Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Jarð- skjálftar sunnan Hraun- gerðis SMÁVÆGILEG jarðskjálftahrina með upptök sunnan Hraungerðis, rétt austan við Selfoss, reið yfir á sunnudagskvöld. Stærsti skjálftinn varð kl. 20:28 og mældist 2,7 stig á Richterskvarða og fannst á nokkr- um stöðum. Nokkrir eftirskjálftar urðu og mældust tveii- stærstu þeirra 2 á Richter. Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur segir að þetta hafi verið smáskjálftahrina, samtals um 20 litlir skjálftar, á mjög þröngu svæði, rúmlega þrjá kílómetra suður af Hraungerði og um átta kílómetra austur af Selfossi. Að sögn Ragnars var fylgst með svæðinu fram á að- faranótt mánudags til að athuga hvort um framhald yrði að ræða, en það varð ekki. Jarðskjálftahrinan stóð að mestu yfir í um eina klukku- stund, en nokkrar eftirhreytur urðu næstu klukkutímana á eftir. „Það hafa ekki komið fram neinar skýrar línur um eitthvert framhald á skjálftum og ekki komið fram neinar línur um annað framhald heldur en svona eins og verið hefur undanfarið. Þetta er svona smáveg- is spennuaðlögun vegna spennu- breytinga sem hafa orðið, en það hefur ekki komið fram neitt sem boðar eitthvert framhald af stærri skjálftum," segir Ragnar. ---------- Bill Clinton styður bar- áttu gegn fíkniefnum BILL Clinton Bandaríkjaforseti lýsti yfir stuðningi sýnum við PATH-samtökin síðastliðinn föstu- dag en samtökin eru íslensk að uppruna og einbeita sér að því að kynna fyrir ungmennum kosti þess að lifa lífinu án eiturlyfja. Að sögn Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, stjómarformanns PATH, lýsti Bandaríkjaforseti yfir ánægju sinni með stefnu PATH. Sagði hann það nauðsynlegt fyr- ir ungt fólk að vinna að fornvörn- um og taldi það mikilvægt að ungt fólk stæði að þeim. Jóhannes sagði að yfirlýsing Bandaríkjaforseta væri mikill heiður fyrir samtökin og að hún hefði hvetjandi áhrif á aðstandendur samtakanna í bar- áttunni sem framundan væri. Mannbjörg varð þegar Æskan SH-342 sökk suður af Látrabjargi ÉÉÉÍÉÉI ð® 'c ” -------------------------------------------------------------■■■;■.........■"""....... Hvalaskoðunarbáturinn Brimrún kom fljótlega á vettvang með dælu og björgunarmenn. Dælan fór þó aldrei í gang. Ljósmynd/Bjöm Pétur Æskan SH-342 marar hér í hálfu kafi en hún sökk mjög skyndilega. Sveinn Hjálmarsson, skipstjóri á Kaldbak EAl náði þessari einstöku mynd. Æskan var horfin sjónum fáeinum andartökum síðar. Trtíðum alltaf að við gætum bjargað bátnum VÉLBÁTURINN Æskan SH-342 sökk um sex sjómílum suðaustur af Bjargtöngum á laugardaginn. Þrem- ur skipverjum var bjargað úr sjónum auk sigmanns Landhelgisgæslunnar sem hafði aðstoðað þá við að dæla sjó úr bátnum en þeir stukku úr bátnum rétt áður en hann sökk. Enginn þeirra slasaðist. Tilkynning um bát í nauð barst til Landhelgisgæslunnar klukkan 13:21. Nokkrum mínútum síðar var TF- LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, kölluð út en hún lagði af stað kl. 14:07. Þar sem talinn var góður möguleiki á Þjónusta númer eitt! Opnunartlmi: Mánud. - föstud. kl. 9-18 laugardagar kl. 12-16 BÍLAÞINGÍEKLU Númer e-iH ( noivZvm b(!vm\ Laugavegi 174,105 Reykjavfk, sími 569*5500 vrvm.lbiílteílbíiwa.íis * vrrw.íbíilteíllbtoai!? - vrrw.lbntólbfifnici.íis VW Golf Gti 1800, 5 dyra, 5 gíra, nýskráður 05.11.1999, ekinn 17 þ. Ásett verð 2,090.000, topplúga sportinn- rétting, spoilerkitt, litaðar filmur, álfelgur. Nánari uppl. hjá Bílaþingi Heklu, sími 569 5500. að bjarga bátnum voru tvær dælur settar um borð í þyrluna. Þyrlan kom að Æskunni kl. 14:50. Vind- styrkur á staðnum var um 10-15 m/s og nokkur sjógangur. Trúði því fram á síðustu stundu að hægt yrði að bjarga bátnum Björgvin Helgi Ásbjömsson skip- stjóri segir bátsverja hafa orðið vara við lekann um ellefuleytið á laugar- daginn en þá lak sjór inn í vélarrúm- ið. Æskan var þá stödd um ellefu sjó- mflum SSA af Bjargtöngum á leið frá Grindavík til Patreksfjarðar þar sem átti að gera Æskuna út til dragnótar- veiða. „Við uppgötvuðum lekann til- tölulega snemma. Þær dælur sem við höfðum virtust halda við í byrjun," segir Björgvin. Hann segir erfitt að gera sér nákvæmlega grein fyrir at- burðarásinni. Um svipað leyti og bát- urinn varð vélarvana hafi lekinn auk- ist og þá kallaði Björgvin eftir aðstoð. TF-LIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, kom á staðinn klukkan 14:50. Tvær dælur voru látnar síga um borð í bátinn og sigmaður Landhélgis- gæslunnar fór einnig um borð. Stuttu síðar kom Brimrún, hvala- skoðunarbátur sem gerður er út frá Ólafsvík, á staðinn en um borð í Brimrúnu var öflug dæla. Hún var einnig flutt um borð í Æskuna en komst þó aldrei í gang. Brak í lestinni gerði dælinguna erfíða og dælumar höfðu ekki undan. „Eftir að þær komu um borð þá er eins og það hafi bætt hraðar í,“ sagði Björgvin. Bátsveijarnir þrír og sig- maður Landhelgisgæslunnar reyndu þó hvað þeir gátu til að dæla sjónum úr lest Æskunnar og Björgvin segir að þeir hafi lítið hugsað út í þann möguleika að báturinn myndi Æskan sökk um 7 sjómílur suður af Látrabjargi BREIÐA- FJÖRÐUR Öndverðarnes sökkva. „Við trúðum því fram á síð- ustu stundu að við myndum ná að bjarga bátnum.“ Heyrði ekki viðvörunarköll Kaldbakur EAl kom að Æskunni rétt áður en hún sökk. Talsverður halli var þá kominn á bátinn. Skip- verjum á Brimrúnu leist ekki á blik- una og kölluðu til skipverja Æskunn- ar. Björgvin segist þó ekki hafa heyrt viðvömnarköll þeirra. Hann gerði sér hins vegar sjálfur grein fyr- ir í hvað stefndi. Björgvin kallaði á skipverja og sigmann Landhelgis- gæslunnar þar sem þeir vom önnum kafnir við að dæla sjó úr lestinni og sagði þeim að yfirgefa bátinn strax. Þeir hlupu allir aftur í skut bátsins og stukku í sjóinn. Örstuttu síðar sökk Æskan. Björgvin og Jónas Unnarsson höfðu rennt niður björg- unargöllunum og varð því nokkuð kalt þegar þeir lentu í sjónum. Björgvin telur þó að skipverjarnir hafi ekki verið í mikilli hættu. Þyrl- an kom snemma og gott að vita af Brimrúnu og Kaldbak í nágrenninu. „Við vomm ekkert hræddir um okk- ur sjálfa. Við vomm bara hræddir um að missa bátinn,“ sagði Björg- vin. Tapaði hjálminum Friðrik Höskuldsson, sigmaður og leiðangursstjóri Landshelgis- gæslunnar, var búinn að bjástra við dælurnar ásamt bátsverjum Æsk- unnar í um klukkutíma þegar ákveð- ið var að yfirgefa skipið. „Skipstjór- inn kom hlaupandi til mín og sagði mér að báturinn væri að fara. Þegar ég leit upp sá ég að það var komin 40 gráðu slagsíða á hann. Þá hlupum við aftur á skut og hentum okkur í sjóinn,“ sagði Friðrik. Hann segir að hann og Ingimundur Óðinn Sverris- son vélstjóri og Jónas Unnarsson háseti hafi líklega verið of uppteknir við að halda dælunum í gangi til að taka eftir því í hvað stefndi. „Um tíu mínútum áður en hann fór yfir fannst mér eins og hann væri farinn að halla svona 15-20 gráður yfir á bakborða og hann rétti sig aldrei al- veg upp eftir það,“ sagði Friðrik. Eftir að þeir stukku í sjóinn sökk Æskan hratt og hugsuðu þeir ein- ungis um að koma sér sem lengst frá bátnum til að lenda ekki í niðursogi hans. Dælumar sukku með bátnum en auk þess tapaði Friðrik sighjálm- inum sem hann hafði tekið af sér. Friðrik segir að líklega hafi þeir ekki verið í mikilli hættu og það hafi verið ómetanlegt að hafa Brimrúnu og Kaldbak við hlið sér. Rannsóknamefnd sjóslysa hefur slysið til rannsóknar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.