Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 74
74 LAUGAKDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
HUSS/IÖU ÞI6 UM TVISVAR | . Á$UR EN ÞÚ SENDIR HONUM t I^BREFID UM AFREK ÞÍN Á ÁRINUyi KANNSKIEG ÆTTI A£> TAKA) ÚT HLUTANN UM FRIÖAR- ) ^ VERDLAUN NÓBELS/ O^^S^yÆR Þ/)6 SATT7N- °q( /*a> máestakaí >T Wijr'[hondina á þer?
1
Hundalíf
Ljóska
Finnst þér leiðinlegt að vera steinn? Ég meina, berðu þitt líf saman við Sitjandi einn í eyðimörkinni að tala
það sem ég lifi.. við gijót..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavlk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ef þú ert í öryggisbelti stoppar þú með bílnum, ef ekki þá lendir þú á
mælaborðinu og framrúðunni.
Öryggisbelti
o g loftpúðar
Frá Kristjáni Friðgeirssyni:
FÓLK SEM ekki notar öryggis-
belti í árekstri lendir oftast með
andlitið í framrúðunni. Það er ófag-
urt, og það er mjög sárt ef þú lifir
nógu lengi til þess að finna fyrir
því.
Þegar þú ferðast í bíl, fer líkami
þinn með sama hraða og bíllinn.
Þegar þú bremsar finnur þú að þú
þarft að spyrna við fótum og halda
þér með höndum. Þetta gerist
vegna þess að þegar bremsurnar
hægja á bílnum þá heldur líkaminn
áfram á sama hraða og áður en
bremsað var.
Það sama gerist þegar bíllinn
lendir á einhverri fyrirstöðu. Bíll-
inn stoppar skyndilega, en þú held-
ur áfram á sama hraða. Vegna þess
að bíllinn stoppar skyndilega í stað
þess að hægja á smám saman, er
ekki nokkur leið að þú getir haldið
þér með höndum og fótum. Þó að
þú getir borið fyrir þig hendurnar,
þá er eins víst að að þeir kraftar
sem verka á þig brjóti á þér hend-
urnar eins og fúaspýtur. Ef þú ert í
öryggisbeltum þá stoppar þú með
bílnum, ef ekki þá lendir þú á
mælaborðinu og framrúðunni -
með andlitið á undan - á sama
hraða og bíllinn var áður en
áreksturinn varð.
Ef þú ert ekki í belti þegar bíll-
inn lendir í árekstri, eru áhrifin á
líkama þinn í meginatriðum þau
sömu og ef þú værir úti að ganga
og bíllinn lenti á þér. Ef bíllinn sem
þú ert í er á 50 km hraða þegar
hann lendir í árekstri og þú ert
ekki í öryggisbelti lendir þú á
mælaborðinu og framrúðunni á 50
km hraða. ímyndaðu þér að þú
værir úti að ganga og bíll kæmi á
50 km hraða og keyrði beint á þig.
Hugsaðu þér þau meiðsli sem þú
fengir og örkuml ef þú þá lifir þetta
af á annað borð. Er það ekki næg
ástæða til þess að nota öryggis-
beltin?
Eru öryggisloftpúðar
betri en beltin?
Loftpúðarnir eru hannaðir til
þess að vera til viðbótar við örygg-
isbeltin, en ekki til þess að koma í
stað þeirra. Þeim er ætlað að
hjálpa beltunum við að vernda þig,
en koma alls ekki í stað öryggis-
belta. Loftpúðar eiga að virka vel
þegar þú situr uppréttur/upprétt í
sætinu eins og þú ert þegar þú ert í
öryggisbeltinu. Ef þú ert ekki í ör-
yggisbelti í árekstri þá kastast þú
áfram í attina að mælaborðinu og
framrúðunni. Ef bíllinn er búinn
loftpúðum, lendir þú í árekstri við
loftpúða sem er að blásast út.
Loftpúðinn þarf að blásast mjög
hratt út til þess að geta varið þig.
Hraðinn á púða sem er að byrja að
blásast út, getur nálgast 300 km
hraða, og við erum ekki að tala um
mjúkan dúnkodda, heldur belg úr
sterku efni sem getur varið þig ef
hann er rétt notaður, þ.e. af fólki
sem er með öryggisbeltin spennt.
En beltin krumpa fötin mín
Já, þau gera það stundum.
Framrúðan sem ég nefndi áðan,
hún krumpar þau enn meira og það
er líka mjög erfitt að ná blóði úr
fötum. Ef þú ert svo óheppin/n að
lenda í árekstri án þess að vera
með öryggisbelti er eins víst að
sjúkraflutningsmennirnir klippi föt-
in í tætlur til þess að geta komist
að því að búa um sárin.
Var ég búinn að nefna það að
maður veit aldrei fyrir hvenær
slysin verða? Þó að sumar aksturs-
aðstæður séu vissulega hættulegri
en aðrar. Það skiptir engu máli
hversu góður bílstjóri þú ert og
hvernig veðrið er og hversu langt
þú ætlar að fara. Árekstur getur
orðið hvar sem er. Það eru aðrir
bílstjórar á ferð og aðrir þættir
sem geta haft áhrif á ferð þína án
þess að þú fáir nokkru um það
breytt. Það eina sem þú getur um
breytt er að auka möguleika þína
til þess að sleppa ómeidd/ur með
því að spenna beltin.
Loftpúðar koma ekki í staðinn
fyrir öryggisbelti, þau vinna saman.
Hafið aldrei barn í bílsæti sem er
búið virkum öryggisloftpúða.
Spennum beltin, alltaf, allsstaðar.
KRISTJÁN FRIÐGEIRSSON,
erindreki Slysavarnasviðs Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.