Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 1
162. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Auðkýfingurinn Borís Berezovskí iætur óvænt af þingmennsku Sakar Pútín um að eyðileggja þjoðina Moskvu. AP, AFP. RÚSSNESKI auðkýfingurinn og þingmaðurinn Borís Berezovskí lýsti því yfir í gær að hann hygðist láta af þingmennsku í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, í mótmælaskyni við ofríkistilhneigingar Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands. Pútín naut aðstoðar Berezovskís við að komast til valda sem eftirmaður Borísar Jeltsíns en í gær sakaði Berezovskí forsetann um að eyði- leggja rússnesku þjóðina. „Eg mun ekki taka þátt í eyðilegg- ingu Rússlands eða tilkomu alræðis- veldis,“ sagði Berezovskí á frétta- mannafundi í Moskvu í gær. Sakaði hann Pútín jafnframt um að draga Rússa út í illa ígrundaðan stríðs- rekstur í Tsjetsjníu. Stjórnmálaskýrendur telja að Berezovskí sé nú í aðstöðu til að stofna nýjan stjórnmálaflokk sem sækja myndi stuðning til fjölda hér- aðsstjóra sem fengið hafa sig full- sadda á stefnu Pútíns. Þá er talið að Berezovskí geti notið stuðnings hluta stjórnarandstöðunnar undir stjórn Gennadís Seleznýovs, þing- manns kommúnistaflokksins og for- seta dúmunnar. Berezovský sem hefur sætt rann- sókn rússneskra skattayfirvalda sagðist ekki hræðast það að missa friðhelgi þingmennskunnar en hvatti jafnframt Pútín til að veita „sakar- uppgjöf þeim sem högnuðust á einkavæðingaráformum Rússlands- stjórnar eftir fall Sovétríkjanna. Vinnuaflsskortur vandamál í Noregi Vantar tugþúsund- ir í heilsugæslu NORÐMENN þurfa á að halda tug- um þúsunda innflytjenda á næstu árum til þess eins að manna heil- brigðiskerfið. Kemur það fram í mikilli könnun sem gerð hefur verið á vinnumarkaðinum í Noregi. Ted Hanisch, ráðuneytisstjóri í at- vinnumálaráðuneytinu norska, segir í viðtali við Aftenposten að sveitar- félögin þurfi að fá 10.000 nýja starfs- menn í heilsugæsluna fyrir 2002. Eftir það muni þörfin vaxa stöðugt þannig að jafnvel verði þörf á tugum þúsunda nýrra starfsmanna árlega en nú sé ekki um að ræða neitt fram- boð á fólki til þessara starfa. Að und- anförnu hefur þörfin íyrir aukið vinnuafl í heilbrigðiskerftnu verið 6- 7.000 manns á ári en talið er að um 2010 verði ekki lengur um að ræða neitt „nýtt“ vinnuafl á markaðinum almennt. Samband norskra sveitar- félaga telur að stóra kreppan í þess- um efnum komi ekki síðar en 2015. Olíuframleiðsla auk- in haldist verð hátt Ofbeldisað- gerðum ETA mótmælt ÞÚSUNDIR Spánverja þyrptust í gær út á götur og torg helstu borga í landinu og sameinuðust í þögulli göngu til að mótmæla morði aðskilnaðarhreyfingar Baska (ETA) á borgarráðsmann- inum Jose Maria Martin Carpena frá Malaga. Morðið á Carpena er hið þriðja sem ETA hefur verið kennt um undanfarna fimm daga. Ný ofbeldishrina ETA hefur verið harðlega fordæmd á Spáni og var morðinu á Carpena lýst sem hryllingi. Lundúnum, Vín. AFP, AP. YFIRMAÐUR OPEC, samtaka oh'u- framleiðsluríkja, lýsti því yfir í gær að aðildarríki ættu að vera reiðubúin að auka olíuframleiðslu sína um 500.000 föt á dag í lok mánaðarins. Ali Rodriguez, yfirmaður OPEC og olíumálaráðherra Venesúela, sagði á fundi með fulltrúum annarra OPEC- ríkja í Vín í gær að þeir ættu að vera viðbúnir að grípa til viðeigandi ráð- stafana til að auka framleiðslu, ef olíuverð heldur áfram að hækka. Hráolíuverð lækkaði á mörkuðum í gær í kjölfar yfirlýsinga OPEC og í kauphöllinni í Lundúnum lækkaði viðmiðunarverð á einu fati af Brent- olíu um 59 sent í 28,64 dali en í lok síðustu viku var verðið 29,88 dalir. Samkvæmt áætlunum OPEC munu olíuframleiðendur auka fram- leiðslu sína um 500.000 föt ef viðmið- unarverð á olíu helst hærra en 28 dal- ir á fatið tuttugu viðskiptadaga í röð. Er þetta merki um skýra afstöðu OP- EC í þá veru að framleiðsla verður aukin að gefnum forsendum þrátt fyrir fyrirvara sem nokkur aðildar- ríki samtakanna hafa sett fram. Reuters Bandarfkjamenn auka mjög þrýsting á samninganefndirnar í Camp David Barak sagður efíns um að niðurstaða náist Thurmont, Jerúsalem. Reuters, AFP, AP. TALSMAÐUR Bandaríkjastjórnar sagði í gær að þrýstingur á samn- inganefndir Israela og Palestínu- manna, sem nú funda í Camp David í Bandaríkjunum, hafi verið aukinn og er talið að markmið þess sé að ná fram áþreifanlegri niðurstöðu í deilu- mál Israela og Palestínumanna áður en Bill Clinton Bandaríkjaforseti heldur til Japans á fund G-8-ríkja- hópsins á morgun. Að sögn heimild- armanna utan Camp David eru samningaviðræðurnar í hörðum hnút og er Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, sagður efins um að niður- staða náist í helstu deilumálum áður en Bandaríkjaforseti heldur til Jap- ans. Sjöundi dagur samningaviðræðn- anna í Camp David hófst í gær og sagði Joe Lockhart, talsmaður for- setans, að fyrirhugaðri ferð Clintons til Japans yrði ekki frestað og samn- ingaferlinu skyldi lokið áður en Clin- ton héldi af landi brott. „Ég held að AP Joe Lockhart, talsmaður Banda- ríkjaforseta, ræðir við frétta- menn í Camp David f gær. við værum ekki hér ef við eygðum ekki líkur á að klára þetta,“ sagði Lockhart við fréttamenn. Við annan tón kvað þó í ísrael þar sem Avraham Burg, forseti ísraelska þingsins, sagði í samtali við ísraelska útvarpið að Barak hefði tjáð sér í símtali að hann væri efins um að samkomulag næðist áður en Clinton héldi til Japans. „Hann [Barak] er ekki bjartsýnn. Hann sagðist vilja ná samkomulagi en við höfum ekki náð því enn,“ sagði Burg. Taldi hann að meira bæri í milli aðila í helstu deilu- málum nú en þegar viðræðurnar hóf- ust. Tilboð ísraela Helsti ásteytingarsteinninn er tal- inn vera framtíð Jerúsalemborgar en Palestínumenn gera tilkall til hennar sem höfuðborgar sjálfstæðs palest- ínsks ríkis. En jafnframt getur sátt um framtíð Jerúsalem verið lykillinn að varanlegum friðarsamningi. ísraelskú- heimildarmenn Reuters sögðu í gær að ísraelar væru reiðu- búnir að láta af hendi 94,5 til 95% af Vesturbakkanum ef Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, samþykkti að Jerúsalem yrði undir stjórn ísra- els en fram að þessu hefur verið talið að ísraelska sendinefndin væri reiðu- búin að afhenda Palestínumönnum 92% lands á Vesturbakkanum. Háttsettur palestínskur embætt- ismaður sagði hins vegar í gær að sendinefnd Arafats myndi hafna öll- um tilboðum sem gerðu ekki ráð fyr- ir palestínskri stjórn yfir austurhluta Jerúsalemborgar. „Víst er að samn- ingi sem ekki mun setja Jerúsalem undir stjórn Palestínu verður hafnað og Barak mun ekki finna nokkurn Palestínumann sem mun sætta sig við minna,“ sagði Jamil al-Tarifi, ráð- herra í stjóm Palestínumanna. Þrátt fyrir yfirlýst fréttabann af samningaviðræðunum sagði Banda- ríkjaforseti í blaðaviðtali í gær að þær væru það erfiðasta sem hann hefði komist í tæri við til þessa. í við- talinu sem hann átti við dagblaðið New York Daily um óskylt efni sagð- ist hann þó jafnframt halda að nið- urstaða yrði knúin fram. Knatt- spyrnumenn snoðaðir Quetta í Pakistan. AP. AFGANSKIR trúarlögreglu- menn handtóku pakistanska knattspyrnumenn á laugardag- inn og snoðuðu þá, að sögn embættismanna. Höfðu knatt- spyrnumennimir unnið sér það til saka að vera á stuttbuxum. Trúarlögregla talebana- hreyfingarinnar stöðvaði knatt- spymuleik pakistansks og af- gansks knattspymufélags í borginni Kandahar, þar sem höfuðstöðvar hreyfingarinnar em. Fimm Pakistanar komust hjá handtöku og einn leitaði hælis hjá pakistanska ræðis- manninum í borginni. Talsmað- ur talebananna sagði pakist- önsku leikmennina hafa brotið íslömsk lög um klæðnað, sem banna að ýmsir líkamshlutar sjáist. MORGUNBLAÐW18. JÚLÍ 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.