Morgunblaðið - 18.07.2000, Síða 60
iO ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dortmund Sparkassen
Nr Nafn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn Röö
1 Evqenv Bareev Rússi. 2702 % 'A 'A 0 1 y2 0 'A 'A 4 8.
2 Michael Adams Enql. 2755 ’/2 1 0 'A y2 y2 1 'A 5 3.
3 Vladimir Kramnik Rússl. 2770 'A 0 1 'A 1 'A 1 'A 1 6 1.
4 Viswanathan Anand Indl. 2762 % 1 0 'A 1 1 y2 1 VS 6 2.
5 Peter Leko Unqv. 2743 1 y2 % ’A 1 ’/2 % 'A 0 5 4.-5.
6 Dr. Robert Hiibner Þýsk. 2615 0 y2 0 0 0 ’/2 y2 0 2 10.
7 Alexander Khalifman Rússl. 2667 'A ’/2 % 0 ’/2 % y2 ’/2 ’/2 4 7.
8 Vladimir Akopian Arm.2660 1 y2 0 'A 'A 'A 'A 1 'A 5 4.-5.
9 Jereon Piket Holl. 2649 % 0 ’/2 0 'A 'A 'A 0 ■[1 3,5 9.
10 Junior 6 Vz ’/2 0 'A 1 1 'A % oH 4,5 6.
Kramnik barð-
ist eins og ljón
SKAK
Ð o r t m u n d
DORTMUND
SPARKASSEN
7.-16. júlí 2000
VLADIMIR Kramnik barðist
eins og ljón eftir tapið gegn
Michael Adams í fjórðu umferð
Dortmund Sparkassen ofurmóts-
ins. Hann fékk 3% vinning úr
næstu fjórum umferðum og náði
meðal annars að sigra hættuleg-
asta andstæðing sinn, Indverjann
Viswanathan Anand, í skák þar
sem báðir keppendur gerðu mis-
tök. Með þessari frammistöðu var
Kramnik kominn með forystu á
mótinu fyrir síðustu umferð. I
lokaumferðinni urðu úrslit síðan
þessi:
Leko - Junior 0-1
Húbner - Anand 0-1
Khalifman - Kramnik V2-V2
Akopian - Adams V2-V2
Piket - Bareev V2-V2
Skák Anands gegn Húbner má
segja að hafi verið upp á líf og
dauða fyrir Anand. Hann hafði
misst forystuna í hendur Kramn-
iks og ekkert nema sigur gegn
Húbner kom til greina. Húbner
hafði átt í vök að verjast á mótinu
gegn yngri stórstjörnunum og
þrátt fyrir að hafa hvítt í skákinni
gegn Anand missti hann fljótlega
það frumkvæðið sem fylgir því að
hafa hvítu mennina. I 33. leik vann
Anand síðan e-peðið af Húbner,
sem sá svo þann kost vænstan að
gefa skákina eftir 39 leiki.
Meðan á þessu stóð gerði
Kramnik stutt jafntefli við Khal-
ifman. Skákin varð einungis 15
leikir. Ummælin um þessa skák á
vefsíðu Kasparovs eru athyglis-
verð. Þar segir stórmeistarinn Al-
exei Bezgodov að með þessu stutta
jafntefli hafi Kramnik og Khalif-
man sýnt skipuleggjendum, skák-
listinni, öllum skákáhugamönnum
og skákmönnum um allan heim al-
gjöra vanvirðingu. Bezgodov segir
reyndar líka að í lokastöðunni hafi
Khalifman haft stórkostlega yfir-
burði og jafnvel unnið tafl. Þegar
lokastaðan í skákinni er skoðuð er
erfitt að skilja þessar yfirlýsingar
Bezgodov og sjá þá miklu yfir-
burði sem hann ræðir um. Úrslit
skákarinnar urðu hins vegar til
þess að Kramnik varð að sætta sig
við að Anand náði honum að vinn-
ingum. Hins vegar telst Kramnik
sigurvegari mótsins eftir stigaút-
reikninga.
Áhugamenn um skákforrit
fylgdust spenntir með lokaviður-
eign Deep Junior, sem að þessu
sinni mætti Peter Leko. Leko
hafði hvítt. Teflt var fjögurra ridd-
Viswathan
Anand
ara tafl og vakti taflmennska Deep
Junior í byrjuninni allnokkra at-
hygli. í áttunda leik lék Junior 8...
h5, sem flestum þótti stórskrýtinn
leikur. Þrátt fyrir undarlega tafl-
mennsku forritsins náði Leko ekki
þeim yfirburðum út úr byrjuninn
sem margir áttu von á. í 23. leik
fórnaði hann hins vegar óvænt
skiptamun, sem við nánari skoðun
virtist vera vænleg leið. Hann
gerði þó þau alvarlegu mistök sið-
ar í skákinni að fara út í endatafl
sem hentar skákforritum afar vel.
Það krafðist mikilla og nákvæmra
útreikninga og þar njóta styrkleik-
ar skákforrita sín til fulls, ekki síst
gegn mannlegum andstæðingi í
tímahraki eins og í þessari skák.
Eftir að hafa eygt sigur í skákinni
varð Leko nú að gjalda fyrir þessi
mistök 0g tapaði skákinni.
Öðrum skákum umferðarinnar
lauk með jafntefli.
Evrópukeppni ungmenna
íslenska drengjaliðið lenti í 8.
sæti í Evrópukeppni ungmenna
sem fram fór í Balontelle í Ung-
verjalandi dagana 9.-15. júlí. Is-
lenska liðið gerði 2-2 jafntefli við
Króatíu í síðustu umferð mótsins
ojg hlaut alls 12‘/2 vinning, en
Ukraína sigraði og fékk 2IV2 vinn-
ing af 28 mögulegum. Stúlknaliðið
tapaði hins vegar 0-2 gegn Þýska-
landi í síðustu umferð og hafnaði í
11. sæti.
Árangur á einstökum borðum í
drengjaliðinu varð sem hér segir:
1. Stefán Kristjánsson 3 v. af 6.
Davíð Kjartansson IV2 v. af 6. Sig-
urður P. Steindórss. 4V4 v. af 6.
Dagur Arngrímsson U/2 v. af 4.
Halldór B. Halldórss. 0 v. af 2.
Árangur Sigurðar Páls var ein-
staklega góður, en hann hlaut
flesta vinninga á þriðja borði
ásamt þriðja borðs manni sigur-
liðsins, Ungverjalands.
Ingibjörg Edda Birgisdóttir
tefldi á fyrsta borði fyrir stúlkna-
sveitina og fékk 2 vinninga í sjö
skákum. Aldís Rún Lárusdóttir
tefldi á öðru borði og fékk 1 vinn-
ing í sjö skákum. Anna Lilja Gísla-
dóttir var varamaður sveitarinnar,
en hún tefldi ekki að þessu sinni.
Fararstjórar og liðsstjórar voru
Helgi Ólafsson og Sigurbjörn J.
Björnsson.
Daði Örn Jónsson
ll‘
I 11 C JSK( ) I
— j ó.st 11 y > ti
Barnamyndatökur
í sumar
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, Ijósmyndari
ÍDAG
VllVAkWIII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hnefaleika-
sýning á Sýn
í UPPHAFI kynningar á
hnefaleikasýningu á Sýn
24. júní ráku þeir sem lýstu
keppninni, upp hiátur mik-
inn á heldur óviðkunnaleg-
an hátt, sem truflaði hina
erlendu kynningu á dómur-
um og keppendum. Kynn-
ingin hjá þeim sem starfa
hjá Sýn var ófullnægjandi.
Kom þar líka til að þeir hafa
takmarkaða þekkingu á
hnefaleikum. Mig langar að
rifja upp sýnishorn af tals-
máta þeirra en hlátrasköll-
um verð ég að sleppa.
Þeir sem kepptu voru:
Robin Reid, frá Englandi
og Silvo Branko frá Italíu.
2. lota: (B) Jab-er, hann
er að keyra þessa stungu
upp
4. lota: (B) Stungan
stangast í þá allan tímann
5. lota: (B) Taka frá hon-
um stunguna og lappimar
6. lota: (Ó) Jab-er, það
vantar ákveðna skólun,
(hvaða skólun)
7. lota: (B) Jab-er, það er
eins og það vanti áhugann
hjá Reid
7. lota: (Ó) Jab-er, farinn
að pressa meir
8. lota: (B) Feilið hjá
Reid er þegar hann þarf að
fara í hröðun
9. lota: (B) Ekki nógu
mikil hröðun
12. lota: (Ó) Of seint að
verða örvhentur
Silvo Branko sigraði
mótstöðumann sinn örugg-
lega, en B og Ó voru ekki
vissir?
Þetta vekur upp spurn-
ingu um hvaða kröfur séu
gerðar til þeirra sem lýsa
hnefaleikum.
íslenska er fallegt tungu-
mál og það á ekki að tala um
haus og lappir nema verið
sé að tala um dýr. Enn fleiri
bögumæli mætti nefna, sem
æskufólk ætti ekki að temja
sér. Mér finnst íslenska af
þessu tagi ekki boðleg
áskrifendum. Þeir sem taka
að sér að lýsaatburðum í
fjölmiðlum verða að nota ís-
lenskan orðaforða, annað er
hvorki boðlegt né sæmandi.
Óánægður áhorfandi.
Frábært framtak
MYNDBROT - þættir frá
fyrstu ámm Ríkissjón-
varpsins voru á dagskrá
Ríkissjónvarpsins sunnu-
dagskvöldið 16. júlí sl. Þvi-
líkar gersemar. Bestu fista-
menn þjóðarinnar frá
þessum tíma, Jóhann Kon-
ráðsson, Haukur Morthens,
Sigfús Halldórsson, Ragn-
ar bjarnason og margir
fleiri. Þjóðhátíðin 1974. Hér
er farið af stað með merki-
lega úrvinnslu á íslensku
efni, sem til er hjá Ríkis-
sjónvarpinu. Frábært
framtak með mikla mögu-
leika. Ef sett yrði upp sér
rás fyrir fótboltaunnendur
yrði ég ánægður.
Tapaó/fundid
GSM-sími tapaðist í
Grafarvogi
PANASONIC GSM-sími
tapaðist fyrir utan Gullengi
39 laugardagskvöldið 8. júfi'
sl. Upplýsingar í síma 586-
1561.
Dökkblár bakpoki
fannst í Kópavogi
DÖKKBLÁR bakpoki
merktur Eastpak fannst
fyrir utan Hagkaup í Smár-
anum í Kópavogi, föstudag-
inn 14. júlí sl. I pokanum
voru gallabuxur með leður-
belti, hylki utan af GSM-
síma og húfa. Eigandi getur
vitjað þessara hluta á Lög-
reglustöðinni í Kópavogi.
Game Boy Color
týndist
EG var að koma úr sumar-
búðunum Ævintýralandi í
Hrútafirði. Eg var svo
óheppinn að gleyma Game
Boy Color nýja tölvuspilinu
mínu í rútunni sem stoppaði
við Umferðarmiðstöðina kl.
14 hinn 28. júní. Spilið er
gjöf frá ömmu minni og afa
og ég sakna þess óskaplega
mikið. Spilið er skærgrænt
að lit og var það með einum
bílaleik. Ef einhver veit um
það hafi þá samband við
móður mína i 565-6617 eða
697-7000. Bergþór Dagur.
Hliðartaska týndist
á Sportkaffi
GRÁ og svört hliðartaska
tapaðist úr fatahenginu á
Sportkaffi sl. föstudags-
kvöld. I því voru peninga-
veski með skilríkjum, tveir
GSM-símar, myndavél og
geisladiskur. Allar upplýs-
ingar vel þegnar! Hjördís,
sími 567-3634.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Kristinn.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr.
1.945 til styrktar Rauða kross íslands. Þær heita Alda
Magnúsdóttir, Eva Dögg Þorvaldsdóttir og Ólöf Vil-
helmsdóttir.
Morgunblnðið/Emilííí.
Þessir duglegu drengir söfnuðu með tombólu kr. 2.218 til
styrktar Rauða kross íslands. Þeir heita Skúli Þór Jónas-
son og Vilþjálmur Siggeirsson.
Morgunblaðið/Emílía.
Þessir duglegu krakkar söfnuðu með tombólu kr. 2.055 tit
styrktar Rauða kross íslands. Þau heita Bjarni Viðar Þor-
steinsson, Einar Sævar Jónmundsson og Anna K.
Jónmundsdóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu kr. 3.720 til
styrktar Rauða kross íslands. Þær heita Margrét Svein-
björnsdóttir og Árný Björg Árnadóttir.
Víkverji skrifar...
VESTFIRÐINGAR hafa á undan-
fomum árum kvartað sáran
undan vegunum. Oft hefur verið
ástæða til enda vegimir slæmir auk
þess sem hægt hefur gengið að
byggja þá upp. Það var því nokkur
óhugur í Víkverja þegar hann fór á
sínum lága smábfl Vestfjarðahring-
inn á dögunum. Farið var norður
Strandir, um Djúpið og síðan suður
um göngin, heiðamar og Barða-
ströndina.
Óttinn reyndist ástæðulaus því
vegimir vora satt að segja með besta
móti, miðað við það sem Víkverji hef-
ur kynnst á ferðum sínum um þessa
vegi. Auðvitað vantar mikið upp á að
vegimir séu góðir, það verða þeir
ekki fyrr en bundið slitlag hefur verið
lagt. Vegagerðin hefur víða sturtað
hlössum í holur, heflað og rykbundið
langa kafla. Nefna má sem dæmi að
vegurinn um Dynjandisheiðina, frá
samnefndum fossi og í áttina að
Vatnsfirði, var betri en Víkverji hefur
áður farið hann.
VERSTI kaflinn á leiðinni var
austurhluti ísafjarðar, innst í
Isafjarðardjúpi. Þar er verið að
byggja upp veginn á 16 kflómetra
kafla og er hann hræðilega grófur og
ekki smábílum bjóðandi. Auðvitað
ber að fagna hverjum nýjum kafla og
vegfarendur verða að sýna verktök-
um skilning þegar verið er að byggja
upp vegi. Hins vegar verður að gera
þá kröfu að vegarkaflamir séu ekki
skildir þannig eftir að bílar geti átt á
hættu að skemmast. Eftirlitsmenn
Vegagerðarinnar verða að sjá tfl þess.
XXX
VÍÐA á Vestfjörðum má enn finna
nískuslitlag, það er að segja ein-
breitt varanlegt slitlag, eins og það er
stundum illa orðað. Víkverji hefur
lengi verið þeirrar skoðunar að
skammsýni hafi ráðið fór þegar þess-
ir vegir vora lagðir. Það er beinlínis
hættulegt að aka þessa vegi. Þegar
mæta þarf bfl verða báðir að fara með
hjólin öðram megin út á malaraxlir,
sem stundum er illa haldið við, með
lausamöl eða holum. Þá verður að við-
urkenna að ekki kunna allir ökumenn
að aka þessa vegi, halda sínu striki og
neita að fara út af malbikinu. Víkverji
mætti einum sfikum á Vestfjörðum.
Þá er ekki annað hægt en að vor-
kenna bifhjólamönnum, þeir eiga erf-
itt með að víkja út af malbikinu og
verða að treysta á að ökumennirnir
sem á móti koma sýni samstarfsvilja.
Nískuslitlagið hefur elst illa, það
kvarnast mikið úr því þegai’ sífellt er
verið að aka á brúnum þess og það
virðist sem betur fer á undanhaldi.
Víkveija var sagt að mjóa slitlagið
stæðist ekki reglur Evrópusam-
bandsins og það væri ástæðan fyrir
því að það væri ekki lengur lagt. Ef
það er rétt má þakka ESB fyrir að
hafa vit fyrir okkur. Víkverji veltir því
einnig fýrir sér hvort það sé einnig
ESB að þakka að nú er unnið vel að
því að fækka mjóum brúm og fylla
upp í landbrot í stað þess að aka niður
í þau?