Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Úttekt greiningardeildar Kaupþings á SÍF Halda þarf vel á spöðunum GREININGARDEILD Kaup- þings segir í nýbirtri úttekt sinni á rekstri og afkomu SÍF hf. að ljóst sé að stjórnendur félagsins þurfí að halda vel á spöðunum, taka til í rekstrinum og einbeita sér að hærri framlegð. Ef það gengur eftir er það mat greining- ardeildar að bréf félagsins séu nokkuð rétt metin af markaðsaðil- um, að jafnvel sé svigrúm til hækk- ana og að þau séu ágætis kostur fyrir þolinmóða langtímafjár- festa. f úttektinni segir að upplýs- ingagjöf SÍF mætti vera betri og megi í því sambandi nefna að fé- lagið mætti gefa betri upplýsing- ar um kaup sín á nýjum félögum sem og fjármögnun þeirra. „Rekstur SIF er mjög háður umhverfisþáttum þannig að það eru margir þættir sem stjórnend- ur hafa ekki áhrif á. Starfsemi SÍF er verulega háð breytingum á fiskistofnum, veiðiheimildum og aflabrögðum þannig að alltaf verður óvissa í rekstrinum. Fyrir- tækið verður að geta staðið undir SIE tímabundnum áföllum, eins og t.d. í Noregi, með því að geta reitt sig á aðra liði sem ekki eru eins háðir ytri aðstæðum t.d. á rekstur verksmiðjanna í Frakklandi og Bandaríkjunum. Með sameining- unni við ÍS ásamt fleiri þáttum dreifist áhættan þannig að ein- staka ytri þætt- ir hafa minna vægi á rekstur félagsins og dregur þannig úr rekstrar- sveiflum. Það .. rná hins vegar velta því fyrir sér hvort þetta rekstrarfyrirkomulag með út- flutning á fiskafurðum frá íslandi sé rétta fyrirkomulagið og hvort það sé komið til að vera, þ.e. hvort framleiðendur fari að flytja vörur sínar sjálfir út í framtíðinni," seg- ir 1 mati greiningardeildar Kaup- þings á horfum í rekstri SÍF. Segir ennfremur að spurning sé hvort það gangi eftir að breyt- ingarnar sem félagið gekk í gegn- um eigi eftir að skila hagræðingu. SÍF þurfi að lækka kostnaðar- hlutfall sitt nokkuð í mjög náinni framtíð til að standa undir núver- andi gengi. Eiginfjárstaða félags- ins sé ágæt nú en það sé ljóst að félagið þoli ekki mörg mögur ár 1 framtíðinni. „Starfsemi SÍF er verulega háð gengi íslensku krónunnar. Nú á undanförnum misserum hefur styrking krónunnar haft slæm áhrif á tekjur félagsins sem og veik evra. Fyrirtækið hefur mjög mikið af tekjum sínum í evrum. Það hlutfall hefur þó breyst með sameiningunni við ÍS þar sem meira er nú selt í dollurum og pundum." I úttektinni segir að veiking krónunnar að undanförnu muni hafa jákvæð áhrif og minnka gengistap félagsins. Greiningardeildin gerir ráð fyr- ir 250 milljóna króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins, m.a. vegna óhagstæðrar gengisþróunar og áframhaldandi rekstrarerfiðleika í Noregi, lækkandi afurðaverðs á heimsmarkaði og hækkandi olíu- verðs sem ætla má að leiði til hærra hráefnaverðs. Kemur fram að jafnframt beri að hafa í huga þann skamma tíma sem liðinn sé frá sameiningunni. Búist er þó við einhverjum viðsnúningi í náinni framtíð þegar hagræðing vegna sameiningarinnar kemur að fullu fram. Rfkisvíxlar í markfloldcnm Útboð þriðjudaginn 18. júlí í dag 18. júlí kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að þessu sinni verður boðið upp á 3ja, 5 og 11 mánaða ríkisvíxla en að öðru leyti eru skúmálar útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum. í boði verða eftirfarandi flokkar ríkisvíxla í markflokkum: Flokkur Gjalddagi Lánstími Núverandi staða* Áætlað hámark tekinna tilboða* RV00-1018 18. október 2000 3 mónuðir 500 2.500.- RVOO-1219 19. desember 2000 5 mónuðir 900 500,- RV01-0619 19. júní 2001 11 mónuðir 0 500,- *Milljónir króna Ríkisvíxlar í ofangreindum flokkum verða rafrænt skráðir hjáVerðréfaskráningu Islands. Nafhverðseining ríkisvíxla er 1 kr., þó að lágmarki 500 þúsund krónur. Sölufyrirkomulag: Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðs- fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir. Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestinga- lánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa- sjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða að lágmarki 500.000 krónur. Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrirkl. 11:00, þriðjudaginn 18. júlí 2000. Utboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og aliar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu rfldsins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070. LÁNASÝSLA RÍKISINS Hveríísgata 6, 2. hæð • Sími: S62 4070 • Fax: 562 6068 www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is Pegasoft í samstarf við Touchpoint ASK! hugbúnaður- inn verðlaunaður ASK! frá íslenska fyrirtækinu Degasoft var valinn besti hugbún- aðurinn fyrir svokallaða skjástanda (kioska) á sýningunni KioskCom sem haldin var í Berlín í júnímán- uði sl. Skjástandar eru nettengdir upp- lýsingastandar þar sem aðgerðum er stjórnað með snertiskjá. Eru þeir í auknum mæli að ryðja sér rúms sem hluti af stefnu fyrirtækja við að færa sér í nyt rafræn við- skipti til þess að geta þjónustað viðskiptavini sína betur og á fleiri stöðum en áður og með minni til- kostnaði. Þá geta skjástandar einn- ig aukið aðgengi almennings að Netinu. í fréttatilkynningu frá Degasoft kemur fram að í þessu felist mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið. Markaðurinn fyrir skjástanda er að sögn mjög stór og hafa samstarfs- aðilar Degasoft þegar gert samn- inga víða um heim sem fela í sér vaxtarmöguleika fyrir Degasoft. Dótturfyrirtæki stofnað í Kanada Þá gerði Degasoft fyrir stuttu samstarfssamning við kanadíska fyrirtækið Touchpoint um sölu og markaðssetningu hugbúnaðar í Ameríku og Astralíu. Touchpoint er leiðandi markaðsfyrirtæki í sölu skjástanda og hugbúnaðar þeim tengdum í Bandaríkjunum og Kan- ada. Verður hugbúnaðurinn mark- aðssettur undir nafninu Kudos. Þann 1. ágúst nk. tekur til starfa hugbúnaðarfyrirtæki sem Degasoft og Touchpoint eiga í sameiningu. Fyrirtækið verður staðsett í Tor- onto í Kanada og mun það vinna að lausnum byggðum á Kudos hug- búnaði. Touchpoint á nú 10% hlut í Degasoft. MBA-nám við Háskólann í Reykjavík Reiknað með að fyrir- tækin taki þátt í kostnaði HÁSKÓLINN í Reykjavík mun bjóða upp á alþjóðlegt MBA-nám á Islandi með áherslu á rafræn við- skipti í janúar á næsta ári en námið er unnið í samvinnu við GEM, sem er alþjóðlegur samstarfshópur há- skóla víða i heiminum. Námið sjálft tekur fimmtán mánuði og munu nemendur sækja hluta námsins er- lendis. Að sögn Agnars Hanssonar, forseta viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, er búist við að 20 til 30 nemendur muni hefja MBA-nám í janúar. Skólagjöld fyrir MBA-nám- ið eru 1,5 milljónir króna og að- spurður segist Agnar reikna með því að námið sé lánshæft. Hann segir þó að skoða megi námið sem samstarfsverkefni þriggja aðila, þ.e. skólans, einstaklingsins og fyr- irtækisins, og menn hafi gert ráð fyrir að fyrirtækin myndu taka þátt í þessu með greiðslu skóla- gjalda eða hluta þeirra. Agnar seg- ir að þegar hafi komið hátt í tutt- ugu fyrirspurnir um MBA-námið í gegnum heimasíðu Háskólans í Reykjavík þannig að svo virðist sem nægur áhugi sé fyrir náminu enda hafi verið farið af stað með þetta verkefni þar sem menn fundu fyrir þörf á námi af þessu tagi. Leiðrétting í FRÉTT um opnun nýrrar tölvuverslunar, SPH, í Kjör- garði við Laugaveg, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag urðu þau mistök að farið var rangt með föðurnafn viðmæl- anda blaðsins, sem er einn af eigendum verslunarinnar. Rétt nafn hans er Sigurður Pétur Hauksson. Sagt var að hann héti Sigurður Pétur Harðar- son, sem eins og kunnugt er er einn aðstandenda söfnunarinn- ar Bömin heim. Eru hlutaðeig- andi aðilar beðnir velvirðingar á mistökunum. UCRETE8 Hita-og efnaþolnu gólfefnin Nú fáanleg Gólfllmir IGNAÐARGÚLF Smið)uvegur 72, 200 Kópavogur Sími: 6641740, Fax: 554 1769 Ford í sam- ! vinnu við Volkswagen í grein í Welt am Sonntag er því haldið fram að Ford-bílaframleið- andinn hafi áhuga á formlegu sam- starfi við V olkswagen-bílaverksmiðj- una í Þýskalandi eða þá að kaupa hlut í Volkswagen en talsmenn bæði Ford og Volkswagen hafa neitað að tjá sig um málið. Sérfræðingar segja að líta mætti á samstarf Ford og Volkswagen sem eins konar svar Ford-verksmiðjanna við samvinnu General Motors og Fiat. Fylkisstjórn Neðra-Saxlands á 18% hlut í Volkswagen en afgangur- inn dreifist á marga smærri hlut- hafa. Gengi bréfa í Volkswagen er lágt skráð sem stendur og því þykir fyrirtækið vera álitlegur biti fyrir stærri fyrirtæki. Á aðalhlutafjár- fundi Volkswagen í maí í vor lýstu margir smærri hluthafar yfir áhyggjum sínum af mögulegri yfir- töku á fyrirtækinu en hin svokölluðu Volkswagen-lög veita þó ákveðið skjól en í þeim er kveðið á um ráð- andi áhrif Neðra-Saxlands í V olkswagen-verksmiðj unum .Talið er að með samvinnu við Volkswagen gæti Ford náð að leysa ýmis fram- leiðsluvandamál í verksmiðjum sín- um í Þýskalandi. Ford er næst- stærsti bílaframleiðandinn í heiminum og var velta fyrirtækisins í fyrra 163 milljarðar dala og hagnað- ur 7,2 milljarðar dala. Rekstur Ford í Evrópu gekk hins vegar illa í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.