Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 37
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 37
ffarsniiHafeife
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
RÚTUSLYSIÐ
RÚTUSLYSIÐ MIKLA við
Hólsselskíl á þjóðveginum
.skammt frá Grímsstöðum á
Fjöllum er eitt umfangsmesta um-
ferðarslys, sem orðið hefur hér á
landi. Þá er átt við þann fjölda far-
þega, sem slasaðist, svo og það
björgunarstarf, sem grípa þurfti til
vegna þess, hve afskekktur slysstað-
urinn er, þótt nálægt hringveginum
sé. Aðstoðin við þá slösuðu gekk sér-
lega vel og starf björgunarsveita var
vel skipulagt. Einn farþeganna beið
bana er bíllinn fór út af brúnni og
langflestir farþeganna þrjátíu, flest-
ir þýzkir og fáeinir austurrískir,
slösuðst meira eða minna, nokkrir all
alvarlega.
Ástæður slyssins liggja ekki fyrir,
en rannsókn er hafin. Brúin yfir
Hólsselskíl er einbreið og er slysið
enn ein sönnun þess, hve hættulegar
slíkar brýr eru, enda fjölmörg óhöpp
orðið við þær víða um land. Vega-
gerðin vinnur samkvæmt langtíma-
áætlun (til 2010) við að taka einbreið-
ar brýr úr notkun á hringveginum og
helztu umferðarvegum. Þá hafa farið
fram tilraunir með blikkandi Ijós við
einbreiðar brýr til að vara vegfar-
endur við þrengingu vegar á slíkum
stöðum. Slysið nú á að vera yfirvöld-
um til áminningar um, að nauðsyn-
legt er að flýta áætlunum um að taka
einbreiðar brýr úr notkun á helztu
þjóðvegum, að ekki sé talað um á
hringveginum. Þær framkvæmdir
þurfa að hafa forgang og kosti það
aukin fjárframlög verður svo að
vera. Illbúandi er við óöryggið, sér-
staklega á sumrin, þegar mikill fjöldi
erlendra ferðamanna ekur um þjóð-
vegina án þess að gera sér að fullu
grein fyrir, hversu frumstætt vega-
kerfið er á köflum hér á landi.
Nokkur alvarleg rútuslys hafa
orðið undanfarin ár, m.a. á Kjalar-
nesi sl. vetur, þar sem tveir fórust.
Þessi slys hafa beint sjónum að
öryggismálum langferðabíla, sér-
staklega öryggisbeltum fyrir far-
þega. Frá 1. október 1999 er skylt að
öryggisbelti séu í nýjum, minni bíl-
um, en frá 1. október 2001 við inn-
flutning á þeim stærri. Ekki er
skylda að setja öryggisbelti í eldri
bíla, en hlutfall þeirra er hátt hér á
landi. Fyrirtækin hafa kvartað yfir
því, að tollar og önnur gjöld geri
þeim illkleift að kaupa nýja lang-
ferðabíla og þess vegna er iðulega
farin sú leið að flytja inn notaða bíla.
Þá þarf ekki öryggisbelti fyrir far-
þega. Þetta fyrirkomulag er hroll-
vekjandi og kominn er tími til, að
stjórnvöld, ferðaþjónustufyrirtæki
og rútubílaeigendur finni leiðir til að
bæta hér úr til að tryggja sem bezt
öryggi farþeganna. Slysið á Hóls-
fjöllum er alvarleg áminning til allra
er málið varðar. Sú var tíðin, að um-
ferðarslys af þessu tagi heyrðu til
undantekninga. Þeim virðist nú
fjölga. Miklar umræður spunnust um
öryggi í langferðabílum fyrir nokkr-
um árum þegar rúta valt. Það hefur
ekki orðið nægilega mikil breyting
til batnaðar á þeim tíma, sem liðinn
er. Það andvaraleysi má ekki endur-
taka sig í kjölfar þessa slyss.
SKATTALAG ABREYTING ARN AR
í ÞÝSKALANDI
SAMÞYKKT Sambandsráðsins,
efri deildar þýska þingsins, við
skattalækkunartillögum stjórnar-
innar er merkileg tíðindi og mikill
sigur fyrir Gerhard Sehröder kansl-
ara. Með samþykkt frumvarpsins og
þeim breytingum sem unnið er að í
lífeyrismálunum eru Þjóðverjar að
reka af sér slyðruorðið og enginn
vafi er á að það mun hafa mikil
áhrif í öðrum Evrópuríkjum, jafnt
utan Evrópusambandsins sem inn-
an. Eru hagfræðingar sammála um
að skattalagabreytingarnar muni
verða þýsku efnahagslífi mikil lyfti-
stöng og treysta þá efnahagslegu
uppsveiflu sem verið hefur í
Evrópu.
Fram til 2005 verða skattar lækk-
aðir um nærri 2.300 milljarða ísl.
kr. Fer lægsta skattþrepið úr 22,9%
í 15% og skattleysismörk verða
hækkuð. Tekjuskattur fyrirtækja,
sem nú er almennt á bilinu 30-40%,
fer í 25% og eigendum hlutabréfa
verður aðeins gert að greiða skatt
af helmingi arðgreiðslna. Fyrirtæk-
in sem nú greiða sérstakan sölu-
eða fjármagnsskatt til sveitarfélaga,
mega jafna honum við tekjuskattinn
en það þýðir að hann mun í raun
falla niður.
Ein umdeildasta breytingin er sú
að frá og með 2002 munu þýsk
fyrirtæki losna við að greiða skatt
af þeim söluhagnaði sem þau hafa af
því að selja hlut sinn í öðrum þýsk-
um fyrirtækjum. Er hann nú á bil-
inu 40-50%. Bankar og trygginga-
félög hafa mikil ítök í atvinnulífinu
en sitja á hlutabréfaeign sinni til að
komast hjá skattgreiðslu. Nú munu
þessir aðilar geta losað um mikið
fjármagn, selt sinn hlut á almennum
markaði og opnað fyrir eignaraðild
útlendinga að þýskum fyrirtækjum.
Af fréttum að dæma virðist þetta
lagaákvæði taka til söluhagnaðar,
þegar um gagnkvæma eignaraðild
fyrirtækja er að ræða, hvers í öðru.
Skattfrelsi söluhagnaðar er um-
deilt enda spyrja margir hvers
vegna ekki eigi að greiða skatt af
slíkum tekjum eins og t.d. launa-
tekjum.
Ekki hafði verið búist við að
skattalagabreytingarnar yrðu sam-
þykktar fyrr en í haust en stjórnar-
andstaðan, kristilegir demókratar,
er með meirihluta í Sambandsráð-
inu. Þótt flokkurinn væri hlynntur
frumvarpinu hugðist hann fella það
í Sambandsráðinu nema gengið yrði
lengra í skattalækkunum gagnvart
smáfyrirtækjum og einstaklingum.
Um það tókst stjórninni raunar að
semja en ekki við Kristilega demó-
krata, heldur við þrjá fulltrúa
flokksins í Sambandsráðinu. Er það
mikið áfall fyrir hina nýju forystu
flokksins og Ángela Merkel, leiðtogi
flokksins, viðurkenndi að þótt
skattalagabreytingarnar væru
vissulega í anda flokks hennar væri
Schröder sigurvegarinn í þessu
máli.
Banaslys er rúta valt út af brúnni við Hólsselskíl skammt norðan við Grímsstaði á Fjöllum á sunnudaK
V
Rútan valt ofan af einbreiðri brú sem var byggð árið 1937. Fjöldi manna kom að björgun á slysstað.
Morgunblaðið/Kristján
Einn maður lést og:
fjölmargir slösuðust
EINN maður lést og fjöl-
margir slösuðust þegar
rúta með 31 innanborðs
valt út af brúnni yfir
Hólsselskíl, skammt norðan vð
Grímsstaði á Fjöllum, sl. sunnudag.
Sautján voru lagðir inn á sjúkrahús
á Akureyri og í Reykjavík og þrett-
án manns til viðbótar fengu að fara
af sjúkrahúsinu á Akureyri eftir
skoðun í fyrrakvöld og gistu þeir á
hóteli í bænum í fyrrinótt. Rútan
valt austur af brúnni á hægri hlið-
ina og lenti afturhluti hennar í ánni.
Maðurinn sem lést var einn þeirra
sem lentu í ánni við óhappið.
Samkvæmt upplýsingum á vett-
vangi voru 27 Þjóðverjar og 3 Aust-
urríkismenn í rútunni en bílstjór-
inn er íslenskur. Lögreglan á
Húsavík fékk tilkynningu um slysið
um kl. 13.50 á sunnudag. Að sögn
Hreiðars Hreiðarssonar, lögreglu-
varðstjóra á Húsavík, sem stjórn-
aði aðgerðum á vettvangi, voru hin-
ir slösuðu fluttir með flugvél til
Reykjavíkur og þyrlu og sjúkra-
flutningabílum til Akureyrar. Alls
komu 26 ferðalangar til skoðunar á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
og var helmingur þeirra lagður inn
en hinn helmingurinn gisti á hótel-
um á Akureyri sem fyrr segir.
Mikill viðbúnaður var í kjölfar
slyssins og að sögn Hreiðars voru
læknar og hjúkrunarfólk kallað til
frá Húsavík, Egilsstöðum, Akur-
eyri og Kópaskeri og björgunar-
sveitarmenn frá Mývatnssveit,
Húsavík og Aðaldal, auk þess sem
lögreglumenn frá Akureyri komu á
vettvang, svo og lögreglumenn frá
Egilsstöðum, sem staddir voru í ná-
grenninu þegar slysið varð.
Um fímmtíu manns
að störfum á slysstaðnum
Þá sagði Hreiðar að mikið af
þrautreyndu fólki sem þarna var á
ferðalagi hefði borið að og að aðstoð
þess hefði skipt miklu máli á vett-
vangi. „Þegar við komum á staðinn
var hér fólk sem hafði reynslu í að
greina hina slösuðu, þannig að þeg-
ar flutningstækin komu var búið að
forgangsraða slösuðum. Það gekk
því greiðlega að flytja þá af vett-
vangi,“ sagði Hreiðar. Þegar mest
var voru um fimmtíu manns að
störfum á slysstaðnum.
Annað rútu-
slysið á árinu
26 ferðalangar komu til
skoðunar á FSA á sunnudag
NOKKUR alvarleg í-útuslys hafa
orðið hér á landi á undanförnum ár-
um. Fyrr í vetur létust þrír menn í
árekstri rútu og jeppa á Kjalarnesi.
Fyrir rúmum tveimur árum lést
ungur maður á svipuðum slóðum
þegar rúta fauk út af veginum. Þá
létust tvær konur í rútuslysi í vondu
veðri í Hrútafirði fyrir tæpum tveim-
ur ámm.
Eitt mannskæðasta umferðarslys
sem orðið hefur hér á landi varð í
febrúar í vetur þegar þrír menn lét-
ust og sjö slösuðust alvarlega í
árekstri rútu og jeppabifreiðar.
Slysið varð á Kjalarnesi. Nítján voru
í rútunni sem var ásamt annarri rútu
á leið norður í land. Ellefu farþegar í
rútunni voru fluttir á slysadeild, þar
af einn mikið slasaður. Þeir sem lét-
ust í slysinu voru ökumaður nitunn-
ar og farþegi og ökumaður jeppans.
I janúar 1998 varð banaslys þegar
hópferðabíll fauk út af veginum á
Kjalamesi norðan við Tíðaskarð. Af-
takaveður var þegar slysið varð og
fauk rútan út af veginum og endaði í
lækjarfarvegi um sjö metra neðan
við vegkantinn. Fjórir farþegar voru
í bílnum og lést 16 ára piltur. Svo
slæmt veður var á þessum slóðum
þegar slysið varð að rúða brotnaði í
sjúkrabíl sem kom á staðinn, en
gijóthnullungai' buldu á bilunum í
veðurofsanum.
í október 1995 létust tvær konur í
alvarlegu slysi þegar ráta með 42
farþegum valt í Hrátafirði. Mikil
hálka var á veginum og hvassviðri.
Rútan valt ofan í ræsi. Allar rúður
brotnuðu í bílnum og köstuðust
margh' farþegar út úr honum. Níu
farþegar, sem mest voru slasaðir,
voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús í
Reykjavík.
Árið áður, eða í ágúst 1994, valt
rúta í Bólstaðarhlíðarbrekku við
Stóra-Skarð. í bflnum voru 32 er-
lendir ferðamenn, aðallega frá Ítalíu.
Slysið varð með þeim hætti að bfllinn
var rétt kominn upp úr brekkunni
þegar hann mætti öðrum langferða-
bfl. Vegkanturinn var blautur og háll
eftir rigningar og lét hann undan
þunga bflsins. Bfllinn fór eina veltu,
en við það brotnuðu allar rúður í
honum. Ellefu farþegar voru lagðir
inn á sjúkrahús, sumir með beinbrot,
enpnginn slasaðist lífshættulega.
í maí 1995 fór rúta með 21 barni
og þremur fullorðnum út af veginum
innarlega í Reyðarfirði. Átján barn-
anna slösuðust þar af hlutu tvö bein-
brot.
í júlí 1989 valt rúta með 28 far-
þega innanborðs á veginum á
Möðradalsöræfum og hrapaði 40
metra niður í gilskorning. Fai’þeg-
arnir sluppu flestir með minniháttar
meiðsl.
ALLS komu 26 ferðalangar til
skoðunar á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri eftir rútuslysið við
Hólsselskíl á sunnudag, sam-
kvæmt upplýsingum frá FSA.
Tveir voru fluttir með þyrlu, níu
með sjúkrabifreiðum, fjórtán með
rútu og einn með einkabifreið. Þá
voru fjórir farþegar fluttir með
flugvél á sjúkrahús í Reykjavík.
Hópslysastjórn FSA var kölluð
til og stjórnaði hún öllum aðgerð-
um. Greiðlega gekk að taka á
Þrettán sjúkling-
ar lagðir inn
móti fólkinu og veita því nauðsyn-
lega aðhlynningu. Fystu sjúkling-
arnir komu á FSA um kl. 17.20 á
sunnudag og var búið að skoða þá
alla um kl. 22.30 og leggja þá inn
sem þurftu aðhlynningar við.
Þrettán sjúklingar voru lagðir
inn á sjúkrahúsið. Tíu þeirra voru
beinbrotnir og gengu þrír undir
aðgerðir vegna brota. Einn sjúk-
lingur hlaut loftbrjóst og annar
liðhlaup á öxl. Flestir hlutu einnig
mar og skurði sem þurftu að-
gerða við.
Eftir læknisskoðun og aðstoð
sem áfallahjálparteymi FSA veitti
fóru 13 einstaklingar á vegum
Rauðakross íslands á hótel þar
sem þeir gistu í fyi'rinótt. Þeir
komu á fund með áfallahjálpar-
teymi FSA og fleirum í gærmorg-
un.
Brá illilega þegar ég sá
vatn aftast í bílnum
ÞÝSKI ferðamaður-
inn, sem lést í rútu-
slysinu við Hólsselskíl
á sunnudag, lenti
undir tveimur öðrum
farþegum sem köst-
uðust til þegar rútan
valt af brúnni, að
sögn Helmut Lug-
mayers sem var leið-
sögumaður ferða-
fólksins. Aftasti hluti
rútunnar hafnaði í
ánni og lentu tveir
farþeganna í vatni og
var annar þeirra
maðurinn sem lést.
Lugmayer sat fremst
í rútunni þegar óhappið varð en
hann sneri aftur í bflinn þegar ekið
var inn á brúnna og sá því ekki ná-
kvæmlega hvað gerðist.
„Eg fann fyrir höggi við fram-
hjólið þegar við fórum inn á brúna
og kastaðist bfllinn fyrst á vinstri
hlið brúarinnar og svo yfir á hægri
hliðina og lagðist svo smám saman
niður af brúnni hægra megin og á
hliðina. Ég kastaðist til hliðar við
höggið en þegar ég leit aftur í bfl-
inn sá ég vatn aftast í bflnum og þá
brá mér illilega. Ég klöngraðist yf-
ir fólkið sem hafði hrúgast upp á
hvað annað og aftur í bflinn og sá
þá að tveir farþegar höfðu lent í
vatninu. Kona sem
var aftur í gat stungið
sér út í gegnum
brotna rúðu og komið
sér upp úr ánni. Eldri
maður sem sat aftast
hafði fengið tvær
konur ofan á sig og
gat sig þvf ekki
hreyft."
Lugmayer sagðist
hafa reynt að draga
konurnar af mannin-
um og síðan komið
honum upp úr ánni en
hann sagðist ekki
muna þá atburðarás.
„Það gekk ágætlega
að koma fólkinu út úr rútunni en
ég vann aðallega við það að koma
fólkinu upp úr vatninu.
Fljótlega bar að annað ferðafólk
sem veitti aðstoð á slysstaðnum en
einn vegfarandi fór upp að Gríms-
stöðum til að tilkynna um slysið því
ekkert GSM samband var á svæð-
inu og farsími rútunnar óvirkur."
Árangnrslausar
lífgunartilraunir
Lugmayer sagði að maðurinn
sem lenti í vatninu hafi sýnt lítils
háttar lífsmark í upphafi. Eftir að
tekist hafi að koma honum upp á
árbakkann hafi hann hins vegar
verið hættur að anda. Fljótlega bar
að hollenska hjúkrunarkonu sem
þarna var á ferð og tók hún við
lífgunartilraunum en án árangurs.
Lugmayer sagðist ekki geta
svarað því áþessari stundi hvort
bflbelti hefðu skipt sköpum í þessu
slysi. „Það er ekki mjög algengt að
bflbelti séu í svona bflum á Islandi.
Það er ekki víst að bflbelti hefðu
hjálpað því fólki sem lenti í vatninu
en kannski hefði fólk ekki lent eins
mikið ofan á livert öðru hefði það
verið í bflbelti.“
Helmut Lugmayer hefur stai'fað
sem leiðsögumaður á íslandi í níu
sumur. Hann vildi fyrir hönd hóps-
ins koma á framfæri sérstöku
þakklæti til allra þeirra ljölmörgu
sem aðstoðuðu fólkið á slysstað-
num og á Akureyri í kjölfarið.
Hann sagði að fólkinu liði eftir at-
vikum en að ljóst væri að einhverj-
ir þyrftu að dvelja á sjúkahúsi eitt-
hvað lengur. Fólkið, sem var í
hálfsmánaðar ferð um landið,
hafði verið á ferðinni í átta daga
og var hópurinn á leið frá Norð-
firði að Dettifossi þegar óhappið
varð. Farþegarnir eru á aldrinum
40-70 ára og koma þeir víða að frá
Þýskalandi og Austurríki. I hópn-
um voru 17 einstaklingar, fimm
hjón og tveir bræður auk leiðsögu-
manns og bflstjóra.
Helmut Lugmayer
Fjórir ferðamenn lagðir inn á Landspítalann í Fossvogi
Enginn var lífs-
hættulega slasaður
FJÓRIR af þeim sem voru í hóp-
ferðabílnum sem valt ofan í
Hólsselskfl voru fluttir á Landspíta-
lann í Fossvogi strax eftir slysið. Að
sögn Jóns Baldurssonar, yfirlæknis
á slysadeild spítalans, var enginn
þeirra lífshættulega slasaður, en
ferðamennimir voru lagðir inn á
aðrar deildir spítalans til frekari
rannsókna og eftirlits. Jón sagðist í
fyrstu hafa búist við 25 sjúklingum
og þar af 10 illa slösuðum. Var
sjúlö'alið sett í viðbragðsstöðu og
kallað á enn frekari liðsauka. „Það
kom svo í ljós að blessunarlega var
ástandið nú ekki svo slæmt,“ sagði
Jón í samtali við Morgunblaðið í
gær og að hans sögn var sjúkrahús-
ið vel í stakk búið til þess að taka á
móti sjúklingunum.
Samræma þarf betur
aðgerðir í stórslysum
„Fólkið hér vann sitt starf af
stakri prýði og var mjög ánægjulegt
að sjá það. Hitt er svo annað mál að
hópslysakerfi landsins er ekki eins
og það á að vera,“ sagði Jón og bætti
við að skipulagður viðbúnaður
vegna hópslysa mætti vera nánar
tengdur hinu daglega kerfi. „Ai-
mannavarnir rfldsins setja í gang
vettvangsstjórnarskipulag þegar
stórslys verða og þar starfar frá-
bært fólk sem hefur sérþekkingu á
sínu sviði. Gallinn er sá að það
skipulag er ekki notað í daglegu
starfi, sem er alvarlegur veikleiki á
heildarkerfinu. Kerfið verður að
þjóna sjúklingum hratt og mark-
visst og stærsta vandamálið við nú-
verandi kerfi er það að samræming-
araðilinn, sem er Almannavarnir
ríkisins, tekur ekki til starfa strax.
Eðlilegast er að hann sé alltaf virk-
ur og tilbúinn þannig að þegar
hringt er inn til neyðarlínunnar fari
strax í gang markviss stjóm að-
gerða. Neyðarlínan er boðunaraðili
sem sinnir sínu hlutverki mjög vel
en þar hefur enginn umboð til fram-
kvæmda. Það sem þarf er samræm-
ingaraðili sem er í landræðilegu ná-
býli við neyðarlínuna, helst í sama
húsi, og hefur vald til að stjórna að-
gerðum. Nauðsynlegt er að hann sé
alltaf virkur, hvort heldur sem um
er að ræða stór slys eða lítil. Al-
mannavamakerfið var sett í gang
vegna slyssins í fyrradag af tilviljun,
en vaktmaður Landhelgisgæslunn-
ai- frétti af þessu slysi vegna þess að
þyrla Gæslunnar var kölluð út og
það er hann sem lét starfsmann
stjórnstöðvar Almannavarna vita.
Það er engin ein stjórnstöð til í land-
inu sem samræmir aðgerðir, en að
mínu mati verður það að vera. Það
er lífsspursmál fyrir fólk sem lendir
í slysi að skipulagið sé gott svo hægt
sé að koma því til hjálpar tímanlega
og að það sé flutt á rétta staði eins
fljótt og auðið er,“ sagði Jón og
skorar á stjórnvöld að taka málið til
athugunar, en vildi bæta því við að
hann hefði ekkert að setja út á ein-
staka aðila sem stóðu að björgunar-
aðgerðum heldur vfldi koma á fram-
færi gagnrýni á kerfið í heild.
Verið að endurskoða vett-
vangsstjórnarskipulag
Að sögn Árna Birgissonar, sviðs-
stjóra Almannavarna ríkisins, er
stjóm neyðaraðgerða á Islandi í
höndum lögreglustjóra í hverju um-
dæmi, sem í þessu tilviki var lög-
reglustjórinn á Húsavík. „Það er
hægt að skipta neyðaraðgerðum í
tvo meginflokka," sagði Árni. „Ann-
ars vegar í daglegar neyðaraðgerð-
ir, þar sem lögreglan er við stjórn-
völinn, og hins vegar þegar um er að
ræða mjög umfangsmikil slys, nátt-
úruhamfarir eða hernaðarátök. Þá
taka gildi lög um almannavarnir, en
almannavarnaástand er þegar dag-
leg neyðarþjónusta hefur ekki und-
an. Þegar um er að ræða eins stórt
slys og varð á Fjöllum getui' það
verið erfitt fyrir minni umdæmi að
anna slíku. Ákvæði um það hvenær
almannavarnaástand er og hvenær
Almannavarnir skuli taka við stjórn
geta verið loðin, en nýlega var vett-
vangsstjórnarskipulag Almanna-
varna endurskoðað með það fyrir
augum að það nýtist í öllum tilvik-
um,“ sagði Ami. „Það sem við erum
að reyna að gera er að yfirfæra vett-
vangsstjórnarskipulag Almanna-
vama á daglegar neyðaraðgerðir og
hafa Almannavarnir og fulltráar
ýmissa stofnana og samtaka á sviði y
neyðar- og öryggisþjónusu unnið
markvisst að því að samræma þessi
mál. Enn eigum við þó mikla vinnu
fyrir höndum.“
Flestir vilja
fara heim
sem fyrst
Flestir af ferðamönnunum sem
vora fai'þegar í hópferðabif-
reiðinni em ferðafærir vilja
komast heim sem fyrst, að
sögn Hallgríms Lárussonar,
markaðsstjóra ferðaskrifstofu
Snælands-Grímssonar, sam-
starfsaðila þýsku ferðaskrif-
stofunnar Studiosus. „Ætli það
séu ekki um tuttugu manns
sem vilja komast heim á morg-
un ef hægt er,“ sagði Hallgrím-
ur, en hópurinn kom til lands-
ins 9. júlí og var áætluð
brottfór hinn 23. næstkom-
andi.
„Þegar svona kemur fyrir
vill fólk komast heim og ná átt-
um, sem er auðvitað alveg
skiljanlegt. Við erum að vinna í
því þessa stundina að koma
fólkinu til Reykjavíkur og
finna fyrir það gistingu. Það er
svo Studiosus-ferðaskrifstofan
sem mun sjá um að koma
ferðamönnunum frá Islandi, en
hún bókaði og skipulagði ferð-
ina í upphafi,“ sagði Hallgímur.