Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Guðspjall dagsins:
Jesús mettar fjórar
þúsundir manna.
(Mark. 8.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00.
Sr. Hjörtur Hjartarson messar. Sókn-
arnefnd.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guósþjónusta kl.
11:00. Organisti Guóni Þ. Guðmun-
dsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11:00. Prestur sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Félagar úr Dómkórnum
syngja. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson.
VIÐEYJARKIRKJA: Guösþjónusta kl.
14:00. Félagar úr Dómkórnum
syngja. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson. Prestur sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Bátsferð úr Sundahöfn
kl. 13:30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ól-
afsson. Prestur Guðmundur Óskar
Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Að venju fellur
guðsþjónusta niður vegna verslunar-
mannahelgar. Bent er á guðsþjón-
ustuhald í nágrannakirkjum.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11:00. Félagar úr Mótettukór syngja.
Organisti Kári Þormar. Sr. Sigurður
Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tó-
mas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11:00 með einföldu sniði í litla sal
safnaðarheimilis Langholtskirkju.
Umsjón Svala SigríðurThomsen. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kaffis-
opi eftirmessu.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumar-
leyfis starfsfólks Laugarneskirkju er
bent á guðsþjónustu í Áskirkju.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Organisti Reynir Jónasson.
Sr. HalldórReynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi-
stund kl. 11:00. Jóhanna Guðjóns-
dóttir leiðir stundina. Verið öll hjartan-
lega velkomin.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Organleikari: Pavel Smid.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kirkjan verður
lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks
ogframkvæmda við kirkjuna til ágúst-
loka. Bent er á guðsþjónustur í öðr-
um kirkjum prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA: Lokað vegna
sumarleyfa íjúlímánuði og fyrstu viku
ágústmánaöar. Næsta messa er
sunnudaginn 13. ágúst kl. 20.30.
Vegna prestsþjónustu er vísaö á
sóknarprest Kársnessóknar.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Sigurður Arn-
arson, sem þjónar fyrir altari. Bryndís
Valbjörnsdóttir guðfræðingur prédik-
ar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org-
anisti: Hörður Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónustur í
Hjallakirkju falla niður í júlímánuði og
fyrstu viku ágústmánaðar. Fólki er
bent á helgihald í öðrum kirkjum próf-
astsdæmisins. Bæna- og kyrróar-
stundirverða áfram á þriöjudögum kl.
18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Sóknarprestur
verður í sumarleyfi frá 3. ágúst til 7.
september. Guðsþjónustur og bæn-
astundir falla niöur þann tíma en
kirkjan opin og kirkjuvörður til staðar.
Sóknarprestur Digranesprestakalls
annast þjónustu í Kársnesprestakalli
í sumarleyfi sóknarprests. Sr. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Engin guösþjónusta
sunnudaginn 6. ágúst vegna feróa-
laga starfsfólks. Næsta guðsþjón-
usta veröur kvöldguðsþjónusta
sunnudaginn 13. ágúst kl. 20. Sókn-
arprestur.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag kl.
20: Hjálpræðissamkoma. Kapteinn
Miriam Óskarsdóttir stjómar og talar.
Verið velkomin.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Engin
samkoma þennan sunnudag vegna
móts kirkjunnar á Eyjólfsstöðum á
Austurlandi.
VEGURINN: Hefðbundin samkoma á
sunnudagskvöldi fellur niður vegna
móts í Kirkjulækjarkoti.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja: Sunnudag:
Hámessa kl. 10.30. Messa kl.
14.00. Kl. 18.00: messa á ensku.
Virka daga og laugardaga: messur kl.
18.00.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufar-
sel: Sunnudag: messa kl. 11.00.
Virka daga: messa kl. 18.30. Laugar-
dag: messa kl. 18.30 á ensku.
Riftún, Ölfusi: Sunnudag: messa kl.
17.00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu-
dag: messa kl. 10.30. Miövikudag:
messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudag: Messa
kl. 8.30. Laugardagogvirka
daga: messa kl. 8.00.
Keflavík - Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudag: Messa kl.
14.00.
Akranes: Messa 5. ágústfellurniður.
Borgarnes: Messa í Borgarneskirkju
5. ágústkl. 11.00.
Bíldudalur: Messa 7. ágúst fellur nið-
ur. Messa 19. ágúst kl. 11.00.
Tálknafjörður: Messa 7. ágúst fellur
niður. Messa 19. ágúst kl. 15.00.
Patreksfjörður: Messa 7. ágúst fell-
ur niöur. Messa 19. ágúst kl. 18.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudag: messa kl. 10.00. Laugar-
dag ogvirka daga: Messa kl. 18.30.
Vestfirðir: ísafjörður, Bolungarvík,
Flateyri, Suðureyri, Þingeyri: Engar
messur. Séra Marek Zygadlo er í
sumarleyfi til 27. ágúst.
Akureyri - Péturskirkja - Hrafnagils-
stræti 2: Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Laugardaga: Messa kl.
18.00.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 15.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guösþjónusta í
Vídalínskirkju sunnudaginn 6. ágúst
kl. 11:00. Kór kirkjunnar leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti:
ÞorvaldurBjörnsson.
Fjölmennum og sameinumst í bænar-
gjörð fyrir öllu því fólki sem er á fara-
Idsfæti þessa miklu umferðarhelgi.
Biðjum þess aö allirmegi koma heim
heilir á líkama og sálu eftir skemmt-
un helgarinnar. Prestarnir.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalar-
nesl: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11
fh. Gunnar Kristjánsson sóknarprest-
ur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 11. Guðrún Eggertsdóttir djákni
kveöur söfnuðinn. Léttar veitingar í
safnaðarheimilinu eftir messu. Morg-
untíð er sungin I kirkjunni kl. 10 frá
þriðjudegi til föstudags. Foreldra-
morgnar eru I safnaðarheimili á miö-
vikudögum kl. 11. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 17. Tónlistarstund
hefst f kirkjunni tuttugu mínútum fyrir
messuna. í messunni leikur Bach-
sveitin í Skálholti auk þess sem
Magnea Gunnarsdóttir flytur stólvers
úr sönghandriti. Organisti er Kári
Þormar. Prestur sr. Egill Hallgríms-
son.
ÁRBÆJARKIRKJA í Austurdal:
Messa sunnudag kl. 14. Sr. Ólafur Þ.
Hallgrímsson á Mælifelli prédikar og
þjónar fyrir altari. Kristján Valga-
rðsson og Sigríður Snorradóttir
syngja einsöng og tvísöng. Organisti
er Bjarni Valtýr Guðjónsson. Kirkjuk-
affi að Merkigili að athöfn lokinni.
ÁRNES á Ströndum: Kirkjudagur 6.
ágúst. Guðsþjónusta kl. 14.10 alda
kristnihátíö og minnst 150 ára bygg-
ingar gömlu kirkjunnar. Ræðumenn
sr. Ágúst Sigurösson á Prestbakka,
sr. Einar B. Jónsson á Kálfafellsstaö
og sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur
á Melstað. Staðarprestur, sr. Jón ís-
leifsson, þjónar fyrir altari. Organisti
Guðmundur Guðjónsson frá Kjörvogi.
Héraðsnefnd Húnavatnsprófast-
sdæmis.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA Messa
sunnudaginn 6. ágúst nk. kl. 21:00.
Sóknarpresturinn, séra Lára G. Odds-
dóttir, prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti er Muff Warden. Allir vel-
komnir. Sóknarprestur.
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 59
V ertíðin
stendur
sem hæst
Krítarkort
Túrisminn er eins og
útgerð, segir Hlín
Agnarsdóttir; hver
túristi eins og þorskur
sem er veiddur og gert
að og síðan sendur
grillaður heim.
NÚ STENDUR túristaver-
tíðin sem hæst hér á Krít
og þá fara menn að bera
saman tíðina nú og í fyrra og árið
þar áður og spá í það hvemig hún
verði að ári liðnu. Vinkona mín við
Feneysku höfnina í Hania, sem
rekur einn elsta veitingastaðinn á
þessum vinsæla ferðamannastað,
bauð mér í Krítarhumar eitt mið-
degið í vikunni. Henni fannst
ófært að sjá mig aldrei nema í
vinnunni, svo við ákváðum að taka
okkur góðan tíma til að spjalla.
Mér fannst hún svolítið leið og
þreytt þegar ég kom, enda ekki
nema von, konan búin að standa
upp á endann á hverjum degi síð-
an í lok mars við að þjóna ferða-
mönnum. Fyrst fékk ég mér
„horta“ sem eru krítversk fjalla-
grös í ætt við spínat, léttsoðið með
sítrónu, salti og ólífuolíu og oftast
borðað sem forréttur. Á meðan ég
jórtraði á því spurði ég afar var-
lega og hæverskt hvernig bisness-
inn gengi til þess að opna samræð-
ur okkar.
Það er alltaf jafngaman að fá
svör við þeirri spumingu því fæst-
ir viðurkenna að bisnessinn gangi
vel. Það má ekki, því þá fá þeir
ekki nógu mikla samúð og athygli
og samræðurnar gætu lognast út
af. Vinkona mín byi'jaði á því að
setja upp þessa sérstöku grísku
skeifu á munninn, þar sem munn-
vikin ná næstum niður á axlir,
vifta síðan með annarri hendinni
og segja „etsi ke etsi“ sem þýðir
„svona la la.“ Og í kjölfarið kom
síðan heil romsa af útskýringum
og skilgreiningum á því hvers
vegna bisnessinn gengi verr í ár
en í fyrra og árið þar áður og þar
áður. Það fyndna við þetta allt er
að skýringarnar em ávallt sóttar
til utanaðkomandi fyrirbæra eins
og t.d. í ár koma færri ferðamenn
til Krítar af því að það var jarð-
skjálfti í Istanbúl og Tyrklandi í
fyrra og fólk er hrætt við jarð-
skjálfta. Það vill nú samt þannig
til að Istanbúl liggur fjarri Krít
svo sú skýring er hæpin. Næsta
skýring er að verðlagið í Grikk-
landi hafi hækkað frá því fyrra og
það sé ekki nógu mikill munur á
verðlagi hér og í öðram Evrópu-
löndum og þess vegna komi ekki
eins mikið af ferðamönnum þaðan.
Svo kemur þriðja skýringin, sem
er líklega sú eina rétta, fólk á enga
peninga eða minni en í fyrra.
I fjöldatúrismanum er slegist
um hverja krónu sem hver ferða-
maður eyðir í fríinu sínu og inn-
byrðis samkeppni milli hóteleig-
enda, veitingahúsa, verslana og
allra þeirra sem veita þjónustu við
ferðamenn er gífurleg. Við Fen-
eysku höfnina þar sem veitinga-
staðimir liggja þétt hlið við hlið er
ráðinn sérstakur „kamaki" gæi,
sem á að veiða túristana inn á
staðina. Kamaki þýðir veiðimaður
og þessir veiðimenn nota að vísu
hvorki öngla né háfa til að skófla
sínum afla á land, heldur óstöðv-
andi munnræpu og smjaður á
ýmsum tungumálum, sem satt að
segja getur verið bæði þreytandi
og uppáþrengjandi. Þessi veiðiað-
ferð hefur að sjálfsögðu margoft
komið til umræðu hjá stjórnend-
um ferðamála hér í borginni og í
eitt sinn var tekin sú ákvörðun að
hætta þessari rányrkju, því á köfl-
um ganga þessir „kamaki“ gæjar
svo langt að þeir beita líkamlegum
þrýstingi við að ýta ferðamönnun-
um inn á tiltekna staði og láta þá
éta þar. Ég hef horft upp á aðfar-
imar og séð fórnarlömbin. Oftast
era það eldri hjón, bæði í stutt-
buxum sem passa ekki á þau og
augnaráð sem er flöktandi af því
þau era ekki viss hvert þau eiga að
stefna og era því ágætis bráð. Eða
tvær ungar stúlkur sem hafa ekki
borðað neitt síðan í 12 ára bekk
þegar þær byrjuðu í megran og
gaman væri að fita eða tveir átfíkl-
ar í góðum holdum, sem geta
aldrei sagt nei og eru alltaf til í að
fá sér meira að borða. Eða bara
ósköp saklaust fjölskyldufólk með
grenjandi krakka, sem era að
drepast úr hungri.
Vinkona mín á höfninni er sam-
mála mér um að þetta séu leið-
indaaðferðir og hún var sjálf ein af
þeim sem sáu til þess að þessi
veiðiskapur var lagður niður um
tíma, en við það datt allur bisness
niður og fólkið hætti alveg að
koma. Það rölti bara um höfnina
hálfnakið í hitanum og gat ómögu-
lega tekið ákvörðun um hvar það
ætti að setjast niður og borða. Það
var úr allt of mörgu að velja, svo
hótelin sáu sér leik á borði og
buðu fólki upp á dýrindis hlaðborð
á kvöldin, svo það þyrfti ekki að
engjast sundur og saman af þján-
ingu við að lesa matseðla sem
stundum tekur allt kvöldið að
skilja. Svo veiðiheimildimar á
höfninni vora veittar á ný og enn
fleiri veiðimenn ráðnir í vinnu, allt
til þess að hægt væri að reka veit-
ingastaðina og láta bisnessinn
ganga.
Já, svona er túrisminn eins og
hver önnur útgerð og hver túristi
eins og hver annar þorskur sem er
veiddur og gert að og síðan send-
ur grillaður heim. Þegar við vor-
um búnar að sjúga alla næringu
úr humrinum voram við komnar á
trúnaðarstigið, tala um ástina og
lífið og segja hvor annarri hvert
okkur langaði helst í frí. Vertíð-
inni hér á Krít lýkur í byrjun nóv-
ember og þá fyrst tekur fólk sér
frí og ferðast til framandi landa.
Vinkonu mína langar til til Tíbet í
kyrrð og hugleiðslu eftir allan
hamaganginn við höfnina. Mig
langar aftur á móti upp í íslensk
fjöll og vaða eins og eitt jökulfljót,
þó ekki á eigin vegum.
„Au pair" — Ósló
Fjölskylda, sem býr í miðbæ Óslóar, óskar eftir
„au pair"/nema til að gæta drengs og telpu (9 og 6
ára) og aðstoða við heimilisstörf. Hægt að sinna námi/
áhugamálum meðfram vinnu. Hafið samband við Rune
í s. 0047 9155 9718 eða Sissel í s. 0047 9288 2296.