Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Héraðsdómur Norðurlands eystra
KEA greiði rafvirkja rúmlega
12 milljónir í skaðabætur
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra verið dæmt til að greiða
starfsmanni skaðabætur að upphæð 12,3 milljón-
ir króna auk vaxta, en maðurinn slasaðist þegar
hann var að störfum fyrir félagið sumarið 1996.
Málsatvik eru þau að maðurinn starfaði sem
rafvirki hjá félaginu og hafði sinnt því starfi um
árabil. í byrjun sumars 1996 var hann kallaður
út að kvöldlagi þar sem vörulyfta í verslun fé-
lagsins í Hrísalundi festist þegar verið var að
flytja þvottavél og ræstivagn úr kjallara hússins.
Tvö hjól ræstivagnsins höfðu orðið milli veggs
og lyftu sem olli því að hún komst ekki alla leið
upp. Þegar maðurinn teygði sig inn í lyftuna til
að athuga málið skipti engum togum að lyftan
féll niður með hann innanborðs þannig að annar
fótur hans klemmdist milli veggjar lyftugang-
anna og þaks lyftunnar með þeim afleiðingum að
hann fótbrotnaði.
Vinnueftirlit var kallað á staðinn og við skoð-
un kom í ljós að orsök slyssins var sú að lyftu-
spilið slakaði út vír eftir að lyftan festist og að
svonefndur slakrofi sem á að koma í veg fyrir að
slíkt gerist stóð á sér. Fram kom í skýslu eftir-
litsins að ári fyrir slysið höfðu verið gerðar kröf-
ur um lagfæringar á aðgengi að vélbúnaði lyft-
unnar og að tryggja átti virkni slakrofans.
Maðurinn byggði kröfu sína á því að lyftan var
ekki í lögmætu ástandi þannig að rekja mætti
orsök slyssins til þess að hún var úr lagi gengin
og hafði ekki fengið fullnægjandi eftirlit eða fyr-
irbyggjandi viðhald.
Af hálfu KEA var krafíst sýknu og til vara að
bætur sem gerðar voru af hálfu rafvirkjans yrðu
lækkaðar. Byggðist sýknukrafan á því að rekja
mætti slysið alfarið til eigin sakar hans sjálfs.
Ósannað sé að vörulyftan hafi verið í ólögmætu
ástandi fyrir óhappið og eins var byggt á því að
maðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi, en
hann hefði gjörþekkt lyftuna og búnað hennar.
Ekki óhappatilviljun
í áliti dómsins kemur fram að nægilegai- líkur
megi leiða að því að eftirliti og fyrirbyggjandi
viðhaldi á lyftunni hafi ekki verið nægjanlega
sinnt og sé það frumorsök slyssins. Það hvernig
fór geti í sjálfu sér ekki talist óhappatilviljun
heldur afleiðing þess þegar allir öryggisþættir
bresta og samkvæmt því verði öll bótaábyrgð
lögð á kaupfélagið og skaðabótakrafa hans að
fullu tekin til greina. Þá var stefnda gert að
greiða manninum málskostnað að upphæð um
2,2 milljónir króna.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðsdómari kvað
upp dóminn ásamt meðdómsmönnunum Árna V.
Friðrikssyni rafiðnaðarfræðingi og Bjarna
Kristinssyni vélstjóra og vélaverkfræðingi
Sýningar í
Minjasafninu
í MINJASAFNINU á Akur-
eyri stendur nú yfir sýning um
Eyjafjörð á miðöldum, byggð á
niðurstöðum fornleifarann-
sókna á svæðinu og myndefni
úr gömlum handritum. Einnig
er í safninu sýning um sögu Ak-
ureyrar þar sem mannlífi og at-
vinnuháttum eru gerð skil.
Ennfremur eru sýndar ljós-
myndir Sigríðar Zoéga sem
Þjóðminjasafn Islands hefm-
látið vinna til sýningar.
Minjasafnið er opið daglega
milli kl 11 og 17 og auk þess á
miðvikudagskvöldum til kl 21.
Á síðasta ári voru liðin 100 ár
frá því fyrst var plantað í
Minjasafnsgarðinn. Þar eru nú
há birki- og reynitré og fleiri
tegundir sem hafa vaxið þar frá
upphafi. Minjasafnskirkjan er
opin á sýningartíma safnsins og
Nonnahús og Minjasafnið
bjóða upp á sameiginlega af-
sláttarmiða.
Handverkshús Gríms-
eyjarkvenna vinsælt
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Efnt var til keppni á hlaupahjólum í göngugötunni í Hafnarstræti og
voru þessir piltar meðal þátttakenda.
Mannfjöldi í
miðbæ Akureyrar
Morgunblaðið/Kristján
Sigrún Waage og Áslaug Alfreðsdóttir í handverkshúsi sem konur í
Grímsey reka en þangað hafa margir lagt leið sína í sumar.
MANNFJÖLDI var í miðbæ Akur-
eyrar í gær en boðið upp á dagskrá
á Ráðhústorgi síðdegis sem fólk
íylgdist með auk þess sem sölufólk
hafði slegið upp tjöldum eða borð-
um og bauð margvíslegan varning
til sölu.
Umferð gekk vel að sögn varð-
stjóra lögreglunnar og var hún vax-
andi síðdegis og þá bæði til og frá
Akureyri þannig að hann sagði
ekki ljóst hvert straumurinn lægi.
Á fímmtudagskvöld var „smástuð
í bænum“ eins og það var orðað á
lögreglustöðinni. Þannig gistu fjór-
ir fangageysmlur í fyrrinótt, þar af
einn sem gripinn var glóðvolgur við
innbrot í Glerárkirkju. Vegfarandi
hafði sóð til hans um kl. 4 um nótt-
ina og lét vita. Þá var kærð ein
líkamsárás en tveir piltar höfðu
lent í ryskingum í Geislagötu með
þeim afleiðingum að annar kjálka-
brotnaði. Tildrög slagsmálanna eru
Bifreiðastjórar
Hafið bílabænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þið akið.
Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Reykjavík,
Shellstööinni v/Hörgárbraut, Akureyri og
Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri.
Verö kr. 200
Orð dagsins, Akureyri
að sögn lögreglu óljós. Eitt umferð-
aróhapp varð á Akureyri á mótum
Byggðavegar og Hrafnagilsstrætis
þar sem einn hlaut minniháttar
meiðsl en mikið eignatjón varð.
----------------
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA:
Helgistund kl. 11 á morgun,
sunnudag. Hulda Guðrún Geirsdótt-
ir og Douglas A. Brotchie flytja tón-
list. Sumartónleikar kl. 17 sama dag.
Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 á
fimmtudag í næstu viku. Bænarefn-
um má koma til prestanna. Hægt er
að fá léttan hádegisverð í Safnaðar-
heimili eftir kyrrðarstundina.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Almenn samkoma kl. 20 á sunnu-
dagskvöld.
PÉTURSKIRKJA:
Messa í dag, laugardag, kl. 18 og á
morgun, sunnudag, kl. 11 í Hrafna-
gilsstræti 2.
----------------
Brotist inn í
Glerárkirkju
LÖGREGLAN á Akureyri hafði í
ýmsu að snúast í fyrrinótt. Um nótt-
ina sást til ungs manns þar sem hann
skreið inn um glugga í Glerárkirkju.
Lögreglan var þegar kölluð til og
handtók manninn. Hann hafði brotið
sér leið inn um glugga en að öðru
leyti voru engar skemmdir unnar á
kirkjunni. Þrír menn voru hýstir í
fangageymslum lögreglunnar vegna
ölvunar. Auk þess kjálkabrotnaði
maður í átökum við annan mann.
„STOFNUN handverkshúss er gam-
all draumur sem við ákváðum að láta
rætast og sjáum alls ekki eftir. Það
er mjög vinsælt bæði meðal eyjabúa
og ferðamanna að sjá hvað við höfum
upp á að bjóða“, segir Áslaug Al-
freðsdóttir, einn stofnenda hand-
verkshúss Gallerí Sólar í Grímsey.
Handverkshús Gallerí Sól var
stofnað fyrir tveimur árum af nokkr-
um konum í Grímsey og var hugsun-
in fyrst og fremst sú að heimaiðnað-
ur gæti orðið einhver atvinnugrein
fyrir konur hér í eynni. Að sögn Ás-
laugar var farið með galleríið af stað
upp á grín og ákveðið að prufa að
selja heimasaumaðar og prjónaðar
vörur ásamt því að vera með vöfflu-
kaffi og kakó á boðstólum. „Við opn-
uðum formlega 5. júlí 1998 með því
að hringja á bæina og eyjaskeggjum
öllum var boðið að vera við opnunina
þar sem við veittum gos, kaffi og
heitt súkkulaði. Gallerí Sól var rétt
að fara af stað og því ósköp fátæklegt
hjá okkur,“ sagði Áslaug.
Aukin umsvif
Nú hefur starfsemin heldur betur
vafið upp á sig. Ýmis handverk frá
konunum í eyjunni og fáeinum
krökkum eru nú til sölu í Gallerí Sól
og má þar nefna, auk heimaprjónaðr-
ar vöru, keramikmuni, ýmsar
trévörur, gjafakort, málaða steina,
unninn rekavið og nælur úr lunda-
goggum. Einnig hafa vörur verið í
endursölu fyrir handverks- og
listafólk alls staðar af landinu.
Gistiheimili opnað í vor. Gallerí-
hópurinn keypti í vetur helmings-
hlut í húsinu Sólbergi sem hand-
verkshúsið hefur aðstöðu í. Húsið er
á þremur hæðum, galleríið á þeirri
neðstu og á hinum tveimur eru fjög-
ur herbergi, setustofa, eldhús og bað.
„Þar sem efri hæðirnar stóðu
ónotaðar kviknaði sú hugmynd hjá
okkur að opna gistiheimili til að at-
huga hvort þörfin væri fyrir hendi.
Aðsóknin hefur svo sannarlega farið
langt fram úr okkar vonum,“ sagði
Áslaug. Akveðið var að gefa gisti-
heimilinu nafnið Gullsól því Gallerí
Sól fékk sendingu í vetur merkta
Gullsól.
Gistiheimilið er opið allan ársins
hring og er leigt út eins og orlofsíbúð
en einnig hægt að fá eitt og eitt upp-
búið rúm svo og svefnpokapláss.
Handverkshús Gallerí Sól er opið
á svokölluðum ferjudögum, mánu- og
fimmtudögum en handverkskonurn-
ar eru fúsar til að opna hvenær sem
er fyrir hópa og einstaklinga.
Öll starfsemi í kringum galleríið
og gistiheimilið er unnin í sjálfboða-
vinnu. Þær segja vinnuna gefandi og
þær sjái hana metna af þeim sem
kaupa.
„Mer finnst handverkshúsið setja
mikinn menningarsvip á bæinn og
erum við þakklátar Grímseyingum
fyrir hvað þeir hafa stutt dyggilega
við bakið á okkur með tíðum heim-
sóknum og verslunarferðum,“ sagði
Áslaug að lokum.
Galleríhópinn skipa þær Áslaug
Alfreðsdóttir, Helga Mattína
Björnsdóttir og Guðrún Gísladóttir
sem hafa séð um rekstrarhliðina og
Guðbjörg Henningsdóttir, Hulda
Reykjalín, ída Jónsdóttir, Jónína
Sigurðardóttir, Jórunn Magnúsdótt-
ir, Sigrún Waage, Sigrún Þorláks-
dóttir, Steinunn Stefánsdóttir og
Þorgerður Einarsdóttir.
-------♦-♦-♦-------
Vegglistaverk
úr keramiki
GUÐRÚN Jónasdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Café Karólínu
laugardaginn 5. ágúst kl. 14 en hún
stendur til 2. september.
Guðrún er fædd 1967 og ólst upp á
Akureyri. Á sýningunni verða vegg-
listaverk unnin úr keramiki og járni.
Þetta er önnur einkasýning Guðrún-
ar og hefur hún einnig tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Hún stund-
aði nám í keramiki við Listaháskól-
ann í Antwerpen og skúlptúr við
Listaháskólann í Gent á árunum
1990-1994.
Síðustu Sumartón-
leikarnir á morgun
FIMMTU og síðustu Sumartón-
leikarnir í Akureyrarkirkju verða
haldnir sunnudaginn 6. ágúst kl
17. Þá munu Hulda Guðrún Geirs-
dóttir, sópran, og Douglas A.
Brotchie, orelleikari, flytja tónlist
eftir Johann Sebastian Bach, Carl
Philip Emanuel Bach, Petr Eben,
Sigurð Þórðarson, César Franck
og George Bizet. Tónleikarnir
standa yfir í klukkustund og er að-
gangur ókeypis.
Hulda Guðrún Geirsdóttir lauk
námi frá píanó- og söngdeild Tón-
listarskólans í Reykjavík árið
1989. Hún stundaði einnig fram-
haldsnám við Richard Strauss-
Konservatorium í Munchen. Hún
hefur m.a. sungið sópranhlutverkið
í Carmina Burana á Orff-hátíð í
tilefni af 10 ára ártíð tónskáldsins.
Árið 1992 var hún ráðin ein-
söngvari við sönghóp Feliciu
Weathers og söng með henni á
tónleikum víðsvegar um Þýska-
land. Einnig hefur hún sungið með
fjölmörgum hljómsveitum s.s.
Söngsveitinni Fílharmoníu og Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna. Hún
hefur og stundað söngkennslu, í
Munchen, en síðan við Tónlistar-
skólann í Grindavík, auk kórþjálf-
unar.
Douglas Brotchie er Skoti,
fæddur í Edinborg. Hann var
strax sextán ára ráðinn organisti
og kórstjóri við Balerno sóknar-
kirkjuna sem staðsett er í þorpi í
útjaðri Edinborgar. Hann flutti til
íslands árið 1981.
Douglas lauk einleikaraprófi á
orgel frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Hann var annar organisti Landa-
kotskirkju í mörg ár auk þess að
vera organisti við Hallgrímskirkju
í eitt ár. Hann hefur haldið tón-
leika víða um Evrópu, bæði sem
meðleikari svo og sem einleikari.
Auk þess hefur hann leikið inn á
fjölda geisladiska.