Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 MORGUNB LAÐIÐ LANDIÐ Notaðar búvélar & traktorar Ferming- arbörn í áheitaferð Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Valgeir Hauksson og Dagný Indriðadóttir eru landverðir á hálendinu norðan Vatnajökuls á svæðinu frá Vesturdal á Brúaröræfum austur um virkjanasvæðin við Innri-Kárahnjúk til Eyjabakka. Landverðir leiðbeina norð- an Vatnajökuls Norður-Héraði - Dagný Indriða- dóttir og Valgeir Hauksson hafa ver- ið ráðin til að annast landvörslu á Eyjabökkum, Snæfelli, Vesturöræf- um, Kárahnúkum og Brúaröræfum að hluta. Þessi landvarsla er unnin í samvinnu Landsvirkjunar, Náttúru- vemdar ríkisins og Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Dagný annast landvörslu á Eyja- bökkum, Snæfellssvæði og Vesturör- æfum og verður með aðsetur í Snæ- fellsskála. Valgeir annast landvörslu í Kárahnúkum, svæðinu kringum Dimmugljúfur, Laugavalladal og Vesturdal á Brúaröræfum og hefur aðsetur í vinnubúðum Landsvirkjun- ar á Sauðárdal á Brúaröræfum. Dagný og Valgeir eru fyrst og fremst að leiðbeina fólki sem vill ferðast um þetta landsvæði auk þess að hafa eftirlit með að fólk aki ekki utan merktra slóða og merkja slóð- irnar sem ætlaðar eru til að aka eftir. Þau stika auk þess gönguleiðir að áhugaverðum stöðum og merkja og afmarka bílastæði. Valgeir segir þetta brautryðjendastarf því þarna hafi ekki verið landvarsla áður en segir reynsluna það sem af er mjög góða og þeim hafi verið vel tekið af ferðamönnum á svæðinu. Slóðir merktar Dagný hvetur alla til að koma í heimsókn og kynna sér þetta frá- bæra landsvæði sem nú er að verða aðgengilegra vegna þess að búið er að merkja helstu slóðir og auðrat- aðra um það en áður. Þau benda á að gisting og tjald- stæði eru í Snæfellsskála með góðri hreinlætisaðstöðu auk þess sem hægt er að fara í bað í lauginni við Laugakofa. Á Laugavöllum er hægt að tjalda og þar er hægt að baða sig í heitri lind og fara í náttúrulega sturtu þar sem lindin rennur fram af kletti. Dagný og Valgeir vilja koma á framfæri þökkum fyrir móttökumar á svæðinu hjá heimamönnum, starfs- mönnum við virkjanarannsóknir og skálavörðum í Snæfellsskála. Bakkafjöröur - Fermingarböm á Bakkafirði fóm í áheitaferð á hjólum frá Bakkafirði til Vopnafjarðar og þaðan hring inn Hofsárdal með við- komu á Hofi þar sem skoðuð var kirkjan og hlýtt á séra Sigfús J. Árnason segja sögu kirkjunnar. Presturinn veitti þeim fararbless- un áður en lagt var af stað frá Hofi, og hjólað þaðan sem leið lá á Bakka- fjörð og komið rúmlega sex síðdegis. Að sögn Birkis Ólafssonar hjólreiða- kappa var vegalengdin sem þau hjól- uðu um 100 kílómetrar og vom þau rétt um 7 klukkustundir í túrnum, sem er um 14 kílómetra meðalhraði. Einnig sagði Birkir að í áheitum hafi safnast tæpar 70.000 krónur en féð á að nota í menningar- og skemmtiferð inn á Eyjafjarðarsvæðið helgina 14. til 16. júlí. Blaðamaður óskar ferm- ingarbömunum og sóknarpresti góðrar ferðar. Morgunblaðið/BFH Mývatnssveit - Á góðviðrisdögum sækir ferðafólk mikið í að skola af sér ferðaryk í lóninu sem er í Bjarnarflagi síðan borað var eftir jarðgufu þar fyrst um 1965. Fara sumir í bað og synda, aðrir láta sér nægja fótabað. Þarna er veruleg tjörn og víðast hvar að- Fótabað í Bjarnarflagi eins notalega volg, en hættulega heit þar sem vatnið frá skiljustöð gufuveitunnar flæðir útí. Tjarnir sem fyrst mynduðust þarna voru þá nefndar Glerhall- arvötn vegna nálægðar við glæsi- hús sem Jarðvarmaveitur ríkisins byggðu þar nærri á þeim tíma. Nú ber við að menn nefna tjörn- ina, sem hefur stækkað verulega og orðið ein tjörn úr tveim, eftir lit vatnsins, í stíl Suðurnesja- manna. Heimamenn dreymir að þarna verði hluti af baðstað sem Baðfélag Mývetninga hyggst koma á fót. Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson Það er fallegur veiðistaður við efri Beljanda í Breiðdalsá og ef menn eru ekki vanir stangaveiðimenn fæst leiðsögn hjá þeim reyndari. Veiðin að glæðast Norður-Héraði - Breiðdalsá var opnuð í byijun júlí og voru fyrstu tvær vikurnar rólegar. Nú er áin að lifna við og komin bullandi veiði og stærsti laxinn sem kominn er á land 16 pund. Veiðin nú lofar góðu að sögn Sigurðar Staples, veiðivarðar við Breiðdalsá, og mikið er af stór- um og fallegum laxi í ánni, slepp- ingarnar eru greinilega farnar að skila árangri. Mest veiðist af tveggja ára laxi 12 til 16 punda. Morgunblaðið/KVM Hafsteinn Kristinsson, rekstrarstjóri í Snæfellsbæ, og Björgvin Lárusson, eigandi Þolinmóðs ehf. Allt á fiillu hjá Þolinmoði ehf. Grundarfirði - Fyrir fjórum árum hófu hjónin Anna R. Brynjarsdótt- ir og Björgvin Lárusson í Grund- arfirði að slægja fyrir ýmsa aðila sem keyptu þar fisk hjá Fiskmark- aði Breiðafjarðar. Smám saman hefur starfsemin vaxið og fjöldi starfsmanna einnig og fyrir tveim- ur árum stofnuðu þau Anna og Björgvin svo formlega fyrirtækið Þolinmóður ehf. sem annast slæg- ingarþjónustu, en einnig þjónustar fyrirtækið skip með úrtaksvigtun í gáma. í mars síðastliðnum keypti fyrirtæki þeirra eignir slægingar- þjónustu Kristjáns ehf. í Snæfells- bæ. í framhaldi af því var aðstað- an þar endurbætt töluvert og er þetta með fullkomnari slægingar- stöðvum á landinu. Þolinmóður ehf. getur nú þjónað öllu Snæfells- nesi þar eð starfsstöðvarnar eru tvær í Ólafsvík og Grundarfirði. Starfsmenn Þolinmóðs ehf. eru nú um 17 þar sem flestir vinna í Snæfellsbæ og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins fluttar þangað. CASE 1394, 4x4 87 hö, árg '84, 4.800 vinnustundir, Case ámoksturstæki. CASE 1394, 4x4 87 hö, árg '86, 4.800 vinnustundir, Álö ámoksturstæki. CASE 885, 4x4 80 hö, árg '89, 4.500 vinnustundir, VETO FX-16 ámoksturstæki. DEUTZ AgroTron, 4x4 árg '97, 80 hö, Trima tæki. FENDT 260S, 4x2 árg. ‘92, 60hö, 5.100 vinnustundir. JOHN DEERE 6300, 4x4 árg. '95, lOOhö, 3.600 vinnustundir, Trima 1490 ámoksturstæki. JOHN DEERE 6200 SE, 4x4 árg. '98, 84hö, 450 vinnustundir. JOHN DEERE 6200 SE, 4x4 árg. '98, 84hö, 650 vinnustundir, Trima 3.60 ámoksturstæki. MF 390, 4x4 árg. '96, 90hö, 1.170 vinnustundir, Trima 1790 ámoksturstæki. MF 6150, 4x2 Dynashift árg. '96, 95hö, 500 vinnustundir. New Holland L85, 4x4 árg. '96, 85hö, 2.400 vinnustundir, Alö 620 ámoksturstæki. ZETOR 7340 T, 4x4 árg. '95, 80hö, 1.616 vinnustundir, Álö 640 ámokstursstæki. ZETOR 7341, 4x4 árg. '98, 80hö, 200 vinnustundir. ZETOR 7711, 4x2 árg. '91, 70hö, 2.600 vinnustundir. DEUTZ-FAHR GP-2.30 Rúllubindivél, árg. '89. Verð 300.000,- Welger RP-12 Rúllubindivél, árg. '85, 8000 rúllur. Verð 280.000,- KRONE 10-16 Fastkjarnavél, árg. '97, 6000 rúllur. Verð 1.050.000,- PÞÓR HF REYKJAVlK - AKUREYRI Reykjavíkt Ármúia 11 - Sfml 568-1S00 Akureyri: Lónsbakka - Sfmi 461-1070
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.