Morgunblaðið - 18.07.2000, Page 65

Morgunblaðið - 18.07.2000, Page 65
 Engle ar gr útíGi Mel Gibson í The Patriot. þáttur þræla og innfæddra íbúa Norður-Ameríku í sjálfstæðis- baráttunni gerður að engu. Ekki nóg með það heldur eru Englend- ingar látnir hegða sér líkt og verstu nasistar. Þið Englendingar hafið fullan rétt á að vera í upp- námi ... ég yrði það svo sannar- lega og fyrirlít þessa mynd!“ Mel Gibson hefur lítið viljað tjá sig um þessa hörðu gagnrýni en segist þó styðja framleiðendur og höfunda myndarinnar og undir- strikar að hún sé ekkert annað og hafi aldrei átt að vera annað en huglægur skáldskapur með af- þreyingargildið að leiðarljósi. Spike Lee gefur lítið fyrir þessa skýringu Gibsons og þykir hún „ansi hentug". The Patriot er ekki eina Holly- ÞAÐ ER GÖMUL saga og ný að snillingarnir í henni Hollywood skrumskæli söguna - beygli hana °g beygi að eigin hentugleika undir því yfirskyni að um skemmtun og afþreyingu sé að ræða og hið listræna frelsi sé yf- irsterkara siðferði sannleikans. Margsinnis hafa kvikmyndagerð- armenn sem glíma við sögulegt efni legið undir ámæli fyrir að virða hina raunverulegu söguvið- burði gjörsamlega að vettugi með því að krydda þá, breyta og hreinlega skálda inn í eyðurnar og nægir þar að nefna nýleg dæmi á borð við mynd írans Jims Sheridans, In The Name Of The Father og myndir Spielbergs, Schindlers List og Amistad. Gibson óvelkominn Um þessar mundir sýður gjör- samlega á Englendingum yfir þessu meinta virðingarleysi kvik- myndagerðarmanna í Hollywood gagnvart mannkynssögunni því þeim finnst þeir hafa orðið sér- lega illa fyrir barðinu á þessum vafasömu sögukenningum undan- farið. Fortíð þessa fornfræga ný- lenduherra er vissulega myrk og lítt til eftirbreytni enda hafa höf- undar í Hollywood verið iðnir við að undirstrika það. Enskum er hins vegar ofboðið nú eftir að nýjasta Mel Gibson myndin The Patriot var frumsýnd þar um síð- ustu helgi. I myndinni leikur Gi- bson hvunndagshetju mikla á tím- um sjálfstæðisbaráttu nýja heimsins í vestri. Nauðugur sér hann sig knúinn til að hella sér í orrustuna við nýlenduherrana ensku þegar sonur hans heldur gegn vilja hans á vígstöðvarnar. Einkar myrk og óvægin mynd er dregin upp af andstæðingum þeirra feðga, nýlenduherrunum „ógurlegu" -svo myrk að enskum þykir nóg um og mótmæla harð- lega þessari meintu aðför að mannorði forfeðra sinna og sögu. Sjálfir eru ensku fjölmiðlarnir frægir fyrir allt annað en vettl- ingatök og ráðast harkalega að stjörnu myndarinnar, Mel Gibson. Þar er fullyrt að honum hljóti einfaldlega að vera í nöp við Eng- lendinga og er sú staðhæfing rökstudd með tilvísunum í fyrri hlutverk hans. Alexander Walker, hinn kunni kvikmyndagagnrýn- andi Evening Standard, er t.a.m. alveg æfur út í þessa „nauðgun“ Gibsons og félaga á breskri sögu og krefst þess að kappinn fái aldrei framar að stíga fæti inn fýrir ensk landamæri - ekki frek- ar en aðrir glæpamenn. Þessa meintu andúð Gibsons á Englendingum segja enskir gagn- rýnendur koma skýrast í ljós í mynd hans Braveheart, sögunni af skosku frelsishetjunni William Wallace, þar sem hann lýsi Eð- varði fyrsta og löndum hans sem blóðþyrstum bavíönum sem hafi það eitt að markmiði að kúga og murka lífið úr óstýrlátum ný- lenduþjónum sínum. Gagnrýnandinn Neil Norman bendir á enn annað og eldra dæmi, Galipoli frá 1981 eftir Pet- w Weir, þar sem Gibson leikur ástralskan hermann sem sendur er í rauðan dauðann af - jú, rétt til getið, yfirboðurum breska hersins. Dæmi sem verður að telj- ast nokkuð langsóttara. Margir gagnrýnendur fyrirgefa Gibson og leikstjóranum Roland Emmerich þó syndirnar. Gagn- rýnandi Empire sættir sig vel við myndina og segir að sé skrum- skælingin vel af hendi leyst líkt og Spielberg gerði í Saving Pri- vate Ryan þá geri hún Iítið til. Englendingar sem verstu nasistar Sögutúlkun The Patriot hefur ekki einasta verið mótmælt í Englandi heldur hafa einnig bor- ist kröftug og beitt mótmæli úr vestri, sér í lagi frá gagnrýnend- um í New York. Leikstjórinn þel- dökki Spike Lee hefur verið hvað harðorðastur í garð myndarinnar og telur margt sem þar kemur fram hreina skömm. í viðtali við BBC sagði hann: „Þessi mynd er hreinn og klár Hollywood áróður. í henni er þrælahaldið gjörsam- lega látið liggja milli hluta og wood myndin sem farið hefur fyr- ir brjóstið á Englendingum. Stór- myndin U-571 fjallar um bandarískan kafbátaleiðangur sem farinn var til að ná dulkóða- tækinu Enigma úr höndum Þjóð- verja. Ástæðan fyrir pirringi enskra er hins vegar sú að þetta - þýðingarmikla stríðsafrek var unnið af Englendingum og meira að segja áður en Bandaríkjamenn tóku þátt í seinni heimstyrjöld- inni. Tom Carr, sem kom að af- reki Englendinga á sínum tíma, staðfestir þetta og segir myndina- „uppfulla af lygum og þvættingi". Sendiherra Bandaríkjanna í Englandi var spurður í viðtali við BBC útvarpið hvort myndir á borð við The Patriot og U-571 gerðu starf hans erfiðara: „Það er engin spurning að þær hafa skaðleg áhrif á samskipti Eng- s lands og Bandaríkjanna." Hann áréttaði þó að hafa verði hugfast að um bíó sé að ræða en ekki sagnfræði. Framleiðendur í Hollywood hafi nú hingað til ekki látið sögulegar staðreyndir flækj- ast fyrir sér þegar kvikmynda hefur átt söluvænlega sögu. En þrátt fyrir þessi háværu mótmæli vegna sögulegra galla á stórmyndum Hollwood þá virðist hinn almenni bíógestur sem fyrr kæra sig kollóttan. Báðar hafa myndimar The Patriot og U-571 gengið rífandi vel, meira að segja í Englandi! ,Oðkaupsveislur—ötisamkomur—skemmtonlr—tönleikar sýningar kynningar ogfl.ogft.ogfl. (ÍWpy Ektdt ijaáeftir--------w lið ykkur og ieigið stórt tjald inn - það marg borgar sig. Tjöid af öllum stœrðum frá 20 - 700 mJ Einnig: Borð. stölar. tialdgölf og tjalahitarar. tfmi 5621390 • fax 552 6377 • blXfl>tcout.l» „og ýmsir fyigihlutir ^sta á veðrið þegar innilegan vlðburo - Notaðir bflar Saab 9000 Griffin - árg. 1996 MMC L-200 2.5 - árg. 1998 Greiðslukjör við allra hæfi Ekinn 56.000 km - TILBOÐSVERÐ kr. 2.550.000,- Ekinn 34.000 km - Verð kr. 2.220.000,- Isuzu Trooper 3.0 TDI - árg. 1999 Ekinn 21.000 km - Verð kr. 3.020.000,- Nissan Almera GX - árg. 1998 Ekinn 10.000 km - Verð kr. 1.280.000,- ...1 I " i m-"' r‘ v ’ ■*. V.\*r. ’ ! Opið: mán.-fös. kl. 09-18 lau. kl. 12-17 Subaru Legacy 2.0 - árg. 2000 Ekinn 5.000 km -Verð kr. 2.240.000,- Opel Vectra 2.0 Cd - árg. 1997 Ekinn 43.000 km - Verð kr. 1.640.000,- BÍLAHUSIÐ BORGARBÍLASALAN Grensásvegi 11“ Simi 588 5300 Stórmyndirnar The Patriot og U-571 valda miklum deilum í Englandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.