Morgunblaðið - 18.07.2000, Qupperneq 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
■■■■■"■.. ■ ' 1,1
FRÉTTIR
Endurreisn
sagnahefð-
arinnar
ÞRIÐJUDAGINN 18. júlí mun
Rögnvaldur Guðmundsson, ferða-
málaráðgjafi, flytja erindi á jökla-
sýningunni í Sindrabæ, Höfn í
Hornafirði. Erindið nefnir hann:
Menning og ferðaþjónusta undir
Vatnajökli. Þar mun hann ræða þró-
un og tækifæri í menningarferða-
þjónustu á íslandi, m.a. Evrópuverk-
efnið: Endurreisn sagnahefðarinnar.
Það er unnið í samvinnu við Frá-
sagnarmiðstöð Skotlands (Seottish
Storytelling Centre) og mögulega
þróun-jöklasýningar í lifandi jökla-
safn - með áherslu á menningarþátt-
inn.
Rögnvaldur er menntaður í sögu
og íslensku frá HÍ og nam síðar
ferðamálafræði í Noregi.
Af óviðráðanlegum orsökum mun
næsti þriðjudagsfyrirlestur á eftir
Rögnvaldi færast fram um fjóra
daga eða til fóstudagsins 21. júlí, en
þá mun Ari Trausti Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur, flytja erindi sem
hann nefnir: Frost og funi. Fjallar
erindið um eldvirkni í Vatnajökli á
nútíma. Sagt verður frá eldstöðva-
kerfunum undir ísnum, þ.á m. virk-
a«ta eldstöðvakerfí landsins, Gríms-
vötnum, sem er um leið eitt öflugasta
háhitasvæði heimsins. Að lokum
verður sagt frá ýmsum eldfjalla-
athugunum sem ísienskir vísinda-
menn stunda á Vatnajökli og velt
upp hugmyndum um framtíð
eldvirkninnar í Vatnajökli.
Fyrirlestrarnir eru í bíósal
Sindrabæjar og hefjast kl. 20:00.
Kynningar og fræðslu-
rit um Namibíu
Námskeið
um þyrlu-
móttöku
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir eins kvölds nám-
skeiði um það hvernig á að taka á
mdti þyrlu á slysstað. Það verður
fimmtudaginn 20. júlí og hefst kl
18:30 en kennt verður til kl. 23.
Þegar slys eiga sér stað eða
maður veikist alvarlega getur það
haft úrslitaþýðingu fyrir hann að
komast í hendur læknis sem fyrst.
Gildir það sérstaklega utan svæða
sem njóta þjónustu sjúkrabfla og
getur sjúkraflutningur með þyrlu
verið nauðsynlegur. Námskeiðið
er gott fyrir fararsljóra, leiðsögu-
menn, rútubflstjóra, rjúpnaskytt-
ur, sportsiglingamenn, vélsleða-
menn og aðra sem fara um
óbyggðir og verður Flugdeild
Landhelgisgæslunnar m.a. heim-
sótt, segir í frétt frá RKÍ.
ÚT ER komið ritið Namibía sem
er annað í ritröðinni Smárit ÞSSÍ
sem Þróunarsamvinnustofnun ís-
lands gefur út.
„Þróunarsamvinnustofnun Is-
lands er ríkisstofnun sem heyrir
undir utanríkisráðuneytið og hefur
það hlutverk að annast tvíhliða
þróunarsamstarf íslands. Eitt af
hlutverkum stofnunarinnar er að
annast kynningar- og fræðslustarf
um þennan málaflokk fyrir al-
menning og skólafólk á íslandi.
Stofnunin hefur um árabil gefið út
tímaritið Fréttabréf um þróunar-
mál, þar sem fjallað er um verk-
efni stofnunarinnar og ýmis önnur
mál er varða þróunarsamstarf.
Smáritum ÞSSÍ er ætlað að fjalla
nánar um Malaví en að þessu sinni
er fjallað um Namibíu. Ætlunin er
að gefa næsta rit út um Mósambík
en þessi þrjú lönd eru helstu sam-
starfslönd Þróunarsamvinnustofn-
unar íslands. Ritinu er dreift án
endurgjalds til skóla, bókasafna og
ýmissa annarra stofnana á landinu.
Er það von okkar að ritin nýtist til
fróðleiks og náms um aðstæður og
kjör fólks í þróunarlöndunum.
Einnig er hér vakin athygli á því
að á sl. vetri var gert myndband
um starfsemi ÞSSÍ í Malaví,
Namibíu og Mósabík. Myndbandið
nefnist Svipmyndir frá Afríku og
er 21 mínúta að lengd. Skólar og
aðrir sem áhuga kunna að hafa á
þróunarsamstarfi íslands geta
fengið myndbandið lánað hjá
stofnuninni,“ segir i fréttatilkynn-
ingu frá Þróunarsamvinnustofnun
íslands.
SPRON styrkir
lagningu
fræðslustígs
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og ná-
grennis og garðyrkjudeild Reykja-
víkurborgar hafa gert með sér sam-
komulag um að SPRON kosti að
hluta lagningu fræðslustígs í Elliða-
árdal sem garðyrkjudeildin vinnur
að um þessar mundir.
Við stíginn hefur verið komið íyrir
upplýsingaskiltum um sögu þessa
skemmtilega dals sem Elliðaárdal-
urinn er og þeirra mannvirkja sem
þar eru. Hér er um að ræða fræðslu-
efni sem verður einnig að finna á
Netinu ásamt því að gefinn verður út
bæklingur með nánari upplýsingum.
Áður hefur SPRON staðið víðar
að uppsetningu á skiltum.
---------------
LEIÐRÉTT
Nafn umsjónarmanns misritast
Nafn umsjónarmanns dægurlaga-
síðunnar sl. sunnudags misritaðist.
Hann heitir Arnar Eggert Thorodd-
sen. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Fallið var 3,5 metrar
Stúlkan sem slasaðist í Viðey sl.
föstudag féll 3,5 m en ekki 7-8 m eins
og greint var i frétt Mbl. á laugar-
dag. Er það samkvæmt mælingum
lögreglunnar að sögn forsvarsmanna
leikjanámskeiðs ÍTR. Einnig vildu
þau taka fram að börnin hefðu ekki
verið að leik nálægt grýttri fjörunni
heldur hefði aðeins eitt bamanna
tekið sig út úr hópnum.
'
RAÐAUGLYSINGA
TILK YNNINGAR
NAUÐUNGARSALA
HUSNÆGI I BOQI
Aðalfundur
Aðalfundur Norðvesturbandalagsins hf. verður
haldinn fimmtudaginn 27. júlí 2000 kl. 15.00.
Fundurinn verður haldinn í matsal sláturhúss
NVB á Norðurbraut 24, Hvammstanga.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra.
3. Ársreikningur 1999.
4. Kosning stjórnar og endurskoðanda.
5. Ráðstöfun hagnaðar.
<S. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
7. Sameiningarmál.
8. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur 1999 verðurtil sýnis á skrifstofu
viku fyrir aðalfund.
Stjórn Norðvesturbandalagsins hf.
Deiliskipulag frístunda-
svæðis
að Ofanleiti í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann
8. maí sl. tillögu að deiliskipulagi frístunda-
svæðis að Ofanleiti í Vestmannaeyjum, sem
afmarkast að sunnan við girðingu flugbrautar,
að norðan um Höfðaveg og Ofanleitisveg, um
framtíðaríbúðarsvæði í austri og girðingu flug-
brautar og Ofanleitisveg í vestri. Tillagan var
auglýst þann 19. maí og lá frammi til kynningar
til 16. júní sl. Fresturtil að skila athugasemdum
rann út 30. júní sl. og bárust engar athuga-
semdir. Deiliskipulagið hefur verið sent Skipu-
lagsstofnun til athugunar, sem mun gera at-
hugasemdir, ef form- og/eða efnisgallar eru
á því.
Jíeiliskipulagið hlýtur gildi við auglýsingu í B-
deild Stjórnartíðinda.
Þeir, sem óska nánari upplýsinga um deiliskip-
ulagið og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið
sértil skipulags- og byggingafulltrúa Vest-
mannaeyja.
Bæjarstjóri Vestmann-
aeyja.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hagatún 7, þingl. eig. Runólfur Jónatan Hauksson og Árný Jóhanns-
dóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Landsbanki íslands hf„
höfuðst., mánudaginn 24. júlí 2000 kl. 15.00.
Hólabraut 20, þingl. eig. Guðrún Snorradóttir, gerðarbeiðandi Sóley
Herborg Skúladóttir, mánudaginn 24. júlí 2000 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
12. júlí 2000.
ATVINNUHÚ5NÆÐI
til leigu
Til leigu 140 fm skrif-
stofuhúsnæði í 1. hæð
í þessu glæsilega húsi
við Skúlagötu 17, Rvík.
Um er að ræða nýtt og
ónotað húsnæði sem
skiptist í þrjú rúm-
góð skrifstofuherbergi auk opins vinnurýmis,
móttöku og eldhúss. Húsnæðið er eitt hið
glæsilegasta sinnar tegundar, m.a. er gegnheilt
harðviðarparket á gólfum, rafstýrð gluggaopn-
un, stillanleg halogen-lýsing, tölvu- og síma-
lagnir sem og fullkomið sjónvarpskerfi. Einnig
bruna- og þjófavarnarkerfi, svo og aðgangs-
kortakerfi. Aðgangur að netþjóni/símkerfi ef
vill. Húsnæðið er laust til afhendingar.
Upplýsingar í síma 893 4284.
TIL SÖLU
Rýmingarsala
Skrifstofustólar — 30-50% afsláttur.
Inn X innréttingar ehf.,
Bíldshöfða 16,
sími 577 1170.
Skúlagata —
íbúð í 101 Reykjavík
Til leigu frá 1. ágúst falleg 102 fm íbúð í mið-
borginni. Aðeins reyklausir, reglusamir og
traustir leigjendur koma til greina.
Upplýsingar í síma 899 3386.
ÝMISLEBT
Viltu stofna prentsmiðju?
Til sölu lítil prentsmiðja sem hentarvel til
flutnings, t.d. út á land. Tvær prentvélar,
skurðarhnífur og setningatölvur.
Hóll fasteignasala, sími 893 4284.
s G ' , n111i'ji iim sh E3 3
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MöfíKINNI 6 - SlMI 56B-2S33
Hellaskoðunarferð í Bláfjöll
miðvikudaginn 20. júlí kl.
20:00 í fylgd sérfræðinga frá
Hellarannsóknafélaginu.
Verð kr. 800. Allir velkomnir.
Takið með ykkur Ijós og hjálm
eða góða húfu.
Fimmvörðuháls um helgina.
Notum dagsbirtuna til útiveru
og hollrar hreyfingar.
Nokkur saati laus í nýja ferð
um Lónsöræfi 21. júlí. Farar-
stjóri: Sigríður Þorbjarnardóttir.
Pantið sæti í Þjóðlendugöng-
unum strax. Nýjar ferðir, nýjar
leiðir í fylgd heimamanna.
Brottfarir í dags- og kvöldferðir
F.í. eru frá BSI og Mörkinni 6, í
aðrar ferðir eingöngu frá BSl.
Pantið tímanlega á skrifstofu,
s. 568 2533. www.fi.is, texta-
varp RUV bls. 619.
KENNSLA
Finndu það fegursta
í sjálfum þér
Viltu auka kærleikann í lífi þínu?
Hugleiðsla.
Þjálfun í teikn-
ingu og litameð-
ferð.
Að miðla af sér
og deila með
öðrum.
Sjálfsþekking.
Upplýsingar í sima 520 6133.