Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 39
LISTIR
Jón Baldvinsson listamaður.
Innskot í Listahátíð
JÓN Baldvinsson myndlistamaður
opnar málverkasýningn í sýningar-
sal Gallerís Reykjavikur, Skóla-
vörðustíg 16, laugardaginn 20. maí,
kl. 16. Á sýningunni eru 40 olíumál-
verk, sem öll eru máluð á siðastliðn-
um þrem árum.
I fréttatilkynningu segir að í
upphafi ferils síns hafi Jón ein-
göngu fengist við landslagsmyndir
og fantasíur tengdar náttúrunni.
Að þessu sinni er yrkisefnið hinir
huldu heimar og það dulræna í
mannfólkinu.
Jón er fæddur í Reykjavík árið
1927. Hann nam myndlist 1971-72
hjá Myndsýn Reykjavík. 1972-73 í
Det Jydske Kunstakademi í Ár-
ósum. Og 1985-89 var Jón við nám í
San Francisco Art Institute, og lauk
þaðan meistaragráðu í málaralist.
Jón Baldvinsson hélt einka-
sýningar 1975 og 1988 á Kjarvals-
stöðum, 1987 í San Fransisco, Nor-
ræna húsinu 1979, Noglebæk
galleri í Óðinsvéum 1990, Ásmund-
arsal 1991, Perlunni 1992 og 1993.
Auk þess hefur Jón lialdið Qöl-
margar minni sýningar hérlendis
og í Danmörku.
Sýningin stendur til 11. júní. Hún
er opin virka daga frá 10-18, laug-
ardaga frá 11-16, sunnudaga 14 -17.
30% afsláttur
af sumarjakka <
frá
Barbour
4 litir
f /)/'os'/(/ 6(/<!///
Laugavegi 54,sími 552 2535
Myndlistar-
sýning
í Grindavík
GARÐAR Jökulsson listmálari opn-
ar sýningu á verkum sínum í Menn-
ingarmiðstöðinni Kvennó í Grinda-
vík, laugardaginn 20. maí. Garðar er
fæddur í Reykjavík árið 1935 og hef-
ur fengist við myndlist frá fimmtugs-
aldri, en Garðar er sjálfrnenntaður í
listinni.
I fréttatilkynningu segir m.a.:
„Listamaðurinn bindur sig lítið við
stíla og stefnur í málverkinu, utan
hvað í flestum verka hans kemur
fram einlæg dýrkun á náttúru lands-
ins - litum og birtu. Listamaðurinn
notar öll tiltæk efni og blandar þeim
saman til að ná fram sínum sérstaka
stíl, oft á tíðum á mjög óhefðbundinn
hátt.
Garðar Jökulsson hefur haldið 23
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum, auk þess sem hann hefur
haldið fjölda vinnustaðasýninga.
Enda trúir listamaðurinn á að listina
skuli bera til fólksins og býður því
sín verk föl á viðráðanlegu verði.“
Sýningin í Kvennó í Grindavík er
hans önnur sýning utan Reykjavík-
ur, en Garðar var með sýningu í
Eden í Hveragerði fyrr á árinu. Sýn-
ingin stendur til 4. júní.
Bildshðfða 20 • Sími 510 8020
I-
*:
tn
Z
yj
-1
to
2
3
LU
>
3’
Z
2
>
2
3
O
Z
Œ
lil
>
Hvaö heitir þú? - hverra manna ertu?
Er ættarmót i
UPPSIGLINGU?
stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn
Jtakenda í barm þeirra. (Múlalundi færð
barmmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einn
fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir
Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
8501 eða 562 8502.
Símar: 562 8501 og 562 8502
Múlalundur
Vinnusfafa Sl'BS