Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Óbeinar
atlögur
Landsþingi repúblikana í Bandaríkjunum
er lokið. George W. Bush er formlega orð-
inn forsetaefni þeirra og með lokaræðu
sinni á þinginu hefur hann sennilega aukið
forskotið sem hann þegar hafði á AI Gore,
frambjóðanda demókrata. Kristján G.
Arngrímsson f]allar um viðbrögð banda-
rískra fjölmiðla við ræðu Bush.
BANDARÍKJAMENN fengu loks-
ins á fimmtudagskvöldið að heyra
orðið sem þeir voru búnir að bíða eft-
ir á landsþingi repúblíkana í Fíla-
delfíu: Endir. Svona afgreiddi
bandaríski grínistinn Bill Maher
þingið í sjónvarpsþætti sínum á
fimmtudagskvöld, skömmu eftir að
sá hluti bandarísku þjóðarinnar sem
kærði sig um hafði fengið að heyra
George W. Bush taka við útnefningu
Repúblikanaflokksins sem fram-
bjóðandi flokksins í forsetakosning-
unum í nóvember.
En það voru ekki allir svona kald-
hæðnir. Einn helsti stjómmálaskýr-
andi NBC-sjónvarpsins, Tim Rus-
sert, sagði fullur af eldmóði eftir
landsþingið: „Þetta verður frábær
kosningabarátta. Maður finnur það
nú þegar!“
Fréttaþulur CBS, Dan Rather,
var öllu stóískari og sagði að stjórn-
málin hefðu færst af vettvangi Jam-
es Madisons „yfir á Madison Aven-
ue“, og skírskotaði þar annars vegar
til fjórða forseta Bandaríkjanna og
eins stofnenda þeirra, og hins vegar
til auglýsinga- og kynningarfyrir-
tækjanna sem nú stjóma því hvernig
landsþing, á borð við það sem lauk á
fimmtudagskvöldið, fara fram.
Þinginu lauk með ræðu Bush þar
sem hann tók við útnefningunni sem
forsetaframbjóðandi. Ræðan hlaut
einkar góðan hljómgmnn meðal
nokkurra kjósenda sem ekki höfðu
gert upp hug sinn, og stjómmála-
skýrendur vom líka flestir þeirrar
skoðunar að þetta hefði verið góð
ræða, og hefur Reuters-fréttastofan
eftir einum þessara sérfræðinga að
hún hafi verið „stórkostleg".
„Eg var alveg hissa. Eg átti ekki
von á að hann hefði svona mikla
persónutöfra," hefur Reuters eftir
Gail Haaz, 55 ára fyrirtækiseiganda
frá Fíladelfíu, sem hafði ekki gert
upp hug sinn fyrir þingið, en er nú
frekar á því að greiða repúblíkönum
atkvæði sitt í forsetakosningunum í
nóvember.
„Ég kann vel við George Bush, og
hef alltaf kunnað vel við hann,“ sagði
Anne Vasature, 55 ára starfsmaður á
pítsastað í Fíladelfíu, sem var frekar
hlynnt demókrötum. „Hann svaraði
mörgum spumingum [í ræðunni á
fimmtudagskvöldið]. Ég vildi heyra
eitthvað um almannatryggingar,
heiisugæslu fyrir aldraða og aðstoð
við lyfseðilsskyld lyf... nú vil ég fá að
sjá hvernig hann fer að þessu.“
Haaz og Vasature vom í hópi 36
íbúa í úthverfum Fíladelfíu er tóku
þátt í skoðanakönnun er fór fram
Helsæta! Prófaðu það nýjasta,
Fimtn flottir augnskuggar og fímm varalitir
saman í skemmtilegum umbúóum.
Utsölustaðir;
heilsa - Apocek og heistu snyrtivöruverslanir
Dreifingaraóíli: Cosmic ehf., sími 588 652S
Stokkalækur
nýtt tjaldsvæði rétt austan Hellu
Sveitarró í fögru umhverfi Rangárvalla.
Gönguferðir með innfæddum.
Fljótasigling fjölskyldunnar með Tindfjöllum.
Varðeldur og stjörnubjart með ábúendum.
Stokkalækur
Staður fyrir náttúruunnendur.
J
mmF
Sími: 487 8636
AP
Blöðrum rignir yfir George W. Bush forsetaframbjóðanda og Lauru, eiginkonu hans, þegar Bush hafði haldið
lokaræðu sína á landsþinginu.
meðan á landsþinginu stóð, og lét
fólkið álit sitt í ljós jafnóðum. í upp-
hafi var enginn í hópnum búinn að
ákveða hvort hann myndi kjósa
Bush eða A1 Gore, væntanlegan
frambjóðanda demókrata.
Allir nema einn í hópnum vora
ánægðari með Bush að þinginu
loknu en þeir höfðu verið áður en það
hófst, að því er Reuters greinir frá.
Hópurinn var ánægðastur með ræðu
Bush af öllum þeim ræðum er haldn-
ar vora á þinginu, og óánægðastur
með ræðu varaforsetaefnisins, Dicks
Cheneys.
„Þegar [Bush] byrjaði ræðuna
fannst mér að ef hann tæki sig ekki
til, ef hann héldi ræðu eins og Chen-
ey, með árásum á andstæðingana og
gæfi jafn yfirborðskennda mynd af
Gore, þá hefði mér fundist að ég
þyrfti ekki að heyra meira,“ hafði
Reuters eftir einum úr hópnum,
Steve Golden, 54 ára verkfræðingi.
Golden var heldur hallur undir
demókrata við upphaf þingsins, en á
fimmtudagskvöldið sagðist hann
vera „95 prósent" fylgjandi Bush,
áður hefði hann verið „um 10“.
Skipuleggjandi skoðanakönnun-
arinnar sagði að fólkið í hópnum
hefði yfirieitt verið reitt. Þegar Bush
minntist á móður sína lét hópurinn
óánægju í ljós. Skipuleggjandinn
sagði: „Það fer ekki milli mála að
hópurinn er ekki í góðu skapi ef fólk-
ið gefur Barböra Bush lága ein-
kunn.“
Dálítið „ruglingsleg"
Menn sem hafa atvinnu af því að
rýna í orð stjórnmálamanna voru
ekki alveg jafn einróma í hóli sínu á
frambjóðandanum. „Ég held að
þetta hafi verið einhver sterkasta
ræða sem ég hef heyrt. Bush sýndi
að hann er sonur föður síns, en póli-
tískur arftaki Ronalds Reagans,"
hefur Reuters eftir Peter Robinson,
fyrrverandi ræðuritara Reagans og
Georges Rush, fyrrverandi forseta
og föður frambjóðandans.
Fred Antczak, prófessor í mál-
skrúðsfræðum við Háskólann í Iowa,
var ekki eins hrifinn af ræðunni.
„Hún var ekki slæm, en hún var dá-
lítið raglingsleg. Stundum var flutn-
ingurinn of mikið æfður og tilfinn-
ingalaus."
Allan Lichtman, sagnfræðipró-
fessor við American-háskólann,
sagði að ræðan hefði verið líkust því
að hana hefði flutt miðjusinnaður
demókrati. „Hann talaði meira um
að berjast gegn misrétti en að lækka
skatta, og meira um að hjálpa heim-
ilislausum en að stöðva fóstureyð-
ingar,“ hefur Reuters eftir Licht-
man. „Þetta var ekki ræða sem gæti
breytt stefnunni í kosningunum
vegna þess að það vantaði bitið í
hana. Flestir Bandaríkjamenn gætu
verið sammála svo að segja öllu sem
Bush sagði.“
Táknmál
Vegna þess að skoðanakannanir
meðal kjósenda, eins og sú sem
nefnd er hér að ofan, hafa sýnt að
kjósendum er illa við atlögur að and-
stæðingum og pólitískar væringar
forðaðist Bush í ræðu sinni að ráðast
beinlínis á demókrata og Ai Gore.
En eins og fréttaskýrandi Associat-
ed Press bendir á notaði Bush eins
konar táknmál til að koma atlögum
sínum á framfæri.
Orð eins og „heilindi", „virðing",
„traust" og „siðsemi" era táknorð
repúblikana fyrir óheiðarleika, spill-
ingu og hneyksli sem orðið hafa í
Hvíta húsinu í stjórnartíð Bills Clint-
ons, með aðstoð AIs Gores. Þannig á
að koma syndum forsetans yfir á
varaforsetann, sem er jú andstæð-
ingur Bush í forsetakosningunum.
„Til þess að leiða þjóðina inn í
ábyrga tíma þarf forsetinn sjálfur að
vera ábyrgur," sagði Bush í ræðu
sinni á fimmtudagskvöldið. Hann
nefndi ekki beint ákærana sem lögð
var fram gegn Clinton, en ekki fór
milli mála hvað hann var að tala um
þegar hann sagði: „Þegar ég legg
hönd á Biblíuna mun ég ekki aðeins
sveija að halda lög landsins, ég mun
sverja að viðhalda heiðri og sóma
embættisins sem ég hef verið kjör-
inn til.“ Þá risu þingfulltrúar úr sæt-
um og hrópuðu og klöppuðu.
Bush sagði áður en hann hélt ræð-
una að hann myndi tala frá hjartanu,
og svo virðist sem hann hafi staðið
við það, því að fréttaskýrendur hafa
verið ákaflega uppteknir af því
hversu mikið hafi farið fyrir Bush
sjálfum í ræðunni. Þannig segir í
skeyti frá Reuters að Bush hafi not-
að alla sína persónutöfra til að koma
á framfæri hugmyndum sínum um
framtíð forsetaembættisins. Hann
hafi verið fyndinn, almúgalegur,
ákveðinn og lipur.
Hann byrjaði á því að höfða til
hjartans með því að þakka sínum
nánustu samstarfsmönnum og fjöl-
skyldu, bæði móður sinni og föður
sínum, og sagði um George Bush,
fyrrverandi forseta: „Alla mína ævi
hef ég undrast að svona ljúf sál geti
verið svona sterk.“
Stærstu sjónvarpsstöðvarnar í
Bandaríkjunum hafa ekki fjallað
mikið um landsþingið, en væntan-
lega hafa þær sent ræðu Bush út
beint. Þar gafst Bush því kostur á að
kynna sig fyrir fjöldamörgum
Bandaríkjamönnum sem hafa hing-
að til ekki fylgst ýkja grannt með
kosningabaráttunni. Ekki er langt
síðan skoðanakönnun leiddi í Ijós að
rúmlega annar hver aðspurðra hafði
ekki hugmynd um að landsþing
repúblikana stæði fyrir dyram.
Þess vegna var ræða Bush á
fimmtudagskvöldið án efa sú mikil-
vægasta sem hann hefur haldið á
stjórnmálaferlinum og getur ráðið
miklu um það hvort hann hefur bet-
ur en Gore í forsetakosningunum,
sem fram fara sjöunda nóvember.
Samkvæmt skoðanakönnunum hef-
ur hann drjúgt forskot, eða ríflega
10%, og ef marka má viðbrögð kjós-
enda við ræðunni er ekki ólíklegt að
það hafi nú aukist.
AP bendir á að á fimmtudags-
kvöldið hafi kannanir leitt í Ijós að
Bush hafi náð góðu forskoti meðal
hópa þar sem frambjóðendurnir hafi
lengst af verið jafnir, þá sérstaklega
meðal óflokksbundinna kjósenda,
þar sem Bush sé nú 18% á undan
Gore, og meðal kvenna, en 6% fleiri
séu nú fylgjandi Bush en Gore.
Komið að Gore
En þá ber á hitt að líta, að væntan-
legur frambjóðandi demókrata,
varaforsetinn A1 Gore, á eftir að fá
sitt tækifæri til að kynna sig fyrir
bandarískum kjósendum, þegar
landsþing Demókrataflokksins hefst
í Los Angeles 14. ágúst. Þeir hafa
bragðist við fregnum um forskot
Bush í skoðanakönnunum með því að
segja að það sé enn langt í kosning-
arnar og að kjósendur séu varla
farnir að veita baráttunni athygli.
Gore hefur ekki enn útnefnt vara-
forsetaefni sitt, en AP sagði frá því í
fyrrakvöld að heimildamenn sem
væru „kunnugir þankagangi vara-
forsetans" hefðu sagt að fimm kæmu
til greina; öldungadeildarþingmenn-
irnir Evan Bayh, John Edwards,
John Kerry og Joseph Lieberman;
Richard Gephardt, þingflokksfor-
maður demókrata í fulltrúadeildinni,
og Jeanne Shaheen, ríkisstjóri í New
Hampshire. Mun Gore tilkynna val
sitt á þriðjudaginn.