Morgunblaðið - 18.07.2000, Side 72
Eignaskipti ^íj7 Ráðgjöf
eht
Gerö eignaskiptayfirlýsinga
Sími5886944
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5G91181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSU 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Einn lést og fjölmargir slösuðust í rútuslysi á Hólsfjöllum
. . Morgunblaðið/Kristján
Fjölmargir smntu björgunarstörfum vegna slyssins á Hólsfjöllum.
Kastaðist á vinstri
og síðan hægri
hlið brtíarinnar
EINN maður lést og fjölmargir slös-
uðust þegar rúta með 31 innanborðs
valt út af brúnni yfir Hólsselskíl,
skammt norðan við Grímsstaði á
Fjöllum á sunnudag. Sautján voru
lagðir inn á sjúkrahús á Akureyri og
í Reykjavík. Þrettán aðrir fengu áð
fara eftir skoðun á sjúkrahúsi og
gistu á hóteli á Akureyri í fyrrinótt.
I rútunni voru 27 Þjóðverjar og 3
Austurríkismenn en bílstjórinn er ís-
lenskur.
Flogið var með flesta ferðamenn-
ina í gærkvöldi frá Akureyri til
Reykjavíkur en fimm manns verða
áfram á Akureyri í einn til tvo daga
og eru það þeir sem taldir eru of
slasaðir til ferðalaga, svo og aðstand-
endur þeirra. Fulltrúi þýsku ferða-
skrifstofunnar Studiosus, sem kom
til landsins eftir slysið, mun hafa um-
sjón með brottför fólksins, en gert er
ráð fyrir að flestir fari af landi brott í
dag.
Var ekki yfir
hámarkshraða
#>Að sögn lögreglunnar á Húsavík
kemur fram á ökurita rútunnar að
hún hafi ekki verið yfir leyfilegum
hámarkshraða þegar slysið varð.
Segir hún nokkuð ljóst að rútan hafi
lent utan í öðrum brúarstólpanum,
trúlega með afturhásingu, er henni
var ekið inn á brúna, sem er einbreið,
og að það sé í rauninni orsök slyss-
ins.
Rútan valt austur af brúnni á
hægri hliðina og lenti afturendi
hennar í ánni.
Lögreglan vann áfram að rann-
sókn málsins í gær, en þá voru m.a.
teknar skýrslur af farþegum og öku-
manni rútunnar.
Maðurinn sem lést var einn þeirra
sem lentu í ánni við óhappið. Hann
hét Detlef Schiesches, 65 ára þýskur
menntaskólakennari, búsettur í
Hamborg. Hann var á ferð um ís-
land ásamt bróður sínum.
I ferðahópnum voru auk bræðr-
anna 17 einstaklingar og fimm hjón,
leiðsögumaður ogbílstjóri, alls 31.
„Ég fann fyrir höggi við framhjól-
ið þegar við fórum inn á brúna og
kastaðist bíllinn fyrst á vinstri hlið
brúarinnar og svo yfir á hægri hlið-
EIN af nýjustu breiðþotum flugfé-
lagsins Atlanta mun fljúga með
fylgdarlið bandarísku sendinefnd-
ina og lagðist svo smám saman niður
af brúnni hægra megin og á hliðina,“
sagði Helmut Lugmayer, sem var
leiðsögumaður ferðafólksins.
Mikill viðbúnaður
Lögreglan á Húsavík fékk tilkynn-
ingu um slysið um 13.50 á sunnudag.
Voru hinir slösuðu fluttir með flug-
vél til Reykjavíkur og þyrlu og
sjúkrabifreiðum til Akureyrar. Mik-
ill viðbúnaður var vegna slyssins og
voru læknar og hjúkrunarfólk kölluð
til víðsvegar að auk lögreglumanna
frá Akureyri, en lögreglumenn frá
Egilsstöðum sem staddir voru í ná-
grenninu komu einnig á slysstaðinn.
Þegar mest var voru um fimmtíu
manns að störfum á slysstaðnum.
■ Bílstjórar/12-13
Einn maður /36-37
arinnar á fund G8, átta stærstu
iðnríkja heims, nú í vikunni.
Vélin er af gerðinni Boeing 747-
300, en hún mun fljúga ásamt vél
bandaríska forsetaembættisins,
Air Force One, frá Washington
DC til Japan, og bíða þar meðan á
fundinum stendur. í lok vikunnar
mun hún flytja fylgdarliðið aftur
til Washington.
í frétt frá Atlanta segir að um
sé að ræða óvenjulegt og spenn-
andi verkefni fyrir starfsfólk.
„Gerðar eru miklar kröfur um
þjónustu í flugi sem þessu og verð-
ur öll vélin með fyrsta farrýmis
þjónustu, en farþegar verða ekki
nema 150 í 470 sæta vél. Tuttugu
og einn verður í áhöfn og þar af
eru tólf íslendingar,“ segir í til-
kynningunni.
Flýgur fyrir
Bandaríkj astj’ órn
Erlendir verðbréfasalar bjóða
fslendingum hlutabréf
Dæmi um
töluvert tap
MJÖG hefur færst í vöxt að undan-
förnu að Islendingum berist símtöl
frá útlöndum með gylliboð um
hlutabréfaviðskipti. Allur gangur er
á eðli tilboðanna, en ekki er óal-
gengt að tilboðshafi eigi að leggja
fé inn á bankareikning erlendis.
Margeir Pétursson, forstjóri MP-
verðbréfa, segir að nær undantekn-
ingarlaust sé um svik að ræða. „Ég
veit dæmi þess að menn hafi orðið
fyrir töluverðum fjárhagslegum
skaða af því að taka svona tilboðum,
en engin dæmi þess að staðið hafi
verið við gefin fyrirheit. Ég ráðlegg
því fólki eindregið að skella á þessa
menn, sem virðast svífast einskis í
viðleitni sinni til að svíkja fé út úr
fólki,“ segir hann.
Margeir segir að mjög sennilega
séu í umferð ytra listar með nöfnum
fjársterkra einstaklinga hér á landi.
„Þessi plága er það mikil að það er
alveg augljóst mál að einhverjir hér
heima taka saman svona lista og
selja þessum mönnum,“ segir hann.
Þekkt hjá bandaríska fjár-
málaeftirlitinu
Að sögn Margeirs eru svik af
þessu tagi vel þekkt hjá bandaríska
fjármálaeftirlitinu sem sífellt er að
vara við gylliboðum. „Eins og þeir
segja: Það sem hljómar of gott til
að vera satt er það nánast alltaf,“
segir hann.
Margeir segir að íslenskir bank-
ar og verðbréfafyrirtæki bjóði upp
á alla nauðsynlega fjármálaþjón-
ustu. „Ég vil brýna fyrir fólki að
senda ekki fé til útlanda nema um
virtan og þekktan aðila sé að ræða.
Öruggast og einfaldast er að spyrj-
ast fyrir hjá viðskiptabanka sínum
áður en slík ákvörðun er tekin,“
segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinkonurnar frönsku, Laure og Marie Amélie, brostu sínu blíðasta þótt
þeim fyndist köld vistin í tjaldinu í Laugardal í gærkvöld.
Tjaldbúar í
kalsaveðri
ÞEIR voru ekki öfundsverðir gest-
irnir sem blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins hittu á
tjaldsvæðinu í Laugardal í gær-
kvöld, enda kalsaveður. Þar á
meðal voru tvær franskar stúlkur,
Marie Amélie, 20 ára, og vinkona
hennar Laure, 21 árs. Þær komu
með flugi til fslands fyrir tíu dög-
um og eru búnar að sjá Ásbyrgi,
Mývatn, Hvammstanga og Arnar-
stapa, en bíða nú eftir vini sínum
og ætla með honum um Suðurland-
ið. Þetta er í fyrsta sinn sem þær
koma hingað og ferðast þær gang-
andi og á puttanum, og segja Is-
lendinga hafa verið afar vinsam-
lega f garð þeirra hingað til og
þær eiga ekki von á að það breyt-
ist. „Fólkið hefur það bara mjög
fínt,“ sagði Guðmundur Gauti Guð-
mundsson tjaldsvæðisvörður, þeg-
ar hann var spurður hvernig veðr-
ið legðist í gestina. „Það kvartar
ekkert undan veðrinu, enda gera
margir einmitt út á svona, að fá að
kynnast einhverju öðru en þeir eru
vanir, eins og t.d. ekta slagviðri."
En hvernig skyldi aðsóknin hafa
verið á tjaldsvæðinu í sumar?
„Þetta byrjaði mjög rólega en
svo fór þetta að æsast í byrjun júlí
og ætli hámarkið sé ekki einmitt
núna. Hér er alltént mikið af fólki,
áberandi mest þó af Hollendingum
og Þjóðverjum."