Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 27
Trimble
frestar
flokks-
þingi
DAVID TRIMBLE, formaður
Sambandsflokks Ulsters
(UUP), ákvað í gær að fresta
þingi flokksins sem fara átti
fram á morgun og átti að fjalla
um nýja tillögu til lausnar deil-
unni á Norður-írlandi. Því er
ljóst að ekkert verður af endur-
reisn héraðsstjórnar sam-
bandssinna og lýðveldissinna á
mánudag eins og sáttatillaga
bresku og írsku ríkisstjórnanna
fól í sér.
Trimble hefur frestað þing-
inu um viku, til 27. maí, en
ákvörðun hans er talin auka lík-
ur á því að flokkurinn samþykki
tillöguna. Skiptar skoðanir hafa
verið meðal sambandssinna um
hana og telja margir þeirra
ekki tryggt að írski lýðveldis-
herinn (IRA) muni afvopnast
þótt tillagan nái fram að ganga.
Arafat hótað
sprengjuárás
FULLTRÚAR Palestínu-
manna fullyrtu í gær að höfuðs-
maður í ísraelska hernum hefði
hótað því að sprengja skrifstof-
ur Yassers Arafats á Vestur-
bakkanum og kraflst þess að
hann yrði færður til réttar-
halda. Saeb Erekat, aðalsamn-
ingamaður Palestínumanna,
sagði að höfuðsmaðurinn hefði
hótað sprengjuárás ef Palest-
ínumenn létu ekki af ofbeldis-
verkum líkt og þeim er gerðust
sl. mánudag.
Balladur
hættir við
framboð
FYRRVERANDI forsætisráð-
herra Frakklands, Edouard
Balladur, lýsti því yfir í gær að
hann hefði hætt við framboð til
borgarstjóra Parísar vegna
deilna um hver hlyti tilnefningu
flokks nýgaullista, RPR. Stuðn-
ingsmenn Balladurs hafa sagt
að úrslit kosninga til útnefning-
ar borgarstjóraefnis flokksins
hafi verið ákveðin fyrirfram og
því Ijóst að Philippe Seguin,
fyrrum formaður flokksins og
sá sem nýtur mestrar hylli
kjósenda, muni hljóta útnefn-
inguna. Forysta flokksins hefur
verið gagnrýnd harðlega fyrir
ólýðræðisleg vinnubrögð og í
yfirlýsingu Balladurs í gær
sagði að gagnsæi starfsaðferða
og ákvarðana innan flokksins
hafi ekki verið í heiðri höfð.
Sáttatillögu
Microsoft
hafnað
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTI
Bandaríkjanna hyggst ekki
hvika frá þeirri stefnu sinni að
Microsoft-fyrirtækinu verði
skipt í smærri einingar til að
hlúa að samkeppni. Ráðuneytið
sagði í gær í ákæru sinni á
hendur fyrirtækinu að fyrirætl-
anir stjómarinnar muni „aftur-
kalla þann skaða sem sam-
keppni hefur orðið íyrir vegna
ólöglegra aðgerða Microsoft."
Þá hefur ráðuneytið hafnað
sáttatillögum Microsoft. Fyrir-
tækið telur enga stoð í lögum
fyrir stefnu stjómvalda.
Minnst
þjáninga
frelsarans
ÍBÚAR bæjarins Oberammergau í Bæj-
aralandi efna á tíu ára fresti til helgi-
leiks um þjáningar og dauða Krists og
taka um 2.000 manns þátt í sýningunni.
Hefðin fyrir helgileiknum á rætur að
rekja til ársins 1634 er bæjarbúar
strengdu þess heit að minnast frelsar-
ans með þessum hætti í von um að þeir
yrðu þá ekki drepsótt að bráð. Myndin
var tekin á æfingu í fyrradag og er Ant-
on Burkhart í hlutverki Krists. Búist er
við allt að hálfri milljón gesta en leikur-
inn verður sýndur á sunnudag.
Reuters
Við bíðum eftir að geta sýnt þér DIAMANT EXTREME,
frábær og vönduð hjól á góðu verði, fyrir alla fjölskylduna
og boðið þér ráðgjöf fagfólks sem þekkir hjólin.
Sumarið er komið og góðir hjólreiðastígar út um allt.
Er eftir nokkru að bíða?
c. J 'ö) Opið hjá NANOQ í Kringlunni:
Mánud.-miðvd. 10-18.30 • fimmtud. 10-21 ^ J TÍt
\ CD . föstud. 10-19 og laugard. 10-18
1 CVI .5= 1 . O) l 'O & sunnudaga 13-17 • sfmi 575 5100
Spennandi hjólreiðaferð
laugardaginn 20. maí
islenski fjallahjólaklúbburinn og Nanoq standa fyrir hjólreiða-
ferð. Lagt veröur af stað frá Árbæjarsafni kl. 9 um morguninn
og komið til baka milii kl. 14 og 15.
Taktu með þér nesti og njóttu þess að vera úti og reyna á þig!
Ekkert þátttökugjald.
NANOQ+
1 / <»• \ / «* •
AUK k204-15 sia.ls