,já“ aðilar hafa fengið að fjalla um málið en þeir sem eru á öndverðri skoð- un hafa ekki fengið að tjá sig um þetta viðkvæma en alvarlega mál. Þeir eru kallaðir fordómafullir og vondir menn. Meira að segja Alþingismenn leyfa sér svona orðalag. Svona málflutningur hlýtur að vera merki um það að menn hafa ekki sterkan málstað. Mikið hefur verið um rangar upplýsingar og þær hafa oftast komið frá hlutdrægum aðilum. Sú fullyrðing hefur komið fram að það sé ekki endi- lega það besta fyrir börn að alast upp hjá móður og föður. Sannleikurinn er sá að rannsóknir sýna að það sé að öllu jöfnu best fyrir þau að alast upp hjá móð- ur og föður. Pagfólk veit þetta fullvel, en hefur samt þagað þunnu hljóði. Krafan um ættleiðingu samkynhneigðra hefur ekki komið frá fulltrúum hagsmuna barna heldur öðrum hagsmunaaðilum. Börn eru ekki vamingur sem á að útdeila eftir ein- hverju jafnréttissjónar- miði. Þessi mál þurfa miklu betri umfjöllun og ég vona að alþingismenn sjái sóma sinn í að með- höndla þetta á réttum for- sendum. Hér er um fram- tíðarkynslóðir að ræða og hugsanlegar afleiðingar verður að skoða miklu ít- arlegar. Þ.M.S. Rusl í Reykjavík ÞAÐ er hræðilegt að sjá þessa dagana hversu mik- ið rusl er í borginni. Plastpokar svífa um í vindinum og bera við blá- an himin og alls kyns drasl liggur um alla borg. Ég hef heyrt að kattaveið- arnar frægu hafi kostað borgina 3 milljónir. Ég hef líka heyrt að kettirnir hafi komið fárveikir heim ofan af Kattholti. Er það kannski vegna þess hversu lengi þeir urðu að dúsa í búrunum í kuldan- um og frostinu í vetur? Hefði ekki verið nær að nota peningana til þess að sópa göturnar. Göturnar eru í mjög slæmu ásig- komulagi og hafa verið það lengi. Hornin á gang- stéttarhellunum rísa upp og er víða og einnig í mið- bænum mikil slysahætta af þessu. Ég vona að borgin bregðist skjótt við og lagi þetta sem allra fyrst. Sigrún. Barnaefni á réttum tíma ÉG er 10 ára strákur og ég vil gjarnan hafa barna- efnið í Ríkissjónvarpinu á réttum tíma. Fullorðna fólkið vill hafa allt í röð og reglu og mér finnst þetta flokkast undir það. Mér finnst alveg út í hött að barnaefninu sé sleppt vegna einhverra íþrótta, s.s. handbolta, fótbolta eða formúlu 1. Ég vona að þetta verði tekið til greina. Með kveðju, Daði Kristján Vigfússon. Tapað/fundið Sérsmíðuð hálsfesti týndist HÁLSFESTI týndist í Drápuhlíð, Kringlunni eða Hafnarfirði á aðfangadag. Þetta er sérsmíðaður skartgripur, gróf keðja úr brenndu silfri og niður úr henni hanga þrjú men, tvö gullmen með steini og eitt úr brenndu silfri lagt gulli. Hálsfestin hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann. Góð fund- arlaun. Skilvis finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 552- 0054 eða 692-9140. Svartar skíðabuxur týndust á Andrésar Andarleikunum SVARTAR Ozon-skíða- buxur skiluðu sér ekki of- an úr starti eftir keppni 11 ára úr stórsvigi laugar- daginn 15. apríl sl. Eiga- ndinn heitir Valur og keppir fyrir Víking og er hugsanlegt að buxurnar hafí farið með fötum ann- arra liða. Þrátt fyrir ítrek- aða leit fundust þær ekki. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 557-4478 eða 694-4886. íþróttataska tekin í misgripum ÍÞRÓTTATASKA var tekin í misgripum á Um- ferðarmiðstöðinni í Reykjavík fóstudagskvöld- ið 14. apríl sl. I töskunni voru barnaföt. Taskan var merkt Dagur. Upplýsing- ar í síma 566-7711 eða töskunni skilað á Umferð- armiðstöðina í Reykjavík. í óskilum á háls-, nef og eyrnadeild REIÐSTÍGVÉL og gullhringur eru í óskilum á HNE Landsspítala, Fossvogi. Upplýsingar í síma 525-1375. Dýrahald Persneskur köttur týndist GOLDEN persneskur inniköttur hvarf frá Ás- vallagötu 6, Reykjavík, að- faranótt miðvikudagsins 18. apríl sl. Hann er eyrnamerktur. Upplýsing- ar í síma 551-0696 eða 696-4596. Nala er týnd NALA er 4ra mánaða ljós og dökk appelsínugul og ofsalega kelin kisa. Hún hvarf frá Ásvallagötu 59. Ef þú hefur séð hana vinsamlega hafðu sam- band í síma 551-0655. Hennar er sárt saknað. Skotta týndist frá Hólavallagötu SVÖRT og hvít 6 mán. læða með gráa hálsól og rautt merkispjald týndist sl. þriðjudag frá Hóla- vallagötu 9. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 552-0375 eða 896-3351. SKAK IJmsjóii Helgi Áss Grétarsson í NÍTJÁNDA Reykjavík- urskákmótinu tóku mörg undrabörn þátt, bæði núver- andi og fyrrverandi. Með- fylgjandi staða er frá viður- eign tveggja kynslóða slíkra skákmanna, 16 ára rúss- neska stórmeistarans Alex- ander Grischuk, hvítt, (2581) og enska stórmeistarans Nigels Shorts (2683). Sá fyrmefndi hafði með síðasta leik sínum hugsað sér gott til glóðarinnar þegar hann tók riddara svarts á f5 með 32. Hf6xf5 en ef svartur tekur hrókinn til baka er hvítur með pálmann í höndunum eftir 33. Dxg3. Sá enski hafði þó ráð undir rifi hverju og neyddi andstæðing sinn til uppgjafar eftir 32...Dxh3!+ þar sem eftir 33.gxh3 Hhxh3 er hvítur mát. Svartur á leik Víkverji skrifar... BORGIN hefur komið illa undan vetri, var boðskapur stjóm- enda Reykjavíkurborgar fyrir páskana. Var staðhæft að malbik væri illa farið, ýmsar skemmdir hefðu orðið vegna snjómoksturs og annars rasks og mikið msl hefði komið fram þegar snjóa leysti. Það myndi kosta borgarsjóð milljónir að færa þetta allt í samt lag. Erfitt er að ráða við náttúmna og við verðum að axla þá byrði að búa á norðlægum slóðum og þurfa að þola óþægindi og kostnað vegna veðurfarsins að vetrarlagi. Víkverji varpar hins vegar fram enn á ný til umhugsunar hvort huga þurfi að breytingum á notkun nagladekkja, nú þegar bíleigendur em vonandi allir sem einn búnir að skipta yfir á mjúk og góð sumardekkin. Er það ekki löngu ljóst að saltaustur og nagladekk eiga mestan þátt í sliti á malbikinu? Fýkur ekki svo og svo mikið af götunum hreinlega burtu vegna þess að naglar og salt róta slitlaginu burtu? Getum við ekki farið neina aðra leið en að nota nagladekk í hálkunni? Yrði „allt vitlaust“ ef við slepptum nagla- dekkjunum alveg, borgin hætti að salta götur og menn ækju þess í stað hægar þá fáu morgna sem nagladekkin kæmu virkilega í góð- ar þarfir? Þetta þýddi að menn yrðu að fara fyrr af stað á morgn- ana og taka sér meiri tíma til að komast leiðar sinnar þar sem um- ferðin gengi væntanlega hægar fyrir sig. Sjá tryggingafélög fyrir sér stóraukið tjón ef þessi leið yrði prófuð? Það væri að minnsta kosti nógu fróðlegt að gera tilraun og sjá hvort það myndi breyta einhverju varðandi viðhald gatna. Og fyrst minnst var á trygginga- félögin mætti líka varpa því fram hvort þau geti ekki komið meira fram varðandi ábendingar og for- varnir í ýmsum málum. Þau hafa tekið á ýmsum þáttum og jafnvel stundað ýmsar rannsóknir og at- huganir en Víkverji hefur grun um að það hafi ekki farið mjög hátt og slíkt starf kannski ekki verið svo fyrirferðarmikið. Sjóvá-Almennar hefur rekið klúbb fyrir unga öku- menn sem er til fyrirmyndar. Þar hefur verið fjallað um ýmsan vanda sem við er að glíma í umferðinni og ökumönnum veittar ýmsar ráðlegg- ingar umfram það sem mögulegt er í sjálfri ökukennslunni. Væri ekki hugsanlegt að tryggingafélög gerðu meira í þessum efnum? Ymis vandamál hafa sprottið upp sem tengjast Netinu og notkun þess. Eitt þeirra sem nú er til umræðu er notkun safna, Þjóðminjasafns, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og slíkra aðila, á myndum sem þau hafa í fórum sínum. Má safn veita eða selja hverjum sem er aðgang að slíkum myndum? Má það selja aðgang að sumum myndum en ekki öðrum? Þarf að leita samþykkis þeirra sem á myndunum eru? Þarf að leita samþykkis ljósmyndarans, hvort sem hann er atvinnumaður eða áhugaljósmyndari? Þannig mætti áfram spyrja. Fram hefur komið að Tölvunefnd telur að fara verði varlega með upplýsingar sem þessar á Netinu þar sem mannamyndir teljist til einkamál- efna. Það virðist nokkuð réttsýnt og í öllu falli hlýtur að þurfa að fara varlega með slíkt efni og varla rétt að bjóða almennan að- gang að því á auðveldan hátt. Þeir sem hins vegar vilja eða þurfa að- gang að slíkum myndum og geta sýnt fram á það með rökum, að- standendur, viðkomandi menn eða slíkir, hljóta að geta fengið þjón- ustu hjá þessum aðilum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.