Morgunblaðið - 06.05.2000, Page 84
Netþjónar
og tölvur
COMPAa
fllmngtstiiMjtfrifr
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyða tima
starfsfólksins i biö?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biðai
Tölvukerfi sem virkar
563 3000
M0RGUNBLAÐ1Ð, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍUl 5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBUS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Útboðsgengi deCODE væntanlega 14-18 dollarar á hlut
Gengi á gráa markaðnum
lækkaði um 25% í
gengi hafði mikil áhrif á gráa mark-
VÆNTANLEGA verður útboðs-
gengi þeirra 8 milljóna hluta í
deCODE genetics sem selja á í for-
sölu á bilinu 14-18 dollarar á hlut,
samkvæmt upplýsingum á ipo.com
þar sem upplýsingar um fýrirtæki
sem eru að sækja um skráningu á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum er að
fínna. Ekki kemur fram hvenær út-
boðið muni hefjast og samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er
þetta ekki endanleg verðákvörðun á
félaginu heldur mun gefa til kynna
5 '‘að það muni verða á þessu bili. Ovíst
er hvort endanlegt verð liggur fyrir
fyrr en degi fyrir útboð.
Fréttin af væntanlegu útboðs-
aðinn á Islandi en fyrstu viðskipti í
gær voru á rúmlega 40 dollara á hlut
en í lok dags voru viðskipti með bréf
deCODE á 30 $. Er þetta 25% lækk-
un á einum degi en gengið fór hæst í
janúar eða í um 65 dollara á hlut.
Erfitt fyrir ný líftæknifyrirtæki
að fara á markað
Margeir Pétursson forstjóri MP
Verðbréfa segir að þótt útboðsgengi
deCODE, sem birt var í gær, sé tals-
vert lægra en búist var við fyrir
nokkrum vikum, lýsi það trú fjár-
festingarbankans, sem sér um
skráningu fyrirtækisins á Banda-
ríkjamarkaði, á deCODE að það
skuli vera verðlagt með þessum
hætti eftir þær sviptingar sem verið
hafa á hlutafjármarkaði með bréf líf-
tæknifyrirtækja að undanfömu.
Bandariskir fjárfestar varkárir
Margeir sagði að fyrir þremur
mánuðum eða svo hefði vissulega
mátt búast við að útboðsgengi
deCODE yrði hærra. En nú væru
bandarískir fjárfestar mjög varkárir
gagnvart líftæknifjrirtækjum og
hefðu dregið sig að miklum hluta út
úr þeim markaði. Jafnframt væri
mjög erfitt fyrir ný fyrirtæki að
koma þar inn og því sýndi það trú
gær
fjárfestingarbankans Morgan Stan-
ley á fyrirtækinu að haldið væri
áfram með skráningu þess.
Á fundi stjórnar F'járfestingar-
banka íslands 3. febrúar sl. var
ákveðið að stefna að því að selja
eignarhlut FBA í deCode, og í til-
kynningu frá bankanum í byrjun
apríl kom fram að salan mundi fara
þannig fram að hluthöfum FBA gæf-
ist kostur á að kaupa hlutabréf bank-
ans. Um 625 þúsund hluti er að ræða
en söluverð verður það útboðsgengi
sem boðið verður þegar skráning fer
fram á Nasdaq. Bókfært verð hluta-
bréfa bankans í deCode er nú um 15
dollarar hver hlutur.
Kjaradeila Sjó-
mannafélagsins
Slitnaði
upp úr við-
ræðum
FUNDI í kjaradeilu Sjó-
mannafélags Islands, vegna
farmanna á kaupskipum, var
slitið klukkan hálf tvö í nótt.
Fundurinn hafði staðið í
húsnæði ríkissáttasemjara frá
því klukkan ellefu í gærmorg-
un en að sögn Jónasar Garð-
arssonar, formanns Sjó-
mannafélagsins, kom bakslag
í samningaviðræðurnar í
gærkvöld.
Hvorki Jónas né Þórir Ein-
arsson ríkissáttasemjari vildu
tjá sig um efnisatriði ágrein-
ingsins. Nýr fundur hefur
verið boðaður klukkan hálf
tvö í dag.
Formaður Samfylkingarinnar um
Evrópusambandsmál á stofnfundi
Skilgreinum
samningsmark-
mið Islendinga
ÖSSUR Skarphéðinsson hefur verið
kosinn formaður Samfylkingarinnar,
en úrslit í formannskjöri voru kynnt
á stofnfundi ílokksins í gær. í ræðu
sinni á fundinum fjallaði Össur m.a.
um Evrópumál og sagði að ekki væri
hægt að gera upp hug sinn um aðild
að Evrópusambandinu nema ljóst
væri um hvað menn vildu semja.
" " „Ég tel því að næsta skref í þess-
um málum sé að hefja skipulega
vinnu við að skilgreina samnings-
markmið Islendinga í hugsanlegum
aðildarviðræðum við Evrópusam-
bandið. En um þau markmið verður
að ríkja meirihlutasamstaða meðal
þjóðarinnar. Það er ekki ráðlegt að
sækja um aðild nema slík samstaða
sé fyrir hendi og nægir þar að minna
á dæmi Norðmanna. Við sækjum
ekki um nema við vitum nákvæm-
lega hvað við viljum og nema víðtæk
samstaða ríki um samningsmarkmið
meðal þjóðarinnar," sagði Össur.
Hann sagði að fara þyrfti gætilega
við alþjóðlegar skuldbindingar.
Margrét Frímannsdóttir kjörin
varaformaður Samfylkingar
Össur hlaut alls 3.363 atkvæði í
formannskosningunni eða 76,4% af
öllum greiddum atkvæðum en
Tryggvi Harðarson mótframbjóð-
andi hans hlaut 956 atkvæði (21,7%).
Uppstillingarnefnd gerði tillögu á
fundinum í gær um Margréti Frí-
mannsdóttur þingmann í embætti
varaformanns. Steinunn V. Óskar-
sdóttir borgarfulltrúi og Katrín Júl-
íusdóttir, varaformaður Ungra jafn-
aðarmanna, sækjast báðar eftir
embætti ritara og fer fram kosning á
milli þeirra á stofnfundinum fyrir
hádegi í dag.
Skýr víglína í fískveiði-
stjórnunarmálinu
Töluverðar umræður urðu um
breytingar á stjórnkerfi fiskveiða og
hugmyndir um sátt í sjávarútvegs-
málinu á fundinum í gær. Össur
sagði m.a. í ræðu sinni að skýr víg-
lína væri í íslenskum stjórnmálum í
þessu máli. Sagði hinn nýkjömi for-
maður að greiða bæri sanngjarna
leigu til þjóðarinnar fyrir nýtingu á
auðlindum hennar og þetta gjald
ætti m.a. að nýta til þess að lækka
tekjuskatt launafólks.
■ Einstaklingsframtak/42
HEKLA
— í farystu á njfrri iild I
A
MITSUBISHI
- demantar í umferd
MITSUBISHI
CHRI5MR
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Össur Skarphéðinsson, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, var hylltur með lófataki á stofnfundi flokksins
í gær. Við hlið hans stendur Árný E. Sveinbjömsdóttir, kona hans, en til hægri er Guðný Guðbjörnsdóttir.
The New York Times um ballett Helga Tómassonar
Lófatak áhorfenda
sem þrumugnýr
„PRISM“, nýtt ballettverk eftir
Helga Tómasson var frumflutt
hjá New York City dansflokknum
á miðvikudagskvöld við mikinn
fögnuð áhorfenda. í umsögn
Önnu Kisselgoff dansgagnrýn-
anda The New York Times segir
að lófatak áhorfenda hafi verið
sem þrumugnýr og að ekki væri
nógu sterkt til orða tekið að lýsa
kvöldinu sem sigri.
Hreinleiki hins klassíska stfls
Kisselgoff rekur feril Helga í
umsögn sinni og fjallar ítarlega
um verkið. „Með „Prism“ er
Helgi Tómasson aftur á heima-
velli, en hann var stjarna City
dansflokksins áður en hann tók
við sem listrænn stjórnandi San
Francisco dansflokksins árið
1985,“ segir hún. „Hann fæddist á
íslandi, en hóf feril sinn undir
handleiðslu danskra ballettkenn-
ara og varð eins og Peter Martins
sem er listrænn stjórnandi City
dansflokksins, einn besti klassíski
dansari í heimi“
Kisselgoff segir að „hreinleiki
hins klassíska stíls sem rekja
megi til danska skólans hafí end-
urspeglast bæði í dansi Helga og
í kóreógrafíu hans. Það er ekki að
undra að ný-klassískur danshöf-
undur sem gerir miklar kröfur
eins og Helgi, skuli hafa valið
einn af fyrstu Beethoven-kon-
sertunum, sem er mjög klassísk-
ur og formrænn. Þó eru tilfinn-
ingarnar aldrei fjarri yfirborði
verka Helga og í þessu formlega
dansverki sem ekki hverfist um
söguþráð er greinileg hlýja.“
Nokkuð var um staðgengla á
þessari sýningu þar sem óvenju
margir dansarar áttu við meiðsl
að stríða, en það kom ekki að sök.
Benjamin Millepied sem dansaði
fyrir Sébastien Marcovici, dans-
aði hið veigamikla sóló sitt af
„rafmögnuðum krafti" segir í The
New York Times. Ballettinn var í
heild sinni ákaflega krefjandi
bæði fyrir dansarana og tónlistar-
mennina og árangurinn með
miklum ágætum.
Áhrifin eru viðkvæmnisleg
og ljóðræn
Kisselgoff segir að eins og
Beethoven-verkið sé „Prism“
langt en ekki fábrotið, það endur-
spegli frægar kadensur tónlistar-
innar og ofgnótt hennar. „Maður
þarf að kunna að meta tungumál
klassísks balletts til að hafa
ánægju af „Prism“. Svonefnd
gömul spor eru ríkulegur þáttur
verksins, sem af öryggi eru sett I
nýtt samhengi. ,Ábrifm eru við-
kvæmnisleg og ljóðræn,“ segir
Kisselgoff ennfremur í þessum
lofsamlega dómi um frumsýningu
New York City dansflokksins á
dansverki Helga Tómassonar.