Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 82
82 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAR QQOQQ Oddný Þóra Logadóttir, þrettán ára, fjallar um geislad- isk Mandy Moore, Wana Be With You ★★★ Góð blanda við flest tækifæri ÞAÐ var árið 1984 að Amanda Leigh (Mandy Moore) fæddist inn í þennan heim í Bandaríkjunum. Þegar hún var níu ára fór hún á sumarnámskeið í söng og ákvað þá strax að verða söngkona. Áður en hún gaf út fyrstu plötuna sína sem ég ætla að skrifa um hérna, lék hún í auglýsingum og kom oft fram í sjónvarpi, t.d. var hún kynnir hjá MTV. Wana Be With You er er fyrsta plata Mandy Moore og hefur henni strax tekist að gera tvö lög mjög vinsæl, þau heita Candy og So - Real. Lagið Candy hefur verið sér- staklega mikið spilað enda mjög flott lag. Platan inniheldur þrettán lög sem öll eru frekar ólík. Mér finnst mjög gaman að hlusta á lögin því engin þeirra eru neitt áberandi lík en sumar ungar söngkonur (og söngvarar) eru duglegar að semja eiginlega sama lagið alltaf upp á nýtt og þá fær maður nú fljótt leiða á þeim. Það er líka svo skemmti- legt hvernig hún beitir röddinni mismunandi í lögunum, þannig “gerir hún þau ennþá ólíkari. Skemmtilegustu lögin finnst mér vera Wana Be With Me sem er svona frekar rólegt lag þar sem hún beitir röddinni mjög fallega. (Hún er mjög góð söngkona.) Candy er fjörugt lag með skemmti- legu undirspili og takti. So Real er I 1 www.landsbanki.is Tilboð til klúbbfélaga Landsbanka íslands hf. Rex Tveir fyrir einn ó Tilboðið gildir fra Afslóttur í go Félogsmenn Vörði Sportklúbbs og Ki Landsbankans nj vallargjöldum hjá Orlando kvöldverði á Rex. sunnudegi til fimmtudags. If jnnar, Námunnar, akkaklúbbs óta 25% afsláttar af GR. Vörðufélagar fá fi daga á einstökum baka 14. eða 21. Hundar étnir i Vörðufélagar fá a étnir í Kína (I Kin Háskólabíói - mið erðtil Orlando í 8 eða 15 i kjörum 6. nóv. ogtil nóv. í Kína fslátt á myndina Hundar a spiser de hunde) í inn á 450 kr. Öll tilboðin fást gegn framvísun debet- korts/félagskorts í viðkomandi klúbbi. Ýmiss önnur tilboð og afslættir bjóðast klúbbfélögum Landsbanka íslands hf. sem finna má á heimasíðu bankans, www.landsbanki.is Má U r.rPTTmi .andsbankinn 1-lMM‘I'l Omð frá 9 til 19 Söngkonan Mandy Moore. mjög skemmtilegt og hressandi lag með rosalega flottu undirspili, það flottasta sem ég hef heyrt lengi. What You Want er meðalrólegt lag með frábæru viðlagi og rosalega góðum takti. Mér fínnst ekkert lag vera leið- inlegt en sum lögin eru náttúrulega ekki eins skemmtileg og önnur lög á disknum. Mér finnst fjörugu lög- in hafa heppnast betur hjá henni heldur en þau rólegu, en það er samt skemmtilegt að hafa diskinn svona blandaðan og hægt er að finna lag við flest tækifæri, hvort sem fólk langar að dansa eða bara slappa af heima. Mér finnst Mandy Moore hafa tekist vel til með þessa plötu. Hún á örugglega eftir að gera fleiri lög af þessari plötu vinsæl og ég á eftir að hafa gaman af að fylgjast með fleiri plötum frá henni í framtíð- inni, vona bara að það verði sem fyrst. Þeir sem vilja geta farið á heimasíðu Mandy Moore (www.mandymore.com) og séð t.d. hvað hún er að gera á hverjum degi og hvar hún heldur næst tónleika. IJEIKFÉLAG ÍSLANÐS 552 3000 THRILLER sýnt af NFVI fös. 18. ágúst kl. 20.30. 530 3030 BJÖRNINN — Hádegisleikhús með stuðningi Símans jfjfJÁ Þri. 15/8 kl. 12 W\\\J mið 16/8 kl. 12 ATH Aðeins þessar sýningar Miðasalan er opin frá kl. 11-17 ( Iðnó. Opið er fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar sýning er. Miðar óskast súttir I viðkomandí leikhús. (Lof tkasta I i nn/lðnó). Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu. Nœturqalinn sími 587 6080 'W J I kvöld og sunnudags- kvöld leika Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms fyrir dansi. Húsið opnar kl. 22.00. Næturgalinn alltaf lifandi danstónlist Útimarkaður í Mosfellsdalnum Morgunblaðið/Þorkell Það gerist ekki ferskara en þetta, grænmetið. Hollt og gott í dalnum STEMMNINGIN á útimörkuðum er allt önnur og rólegri en erilsöm innkaup í störmörkuðum sem oft- ast eru innt af hendi af skyldur- ækni í lok vinnudags. Ferð á útimarkaðinn verður in- dælis spássitúr þar sem bestu vinir og Qölskyldumeðlimir ganga á milli söluborðanna með tágakörfu á handleggnum (plastpokar passa engan veginn) og velja úr það sem hugurinn og bragðlaukarnir girn- ast. Rétt utan við borgarmörkin, í náttúruperlunni Mosfellsdal, er einmitt að fmna svona dásamlegan útimarkað sem rekinn er á laugar- dögum á milli eitt og sex. Inni í laufþykkninu sunnan við Þingvalla- veginn og beint á móti Mosfell- skirkju eru Mosskógar þar sem frí- tímabændurnir Dísa og Nonni selja grænmeti sem er bæði hollt og líf- rænt; „besta grænmeti í heimi sem kemur beint upp úr jörðinni og við hlaupum bara með skúflu 1 garðinn til að taka það upp eftir þörfum.“ „Markaðurinn er ekki síður góð- ur staður til að koma á með krakk- ana og teyma þá á hestbaki, fá sér lífrænt grænmeti og ferskt loft, hitta og spjalla við skemmtilegt fólk og skemmta sjálfum sér,“ segir Dísa þegar hún er spurð um að- dráttarafl sveitarinnar. Auk hinna |i;i|—yimi ISI.I ASK \ Ón .lt líl11 11,11 Sími 5114200 Morgunblaðið/Þorkell Er hann kannski á leið á krakkamarkaðinn? hversdagslegu en heilnæmu rófna og spergilkáls leggja Dísa og Nonni einig ríka áherslu á að bjóða upp á spennandi og framandi káltegundir sem sjást ekki á hverjum degi á Is- landi. Fræin eru pöntuð að utan yf- ir vetrartímann, þeim sáð að vori og uppskeran etin þegar sólin hef- ur unnið kraftaverkin sfn á sumrin. Þeir sem eru að leita að óvenjulegu innihaldi í salatskálina er því bent á markaðinn. I sumar hefur líka verið sýnd glíma og keppt í reiptogi og sultu- gerð auk þess sem aðrir íbúar dals- UalSKfllbJM Gamanleikrit í leikstjórn Siguröar Sigurjónssonar fim 10/8 kl. 20 lau 12/8 kl. 20 sun 13/8 kl. 20 miö 16/8 kl. 20 fim 17/8 kl. 20 Miðasölusími 551 1475 Miðasala opin frá kl. 15-19 mán-lau. og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir frá kl. 10. Sýnt í Tjarnarbíói Sýningar hefjast kl. 20.30 5. sýn. fös. 11/8 6. sýn. lau. 12/8 örfá sæti laus 7. sýn. lau. 19/8 Miðapantanir í síma 561 0280. Miöasölusími er opinn alla daga frá kl. 12- 19. Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús. Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn. Happdrætti um Græna kortið f Bandaríkjunum Lærðu, starfaðu og njóttu lífsins í Bandaríkjunum 50.000 Græn kort í boði. Möguleiki á rfkisborgararétti. Frestur fyrir DV-2002 verður tilkynntur seinna... Ekki missa af því! ÓKEYPIS OPINBERAR upplýsingar - sendið nafn, heiti fræðingarlands og fullt helmilsfang til: National Visa Registry PMB 725, 16161 Ventura Blvd., Encino, CA 91436 USA Eða sækið um á: www.natianaIvisaregistry.coni Netfang: info@nationalvisaregistry.com Sími: 001 818 784 4618 ins hafa komið með ferskar krydd- jurtir og fleiri afurðir sem gleðja líkamann og sálina. Börnin fá líka að kynnast náttúrunni frá fyrstu hendi innan um hesta, hænur og geit sem kemur stundum í heim- sókn með kiðlingana sína. Allir eru velkomnir að koma með sinar vör- ur og annaðhvort selja þær eða skipta á þeim við aðra. Ánnar skiptimarkaður og öllu óvenjulegri er krakkamarkaðurinn sem nú er verið að brydda upp á en hann er þannig upp byggður að krakkar geta komið með gömlu leikföngin sín og skipt á þeim við aðra krakka og allir fara heim kát- ir með „nýju“ Ieikfóngin sín, en flestir foreldrar kannast líklega við hvað litlu ungarnir verða fljótt leið- ir á leikföngunum sínum og því er þetta tilvalin lausn á þeim vanda. Útimarkaðurinn er opnaður á sumrin um leið og grænmetið gæg- ist upp úr moldinni og stendur þar til hausta fer og náttúran sér sjálf um að loka gnægtarbúrinu. SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur UÓuntu tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.