Morgunblaðið - 18.07.2000, Side 21

Morgunblaðið - 18.07.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 21 VIÐSKIPTI deCOPE á markað Frum- útboð vikunnar „Fyrir tveimur mánuðum var mikil neikvæðni á markaðnum og útlitið var mjög slæmt,“ sagði Bragi Smith hjá Búnaðarbankanum verðbréfum þegar hann var spurður út í væntan- legt frumútboð (e. initial public offer- ing, IPO) deCODE genetics inc., móðurfélags íslenskrar erfðagrein- ingar, á markað í Bandaríkjunum og Evrópu. Nú er staðan hinsvegar önn- ur að hans áliti því frumútboð hafi gengið vel að undanfömu og markað- urinn sé að styrkjast. Bragi sagði sextán frumútboð verða í þessari viku, þar af sex á svip- uðu sviði og deCODE. Af þessum 16 fyrirtækjum telur hann að deCODE kunni að fá bestu viðtökumar og til marks um það megi hafa að útboð fyr- irtækisins hafi verið valið „frumútboð vikunnar“ á þremur helstu heimasíð- um fyrir framútboð. deCODE verður boðið út á Nasdaq í Bandaríkjunum og Easdaq í Evrópu og er gert ráð fyrir að viðskipti hefjist með bréfin í dag eða alh'a næstu daga. Nýtt hlutafé í boði er að minnsta kosti átta milljónir hluta en getur farið upp í tæpar tíu milljónir hluta. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka-FBA eru stærstu eig- endur deCODE að útboði loknu SAP- AC Corporation (10,7%), Kári Stef- ánsson (7,6%), Alta Partners (Guy Nohra) (5,6%), Atlas Venture (Jean- Francois Formela) (5,6%) og Polaris Venture (Terrance McGuire) (4,5%). Sex mánaða uppgjör Frumherja Minni hagnað- ur vegna auk- inna afskrifta Frumherji hf. Úr milliuppgjöri 30. júní 2000 HAGNAÐUR samstæðu Frum- herja hf. var 4,6 milljónir króna á fyrri helmingi ársins og er þetta töluvert lakari afkoma en á fyrri helmingi ársins 1999 en þá var hagn- aður Fmmherja 16,6 milljónir króna. Hagnaður Framherja allt ár- ið í fyrra var 21,2 milljónir króna og var arðsemi eigin fjár 7,4%. Rekstr- artekjur tímabilsins vora 224,3 milljónir króna og jókst veltan um 25,1 milljón króna eða 12,6% milli tímabila. Rekstrargjöld fyrir af- skriftir og fjármagnsliði námu 196,3 milljónum króna og jukust þau um tæp 17% á milli tímabila. Avöxtun eigin fjár á tímabilinu var 1,4% á móti 11,8% á sama tíma í fyrra. Eig- ið fé Framherja nam 319,2 milljón- um króna og eiginfjárhlutfall var 63,6%. Veltufé frá rekstri var 25,3 milljónir króna samanborið við 29 milljónir króna í fyrra. Færri skoðanir og auknar afskriftir Að sögn Óskars Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Framherja, má einkum rekja verri afkomu Fram- herja fyrstu sex mánuði ársins til samdráttar í ökutækjaskoðunum, hærri launakostnaðar og aukinna af- skrifta. Ökuskoðanir Frumherja á landsvísu hafi verið 6,5% færri en á sama tímabili í fyrra og telur Óskar líklegt að það skýrist að hluta til af auknum fjölda nýrra bifreiða. Launakostnaður Framherja jókst um 11% en að sögn Óskars er hækk- un rekstrarkostnaðar hjá félaginu innan eðlilegra marka en tekjur hafi hins vegar ekki aukist að sama skapi. Verri afkomu félagsins megi þó að miklu leyti rekja til aukinna af- skrifta en þær jukust um 7,1 milljón króna eða 49% og er fyrst og fremst um auknar afskriftir á viðskiptavild vegna kaupa á dótturfélögum að ræða. Óskar segir að í reynd hafi menn verið að afskrifa yfirverð á dótturfélögum og þær afskriftir muni koma fram af fullum þunga í ár og á næstu áram. Reka tólf skoðunarstöðvar A tímabilinu keypti félagið tvær fasteignir fyrir rekstur skoðana- stöðva í Skeifunni og Grafarvogi. Þá keypti Framherji allt hlutafé Athug- unar hf. í maí fyrir um 25 milljónir króna en Athugun rak eina skoðun- arstöð í Reykjavík og var velta fyrir- tækisins í fyrra um 39 milljónir Rekstrarreikningur 2000 1999 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 224.3 196.3 199,2 168,1 +12,6% +16,8% Afskriftir Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 21,7 -1 14,6 2,2 Hagnaður fyrir skatta 5,3 18,7 Hagnaður ársins 4,6 16,6 Efnahagsreikningur 30/06 '00 30/06 '99 Breyting 1EIGNIR: 1 Fastafjármunir Milljónir króna Veltufjármunir 393,1 108,9 331,4 110,0 +18,6% -1,0% Eignir samtals 502,0 441,4 +13,7% 1SKULDIR OG EIGIÐ FÉ: 1 Eigið fé 319,2 305,2 +13,4% Skuldir 182,8 136,2 +34,2% Skuldir og eigið fé samtals 502,0 441,4 +13,7% Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting Eiginfjárhlutfall Arðsemi eigin fjár 63,6% 1,4% 69,0% 11,8% Veltufjárhlutfall Milljónir króna Veltufé frá rekstri 1,17 25,3 1,47 29,0 -12,8% króna. Að sögn Óskars rekur Fram- herji nú tólf skoðunarstöðvar, þar af fimm á höfuðborgarsvæðinu en sjö á landsbyggðinni, auk útibúa en starfsmenn Frumherja era 74 tals- ins. Óskar segir að félagið gefi ekki upp neina spá um afkomuna á árinu sem stendur; menn muni nú setjast niður og athuga hvernig bæta megi reksturinn. Eiginfjárstaða Fram- heija sé þó sterk og menn hafi aug- un opin fyrir öllum möguleikum á að stækka fyrirtækið enn frekar. Vege tíagur i Lyfju Lágmúla Ráðgjöf frá kf. 14-17 í dag Lítilsháttar hækkun krónunnar „KRÓNAN veiktist strax í morgun um hálft prósent eða svo, en þegar líða fór á daginn fór hún að styrkj- ast og á heildina litið hefur styrk- ingin verið 0,38% í dag,“ sagði Einar Pálmi Sigmundsson, sér- fræðingur á gjaldeyrismarkaði hjá Íslandsbanka-FBA í samtali við Morgunblaðið í gær. „Vísitala krónunnar endaði í 114,05 en fór hæst í 115,01. Við erum þeirrar skoðunar að það sé áframhaldandi óvissa eins og verið hefur undan- farna daga, en þegar vísitalan fer nálægt 115 eða þar yfir þá hefur myndast kaupáhugi á krónum, en vísitalan fór hæst í 115,01 í dag,“ bætti hann við. Lækkun ólíkleg Einar Pálmi sagði deCODE-út- boðið í dag geta haft jákvæð sál- fræðileg áhrif ef það gengur vel, en þó megi búast við frekar mikl- um sveiflum næstu daga. Hann sagðist telja miðað við ummæli forráðamanna Seðlabankans síð- ustu daga að bankinn muni ekki hækka vexti á næstunni. Hann sagði bankann ekki hafa gripið inn í markaðinn í gær og ennfremur að viðskipti hefðu verið heldur lítil, sérstaklega miðað við síðustu daga. Einar Pálmi sagði að krónan hefði lækkað mikið að undanförnu og að hann teldi ekki líklegt að hún mundi lækka mikið á næst- unni, vísitalan yrði ef til vill í 115- 116 stigum. Hann sagði jafnframt að eins og aðstæður væru þessa dagana þyrftu menn að fylgjast vel með framvindu mála. Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri sagði að viðskipti með krónuna hafi verið róleg í gær, krónan hafi heldur hækkað og taldi hann þróunina jákvæða. Kemurþérbe, I efninu! Ótvíræður kostur þegar draga á úr ólykt. Lykteyðandi innan frá, vinnur gegn andremmu, svitalykt og ólykt vegna vindgangs, kemur lagi á meltinguna. #LYFJA Lyf á lágmarksverði Lyfja Lágmúla *Lyfja Hamraborg eLyfja Laugavegi Lyfja Setbergi * Útibú Grindavík • vegna opnunar á einum glæsilegasta sýningarsal í Evrópu á stillanlegum rúmumf eyðir 1/3 hluta ævinnar í rúminu! Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stellingu sem er. Með öðrum takka færð þú nudd sem þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér. Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks slökun og þannig dýpri og betri svefni. ...gerðu kröfur um heilsu & þægindi Einnig fylgir öllum einbreiðum, stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í júlí. gnma gé&mœ tivgí Betru Faxafeni 5 • 108 Reykjavik • Sími 588 8477 Opib: Mán. - fös kl. 10-18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.