Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Kúabændur í Flóanum brugðu undir sig betri fætinum
Nýjasta
tækni í fjós-
byggingum
skoðuð
Gaulverjabæ - Kúabændur í
Gaulverjabæjarhreppi og Arborg
fóru í skoðunar- og kynnisferð um
nærsveitir á milli mála nýlega.
Urðu bændur margs fróðari um
nýjustu tækni í fjósbyggingum og
innréttingum.
Nautgriparæktarfélögin á Suð-
urlandi eru víða mjög virk og al-
gengt að bændur bregði sér saman
af bæ og kynni sér hvernig starfs-
bræðrum búnast í nágranna-
byggðum og héruðum. Talsvert er
um framkvæmdir, viðhald og
breytingar á byggingum hjá kúa-
bændum og ríkir bjartsýni í grein-
inni nú um stundir.
Byrjað var að skoða fjósið hjá
Guðmundi Lárussyni og Þorvarði
Guðmundssyni á Stekkum. Þar var
eldra fjósi með hefðbundnum bás-
um breytt sl. haust í lausagöngu
með legubásum en áður var
byggður mjaltabás við fjósið.
Einnig nota þeir tölvustýrðan
kjarnfóðurbás sem skammtar
hverri kú eftir skynjara sem fes á
sérstakt háfsband sem hver kýr
hefur. Því næst var haldið tif Þor-
valdar kúa- og ferðaþjónustu-
bónda að Laugabökkum. Hann
kvaðst í gamni sagt mjólka bæði
kýr og ferðamenn og nóg væri að
gera. Hjá honum er mjög snyrti-
legt og nýtt fjós með ferða-
mennskuna einnig í huga.
Næst var keyrt upp í Gnúpveija-
hrepp og skoðað nýjasta fjósið í
Árnessýslu að Hlíð í Gnúpveija-
hreppi. Er það glæsileg bygging
búin nýjustu útfærslum í innrétt-
ingum og mjaltabás með tölvu-
stýrðum mjaltatækjum. Kvað
Tryggvi Steinarsson þau hjónin
hafa verið í eldra fjósi sem þurfti
mikið viðhald svo annaðhvort
hefði dregið að því að hætta eða
ráðast í nýframkvæmdir. Endað
var síðan á bænum Læk í Hraun-
gerðishreppi þar sem viðbygging,
einungis með legubásum, var
byggð við lausagöngu. Samkvæmt
Evrópusambandsreglugerð er nú
ekki hægt að hafa kýr í lausa-
göngu eingöngu og er veitt nokk-
urra ára aðlögun til að breyta fjós-
um og bæta við bás á hveija kú.
Þorsteinn Ágústsson, formaður
Nautgriparæktarfélags Gaulveija-
bæjarhrepps, kvaðst ánægður með
ferðina og þátttakendum hefði
þótt hún fróðleg.
GEBERIT
Blöndunartæki
Rafeindastýrt, snertifrítt
blöndunartæki. Hentar sérlega
vel fyrir matvælaiðnaö, læknastofur,
veitingastaði o.fl. Einnig fyrir heimili.
Geberit - Svissnesk gæði
TCHGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sfmi: 5641088 • Fax: 564 1089 • tengi.is
Morgunblaðið/V aldimar Guðjónsson
Þátttakendur í dagsferð kúabænda í Gaulverjabæjar- og fyrrum Stokkseyrarhreppi.
Morgunblaðið/V aldimar Guðjónsson
Tryggvi Steinarsson bóndi í Hlíð í Gnúpveijahreppi steig uppá heyrúllu og ávarpaði hópinn.
Fjölmenni var á fundinum. Skipt var í umræðuhópa.
Morgunblaðið/GPV
Viðurkenn-
ingar fyrir
frumkvæði
og áræði
Egilsstöðum - Framfarafélag
Fljótsdalshéraðs og Landsbanki ís-
lands veittu þremur einstaklingum á
Héraði og Borgarfirði eystri viður-
kenningu fyrir frumkvæði og áræði í
atvinnumálum.
Ein þeirra er Lára Vilbergsdóttir,
framkvæmdastjóri Randalín, en hún
ásamt fleirum stofnaði handverks-
húsið fyrir u.þ.b. sjö árum og hefur
rekið það síðan. Lára hefur ennfrem-
ur lagt af mörkum vinnu við að skoða
möguleika á því að koma á laggimar
handverksnámi á Austurlandi. Fyr-
irtækið sem hún stýrir, Randalín, er
nú í sameiginlegum rekstri við fleiri
aðila á Héraði undir nafninu Hús
handanna.
Annar er Björn Kristleifsson arki-
tekt, sem fékk viðurkenningu fyrir
húsagerðarlist sína á Egilsstöðum,
svo og fjölbreytt félagsstarf á Egils-
stöðum en hann stýrði íþróttafélag-
inu Hetti til margra ára, hefur verið í
forsvari fyrir körfuknattleiksdeild
félagsins, stofnaði brúðuleikhús og
hefur verið formaður Myndlistarfé-
lags Fljótsdalshéraðs í mörg ár, auk
annarra félagsstarfa.
Sá þriðji sem hlaut viðurkenningu
er Karl Sveinsson. Karl er Borgfirð-
ingur og lét snemma til sín taka í at-
hafnalífi þar en hann stundaði þar
aligæsarækt og kom upp sláturhúsi
vegna hennar. Karl hefur stundað
útgerð og fiskvinnslu og fyrirtæki
hans tók við sem helsti atvinnuveita-
ndinn ó Borgarfirði eystra þegar
KHB lagði niður fiskvinnslu sína
þar. Karl fékk viðurkenningu fyrir
að reynast hugmyndaríkur fyrir sitt
byggðarlag og áræðinn í að feta nýj-
ar slóðir.
------UM--------
Reykskynj-
ari bjargar
mannslífí
Skagaströnd - Enn einu sinni bjarg-
aði reykskynjari mannslífi þegar
Magnús Hjaltason vaknaði við flaut-
ið í skynjaranum heima hjá sér á
Skagaströnd um níuleytið að morgni
föstudagsins langa. Kviknað hafði í
potti á eldavélinni og var húsið orðið
fullt af reyk þegar Magnús vaknaði.
Hann hljóp út og kvaddi slökkviliðið
á staðinn sem fjarlægði logandi pott-
inn og reykræsti síðan húsið.
Veggurinn á bak við eldavélina er
úr asbesti og er talið að það hafi
komið í veg fyrir að eldurinn í pottin-
um hafi breiðst út. Skemmdir á hús-
inu urðu óverulegar nema vegna sóts
og reyks.
„Ég var að sjóða mér kjötbita en
gleymdi mér og sofnaði. Ég vaknaði
svo við pípið í skynjaranum en hélt
fyrst að þetta væri vekjaraklukkan
og reyndi að stoppa hana. Þegar píp-
ið hætti ekki þá áttaði ég mig hvers
kyns var og flýtti mér út,“ sagði
Magnús sem nýlega er fluttur í um-
rætt hús og lét það þá verða sitt
fyrsta verk að kaupa sér reykskynj-
ara og setja hann upp.
Fjölmennur fundur með foreldrum skólabarna í Grindavík
Einsetinn skóli næsta vetur
Grindavík - Grunnskólinn í Grinda-
vík verður einsetinn næsta skólaár.
Ekki er skólinn þó fullbúinn en
skólaárið 2001-2002 verður loka-
hnykkurinn þegar sérgreinastofur
ýmsar verða teknar í notkun.
Af þessu tilefni var fundur með
foreldrum nemenda í Grindavík og
öðrum áhugasömum um einsetinn
skóla, samfelldan skóladag og fleira.
Þeir sem stóðu fyrir fundinum voru
foreldraráð og foreldra- og kennara-
félagGG.
Fram kom í máli skólastjórans,
Gunnlaugs Dan, að hugtökin sem svo
mikið eru í umræðunni eru ekki allt-
af á hreinu og fór hann því lítillega
yfir helstu hugtökin, s.s. einsetinn
skóla, samfelldan skóladag og heils-
dagsskóla. Að því loknu var fundar-
mönnum sem voru rúmlega 100 skipt
upp í fimm vinnuhópa sem fjölluðu
um námsaðstoð/heimanám, skólasel,
matar-og næðisstund, vetrarfrí og
upphaf skóladags. Hópamir voru
misstórir en skoðanaskiptin voru
greinilega af hinu góða því sitt sýnd-
ist hverjum.
I lok fundarins voru niðurstöðurn-
ar síðan dregnar saman og meðal
þess sem kom fram var að skólaselið
þyrfti að vera opið í skólafríum og á
starfsdöguin. Anægja með núver-
andi fyrirkomulag á vetrarfríum sem
er 3 dagar í frí hjá nemendum í nóv-
ember og aftur í febrúar en nauðsyn-
legt að skólasel sé opið. Þá var mikil
andstaða við hugmyndir um að
greiða fyrir heimanámsaðstoð og
svokallað „Smartkort“.