Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 59 KIRKJUSTARF Safnadarstarf Landakotskirkja Hátíðarhöld í Landakoti HÁTÍÐLEG messa verður fimmtu- daginn 20. júlí kl. 18 í dómkirkjunni/ basilíkunni í Landakoti. Stórhátíð til minningar um heilagan Þorlák, verndardýrling íslands. Þá messu syngur Jóhannes Gijsen biskup, ásamt með viðstöddum biskupum og prestum. Reykjavíkurbiskup prédik- ar. Föstudaginn 21. júlí kl. 16 verður ppnuð sýningin Kaþólska kirkjan á Islandi eftir siðaskipti. Sýningin verður haldin í gamla prestsbú- staðnum við Túngötu og stendur fram í miðjan ágúst. KI. 20 verða tón- leikar, kirkjutónlist verður flutt í Kristskirkju. Laugardaginn 22. júlí kl. 10.30 flytur Anders Arborelius OCD bisk- up í Stokkhólmi fyrirlestur í gamla prestsbústaðnum við Túngötu. Efni hans er „Andleg ögnin 21. aldarinn- ar fyrir kaþólsku kirkjuna, einkum í Norður-Evrópu.“ Ai’borelius biskup flytur fyrh-lestur sinn á ensku en ís- lensk þýðing hans verður fáanleg á staðnum. Kl. 12-13 verður til sölu léttur há- degisverður. Kl. 13.30 flytur Georgt Múller SS.CC., biskup og preláti í Þránd- heimi, fyrirlestur í gamla prestsbú- staðnum við Túngötu. Efni þess fyrirlesturs er: „Trúboðshlutverk kaþólsku kirkjunnar á 21. öldinni." Múller biskup flytur fyrh-lestur sinn á norsku en íslensk þýðing hans verður fáanleg á staðnum. Eftir fyr- irlesturinn verður kaffisala. Kl. 17 Maríuvaka í Kristskirkju. Sunnudaginn 23. júlí kl. 10.30 verður hátíðleg messa í dómkirkj- unni/basilíkunni í Landakoti til rninningar um vígslu hennar á þess- um degi 1929. Messuna syngur Adri- an Simonis kardínáli, erkibiskup í Utrecht í Hollandi, ásamt með við- stöddum biskupum og prestum. Kardínálinn prédikar á ensku. Kl. 12-15 er fjölskylduhátíð í Landakoti. Börnum gefst tækifæri til að leika sér. Til sölu verða létta veitingar. Öllum kaþólskum, einnig úr öðrum sóknum, svo og öðrum sem áhuga haffa, er hjartanlega boðin þátttaka. Kl. 16 eru orgeltónleikar í Krists- kirkju. Kátt í kirkjukoti „Kátt í kirkjukoti" er yfirskrift leikjanámskeiðs sem haldið verður í vikunni eftir verslunarmannahelgina í Háteigskh'kju. Dagskráin stendur frá þriðjudeginum áttunda ágúst fram á föstudaginn ellefta ágúst. Hvern dag frá klukkan níu til klukk- an hálffimm. í nýútkomnum bækl- ingi sem hægt er að nálgast í kirkjunni segir m.a.: Þemað þessa vikuna verður „í fjársjóðsleit". Við kynnumst Elmari prófessor sem er alltaf að leita að fjársjóði og hjálpum honum við leitina. Auk þess förum við í smáferðalag innan borgarmark- anna, í sund, ratleik, lærum htinn dans og tökum lagið. Skráning fer fram hjá kirkjuverði Háteigskirkju alla virka daga frá klukkan ellefu til fjögur. Við skrán- ingu ber að greiða þátttökugjaldið sem er 7.000 krónur. Heitur hádegis- verður og hressingar að morgni og seinnipartinn eru innifalin sem og allur kostnaður við námskeiðið. Ekki er gert ráð fyrir því að börnin séu með vasapening á sér þessa daga. Veittur er 10% systkinaafsláttur. „Kátt í kirkjukoti“ er yfirskrift yfir fjögurra daga prufukeyrslu á kristi- legu sumarstarfi í Háteigskirkju. Ef vel tekst til er stefnt að því að bjóða upp á allt að átta flokka í safnaðar- heimili Háteigskirkju sumarið 2001. Nánari upplýsingar gefur nýráðinn fræðslufulltrúi Háteigskirkju, Pétur Björgvin Þorsteinsson trúaruppeld- isfræðingur í síma 55124 07. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Fella- og Hólakirkja. Samveru- stund með litlu börnunum kl. 10-12. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorg- unn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrir- bænastund í dag kl. 12.30. Fyrir- bænaefnum mákoma til prests eða kirkjuvarðar. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðar- kirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17- 18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára böm. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT tíu til tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-19. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnh'. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr- inu. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. BRIDS Umsjon A r n 6 r G. Ragnarsson Borgarnesleikur í Suraarbrids Bridssamband Vesturlands og Sumarbrids hafa hleypt af stokkun- um leik sem gefur verðlaun á Brids- hátíðina í Borgarnesi í vetur. Þeir tveir spilarar sem ná flestum bronsstigum á fjórum samliggjandi spilakvöldum fá í vinning frí keppnis- gjöld á Bridshátíð Vesturlands sem haldin er árlega, einnig gistingu á Hótel Borgarnesi aðfaranótt sunnu- dagsins, helgina sem mótið fer fram. Reglur leiksins eru einfaldar, ein- hver fjögur samliggjandi spilakvöld frá 12. júlí til 8. september telja til útreiknings stiga. Vinningshafamir þuifa ekki að vera par. Sl. fimmtudag mættu 22 pör til leiks og þá urðu úrslit þessi: Norður - suður Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 265 Amína Guðlaugsd. - Sigrún Pétursd. 241 OrmarrSnæbjömss.-SturlaSnæbj. 238 Dröfn Guðmunds. - Hrafnhildur Skúlad. 238 Austur - vestur Björk Jónsd. - Jón Sigurbjömss. 259 Hallur Símonarson - Símon Símonars. 240 Björn Árnason - Helgi Samúelss. 233 Kristinn Karlsson - Björn Friðrikss. 233 Föstudagur, 14. júlí, 20 pör, með- alskor 216. Norður - suður Eyþór Hauksson - Helgi Samúelss. 244 Jón V. Jónmundss. - Leifur Aðalsteinss. 240 Guðlaugur Sveinss. - Magnús Sverriss. 239 ÁmiHanness.-KristinnKarlss. 230 Austur - vestur Elvar Hjaltason - Eiður Júlíuss. 251 Jón Þorvarðarson - Hrólfur Hjaltas. 247 Hrafnhildur Skúlad. - Jörandur Þórðars.246 Gísli Steingrímss. - Vilhjálmur Sig. jr. 221 Að venju var spiluð Monrad- sveitakeppni eftir föstudagství- menninginn, nú með þátttöku sex sveita og varð Skrapsveitin hlut- skörpust eftir harða keppni, en sveit- ina skipuðu Bjöm Friðriksson, Friðrik Jónsson, Hallgrímur Hall- grímsson og Matthías Þorvaldsson. Sunnudagur, 16. júlí - Metþátt- taka á sunnudegi, 14 pör, meðalskor 156. Rafn Thorarensen - Guðni Ingvarss. 195 Jón V. Jónmundss. - Leifur Aðalsteinss. 185 Kristinn Kristinss. - Sturla Snæbjömss. 174 ÞórðurSigfússon-EggertBergsson 169 Hrafnhildur Skúladóttir vann því vikuna, hlaut 43 bronsstig, en keppn- in var ótrúlega jöfn að þessu sinni. Aðeins sex bronsstig skildu að fyrsta og sjötta sætið í vikukeppninni. Hrafnhildur fær veglegt gjafabréf á Þrjá frakka. Sigurvegarar hvers kvölds (tveir spilarar ef Howell en fjórir ef Mitch- ell - „highcard" ef jöfn pör) draga spil úr spilastokki og fá þar tækifæri til að vinna margskonar verðlaun: Bókaverðlaun, matarverðlaun, bíla- þvott, fría klippingu, auk inneignar- verðlauna af ýmsum toga. Þá er mögulegt að vinna farseðil til Kaup- mannahafnar, en líka gjafabréf á fín- ustu veitingahúsin í Reykjavík. Hæsta prósentuskor í Sumarbrids frá 12. júlí til 8. sept. gefur viðkom- andi pari frítt keppnisgjald í hið geysivinsæla tvímenningsmót sem Bridsélagið Muninn í Sandgerði stendur fyrir á hvei"ju hausti. Sem fyiT er spilað í hverri viku um að komast út að borða.Stigahæsti spilarinn frá mánudegi til sunnudags vinnur. Gylfi Baldursson hefur unnið vikuverðlaun fjórum sinnum, en Baldur Bjartmarsson, Isak Örn Sig- urðsson og Hrafnhildur Skúladóttir einu sinni. Nýjustu úrslit úr Sumarbrids má jafnan finna á síðu 326 í textavarpinu og öll úrslit era auk þess skráð á íþróttasíðu mbl.is., slóðin þangað er < http://www.mbl.is/sport/sumar- brids/>. Þar má einnig finna mikið af öðram upplýsingum um Sumarbrids. *- Spilað er öll kvöld nema laugardags- kvöld og hefst spilamennskan alltaf klukkan 19:00. Á föstudagskvöldum er boðið upp á stutta Monrad-sveita- keDDni að loknum tvímenninei. Unglingaliðið endaði í 15. sæti á EM í Tyrklandi Islenska liðið varð í 15. sæti af 25 þátttökuþjóðum á Evrópumóti ungl- inga sem hófst 6. júlí sl. og lauk sl. sunnudag. Mótið fór að þessu sinni fram í borginni Antalya í Tyrklandi. Sveitin hlaut 380 stig en sigurveg- .^ ararnir, Norðmenn, hlutu 481 stig. ~ Hollendingar náðu öðru sætinu með 470 stig eftir hörkukeppni við Isra- elsmenn sem voru með 469 stig. Frakkar urðu í 4. sæti með 444 stig, Danir í því fimmta með 429 stig og heimamenn urðu sjöttu með 418 stig enþeir voru efstir á mótinu lengi vel. Islenska liðið var skipað Bjarna Einarssyni, Guðmundi Gunnarssyni, Guðmundi Halldórssyni, Sigurbirni Haraldssyni, Frímanni Stefánssyni og Páli Þórssyni. Fyrirliði var Sveinn Rúnar Eiríksson. Utsala - Utsala Útsalan hefst á morgun Glugginn Laugavegi 60, sími 551 2854. ÚTSALAN ERMIM í FULLUM GANGI! 30-70% afsláttur Verðdæmi: Ecco CHy Walker áður 8.990, nú 6.290. Victory íþróttaskór nú 1.990. Bama- og fullorðinsstærðir. Roots brettaskór áður 3.990, nú 2.690. Barna- og fullorðinsstærðir. Roots barnasandalar áður 2.490, nú 1.245. EURO SKO Kringlunni 8-12 • sími 568 6211 Skóhöllin • Bæjarhrauni 16 • Hf. • sími 555 4420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.