Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 41
Ferðadraumar
Draumstaflr Kristjáns Frímanns
NÚ skal brennt úr bænum og
skemmt sér í guðs grænni náttúr-
unni. Ferðadraumar eru oft skýr-
ari og táknrænni en venjulegu
heimilisdraumarnir, líkt og skynj-
unin sé næmari og tengslin milli
draumvitunar ogvökuvitundar
betri þegar maður er á flakki um
heiminn. Að gista í tjaldi hefur líka
sérlega góð áhrif á heilastarfsem-
ina og flæðið sem myndast í heil-
næmu sveitaloftinu ýtir á minnið
að geyma draumana vökunni til
góða. Þetta er náttúrlega háð því
að hugurinn sé skýr og laus við
óæskileg eiturefni. Ferðin í ár get-
ur orðið þér happasæl hvað varðar
draumfarir, haflr þú með þér
skrifblokk og skriffæri að skrá í
drauma tveggja næstu nátta og
jafnvel draumanna sem þú upplifir
í vöku meðal vina.
Draumar „Aldísar"
1. Mér fannst ég vera að af-
greiða í búðinni minni, það var
mikið að gera og það fór allt í
óreiðu, fötunum fleygt hingað og
þangað og ég fann ekki það sem ég
vildi finna. Mitt í óreiðunni kemur
til mín lítið barn sem mér finnst ég
eiga og þykja óskaplega vænt um.
Dökkhært og fallegt. Eg þurfti að
sinna þessu barni, gefa því að
borða og sinna því af alúð, en ég
gat ekki gert það eins og þurfti og
barnið varð smám saman eins og
máttvana í höndunum á mér og
eins og það væri að líða út af. Ég
varð ringluð og óttaslegin, alveg
örvingluð í rauninni. Jafnframt
komu til sögunnar önnur börn sem
ég átti ekki sjálf en átti að gæta.
Þau voru þrjú, öll rauðhærð, fölleit
og slyttisleg. Ég þurfti líka að
sinna þessum börnum, einkum því
minnsta, ég þurfti að koma því í
svefn. Ég varð umfram allt að fá
það til að sofna. Ég reri með það í
fanginu, þungt og máttleysislegt
og ég lagði það út af, en alltaf þeg-
ar ég hélt að það væri sofnað, opn-
aði það augun og gerði kröfur til
mín. Ég veit ekki af hverju ég
mátti til að fá það til að sofna. Svo
komu hin tvö, þessi rauðhærðu,
vafrandi og héldust í hendur. Ég
þurfti líka eitthvað að sinna þeim
en varð gjörsamlega utan við mig
af ráðleysi.
Inn í þennan draum blandast
líka stórt hús eða bygging sem ég
var ýmist inn í eða utan við. Ef ég
fór út rataði ég ekki inn aftur. Mér
fannst í draumnum að ég hefði áð-
ur verið í þessu húsi. Það var verið
að vinna í hluta þess og var búðin
mín í hluta þess, en það voru eins
og skáhallandi rampar sem gengu
út frá veggjunum úti og ég villtist
þegar ég fór út á þessa rampa.
Að lokum fannst mér eitthvað
fólk koma sem átti rauðhærðu
börnin og með þeim maður sem ég
fleygði mér í fangið á og grét mik-
ið, af feginleik, af spennu sem losn-
aði og af einhverri hryggð. Maður-
inn hélt utan um mig en ég fann
samt að mér varð ekki fullkominn
léttir.
2. Gerist í kauphöll.
3. Aldís hittir Gróu, látna vin-
konu.
Ráðning
Draumarnir þrír snúast um
sama efni en tvo þá síðari er ekki
unnt að birta að sinni sökum pláss-
ins sem er takmarkað.
Og efni draumanna er ringul-
reið, áhyggjur og vanmáttar-
kennd. Ringulreiðin birtist sterk-
ast í draumi eitt og tvöen er
mildari í draumi þrjú. Ahyggj-
urnar ganga í gegnum alla draum-
ana sem og vanmáttarkenndin.
í fyrsta drauminum kemur fram
hvað er á seyði. Þú virðist hafa
reist þér hurðarás um öxl og veld-
ur ekki þeim verkefnum sem þú
hefur tekið að þér og tengjast búð-
inni þinni og rekstri þar að lútandi.
Börnin eru þarna tákn fyrir búðina
og aðrar rekstrareiningar (börnin
þín) og minnsta barnið mun standa
fyrir búðina sem þér er kærust.
Hin bömin lýsa með hárlitnum að
nokkur orka muni vera til staðar í
rekstrinum en hann vanti aðhald
og umhyggju. Byggingin sem
blandast þarna inn í er mynd af
þér og lýsir ráðvillunni sem virðist
til staðar. Maðurinn sem þú
fleygðir þér í fangið á til að gráta
er þinn Animus (innri maður) sem,
gegnum drauminn, léttir á sála-
rangistinni. í draumi tvö er ýjað
að því að þú getir gripið til örþrifa-
ráða og gert eitthvað óyfirvegað í
tengslum við fjármáVverðbréf,
enda er draumurinn fullur af við-
vörunum sem birtist í mönnunum,
samt er þar ljós punktur því þú
passar þig að snerta ekki lófann,
en máltæki segir eitthvað á þá leið
að klæi mann í lófa, viti það á fé en
klóri maður sér, hverfi það með
það sama. Þriðji draumurinn lýsir
að nokkru vanmáttarkenndinni
sem virðist hafa gripið þig en hann
er annars að gefa í skyn að Gróa sé
þér góð fyrirmynd.
I samantekt lítur út fyrir að
búðin (minnsta barnið sem þú vilt
koma í ró/koma skikki á hlutina) sé
dauðadæmd nema þú breytir um
stíl og einbeitir þér að þvi sem þér
er kærast. Það muni heillavænleg-
ast og best fyrir alla (rauðhærðu
börnin héldust í hendur og virðast
því tilbúin að bíða). Draumur tvö
vísar á hættur sem fylgja glæfra-
legum ákvörðunum en samt ertu
nokkuð örugg í þínu (fingurinn
snerti ekki lófann). Og þriðji
draumurinn gefur í skyn að Gróa
sé sú ímynd sem gefi þér góðan
byr og traust hald við stýrið þegar
sigla þarf kólguna svarta að sneiða
skerin hvöss.
• Þeir lesendur sem vilja fá drauma
sína birta og ráðna sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til: Draumstafir, Morg-
unblaðið, Kringlunni 1,103
Keykjavik, eða á heimasíðu
Draumalandsins
http://www.dreamland.is