Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ 4,6 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 UMRÆÐAN Hverju reiddist þjóðkirkjan? MIKIÐ hefur borið á gagm-ýni á kristnihátíð að undanfömu og hefur hún farið illa í tatemenn þjóðkirkjunnar. í hita leiksins hafa jafnvel siðprúðir og sómakærir öldungar misst út úr sér óskiljanlegar samlíking- Hvað veldur þessari '"rciði? Hefur gagnrýnin verið tilefnislaus? I fyrsta lagi hefur ver- ið be’nt á, að hátíðin sýni ótvírætt, að ekki sé hægt að sameina Islendinga undir merkjum tiltek- inna trúarbragða: Þjóðin hefði setið heima þrátt fyrir að litprentuðum bæklingum hafi verið dreift inn á hvert einasta heimili landsmanna, þrátt fyrir að tugir heilsíðuauglýsinga hafi birst í dagblöðum, þrátt fyrir að ótalmargar auglýsingar hafi hljómað á öldum ljósvakans, þrátt íyrir einkar já- kvæða umfjöllun um hátíðardag- tkrána í öllum fjölmiðlum, þrátt fyrir ferðir með langferðabifreiðum til ÞingvaOa hafi verið ókeypis, þrátt fyrir að starfsmenn þjóðkirkjunnar hafí ritað ótalmargar hvatningar- greinar í dagblöðin, þrátt fyrir þátt- töku nokkurra af vinsælustu skemmtikröftum landsins og þrátt fyrir einmuna veðurblíðu. I öðru lagi hefur kostnaðurinn við hátíðarárið verið gagnrýndur. Hve hár verður reikningur skattgreið- enda? Ef kostnaður við vegi, göngu- stíga og bílastæði upp á 290 milljónir talinn með, fara útgjöldin í tæpar milljónir (Mbl 30. júní). Þá er ekki tekið tillit til kostnaðarliða upp á marga tugi milljóna, sem ekki heyrðu beint undir kristnihátíðar- nefnd, en þar mætti t.d. nefna 16 milljóna króna styrk sem for- sætisráðuneytið veitti Grafarvogskirkju. Við þetta bætast svo þær 500 milljónir sem renna eiga í kristnihá- tíðarsjóð. Gagnrýn- endur eru því ekki að tala um neina smá- Páll muni. Eg leyfi mér Björnsson annars að efast um að menn hefðu hreyft mótmælum ef heildarkostnaðurinn hefði hlaupið á tugum, jafnvel mörg- um tugum milljóna. Kristnihátíð Hátíðin sýnir ótvírætt, segir Páll Björnsson, að ekki er hægt að sam- ------7---------------- eina Islendinga undir merkjum tiltekinna trúarbragða. Fólki finnst hins vegar óeðlilegt að mörg hundruð milljónum sé veitt í mikil hátíðarhöld sem einungis fáir virðast hafa viljað. Gagnrýnin er því fyllilega réttmæt. Hví þá þessi reiði talsmanna þjóð- kirkjunnar? E.t.v. eru þeir orðnir svo vanir því að fá mánaðarlega dágóða upphæð úr ríkissjóði til að standa undir rekstri kirknanna, að þeim þyki fjárveitingar af þessu tagi ekk- ert nema sjálfsagðar. Reiði þeirra gæti einnig verið af trúarlegum rót- um runnin, af ákveðinni sjálfumgleði sem stundum vill loða við trúar- brögðin. Einlæg trú manna getur nefnilega orðið það heit, að virðingin fyrir „hinum“ þverri. Þar eð hin ev- angelísk-lútherska þjóðkirkja kennir sig við Martein Lúther, getum við rifjað það upp, að trúarhiti Lúthers framkallaði í huga hans þvílíka andúð á gyðingum, að hann hvatti til þess árið 1543 að heimili þeirra, bænahús og skólar yrðu brennd, að trúarrit þeirra yrðu tekin af þeim og að rabbínum yrði bannað að starfa, ella ættu þeir á hættu að missa líf og limi. Hápunkti náði kristnihátíð með frásögn herra Karls Sigurbjörnsson- ar af för hans til Afríku þar sem hann leiddi nokkra blökkumenn út úr myrkri heiðninnar, eins og hann orð- aði það svo smekklega. í Kirkjuritinu (2. hefti 1998) segir hann frá sömu ferð en m.a. heimsótti hann kristni- boðsstöðina í Konsó sem nú er í höndum heimamanna: „Við komum rétt í þann mund er myrkrið skall á. Þetta kol, biksvarta Afríkumyrkur sem dettur á eins og hendi sé veifað rétt tæplega sjö að kveldi. Ljósamót- orinn á kristniboðsstöðinni virkar ekki og enginn hefur haft rænu á að laga hann. Nú eru engir Islendingar þama lengur. íslendingar kunna að laga alla hluti, allar vélar leika í hönd- unum á þeim, en nú eru þeir illa fjarri góðu gamni!“ Þama birtast kunnar andstæður: Úrræðagóðum íslensk- um kristniboðum er stillt upp gegn rænulitlum blökkumönnum, ljósavél- in verður að tákni trúar á vestræna yfirburði. Maður spyr sig hvort bisk- up hafi með orðum sínum sýnt fram- andi menningu nægilega virðingu? Höfundur er sagnfræðingur. Kvöld- ganga og klaustur- sýning í Viðey AÐ ÞESSU sinni verður þriðjudags- kvöldgangan í Viðey um Norðaust- ureyna. Farið verður með Viðeyjar- ferju úr Sundahöfn kl. 20. Gangan hefst við kirkjuna. Þaðan verður gengið austur og norður fyrir. Stað- næmst verður á athyglisverðum stöðum, rætt um örnefni og sögu þeirra. Þá verður varið j skólahúsið og sýningin Klaustur á Islandi skoð- uð undir leiðsögn staðarhaldara. Eyjan sjálf og nágrenni hennar geyma staði, sem eiga skemmtilega sögu og fróðleik, sem reynt verður að draga fram í dagsljósið. Göngufólk er minnt á að vera búið eftir veðri, ekki síst til fótanna. Gjald er ekki annað en ferjutollurinn, 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börnin. Reiðhjól er hægt að fá lánuð end- urgjaldslaust við bryggjusporðinn, hestaleigan er að starfi og veitinga- húsið er opið. Þar er sýning á forn- um, rússneskum íkonum og róðu- krossum. Loks er hægt að tjalda í Viðey án endurgjalds. Þeir, sem þess óska, þurfa þá að sækja um leyfi til ráðsmanns. Séð verður um að koma farangri frá og að bryggju. Stutt er af tjaldstæðinu á þokkalegar snyrt- ingar. Klaustursýningin í Viðeyjarskóla hefur verið vel sótt. Hún er opin frá kl. 13.20 til 16.10 virka daga, en til kl. 17.10 um helgar. Aðgangur er ókeypis. Neistaflug í Norðfírði í áttunda skipti FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN Neista- flug 2000 er nú haldin í náttúruperl- unni í Norðfirði í áttunda skipti. Frá upphafi hátíðarinnar 1993 hefur hún farið stigvaxandi. Það sem aðskilur Neistaflug í Neskaupstað (Fjarðabyggð) frá öðrum útihátíðum er að gestir greiða engan aðgangseyri. Skemmtiatriði og afþreying er ókeypis og ekki síst er frítt á tjald- svæðum bæjarins. Ef gestir velja að fara á dansleiki innandyi’a á kvöldin þarf að greiða fyrir það. En þess ber þó að geta að hljómsveitir sem spila á dansleikjum spila einnig á tónleik- um utandyra. Neistaflug 2000 um verslunar- mannahelgina verður að þessu sinni fjölskylduvænna en hingað til og yngstu aðilum fjölskyldunnar verð- ur gert hátt undir höfði. Má þar geta að þeir Gunni og Felix verða með skemmtiatriði bæði laugardag og sunnudag jafnframt sem þeir kynna dagskrána á sinn ógleymanlega hátt. Andrea Gylfadóttir og Selma munu einnig vera með atriði úr „Ávaxta-körfunni“. Sigríður Bein- teinsdóttir verður með skemmtiat- riði fyrir börn. Annað sem má nefna er t.d. húsdýragarður, leiktæki, fjöl- breyttir tónleikar og ýmiss konar keppni þar sem allir geta verið með. Af tónleikum og dansleikjum má nefna að félagar úr BRJÁN (Blús, Rokk og Jazz klúbburinn á Nesi) munu spila, unglingadansleikur með Buttercup, Vent, Búálfarnir, Tod- mobile ásamt Selmu Evróvision- stjörnu. BSG (Björgvin Halldórs- son, Sigga Beinteins og Grétar Ör- varsson) jafnframt sem BSG mun spila fyrir gesti í Lystigarði bæjar- ins við varðeld og flugeldasýningu. Nánari upplýsingar um hátíðina Neistaflug er að finna á slóðinni frettavefurinn.is. J’ivhí.- VðV toppurinn/ i útíA/L&t SEGLAGERÐIN EYJARSLÓÐ 7 • 101 REYKJAVIK SÍMI 511 2200 • FAX 511 2211 SKEIFUNNI 6 Simi 533 4450
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.