Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný umferðarmerki tekin í iiotkim
Varað við hættu-
legum vegarköflum
NY umferðarmerki sem vara öku-
menn við þegar þeir aka inn á vegar-
kafla þar sem slys hafa reynst tíð eða
alvarleg voru kynnt í gær. Dóms-
málaráðherra og samgönguráðherra
afhjúpuðu fyrsta merkið, sem er við
Hafnarmela undir Hafnarfjalli.
Nýju merkin minna ökumenn á að
þeir eru að aka inn á vegarkafla þar
sem slys hafa reynst tíð eða alvarleg.
Á skiltunum er jafnframt varað við
því er framundan eru margar krapp-
ar beygjur, einbreiðar brýr eða vara-
söm vegamót. Það er þó ekki endi-
lega vegurinn sjálfur eða aðstæður
sem hafa reynst varasöm. Langflest
umferðarslys má rekja til þess að
ökumenn hafa ekki tekið nægjanlegt
tillit til aðstæðna.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagði það staðreynd að
flest alvarlegustu umferðarslysin
verði í dreifbýli. Langflest banaslys
verða á landsbyggðinni þar sem há-
markshraði er 80 km/klst. eða meiri.
í fyrra urðu 70% banaslysa í dreif-
býli og 80% árið áður. Sólveig sagði
að sýnt hefði verið fram á að í yfír-
gnæfandi fjölda tilfella væri aðalor-
sök banaslysa tengd ökumanninum
sjálfum.
Vegagerðin skráir hvar slys verða
á þjóðvegunum. Með því finnast
svokallaðir „svartir blettir" í vega-
kerfinu. Yfirleitt er gripið til þess
ráðs að bæta veginn, t.d. með því að
breikka brýr og lagfæra beygjur og
blindhæðir. Stundum nægir þó ekki
að bæta veginn til að slysum fækki.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði að á endanum ylti það á
ökumönnum að fækka slysum.
A næstu 20 km
hafa orðið mörg
slys vegna
hraðaksturs
Morgunblaðið/Sverrir
Dómsmálaráðherra og samgönguráðherra afhjúpuðu í gær nýja tegund
umferðarskilta við Hafnarmela undir Hafnarfjalli. Með þeim á mynd-
inni eru: (f.v.) Helgi Hallgrímsson vegamálasfjóri, Stefán Skarphéðins-
son sýslumaður og Óli H. Þórðarson framkvæmdasfjóri Umferðarráðs.
Hi
Andi Einars
á ferðinni
Morgunblaðið/Guðlaugur pórðarson
ÞAÐ var sem andi Einars miðils á
Einarsstöðum í Reykjadal væri til
staðar þegar ljósmyndari átti leið
þjá á dögunum. Einar var þekktur
um land allt fyrir hæfiieika sína
sem miðill og sinnti þeim störfum
jafnhliða búskapnum á Einarsstöð-
um. Ævar H. Kvaran sagði um Ein-
ar, að hann hefði verið „valinn af
máttarvölduin til þess að geta hjálp-
að fólki í hvers konar veikindum og
erfiðleikum, þegar flest annað hafði
verið reynt til bata án árangurs“.
Einar Iést fyrir þrettán árum.
Landssíminn kærir
samning við Línu.Net
LANDSSÍMINN hefur sent fjármálaráðuneyt-
inu kæru þar sem farið er fram á að borgarráð
staðfesti ekki samning sem fyrirhugað er að gera
á milli Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og Línu.-
Nets um ljósleiðaratengingu í grunnskóla
Reykjavíkur. Er þess og krafist að verkið verði
boðið út.
Ólafur Þ. Stephensen, upplýsingafulltrúi
Landssímans, sagði að ekki væri verið að krefjast
þess að Landssíminn fengi verkið, heldur að fyr-
irtækið fengi að sitja við sama borð og önnur fyr-
irtæki. Neitaði hann þeirri fullyrðingu, sem
heyrst hefur úr ranni borgaryfirvalda, að ekkert
annað fyrirtæki en Lína.Net hefði upp á nægilega
flutningsgetu að bjóða til að leysa þetta verkefni
afhendi.
Geta boðið þjónustuna strax
Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs og
varaformaður borgarráðs, kvaðst ekki óttast að
möguleg kæra Landssímans vegna samningsins
við Línu.Net gæti hamlað framkvæmd verksins.
Landssíminn gæti ekki boðið þessa þjónustu
núna, fyrst þyrfti hann að ráðast í miklar fram-
kvæmdir. Lína.Net gæti hins vegar boðið upp á
þessa þjónustu nú þegar. „Það er alla vega búið
að sannfæra mig um yfirburði þessa kerfis og yf-
irburði þess að geta selt okkur, Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur, þessa þjónustu nú.“
Guðbjörg A. Jónsdóttir, forstöðumaður þróun-
arsviðs Fræðslumiðstöðvarinnar, segir að tillög-
ur Landssímans hafi fyrst og fremst snúið að því
að halda áfram leigulínunni með tveggja mega-
bita samböndum í staðinn fyrir að lágmarki 10
megabita.
Olafur Þ. Stephensen fullyrti hins vegar á
mbl.is í gær að flutningsgeta Landssímans innan
borgarinnar væri mikil. „Við erum með ljósleið-
arakerfi sem getur flutt 2.500 megabit og erum
með áform um að stækka það upp í að minnsta
kosti 40.000 megabit, svo það er örugglega ekki
nein hindrun í þessu máli.“
Krefst endurupptöku málsins
Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og fulltrúi í stjórn Innkaupa-
stofnunar, greiddi atkvæði með samningnum við
Línu.Net en krefst þess nú að málið verði tekið
upp að nýju. „Á fundi Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar síðastliðinn mánudag lýsti
tölvuráðgjafi borgarinnar því yfir aðspurður að
Landssíminn hefði allan tímann fylgst með þessu
máli og að Landssíminn gæti ekki boðið þessa
umræddu þjónustu. Einnig kemur fram á minnis-
blaði frá honum og verkefnisstjóra tölvumála hjá
Fræðslumiðstöð, að samkvæmt þeim upplýsing-
um sem þeir hafi, hafi ekkert fyrirtæki annað en
Lína.Net þegar komið upp ljósleiðaraneti um alla
Reykjavíkurborg sem geti sinnt þessari þjónustu.
Eg mun í framhaldi af viðbrögðum Landssím-
ans fara fram á að málið verði tekið upp á nýjan
leik í stjórn Innkaupastofnunar og kröfur og
sjónarmið Landssímans skoðuð. Það er greinilegt
að samskipti, eða fjarskipti, milli Landssímans og
tölvuráðgjafa Reykjavíkurborgar eru með afar
sérkennilegum hætti. Eg vil einnig nefna það í
þessu sambandi, að ég er sammála því sem hefur
komið fram hjá Ólafi Stephensen hjá Landssím-
anum, að þar sem því verði við komið verði öll
síma- og fjarskiptaþjónusta borgarinnar og fyrir-
tækja henhar boðin út. Eg mun beita mér fyrir
því að það verði gert. Ef Landssíminn stendur við
fullyrðingar sínar, finnst mér sjálfgert að hann
fái tækifæri til að bjóða í þessa þjónustu."
Garðabær
Bæjar-
stjórastað-
an líklega
auglýst
LÍKLEGT er að á fundi bæjar-
ráðs Garðabæjar á þriðjudag
verði tekin ákvörðun um það að
auglýsa starf bæjarstjóra laust
til umsóknar en sem kunnugt er
mun Ingimundur Sigurpálsson,
núverandi bæjarstjóri, taka við
forstjórastarfi hjá Eimskip í
haust þegar Hörður Sigurgests-
son hættir að eigin ósk.
Ingimundur, sem verið hefur
oddviti sjálfstæðismanna í
Garðabæ um leið og hann hefur
sinnt bæjarstjórastarfinu, segir
að bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafi orðið sammála um
að hyggilegt væri að standa
svona að ráðningu bæjarstjóra.
Hann sagði ekkert útséð með
það að einhver bæjarfulltrúanna
sjálfra sækti um og fengi starfið
en rétt hefði þótt að auglýsa
starfið laust til umsóknar. Þau
vildu finna besta manninn í stöð-
una og leiðin til að gera það værí
að sjálfsögðu sú að athuga
hverjir gæfu kost á sér. Sá mað-
ur gæti vissulega verið innan
bæjarstjórnarflokks Sjálfstæð-
isflokksins en hann gæti líka
verið að finna annars staðar.
Sagði Ingimundur aðspurður
að ekkert hefði enn verið rætt
um það meðal bæjarfulltrúanna
hvort einhver þein-a hefði hugs-
anlega áhuga á starfinu.
ÁLAUGARDOGUM
4
Þrjú lið berjast um Islands-
meistaratitil kvenna/2
Magnus Sunesson liðsstjóri
Svía í golfi/4