Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 67
Höfn í Hornafírdi
Umsjónarmaður
kjötborðs
Við viljum ráða starfsmann til starfa v/ð
kjötafgreiðslu og umsjón með kjötborði í
verslun okkar á Hófn í Hornafirði.
Leitað er oS starfsmanni meS kjötiðnaðar- eða matreiðsluréttindi
eða aðila me3 haldgóða þekkingu og reynslu af svipuðum
störfum.
Viðkomandi einstaklingur þarf að hafa fumkvæði, gottviðmót
og þjónustulund.
í boði eru ágæt laun fyrir réttan aðila, fjölbrevtt og krefjandi
framtíðarstarf hjá framsæknu þjónustufyrirtæki.
Fullum trúnaði heitið.
Allar nánari upplýsingar um starf þptta veita :
• Sigurður Markússon framkvæmdastjóri kA verslana
Austurvegi 3-5, 800 Selfossi í sitjna 480 7000
• Þórdís Imsland verslunarstjóri KA Höfn
Hafnarbraut 4, 780 Höfn Hornafirði í síma 478 1205
• Teitur Lárusson starfsmannastjóri á skifstofu Kaupás
Nóatúni 17, 105 Reykavík sími 585 7000
--
CSDSlSíSP
Verkmcnntaskólinn
á Akureyri
Lausar stöður
Við Verkmenntaskólann á Akureyri eru eftir-
taldar kennarastöður lausar til umsóknar frá
1. ágúst 2000:
Trésmíðar (1/2)
Hjúkrunargreinar (1/2)
Myndlist (1/1)
Einnig er auglýst eftir aðstoðarmanni á bóka-
safn í 1/2 stöðu. Æskilegt er að viðkomandi hafi
háskólapróf og góða tölvukunnáttu.
Loks leitum við að fjölhæfum starfsmanni til
að vera nemendum til halds og trausts í fjöl-
breyttu félagslífi, auk þess að annast ýmis
tengd störf í þágu skólans.
Laun samkvæmt kjarasamningi framhalds-
skólakennara og starfsmanna ríkisins. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í net-
fangi sínu: hjaltij@ismennt.is, aðstoðarskóla-
meistari í netfangi: half@ismennt.is og bóka-
vörður í netfangi: sigs@ismennt.is. Skrifstofa
skólans verður opin frá og með 8. ágúst og má
þá einnig ná í framangreinda í síma 461 1710.
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst.
Skólameistari.
<
§
ca
MALMIÐNAÐARMAÐUR
BORGARNESI
Staða málmiðnaðarmanns hjá vélaverkstæði
Vegagerðarinnar í Borgarnesi er laus til
umsóknar. Laun skv. kjarasamningi
fjármálaráðherra og Samiðnar.
Starfssvið:
• Vinna við viðhald bifreiða og véla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
; • Sveinspróf í málmiðnaði.
i
i • Reynsla af bíla- og vélaviðgerðum æskileg.
| • Góðir samstarfshæfileikar.
i Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir
i Guðmundsson í síma 461 4440 frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil
Ráðgarðs á Akureyri eða í Reykjavík
fyrir 14. ágúst n.k. merktar:
„Vegagerðin - vélaverkstæði Borgarnesi"
\
VEGAGERÐIN
FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVÍK
Námsráðgjafar
Vantar enn námsráðgjafa í hálft starf sem
gæti einnig kennt sálfræði 12 tíma á viku.
Þá vantar einnig kennara og deildarstjóra
í stærðfræði.
Launakjör og yfirvinna eru samningsatriði og
í samræmi við þá neyð sem blasir við í mörg-
um framhaldsskólum þegar nær dregur hausti.
Ekki er nauðsyn að sækja um á sérstökum eyð-
ublöðum. Upplýsingar veittar í símum
464 1344 og 862 3995, Guðmundur Birkir Þor-
kelsson, skólameistari.
A
KOPAV OGSBÆR
FÉLAGSÞJÓNUSTA
KÓPAVOGS
Hjá Félagsþjónustu Kópavogs er laus 100%
staða deildarfélagsráðgjafa í fjölskyldudeild.
Starfið grundvallast á 4. grein barnaverndar-
laga um forvarnir, eftirlit og beitingu úrræða
til að tryggja hagsmuni og velferð barna í
bæjarfélaginu. Deildarfélagsráðgjafi er meðal
annars ábyrgur fyrir að innra starf deildar-
innar sé skipulegt og skilvirkt.
Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir
dugnaði, frumkvæði, jákvæðni og góðum
skipulagshæfileikum.
Reynsla af barnaverndarstarfi mjög æskileg.
Umsækjandi skal hafa starfsréttindi sem
félagsráðgjafi.
Launakjör skv. kjarasamningum Starfsmanna-
félags Kópavogs eða Stéttarfélags ísl. félags-
ráðgjafa og Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið veitir yfirmaður fjölskyldu-
deildar og deildarfélagsráðgjafi í síma 570 1400.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsþjón-
ustunnar Fannborg 4, og skal skilað þangað eigi
síðar en 28. ágúst nk.
Starfsmannastjóri
Kirkjubæjarskóli
auglýsir:
Okkur vantar kennara í vetur fyrir yngsta stig,
þ.e. fyrir 1. og 2. bekk.
Boðið er upp á ódýrt húsnæði og flutningsstyrk
auk þess sem sveitarfélagið er með sérkjara-
samninga við kennara.
Kirkjubæjarklaustur er lítill þéttbýlisstaður í 260 km fjarlægð
frá Reykjavík. Par er heilsugæsla, leikskóli, tónlistarskóli,
hjúkrunar- og dvalarheimili, verslanir, banki, símstöð og
önnur þjónusta fyrir fólk á öllum aldri. i grunnskólanum
eru 100 nemendur, skólinn ereinsetinn og mötuneyti er
á staðnum fyrir nemendur og starfsmenn. Góð aðstaða
ertil kennslu, tækjakostur ágætur og mjög gott bókasafn.
Upplýsingar veita: Valgerður Björnsdóttir,
skólastjóri, í síma 487 4633/869 5074,
Guðmundur Þorsteinsson, aðstoðarskólastj.
í s. 487 4633/487 4826,
Jóna Sigurbjartsdóttir, formaður fræðslunefnd-
ar í s. 487 4636.
Félags- og þjónustumiðstöðin
Árskógum 2—4.
auglýsir eftir starfsfólki
við félagslega heimaþjónustu
Félagsleg heimaþjónusta er þjónusta við íbúa
67 ára og eldri í Arbæjar- og Breiðholtshverf-
um. í starfinu okkar felst:
• Félagsleg samvera og stuðningur.
• Algeng heimilisþrif.
• Innlit og aðstoð við innkaup.
Starfsmaður í heimaþjónustu þarf að geta
unnið sjálfstætt, hafa góða samskiptahæfileika,
vera samviskusamur, stundvís og hafa jákvætt
viðmót. Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf.
Vinnutími er frá 9—17 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri
heimaþjónustunnar, Margrét Sigvaldadóttir
í síma 510 2144 eða forstöðumaður, Lilja Elsa
Sörladóttir í síma 510 2143.
Laun eru skv. kjarasamningum stéttarfélagsins
Eflingar og Skógarbæjar.
Ef þú hefur áhuga þá hafðu samband sem
fyrst.
Sölumaður
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða söl-
umann sem fyrst.
Óskað er eftir kraftmiklum og nákvæmum
aðila:
— sem getur unnið sjálfstætt
— getur sýnt frumkvæði í starfi
— er samviskusamur
— á auðvelt að vinna með fólki
— hefur góða framkomu og getur sýnt
þjónustulund.
Starfið er fólgið í sölu á framleiðsluvörum
fyrirtækisins til verslana og þjónustu til við-
skiptavina. Jafnframt frágangur og eftirfylgni
söluáætlana.
Nánari upplýsingar gefa Bjarni Ólafur Guð-
mundsson, deildarstjóri söludeildar og Bjarni
Stefánsson starfsmannastjóri síma 575 6000.
Umsóknum skal skila til aðalstöðva SS að Foss-
hálsi 1,110 Reykjavíkfyrir 17. ágúst nk. Einnig
er hægt að senda umsóknir inn á heimasíðu SS:
www.ss.is .
KÓPAVOGSBÆR
FRÁ HJALLASKÓLA
í Hjallaskóla eru tæplega 500 nemendur í 1. -
10. bekk. Þar starfa dugmiklir og áhugasamir
kennarar og er starfsandinn mjög góður.
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar í
Hjallaskóla:
•Kennari í 2. bekk
•Kennari í myndmennt auk nokkurra
tíma í íþróttum.
•Kennari í 6 mánuði í 1. bekk vegna
barnsburðarleyfis
•Námsráðgjafi í hálft starf
•Starfskraftur í hálft starf til að starfa
með 6-9 ára börnum frá kl. 13.00 til
17.00 í Frístund sem er dægradvöl
Hjallaskóla
Launakjör skv. kjarasamningum KÍ eða St. Kóp.
og Launanefndar sveitarfélaga. Upplýsingar
gefur Stella Guðmundsdóttir skólastjóri í síma
554 2033 og heimasíma 553 4101.
Starfsmannastjóri