Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Indverjar sóttu um pólitískt hæli í Bretlandi eftir viðkomu á fslandi
Komu á fölskum forsendum
með kvikmyndagerðarmönnum
INDVERJARNIR sem sóttu um pólitískt hæli í
Bretlandi um miðjan síðasta mánuð komu hingað
til lands með hópi kvikmyndagerðarmanna sem
hér voru við tökur í byrjun júlí. Ljóst er í dag að
það var tilgangur fararinnar hjá þeim, segir ís-
lenskur umboðsaðili Indverjanna.
I Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að 20
manna hópur Indverja hefði sótt um pólitískt
hæli á leið frá íslandi. Georg Kr. Lárusson, for-
stjóri Útlendingaeftirlitsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að búið hefði verið að gefa
fleiri Indverjum tímabundnar vegabréfsáritanir
til að koma hingað til lands þegar upp kom að
þessi hópur hefði sótt um pólitískt hæli í Bret-
landi. Þessar áritanir hefðu verið afturkallaðar
tímabundið í kjölfar þessa og verður sú ákvörðun
ekki endurskoðuð fyrr en skýrist hvað gerist í
Bretlandi. En vegna reglu um fyrsta griðland
gæti verið að Indverjarnir sem nú eru í Bretlandi
verði sendir aftur til Islands.
Georg segir að Indverjamir sem sótt hafa um
vegabréfsáritanir til Islands komi frá mismun-
andi kvikmyndagerðarfyrirtækjum. Ekki sé gert
ráð fyrir að allir hafi í hyggju að sækja um póli-
tískt hæli en meðan verið sé að rannsaka málin
hafi vegabréfsáritanir verið afturkallaðar.
Að sögn umboðsaðila Indverjanna hér á landi
er ekki óalgengt að hópar frá sama landi komi
saman til Islands til að vinna sína vinnu, með það
í huga að notast við sama tæknilið og spara þar
með ferðakostnað. Það hafi verið raunin í þessu
tilviki. Indverski Jramleiðandinn, sem hafði milli-
göngu um málið, hafí í kjölfar þess að áritun hafði
fengist fyrir 22 manna hópinn sem vann að
myndbandi, fengið fjölda beiðna í Indlandi frá
hópum sem vildu fljóta með til íslands til að
vinna að kvikmyndagerð. Hálfgerð tilviljun hafi
valdið því að nákvæmlega þessi hópur var valinn.
Hópurinn sendur úr landi
eftir þriggja daga dvöl
Umboðsmaðurinn segir að eftir þriggja daga
dvöl hér á landi, hafi hann fengið hringingu frá
indverska aðilanum sem tjáði honum að 20
manna hópurinn hefði ekki greitt honum tilskilin
gjöld og sagði hann umboðsaðilanum að senda
hópinn úr landi. Það var gert en á leiðinni til Ind-
lands sótti hópurinn um pólitískt hæli í Bretlandi.
Umboðsmaðurinn segir að sá hópur hafi ekki
unnið neitt að kvikmyndagerð þessa daga sem
hann dvaldi hér, en vegna þess að hóparnir komu
saman og samið hafði verið um að þeir notuðu
sama íslenska leikstjórann þá hafi ekki verið velt
vöngum yfir því. Tilgangur fararinnar hjá hópn-
um hafi hins vegar allan tímann verið að sækja
um pólitískt hæli á Bretlandi, það sé ljóst í dag.
Umboðsmaðurinn segir svona atvik vera mjög
miður fyrir alla aðila sem að því standa, hér á
landi sem og á Indlandi. Tuttugu manna hópur-
inn hafi í rauninni flotið hingað með hópi sem allt
í lagi var með og var talið að hefði verið búið að
kanna málin í þaula. Umboðsmaðurinn segir að
sá hópur sem von var á í byrjun ágúst hafi ætlað
að vinna að kvikmynd og var leikstjóri hennar
staddur hér á landi í júní. Eftir að leyfi þessa
hóps var afturkallað vegna atburðanna í London,
hafi þeir farið til Nepal í staðinn, sem sé miður
vegna þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem hafi
verið í húfi.
Hann segir hins vegar mjög skiljanlegt að
áritunin hafi verið afturkölluð vegna atvikanna.
Til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist
þurfi að setja skýrari forsendur fyrir því að ein-
staklingur fái áritun. Ef indverskar umsóknir eru
til skoðunar sé til dæmis hægt að skoða hvort
viðkomandi sé í stéttarfélagi kvikmyndagerðar-
manna á Indlandi en mjög strangar reglur séu
um aðgang að því þar í landi.
Komst framhjá
öryggiseftirliti
Komst inn
í flugvél
við Leifs-
stöð
KARLMANNI á fertugsaldri
tókst í fyrrinótt að hlaupa fram
hjá öryggiseftirliti á Keflavík-
urflugvelli. Manninum tókst að
hlaupa fram hjá áhöfn flugvél-
arinnar og hafði fengið sér sæti
í vélinni þegar lögreglan hand-
tók hann. Flugvélin var á leið til
Dusseldorf í Þýskalandi.
Lögreglan á Keflavíkurflug-
velli segir að atvikið hafi átt sér
stað um kl. 2 í fyrrinótt. Starfs-
menn öryggiseftirlitsins voru
þá að loka hliðinu þai' sem
vopnaleit- og vegabréfaskoðun
fer fram. Allir þeir farþegar
sem áttu bókað far með véhnni
til Dusseldorf höfðu þá farið um
hliðið. Líklegt sé því að
árverkni starfsmannanna hafi
verið minni en ella þegar mann-
inum tókst að hlaupa í gegn.
Morgunblaðið/Amaldur
Margt var um manninn á uppboðinu hjá Seglagerðinni Ægi.
Sýningartjöld seldust upp á uppboði hjá Seglagerðinni Ægi
íslendingar á Rimini neyðast til að
fljúga heim með vél fslandsflugs
„Stillt upp
við vegg“
JÓHANNA María Eyjólfsdóttir,
sem er á Rimini ásamt fjölskyldu
sinni í hópferð á vegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar, segir að hópur-
inn neyðist til að fljúga með flugvél
íslandsflugs heim í dag. Hópurinn
hafði neitað að ferðast með vélinni,
en vitað er til þess að hún hafi bilað
fimm sinnum á síðasta mánuði,
m.a. þegar hópurinn hélt utan.
Samvinnuferðir-Landsýn neituðu
að útvega aðra flugvél, en sögðust
myndu aðstoða farþegana við að
finna annað flug. Það yrði þó alfar-
ið á kostnað farþeganna.
í gær fékkst staðfesting frá
Flugmálastjórn um að komist hefði
verið fyrir bilunina í vélinni. „Þess
vegna höfum við tekið ákvörðun
um að fara, enda er okkur stillt
upp við vegg. Þetta er ofboðslega
erfið staða. Ég kannaði hvað það
kostaði fyrir okkur hjónin og son
pkkar að ferðast með öðru félagi til
íslands. Það myndi kosta 150 þús-
und krónur,“ segir Jóhanna María.
Hún segir framkomu Samvinnu-
ferða með ólíkindum. „Við höfum
ítrekað látið í ljósi ósk um að fá að
fara með annarri vél, en allt kemur
fyrir ekki,“ segir hún.
Tuttugu ára gömul flugvél
Umrædd flugvél er 20 ára gömul
og er notuð í fraktflutningar á
nóttunni, samhliða farþegafluginu.
„Það er vítavert hjá félaginu að
fljúga vélinni aftur og aftur, þrátt
fyrir að hún sé sífellt að bila og
ekki sé ljóst í hverju sú bilun er
fólgin. Fyrr en þá núna, samkvæmt
því sem Flugmálastjórn segir,“
segir Jóhanna. Hún segir að mikil
hræðsla og kvíði sé í hópi íslend-
inganna á Rimini vegna fyrirhug-
aðrar heimferðar.
t
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vél úti á túni
„VIÐ ætlum að ná okkur í tjald
fyrir helgina," segja tveir piltar
við blaðamann sem mættur er til
að fylgjast með hinu árlega upp-
boði Seglagerðarinnar Ægis á
sýningartjöldum. Uppboðið fer
ávallt fram á föstudegi fyrir
verslunarmannahelgi og það er
greinilegt að þessi hefð hefur
spurst vel út því að um fimmtíu
manns eru mættir á svæðið áður
en uppboðið hefst.
Fólkið, sem er á öllum aldri, er
búið að krækja sér í listann yfir
tjöldin í búðinni þar sem sjá má
söluverð þeirra nýrra. Hér er svo
sannarlega hægt að gera göð
kaup kemst blaðamaður að raun
um og lætur freistast að bjóða í
forláta göngutjald en hefur
heppnina ekki með sér.
Vígir tjaldið síðar
Sveinn Guðmarsson, dagskrár-
gerðarmaður á Dægurmálaút-
varpi Rásar 2, sem einnig er
mættur til að fylgjast með upp-
boðinu stenst hins vegar ekki
mátið. „Ég sá að þetta tjald var
að fara á 1.500 krónur og bauð
því 2.000. Þetta er klassískt
tjald,“ segir Sveinn um tjaldið sitt
Fyrsta,
annað,
þriðja,
selt!
sem er hefðbundið þriggja manna
tjald, selt á 12.500 kr. út úr búð-
inni. Sveinn er reyndar að vinna
um helgina og verður því að vígja
tjaldið síðar.
Björn Róbertsson er hins vegar
á leiðinni hringinn í kringum
landið. „Við vorum búin að fá lán-
að tjald en svo klikkaði það. Þá
heyrðum við um þetta og crum
nú búin að kaupa þetta bragga-
tjald á 26.000 sem kostaði áður
39.900.“
Uppboðshaldararar eru Skúli
Siguz og Thulin Johansen og
ferst þeim það vel úr hendi. Mis-
oft er boðið í tjöldin, allt frá
tvisvar upp í tíu sinnum. Tveggja
manna göngutjald sem metið er á
24.900 er til dæmis frekar umset-
ið. Það fer á 8.000 krónur og nýr
eigandi tjaldsins, Þór Arnarsson,
er ánægður með kaupin. „Ég hlýt
að vera það, þetta er ekki nema
þriðjungur verðsins," segir Þór.
„Mig vantaði tjald fyrir helgina
en ég er líklega á leiðinni í
Skaftafell. Ég dreif mig þvf hing-
að þegar ég sá uppboðið auglýst."
Allt selt á innan
við klukkustund
Innan við klukkutfma eftir að
uppboðið hófst eru öll tjöldin
seld. Það er venjan segir Heiðar
Ágústsson, starfsmaður Segla-
gerðarinnar. Uppboðin hafa verið
haldin í um fimmtán ár. „Það lá í
augum uppi að það þyrfti að gefa
afslátt af þessum tjöldum sem
hafa staðið uppi allt sumarið og
því kom cinhver með þessa snilld-
arhugmynd og svona hefur þetta
verið síðan,“ segir Heiðar. „Upp-
boðin eru merki um að nú fer
sumri að ljúka enda sfðasta al-
vöru útileguhelgin framundan.“
VÍÐA á túnum við bóndabæi má sjá
gömul landbúnaðartæki sem hefur
verið lagt eftir að hafa gegnt sínu
hlutverki. Þessi tæki segja sögu um
tækniþróunina til sveita og eru
þannig minnisvarðar um horfna
tíma. Þessi rakstrarvél, sem Ijós-
myndari sá á túni í Mýrdal, varð
honum að myndefni og er raunar
enn í fullu gildi.