Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
I sól o g sumaryl
ÞEGAR sólin skín og veðrið leikur við landann er
hvergi betra að vera en á íslandi. Ferðalangar á
Arnarstapa á Snæfellsnesi virtust að minnsta kosti
njóta lífsins í sólinni um síðustu helgi. Nú er að sjá
hvernig sól og rigning deilast niður á landið næstu
daga.
Morgunblaðið/Friðrik Gígja
Nýtt hlutverk sjúkra-
bflsins á Skagaströnd
Skagaströnd. Morgunblaðið.
FERÐAFÓLK í Vaglaskógi nú um
helgina rak upp stór augu þegar það
hugðist tjalda í stóru rjóðri. Þar stóð
reisulegur sjúkrabíll og hélt fólk að
öryggi og læknaþjónusta hefðu ver-
ið efld til muna en annað kom á dag-
inn. Þegar betur var að gáð og nær
bílnum komið var eigandinn að
grilla í góðu tómi og hvergi ein-
kennisklæddir sjúkraflutninga-
menn. Kom í ljós að þetta var gamli
sjúkrabíllinn á Skagaströnd, sem
hafði fengið nýtt hlutverk. Hann var
nýlega seldur og voru það þrír
bræður á Skagaströnd sem keyptu
hann. Þeir hyggjast breyta honum í
húsbíl og þeysa um íslenskar og er-
lendar grundir í framtíðinni. Að
sögn þeirra er bíllinn mjög vel út-
búinn til aksturs og virkilega þægi-
legur. Þetta var fyrsta útilegan og á
næstunni verður farið á fullt í að
innrétta bílinn. Núna var notast við
gömlu innréttinguna og skápar sem
áður hýstu sprautur, þvagleggi og
annað sem tilheyrir sjúkrabílum,
geyma nú kaffi, dósamat, grillvörur
og líka hluti sem ekki má auglýsa!
Norskt vík-
ingaskip
til Eyja
VÍKINGASKIPIÐ „Kvitserk" læt-
ur úr höfn á morgun frá Háholmen í
Noregi og tekur stefnuna til Vest-
mannaeyja. Tilgangur siglingarinn-
ar er að minnast siglingar Hjalta
Skeggjasonar og Gissurar hvíta,
þegar þeir komu við í Vestmanna-
eyjum sem kristniboðar Noregskon-
ungs árið 1000 og reistu þar kirkju
úr tilhöggnum gjafavið frá Ólafi
Tryggvasyni Noregskonungi. Með
skipinu verður m. a. flutt altari og
hellur sem eru hluti af nýrri staf-
kirkju sem reist hefur verið í Vest-
mannaeyjum. Kirkjan er gjöf norska
Stórþingsins í tilefni þess að 1000 ár
eru liðin frá kristnitöku Islendinga á
Þingvöllum árið 1000, en stafkirkjan
verður afhent og vígð 30. júlí nk. á
Skansinum í Vestmannaeyjum.
Það er Norðmaðurinn Ragnar
Thorseth sem mun stýra knerrinum
„Kvitserk", en í áhöfn skipsins verða
níu menn, átta Norðmenn og einn
íslendingur, Ólafur Ólafsson bæjar-
tæknifræðingur í Vestmannaeyjum.
Áætlað er að víkingaskipið leggi að
landi í Eyjum 28.-29. júlí nk.
Hægt verður að skoða myndir og
fylgjast með leiðangrinum á heima-
síðu Thorseth; www.haholmen.no
Settu hlýjan svip á heimilið eða i sumarbústaðinn. Úrvalið er hjá okkur
Rimmlaglugga tjöld
á frábærum verðum í sumar
Z-brautir & gluggatjöld
Faxalen 14 1108 Reykjavík | Sfmi 525 8200 | Fax 525 8201 \ Netfang www.zela.is
Alþjóðleg vatnaráðstefna
Hamfaraflóð
Helga P. Finnsdóttir
► Helga P. Finnsdóttir fæddist í
Reykjavík 20. september 1971.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1991 og BS-gráðu í landafræði
við Háskóla íslands 1996. Hún
starfar sem svæðisstjóri á Vest-
urlandi og á Suðurnesjum á
Vatnamælingum Orkustofnunar.
Helga er gift Hauki Hlíðkvist
Ómarssyni fjármálastjóra VSÓ-
ráðgjafar og eiga þau einn son,
Hrafh Hliðkvist Hauksson.
Flóðog
vandamál af
þeim sökum
hrjá heiminn í
ríkari mæli
hamfarafyrirbrigði almennt.
Þess má geta að Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti
Islands, lýkur ráðstefnunni með
hugleiðingu um flóð og vandamál
af þeim sökum sem hrjá heiminn
í æ ríkari mæli, sérstaklega í
þróunarlöndunum."
- Er eitthvað vitað hvers
vegna flóð virðast hafa aukist
undanfarin ár?
„Það er tvennt sem veldur. I
fyrsta lagi er mannfjölgunin slík
að hún dreifist yfir svæði þar
sem flóðahættur eru viðvarandi,
einkum í kringum stórborgir
þróunarlanda. Svo hitt að flóð
síðastliðinna ára virðast vera
stærri en áður og vilja menn
kenna því um að loftslag sé að
breytast vegna áhrifa mannsins.
Menn telja að loftslag fari hlýn-
andi af manna völdum og það
valdi víðtækum breytingum í
vatnshringrásinni, sem svo aftur
veldur flóðum víða um heim.
Viðbúnaður hinna vestrænu
landa er sífellt vaxandi og hefur
mönnum þar tekist að koma í
veg fyrir verulegt manntjón en í
þróunarlöndum er því á annan
veg farið.
- Hvemig er skipulag ráð-
stefnunnar að öðru leyti?
„í gær var móttaka í Ráðhúsi
Reykjavíkur í boði Reykjavíkur-
borgar og Orkustofnunar. í dag
eftir hádegi verður hálfs dags
ferð að Gullfossi og Geysi, enda
Hvítárgljúfrin merkileg í sam-
hengi við umfjöllunarefni ráð-
stefnunnar. Á morgun verður
lokakvöldverður á Hótel Borg
fyrir alla ráðstefnugesti. Á
fimmtudaginn verður farið í eins
dags ferð inn að Markarfljóts-
gljúfrum íyrir þá þátttakendur
________ sem það kjósa og
þriggja daga ferð sem
byrjar með ferðinni að
Markarfljótsgljúfrum
en verður svo fram
haldið í Skaftafelli og
haldið áfram daginn
eftir á Höfn og flogið
GÆR hófst alþjóðleg
vatnafræðiráðstefna
um hamfaraflóð,
„The Extremes of Ex-
tremes". Ráðstefnan er á
Grand Hótel Reykjavík
og er haldin á vegum
Orkustofnunar, Vatna-
mælinga og Alþjóða-
vatnafræðifélagins
(IAHS). Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra
setti ráðstefnuna, sem
lýkur á miðvikudag.
Helga P. Finnsdóttir er
ritari ráðstefnunnar, hún
var spurð hvað hæst bæri
í umræðum hennar.
„Það eru hamfaraflóð
af ýmsum toga, svo sem
vegna vatnafræðilegra og
veðurfræðilegra að-
stæðna og vegna stíflna
sem bresta, þá eru með taldar
stíflur sem myndast vegna snjóa
og ísa. Þá má nefna flóð sem
myndast vegna eldgosa og
fleira."
-Eru margir sem sitja þessa
ráðstefnu?
„Hér eru saman komnir um
160 þátttakendur frá um fjörutíu
löndum. Þetta er aðallega fólk úr
vísindasamfélagi vatnafræði, en
einnig verkfræðingar og fólk úr
fleiri fræðistéttum sem þessum
málefnum tengjast."
- Hvað eru margir fyrirlesar-
ar?
„Það eru fjörutíu og fimm fyr-
irlesarar hvaðanæva að úr heim-
inum. Þeir flytja mjög áhuga-
verð erindi tengd viðfangsefninu.
Það er óvenjulega breið þátttaka
í þessari ráðstefnu, ef svo má
segja. Við fengum um 170 erindi
send áður en ráðstefnan hófst,
sem er ótrúlega mikil þátttaka.
Þess má geta að ráðstefan er að-
ili að dagskrá Reykjavíkur
menningarborg Evrópu árið
2000 en auk þess er hún styrkt
af fjölmörgum aðilum, innlend-
um sem erlendum.“
- Vegna hvers er þessi ráð-
stefna haldin hér á landi?
„í kjölfar stórflóðsins á Skeið-
arársandi haustið 1996 varð um
það samkomulag milli forstöðu-
manns Vatnamælinga Orku-
stofnunar og formanns Alþjóða-
vatnafræðifélagins að halda
alþjóðaráðstefnu hér á landi um
hamfaraflóð. Þetta er tengt því
að undanfarin ár hefur verið
mikið um hamfaraflóð víða um
heim og hefur hlotist af þeim
mikið tjón, bæði mannskaðar og
eignatjón."
- Hvaða efni á dagskránni eru
sérlega forvitnileg fyrir okkur
hér á íslandi?
„Við glímum við flóð af völd-
um eldgosa og um það efni er
fjallað á þessari ráðstefnu bæði
af innlendum og erlendum aðil-
um. 'Haraldur Sigurðsson, pró-
fessor í Bandaríkjunum, flutti
fyrsta erindið, sem fjallaði um
hamfaraflóð sem eiga sér upptök
á íslandi og hafa áhrif á sjávar-
botni allt suður til Azoreyja. Af
öðru merkilegu eru t.d. ný fræði
um hvemig jökulhlaup bijótast
fram, þetta er mjög þýðingar-
mikið framlag til
fræðanna frá Tómasi
Jóhannessyni jökla-
fræðingi. Á dag-
skránni er einnig er-
indi frá Viktor Baker
prófessor í Bandaríkj-
unum sem fjallar um
hamfarahlaup, bæði söguleg og
forsöguleg. Þá má nefna framlag
frá Ola Grétari Blöndal Sveins-
syni, doktorsnema í Colorado, en
hann er að birta nýjar niður-
stöður í sambandi við tölfræði-
lega greiningu á flóðum. Danski
stærðfræðingurinn Per Bak,
prófessor í Oxford, fjallar um
þaðan til Húsavíkur. Síðasta
daginn verður Jökulsá á Fjöllum
skoðuð og Ásbyrgi og síðan
haldið til Reykjavíkur. Þessar
ferðir eru famar til að skoða
gljúfur sem talin em hafa mynd-
ast í hamfaraflóðum og til að
skoða verksummerki hamfara-
flóða á ýmsum stöðum."