Morgunblaðið - 06.05.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 33
Borgarleikhúsið
Fimm leikarar
ráðnir
GUÐJÓN Peder-
sen, leikhússtjóri
í Borgarleikhús-
inu, hefur ráðið
fimm leikara á
fastan samning
við leikhúsið eftir
að nær 100 leik-
arar sóttu um
stöðurnar í vet-
ur. Leikararnir
eru Bergur Þór
Ingólfsson, Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir, Katla Margrét Þorgeirsdótt-
ir, Ólafur Darri Ólafsson og Þór
Tulinius. Guðjón sagði fyrir lægi að
fara yfir allt skipulag leikhússins og
á næstu 2 árum mætti vænta frek-
ari breytinga en í þær yrði farið
með gát.
Benedikt Erlingsson
og Hilniir Snær leikstýra
Aðspurður um verkefni á næsta
vetri sagði Guðjón að fyrir lægi að
fyrsta frumsýning næsta leikárs
yrði nýtt leikrit Hallgríms Helga-
sonar, Skáldanóttin, í leikstjórn
Benedikts Erlingssonar. Þá ætlar
Guðjón að stjórna sjálfur uppfærslu
á Lé konungi eftir Shakespeare og
Hilmir Snær Guðnason mun leik-
stýra gamanleikritinu „Abigails
party“ eftir Mike Leigh. Þá mun
Kjartan Ragnarsson leikstýra við
Borgarleikhúsið en hann hefur
starfað við Þjóðleikhúsið og erlend-
is undanfarin ár. Þá segir Guðjón
að leikritið Beðið eftir Godot eftir
Samuel Beekett verði væntanlega á
verkefnaskránni næsta vetur.
Ingvar E. Sigurðsson með LR
Fleiri leikarar en áður voru taldir
munu koma við sögu í Borgarleik-
W' 1» í JB
Ólafur Darri Ólafsson Katla Margrét Þorgeirsdóttir
i 7** ■( jfí3Lj|-' v m ■; . | .
Jóhanna Vigdís Þdr H.
Arnarddttir Tulinius
húsinu næsta vetur og þar má
helstan telja Ingvar E. Sigurðsson
sem hefur sagt upp samningi sínum
við Þjóðleikhúsið og mun að sögn
Guðjóns taka þátt í verkefnum í
Borgarleikhúsinu á vetri komanda.
Guðjón segist hafa lagt fram eins
konar óskalista að verkefnum
næstu tveggja ára og þeirra á með-
al eru Tveggja þjónn eftir Carlo
Goldoni, Eftirlitsmaðurinn eftir
Gogol, Kirsuberjagarðurinn og Iv-
anov eftir Tsékov, Vozzek og ein-
hver leikrita Strindbergs en fæst
leikrita hans hafa enn verið sýnd í
íslenskum leikhúsum. „Þetta er
meðal þess sem okkur langar til að
gera en ýmislegt fleira er í gangi en
hér er talið og það mun koma í ljós
þegar þar að kemur, “ sagði Guðjón
Pedersen leikhússtjóri.
Bergur Þór
Ingólfsson
Morgunblaðið/Garðar P Vignisson
Atriði úr leiksýningu LA-GÓ hópsins á biðlum og brjóstahöldum.
Biðlar og brjóstahöld
Grindavfk. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAGIÐ LA-GÓ frumsýndi
á dögunum leikritið „Biðla og
brjóstahöld" eftir Claude Magmier.
Alls eru það 10 leikarar sem sýna í
þessari leiksýningu undir leikstjóm
Skúla Gautasonar. „Þetta er áhuga-
samur hópur, klárir krakkar og ég
er mjög ánægður með útkomuna,"
sagði Skúli þegar blaðamaður hafði
samband við hann. Aðalhlutverkin
eru í höndum þeirra Hennanns
Rúnars Helgasonar sem leikur bið-
ilinn Kristján Martin og Boga Hall-
giámssonar sem leikur forstjórann
Brand Barnier. Eins og í öllum
ærslaleikjum er hér mikið um mis-
skilning en leikritið hefst á því að
ungur maður (Kristján Martin)
kemur til forstjórans (Brands Barn-
ier) og biður um mikla launahækk-
un en forstjórinn fellst á beiðnina
þegar hann heldur að helsti kepp-
inauturinn sé að bera víur í piltinn.
Þegar ungi maðurinn hefur fengið
sína launahækkun biður hann um
hönd dóttur forstjórans og dóttir
forstjórans segist vera ólétt eftir
þann sem hún er ástfangin af.
Þetta er þriðja árið sem leikhóp-
urinn LA-GÓ starfar saman að
leiksýningu og ljóst að hópurinn er
búinn að slíta barnskónum.
Samkór Vestmannaeyja
upp á land
SAMKÓR Vestmannaeyja vísiterar
Reykjavík og heldur tónleika í
Digraneskirkju í Kópavogi í dag,
laugardag, kl. 17. Samkór Vest-
mannaeyja var endurvakinn fyrir
tæpum sex árum þegar Bára Gríms-
dóttir, stjórnandi kórsins, flutti til
Vestmannaeyja. A efnisskránni eru
Eyjalög eftir Oddgeir Kristjánsson,
Arnþór Helgason o.fl., íslensk þjóð-
lög og dægurlög, erlend lög m.a. eftir
Bítlana, lagasyrpa eftir Paul Simon
og djasslög. Einnig flytur kórinn lag
eftir stjórnandann, Báru Grímsdótt-
ur, sem og nokkur lög sem eru í út-
setningu hennar. Undirleikari á tón-
leikunum er Helga Laufey
Finnbogadóttir. Einsöngvari er
Eyvindur Steinarsson. Kynnir Ólaf-
ur Týr Guðjónsson.
I Samkór Vestmannaeyja eru um
30 manns. Kórinn heldur svo sína ár-
legu vortónleika í Eyjum 17. maí nk.
Horfðu reiður um öxl í Þjóðleikhúsinu
ÆFINGAR hófust í Þjóðleikhúsinu
á fóstudag á breska leikritinu
Horfðu reiður um öxl (Look back in
anger) eftir John Osborne í þýðingu
Thors Vilhjálmssonar. Frumsýning
er fyrirhuguð á Litla sviöinui sept-
ember. Leikendur eru Elva Ósk Öl-
afsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hall-
dóra Björnsdóttir, Hilmir Snær
Guðnason og Rúnar Freyr Gfslason.
Leikstjóri er Stefán Baldursson og
leikmynd og búninga hannar Þór-
unn Sigríður Þorgrímsdóttir.
Horfðu reiður um öxl þótti valda
tímamótum í breskri leikritun á
sjötta áratugnum. Leikritið er
gjarnan talið marka upphaf nýrrar
bylgju í bresku leikhúsi þar sem
áherslan var lögð á kjör alþýðu
manna og raunsæi og framsetningu.
Leikritið var flutt í Þjóðleikhúsinu
1958 og þá var.Gunnar í hlutverki
Jimmys Porters, þess hlutverks sem
Hilmir Snær fer með núna.
Risastór skjámynd
TOJVLIST
Háskólabíó
SINFÓNIUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir
Tsjaikovskij og
Camille Saint-Saens
Einleikari: Erling Blöndal
Bengftsson
Stjórnandi: Rico Saccani.
NÚ er tæknin að ná því marki, að
t.d. fjarkennsla er að taka við af
hefðbundnu skólastarfi og í framtíð-
inni verður allur lærdómur ef til vill
unninn í heimahúsum. Hugsanlegt
er, að fjarskiptatæknin smám saman
yfirtaki allt og að lifandi tónlistar-
flutningur muni brátt heyra sögunni
til, eitthvað því líkt og átti sér stað á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í gærkveldi, er Hörður Áskels-
son lék á Klais orgel Hallgríms-
kirkju með Sinfóníuhljómsveit
Islands, staðsettri í Háskólabíó. Að-
ur en orgelsinfónían var flutt, nefndi
stjórnandinn Rico Saccani það, að ef
til vill yrði næsti flutningur sinfón-
íunnar í nýrri tónlistarhöll og þá með
orgeli á staðnum og fögnuðu áheyr-
endur ræðu hans með lófataki.
Tónleikarnir hófust á samleik Erl-
ings Blöndals Bengtssonar og Sin-
fóníuhljómsveitar Islands, í Rókok-
kó-tilbrigðunum op. 33, eftir
Tsjaikovskij. Heyra má í temanu að-
dáun Tsjaikovskij á Mozart, og ekki
síður í þeim sjö tilbrigðum og ritorn-
ell-milliþáttum sem fylgdu. Leikur
Erlings Blöndals Bengtssonar var
glæsilegur, þar sem hvergi bar á
skugga í margbreytilegum tónlínum
verksins, hvort sem tilbrigðin voru
hægferðug eða þar sem meira var
umleikis hvað snertir tækni.
Annað verkið á efnisskránni var
sellókonsert op. 33, eftir Camille
Saint-Saéns. Þessi konsert er æði
misjafnt verk en einkar glæsilegur,
upphafskaflinn var mjög vel fluttur
og var það í raun stórkostlegur flutn-
ingur sellósnillingsins, Erlings
Blöndals Bengtssonar, sem gaf verk-
inu glæsilegan svip.
Lokaverk tónleikanna var þriðja
sinfónían op.78, eftir Camille Saint-
Saéns, sem stundum er nefnd or-
gelsinfónían. Tónskáldið gerði ekki
mikið úr hlut orgelsins í prógramm-
nótum sínum, enda ber ekki að líta á
orgelið sem einleikshljóðfæri, því
það er aðallega notað til að byggja
upp hljóma til undirleiks við streng-
ina í hæga þættinum og í lokaþættin-
um en þar eru meðal annars byggð
upp sérkennilega hljómandi stefbrot
með strengjum og fjórhentum leik á
píanó og þar næst fær orgelið smá
strófu. Heildarsvipurinn í samleik
orgelsins og hljómsveitarinnar var
mjög góður en þar eiga tæknimenn
hlut í, þó flutningurinn hjá hljóm-
sveitinni hafi verið aðalatriðið en þar
lék allt á lukku hjólum, enda sinfón-
ían áhrifamikið verk, vel samin og
víða nokkuð erfið og krefjandi, sem
hljómsveitin skilaði með glæsibrag
undir öruggri stjórn Rieo Saccani.
Það sem gerði þessa tónleika góða
var fyrst og fremst fi’ábær flutning-
ur sellósnillingsins Erlings Blöndals
Bengtssonar, glæsilegur leikur
hljómsveitarinnar undir kraftmikilli
stjórn Rico Saccani. Tæknileikurinn
heppnaðist mjög vel en hinn risastóri
myndskjár var á köflum truflandi og
athyglin beindist um of að orgelleik-
aranum, Herði Áskelssyni, sem skil-
aði sínu vel og af nákvæmni, þó hið
tónræna innihald væri í hrópandi
mótsögn við risastóra skjámyndina.
Jón Ásgeirsson
MYNDLISTASKOLINN
THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART
í REYKJAVÍK
HRINGBRAUT 121 • 107 REYKJAVÍK • SÍMI 551 1990
FORNÁM
Veturinn 2000-2001 býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á árs nám
á framhaldsskólastigi til undirbúnings háskólanámi í sjónmenntum.
Námið er 36 eininga og er samkvæmt nýrri námskrá framhaldsskóla.
Umsækjendur séu 18 ára, hafi lokið a.m.k. 3ja ára námi á
framhaldsskólastigi í almennum greinum eða sambærilegu námi sem
skólinn metur gilt og standist inntökupróf.
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2000. Umsóknareyðublöð liggja frammi
á skrifstofu skólans og hægt að nálgast þau á heimasíðu skólans.
Inntökupróf fara fram 3. og 4. júní 2000.
Skrifstofa skólans er opin á virkum dögum kl. 14-17.
Sími 551 1990 eða 551 1936, fax 551 1926,
www.isholf.is/myndlistaskolinn