Morgunblaðið - 18.07.2000, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
......... 4
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsókn á útbreiðslu Creutzfeldt-Jakobs-sjúkdómsins meðal ungs fólks í Bretlandi
Reuters
PHILIP Monk, sem stjórnar
rannsókn á útbreiðslu Creutz-
feldt-Jakobs sjúkdómsins í
Leicestershire, gengnr um
bæinn Queniborough sem teng-
ist óvenjumörgum dauðsföllum
vegna sjúkdómsins.
Sýkt kjöt kann að hafa
verið notað í barnamat
London. Reuters, AFP, The Daily Telegraph.
BRESKIR vísindamenn telja hugs-
anlegt að kjöt af riðusýktum naut-
gripum hafí verið notað í bamamat og
máltíðir handa breskum skólaböm-
um á níunda áratugnum og að það
kunni að hafa stuðlað að útbreiðslu
nýs afbrigðis Creutzfeldt-Jakobs-
sjúkdómsins.
Robert Will, yfirmaður stofnunar í
Edinborg sem rannsakar útbreiðslu
sjúkdómsins, sagði um helgina að
ódýrt hakk, sem unnið var úr kjötleif-
um á skrokkum nautgripanna eftir að
þeir höfðu verið skomir, hefði verið
notað í barnamat og skólamáltíðir á
níunda áratugnum. Hamborgarar,
pylsur, kjötbökur, tilbúnh- réttir og
barnamatur kynnu að hafa innihaldið
leifar af mænu nautgripanna, sem
sýkist mjög þegar þeir fá riðusjúk-
dóminn. Þetta kynni að vera skýring-
in á því hvers vegna nýtt afbrigði
Creutzfeldt-Jakob væri tiltölulega al-
gengt meðal ungs fólks. „Önnur hugs-
anleg skýring á aldursdreifingunni er
að ungt fólk hneigist meira en full-
orðnir til að borða slíkan mat,“ sagði
Will. Hann bætti við að skýringin
gæti einnig verið sú að heilar bama
væm berskjaldaðri íyrir smiti.
Kjötið bannað árið 1989
Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómurinn
svarar til kúariðu og skyldra sjúk-
dóma í dýrum og stafar af prótíni sem
nefnist príon.
Fjölskyldur þehTa sem hafa smit-
ast af CJ-sjúkdómnum hafa krafist
ítarlegrar rannsóknar á því hvemig
sjúkdómurinn barst í menn áður en
sýkta kjötið var fjarlægt úr fæðu-
keðjunni. Breska heilbrigðisráðu-
neytið sagði hins vegar að „ekkert
nýtt“ hefði komið fram sem benti til
þess að kúariðusýkt kjöt hafi verið
notað í skólamáltíðh' og barnamat á
níunda áratugnum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
skólamáltíðir era tengdar kúariðu.
Breskir skólar tóku að banna nauta-
kjöt í mötuneytum sínum árið 1990,
sex áram áður en bresk stjórnvöld
tilkynntu að kúariðusýkt kjöt gæti
valdið CJ-sjúkdómnum.
Vísindamenn hafa lengi talið að
börnum sé hættara við að smitast af
sjúkdómnum þar sem þau taki oft
hamborgara og ódýra skyndibita
fram yfir annan mat. Aðeins ódýrasta
kjötið, svo sem innmatur, mæna, heili
og milta, er talið hafa verið sýkt á
níunda áratugnum. Slíkt kjöt var
bannað í Bretlandi árið 1989.
Læknar hafa lengi reynt að svara
því hvers vegna hið nýja afbrigði
Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins er
tiltölulega algengt meðal ungs fólks.
Áður en nýja afbrigðið kom fram
herjaði sjúkdómurinn sjaldan á fólk
undir fimmtugu. Meðalaldur þeirra
tíu fyrstu sem dóu af völdum nýja af-
brigðisins var hins vegar 27 ár.
Dauðsföll í Leicestershire
rannsökuð
Bresk stjórnvöld fyrirskipuðu í
vikunni sem leið tafarlausa rannsókn
á þremur dauðsföllum af völdum CJ-
sjúkdómsins sem tengjast Quenibor-
ough, 2.000 manna bæ í Leicester-
shire, um 150 km norðan við London.
Tveir sjúklinganna höfðu búið í bæn-
um og sá þriðji var þar tíður gestur.
Tveir aðrir, sem bjuggu í grennd við
bæinn, fengu einnig sjúkdóminn og
annar þeirra er látinn.
75 manns hafa dáið af völdum sjúk-
dómsins í Bretlandi og sérfræðingar
telja ólíklegt að það sé tilviljun að
fimm hafi dáið á svo litlu svæði.
Læknar hafa rætt við ættingja mann-
anna til að reyna að komast að því
hvort dauðsfölhn tengist með ein-
hverjum hætti.
Fólkið sem lést var á aldrinum 19-
35 ára. Faðir eins sjúklinganna, Pam-
elu Bayles, sem var 24 ára, kvaðst
fyrst hafa tekið eftir því að eitthvað
amaði að henni þegar hún hefði orðið
reikul í gangi, líkt og hún væri drukk-
in. Seinna tók minni hennar að
versna og hún þjáðist af þunglyndi og
ofsóknarkennd. Hún dó tveimm' ár-
um siðar.
Varað við faraldri
Breski farsóttafræðingurinn Roy
Anderson sagði að dauðsföllunum af
völdum CJ-sjúkdómsins hefði fjölgað
svo á árinu að hætta væri á faraldri.
„í ár era dauðsföllin þegar orðin tólf
og líldegt er að þau verði fleiri en
nokkra sinni fyrr, þannig að faraldur-
inn er rétt að byrja,“ sagði Anderson.
„Þetta getur verið lítill faraldur, og
við vonum öll að svo sé, en með-
göngutími sóttarinnar er svo langur,
þar sem smitið er líklega frá því seint
á níunda áratugnum, að það er alltof
snemmt að fullyrða hvort þetta verði
lítill, meðalstór eða stór faraldur.
Vegna þessa langa meðgönguskeiðs,
sem getur verið 10,20 eða 30 ár, líður
mjög langur tími þar til við skiljum til
fulls hvað er að gerast.“
Vitað er að þrír menn dóu af völd-
um CJ-sjúkdómsins árið 1995, tíu
1996 og 1997 og 181998. Dauðsfollun-
um fækkaði í 14 á síðasta ári en þeim
fjölgar nú aftur.
Settar vora mjög strangar reglur
um dýrafóður í Bretlandi árið 1996 til
að reyna að útrýma kúariðu. Reglur-
nar stuðluðu að því að Evrópusam-
bandið aflétti banni við útflutningi á
bresku nautakjöti.
Bretar reiðast sögu-
túlkun Hollywood
London. Morgunblaðið.
„BRETAR ættu að reiðast. Þeir eru
sýndir eins og Gestapo," sagði
bandaríski leikstjórinn Spike Lee í
viðtali í morgunútvarpi BBC um við-
brögð í Bretlandi við nýrri banda-
rískri mynd, „The Patriot". í henni
er Mel Gibson í aðalhlutverki, leikur
sjálfstæðishetju er berst gegn yfir-
ráðum Breta í Bandaríkjunum. Eng-
an undrar víst að sjálfstæðishetjan
og stuðningsmenn hans era góðu
gæjarnir í myndinni, en það fer
heldur betur fyrir bijóstið á Bretum
að bresku hermennimir í myndinni
eru bullur á borð við hefðbundna
ímynd nasista í bíómyndum.
„Þetta er einmitt kvikmynd, ekki
sagnfræði," sagði sendiherra
Bandaríkjanna í útvarpsviðtali. Það
breytir því þó ekki að Bretar kunna
ekki að meta þessu nýjustu söguút-
leggingu Hollywood og jafnvel í
Bandaríkjunum hefur hún vakið
spumingar.
„The Patriot" er nýjasta stór-
myndaafkvæmi Hollywood,
framsýnd í tæka tíð fyrir
sjálfstæðisdag Bandaríkjamanna, 4.
júlí, sem löngum hefur laðað að sér
stórmyndafrumsýningar. Myndin
gerist í frelsisstríðinu, þegar Bretar
misstu tökin á þeim svæðum í Norð-
ur-Ameríku sem þeir réðu þar, að
Kanada undanskildu.
Sú mynd sem þar er dregin upp af
Bretum, að sögn breskra og banda-
rískra fjölmiðla, er vægast sagt ekki
mjög geðþekk. í breska útvarpinu
var leikinn bútur úr myndinni þar
sem breskur herforingi virðir að
vettugi allar herreglur um heiðar-
lega hermannaframkomu og lætur
hengja sendiboða frá óvinunum. Þar
sem Bretar álíta sig einmitt virða
leikreglur og hafa í heiðri drengilega
framkomu hefur þessi mynd af þeim
sem bullum er einskis svífist snert
þá einkar illa.
Nærtækasta samlíkingin þykir
við nasista og þótti Spike Lee full
ástæða til að Bretar reiddust þessari
mynd. En það eru fleiri en Lee og
Bretar sem býsnast yfir myndinni. I
grein í Wall Street Joumal spyr
blaðakonan Debra Jo Immergut
hvort einhver hafi áður vitað að allir
sætu strákamir stóðu með nýlend-
unum eða að þrælarnir hafi ham-
ingjusamlega varið kúgara sína.
En hvernig stendur þá á því að
Bretar stökkva svo auðveldlega upp
á nef sér yfir einhverri Hollywood-
þvælu? Ástæðumar era vísast
margvíslegar, en meðal annars að
þótt Bretar og Bandaríkjamenn
deili saman máli og að hluta sameig-
inlegri sögu þá þarf ekki að tala við
marga Breta til að finna inn á að það
vottar auðveldlega fyrir ríg milli
þjóðanna tveggja.
Kvikmyndin sem deilt er um hef-
ur gefið Bretum tilefni til margvís-
legra vangaveltna. „Bandaríkja-
menn halda enn sjálfstæðisdaginn
hátíðlegan en hvað finnst þeim um
okkur nú, tvö hundrað áram síðar?“
spurði breski blaðamaðurinn
Duncan Campbell nýlega í The Gu-
ardian. Svarið var að þeim þætti
greinilega ekki mikið til Breta koma,
ef marka mætti áðurnefnda mynd.
En spurningin er líka hvort nokk-
ur ástæða sé til að kippa sér upp við
söguskoðun Hollywood, sem sjaldn-
ast hefur þótt styðjast við nákvæma
sagnfræði. Að minnsta kosti fannst
bandaríska sendiherranum ekki
ástæða til að fetta fingur út í mynd-
ina, sem hann hafði þó enn ekki
sjálfur séð, því í Bandaríkjunum
ríkti einmitt tjáningarfrelsi.
En það hefur iðulega ekki síður
verið grannt á hrifningu Breta í
garð Bandaríkjanna, þótt fáir taki
kannski jafn djúpt í árinni og breski
rithöfundurinn Christopher Is-
herwood. „Ég hata alla Bandaríkja-
menn,“ sagði Isherwood, þegar
hann var þar á ferð, þótt hann lærði
reyndar að meta þá síðar.
MITSUBISHI
- demantar í umferö