Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 2 3
Hagnaður Unilever dregst saman á öðrum ársf]órðunffl
Rekstur félagsins
verður klofínn í tvennt
Lundúnir. AFP.
Gott gengi hjá
Deutsche Bank
STJÓRNENDUR ensk-hollenska
matvælarisans Unilever hafa til-
kynnt að þeir hyggist skipta fyrir-
tækinu í tvær aðskildar einingar,
matvöruframleiðslueiningu, en hin
eining Unilever mun sjá um sölu
og framleiðslu á öðrum þáttum í
rekstri Unilever. Þessi ákvörðun
kemur að hluta til í kjölfar minnk-
andi hagnaðar hjá Unilever, en
hagnaðurinn á öðrum fjórðungi
ársins dróst saman um 14% en auk
þess hefur verið unnið að endur-
skipulagningu innan fyrirtækisins
og á stjórn þess undanfarna mán-
uði.
Endanlegur aðskilnaður
talinn liklegur
Sérfræðingar telja að þessi
skipting muni að lokum leiða til
þess að Unilever verði klofið í tvö
aðskilin fyrirtæki. Hagnaður Uni-
lever fyrir skatta á öðrum fjórð-
ungi ársins nam 928 milljónum
evra, jafngildi liðlega 67 milljarða
íslenskra króna og jukust sölutekj-
ur félagsins um 3% á tímabilinu,
eða í alls 10,9 milljarða evra, jafn-
gildi 799 milljarða íslenskra króna.
Unilver keypti á þessu tímabili
þrjú fyrirtæki, bandaríska fyrir-
tækið Bestfoods fyrir 24,3 millj-
arða dala auk SlimFast diet foods
og Ben & Jerrys’s icecream.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi Unilever fyrstu sex mánuði
Góður
hagnaður
hjá
Barclays
HAGNAÐUR Barclays, sem
er einn af stærstu bönkum
Bretlands, nær tvöfaldaðist á
fyrra helmingi þessa árs.
Hagnaður Barclays jókst úr
967 milljónum punda í fyrra í
1,84 milljarða punda eða 216
milljarða íslenskra króna
fyrstu sex mánuði ársins.
Bankinn virðist hafa náð að
hrista af sér neikvæða um-
fjöllun í fjölmiðlum á Bret-
landi í upphafi ársins, meðal
annars vegna lokunar útibúa
og fækkunar starfsfólks en
ekki þótti bæta úr skák að
einmitt á sama tíma og úti-
búum var lokað var bankinn
með auglýsingaherferð þar
sem lögð var áhersla á það að
Barclays væri einn stærsti
banki heimsins og fór þetta
nokkuð fyrir brjóstið á mörg-
um Bretanum.
Betri afkoma en spáð var
Þrátt fyrir þetta er aukinn
hagnaður Barclays að mestu
til kominn vegna þess að við-
skiptavinum hans hefur fjölg-
að verulega. Afkoma Barclays
er heldur betri en markaðs-
sérfræðingar áttu von á og
segja þeir að það hafi komið
bankanum til góða hversu
dreifð og víðtæk starfsemi
hans sé.
„Breytingar á einstökum
mörkuðum eða ákveðnum
þjónustuþáttum hafa ekki
mikil áhrif á afkomu okkar
því eignasafn okkar er mjög
dreift auk þess sem viðskipta-
hópur bankans er sundurleit-
ur og við störfum mjög vítt
og breitt um Bretland," sagði
Peter Middleton, stjórnar-
formaður Barclays.
ársins nam um 107 milljörðum
króna og jókst hagnaður af reglu-
legri starfsemi um 10% frá því í
fyrra. Velta Unilever fyrstu sex
mánuði ársins nam 1.491 milljarði
íslenskra króna sem er litlu meira
en á sama tímabili í fyrra. Á síð-
asta ári hækkaði gengi bréfa Uni-
lever á FTSE All Share 35%
minna en sem nam meðaltals-
hækkun allra fyrirtækjanna á
FTSE. Gengi bréfa í Unilever var
650 pens í júlí í fyrra en fór lægst í
324,5 pens í febrúar í vetur.
METHAGNAÐUR varð af rekstri
Deutsche Bank, stærsta banka
Þýskalands, á fyrra helmingi ársins
að því er segir í Suddeutsche Zeit-
ung.
Hagnaður bankans eftir skatta
nam 3,777 milljörðum evra eða um
273 milljörðum íslenskra króna.
Fyrstu sex mánuðina í fyrra var
hagnaður Deutsche Bank um 127
milljarðar króna og hann jókst því
um 114,5% milli tímabila.
Hagnaðurinn er heldur meiri en
flestir verðbréfasérfræðingar höfðu
spáð. Meginskýringin á auknum
hagnaði bankans eru auknar þjón-
ustutekjur auk vaxandi tekna af
verðbréfa- og skuldabréfaviðskipt-
um bankans. Hagnaður bankans fýr-
ir skatta á öðrum fjórðungi ársins
nam liðlega 100 milljörðum króna og
er það nokkru minni hagnaður en
fyrstu þrjá mánuði ársins en hann
var um 177 milljarðar króna.
www.sheH.is