Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 35
Nýjar bækur
• „WOMEN with Intellectual
Disabilities: Finding a Place in
the WorUI“ er fyrsta alþjóðlega
ritið um þroskaheftar konur og
er annar ritstjórinn íslenska
íræðikonan Rannveig Trausta-
dóttir, dósentvið Félagsvís-
indadeild Háskóla íslands. Hinn
ritstjórinn er Kelley Johnson
fræðikona við LaTrobe Uni-
versity í Melbourne í Astralíu.
I bókina skrifa 25 konur frá
ýmsum löndum (Ástralíu, Bret-
landi, Noregi, Nýja-Sjálandi,
Islandi, Slóvakíu, Tékklandi og
Bandaríkjunum) og er efnið
unnið af fræðikonum og fotluð-
um konum. Sumir kaflamir
innihalda fræðilega umfjöllun
um líf og aðstæður þroskaheftra
kvenna og byggja á rannsókn-
um fræðikvenna.
Einnig eru margar sögur í
bókini þar sem þroskaheftar
konur segja frá daglegum veru-
leika sínum og reynslu. Ein af
nýjungum bókarinnar er sam-
starf fræðikvenna og fatlaðra
kvenna við skrif margra kafl-
anna. I fréttatilkynningu segir
m.a.: „í þessari bók er í fyrsta
sinn gefin yfirsýn yfir líf og að-
stæður þroskaheftra kvenna í
mörgum löndum og dregnir
fram þeir þættir sem skipta
mestu í lífi þeirra. Þótt bókin sé
að hluta fræðileg er hún skiifið
á aðgengilegu máli og er ætluð
fræðimönnum, fagfólki og öðru
áhugafólki um líf fatlaðra
kvenna. Til að gera bókina að-
gengilega fyrir þroskaheft fólk
sem getur lesið er hver kafli
einnig skrifaður á auðlesnu máli.
Þroskaheftar konur hafa
löngum átt í erfiðleikum með að
fá fullan aðgang að daglegri til-
veru meirihlutasamfélagsins og
þær hafa oft mátt þola útskúfun
frá fjölskyldum sínum og hinu
stærra samfélagi. Ofbeldi og
mismunun hefur verið allt of rík-
ur þáttur í lífi þeirra. Þrátt fyrir
þetta hefur þeim oft tekist að
skapa sér innihaldsríkt líf og
hamingjusama tilveru."
Bókin skiptist í fjóra hluta: (1)
Fjölskyldur, (2) tengsl við annað
fólk, (3) atvinnu og (4) samfé-
lagsþátttöku.
Bókin er gefín út af Jessica
Kingsley Publishers í London
(www.jkp.com). Bókin fæst í
Bóksölu stúdenta og kostar kr.
2.946.
Islensk rós
í hnappagati
enskrar óperu
London. Morgrmblaðið.
HULDA Björk Garðarsdóttir
sópransöngkona er að mati
Rodneys Miles, gagnrýnanda
The Times, ein helsta rósin í
hnappagati Garsington-óper-
unnar að þessu sinni.
Hulda Björk syngur hlutverk
Súsönnu í Figaro eftir Mozart
og segir Miles að hún íklæðist
því erfiðislaust og að söngur
hennar sé fallegur, léttur og
þaulhugsaður. Þessi yndislega
íslenska sópransöngkona sé
ein af merkilegustu uppgötv-
ununum á Garsington.
Garsington-óperan er árleg
þriggja vikna tónlistarhátíð,
sem haldin er skammt utan við
Oxford, og er hátíðin nú sú 12.
í röðinni. Súsanna er frumraun
Hulda Björk Garðarsdóttir
Huldu Bjarkar í Bretlandi, en í
fyrra var hún varasöngkona á
Garsington.
Miles fer lofsamlegum orð-
um um sýninguna í heild, sem
hann segir mjög skemmtilega
en lausa við allan lífsháska.
Keflvísk loft-
ræsting
TONLIST
Kláa lániá
KÓRTÓNLEIKAR
Islenzk og erlend ættjarðar- og
karlakórslög. Karlakór Keflavíkur
u. stj. Vilbergs Viggósonar. Ágota
Joó, píanó; Ásgeir Gunnarsson,
dragspil. Föstudaginn 16. júníkl. 21.
KARLAKÓR Keflavíkur kom
fram á jöðugrænum jökkum á seinni
kvöldtónleikunum í Bláa lóninu á
vegum Lista- og menningarhátíðar
Grindavíkur með fremur stuttri en
skemmtilegri dagskrá. Fyrsta lagið,
Sveinar kátir syngja eftir Louis
Spohr, var sungið án undirleiks,
hreint og kröftuglega. Hinn svell-
andi tangó eftir Austfirðinginn Óðin
G. Þórarinsson, Blíðasti blær, var
fluttur með undirleik Ágotu Joó á
píanó og Ásgeirs Gunnarssonar á
harmóniku, og þrátt fyrir að drag-
spilið fylgdi meginlaglínunni nánast
frá byrjun til enda (skemmtilegra
hefði kannski verið að fá sjálfstæðari
mótlínur og af meiri taktfestu), datt
glæsileg intónasjón kórsins í fyrsta
laginu hér skyndilega niður,
hvað sem því annars olli, þó að
hún næði sér fljótt aftur á strik í
seinni lögum.
Capríljóð Winklers í útsetningu
Carls Billichs er orðið hálfrar aldar
gamalt en heldur enn vinsældum. Það
var mun betur sungið af kórnum en
tangóinn, og þýzka lagið Rosemarie
(úts. Magnúsar Ingimarssonar var tek-
ið með glampakátu trompi, svo áheyr-
endur dilluðu ósjálfrátt við fótum. Eft-
ir Grindvíkinginn Sigvalda Kaldalóns
kom svo Suðumesjamenn, aftur útsett
af Magnúsi Ingimarssyni, og gerði
kröftug en samt dýnamísk útfærsla
kórsins mikla lukku meðal tónleika-
gesta.
Stemmningin jókst jafnt og þétt og
náði hámarki með síðasta lagi karla-
kórsins, Kvennafaraljóð eftir Dúna-
jevskíj, sem margir kannast við í með-
förum kórs Rauða hersins á árum
áður, og sem undirritaður hélt, og
kannski fleiri, að væri rússneskt þjóð-
lag. Auðsætt var á alþjóðlega samsett-
um hlustendahóp Bláa lónsins að söng-
ur Keflvíkinga hitti beint í mark, enda
útsetningin frábær, söngur og spila-
mennska framreidd með bráðsmitandi
trukki og flytjendur greinilega í bana-
stuði. Viðtökurnar voru eftir því hlý-
legar, og virtist eftir undirtektum að
dæma ærinn grundvöllur fyrir helm-
ingi lengri dagskrá til viðbótar eftir
þennan eldhressa Suðurnesjasöng, sem
var eins og gustmikill útsynningur inn-
an um brennisteinsvetnismettaða jarð-
gufumekki hraungirtu heilsuvinjarinn-
ar í drungalegu blágrýtiseyðimörkinni.
Ríkarður Ö. Pálsson
Nýjar bækur
• ÚT eru komnar sex nýjar hljóðbækur hjá Orð
í eyra, hljóðbókaútgáfu Blindrabókasafns Is-
lands.
Einar Benediktsson, annað bindi eftir Guðjón
Friðriksson í lestri Hjalta Rögnvaldssonar.
I þessu verki fjallar Guðjón um tímabilið sem
Einar dvaldi langdvölum erlendis.
Hjaltabækurnar eftir Stefán Jónsson en Gísli
Halldórsson las bækurnar í útvarp. Bækurnar
koma út á hljóðbók til minningar um Gísla sem
las mikið fyrir safnið.
Persónur Stefáns Jónssonar lýsa fólki á öllum
aldri í íslenskri sveit á fyrstu áratugum 20. aldar.
Gróður jarðar og Viktoría eftir Knut Hamsun
í lestri Hjalta Rögnvaldssonar.
Þessar skáldsögur eru meðal kunnustu verka
Knuts Hamsuns og fyrir Gróður jarðar fékk hann
Nóbelsverðlaunin árið 1920.
5 DYRA
ORUGGIIR OG FJOLSKYLDUVÆNN
Gunnar Bernhard ehf.
CTVTU
HONDA Clvlc 5 dyra VTEC
115 hestöfl, 1500 vél, 2
loftpúðar, ABS, styrktarbitar
í hurðum, sparneytinn, í
blönduðum akstri 6,51/100 km
1.495,000kr.-
Fyrir veitingahús, matvælavinnslu,
sjúkrahús og þar sem krafist er
snertifrírra blöndunartækja
OPIÐ ÖLL KVÖLDTILKL. 21
#1% METRO
Skeifan 7 • Simi 525 0800
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
AKRANES: Bílversf., simi43l 1985. AKUREYRI: Höldurhf., simi46l 3000. KEFLAVÍK: Bilasalan Bilavík, simi42l 7800. VESTMANNAEYJAR: Bílaverkstæðið Bragginn, simi48l 1535