Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
KRISTJANA ÞORA
>OG EINAR ÁRNASON
Order of the British Empire af
Georgi VI fyrir uppfinningar lút-
andi að vopnagerð. Eftir styrjöld-
ina vann hann tvö ár hjá Power
and Mine Supply í Winnipeg. Síðan
stofnaði hann fyrirtækið Plaxlab
Kristjana Þóra Products, sem er plastverksmiðja, -1- Inga Þorleifsdótt-
1 fæddist í Hænu- og bjó t.d. til augiýsingaskilti. Ein- 1 ir fæddist 31. des-
vík, V.-Barð., 20. ar var í vináttufélagi innfæddra og ember 1908. Hún lést
október 1905. Hún éMm WMzú:i< zw annarra þjóðfélagshópa og var 31. júlí síðastliðinn. f, * | %£■ ' ''
lést í Winnipeg 1. hann heiðraður fyrir störf í þágu Foreldrar hennar
október 1997. Hún indíána í Winnipeg. Skóii og leik- vora Þorleifur
var dóttir hjónanna skóli var settur á stofn og einnig Bjamason bóndi og * ■
Ólafar Össurardótt- búð, þar sem munir unnir af Ragnhildur Guð-
ur, f. á Hvallátrum \ á. • jmtmjiœm-Z- ML Um . SSUKk. ifrh indíánum voru til sölu. Um tíma mundsdóttir ljósmóð-
1872, og Jóhanns vann Þóra í búðinni. Einar var í ir í Svínhólum í Lóni.
Magnússonar, f. á framkvæmdaráði Mt. Carmel- Inga giftist 20. júlí 'j
Siglunesi á Barða- M 'Hl ,«s. v spitalans, hjáiparstofnun barna og 1928 Gunnari Sigur-
. strönd 1866. Þau * bjuggu í Hænuvík tengdur lögreglu Winnipeg og ná- sveinssyni Vík, f. 25.
grennis. Hann var virkur í Fram- júlí 1904, d. 5. júní
við Patreksfjörð frá faraflokknum (Progressive Con- 1963. Foreldrar hans % . '/jSik v
1897-1911, en þá servative) og bauð sig fram 1973. voru Sigursveinn Sig- \ w. 4;
fluttust þau til Kan-
ada með fjölskyldu sína. Systkini
Þóru voru Guðrún, f. 1895, er lát-
in; Kristján Ágúst, f. 1897, er lát-
inn; Arnbjörg (Edna), f. 1907, er
látin; Fanney, f. 1912, búsett í
Winnipeg, og Pétur Magnússon
(fósturbróðir), f. 1915, búsettur í
Reykjavík. Hún vann í mörg ár hjá
CNR-ritsímafélaginu áður en hún
giftist. Hún kom til íslands 1930 og
dvaldist þá í þrjá mánuði.
Einar var fæddur í Winnipeg 7.
júní 1910 og lést í sömu borg 16.
júní 2000. Hann var sonur hjón-
anna Sigríðar Einarsdóttur Sæ-
mundsen, f. á Leirá í Borgarfjarð-
arsýslu 1884, og séra Guðmundar
Árnasonar, prests í Winnipeg, f. í
Munaðarnesi f Mýrasýslu 1880.
Einar lauk námi í rafmagnsverk-
fræði frá Manitobaháskóla 1937.
Hann var verkfræðingur hjá CNR
í Winnipeg og Toronto 1937-1939.
Herþjónustu gegndi hann 1939-
1945, lengst af á Englandi. Hann
vann í fyrstu að húsnæðismálum
hersins, síðar við rannsóknir og
tilraunir með eldvörpur og loks
stjórnaði hann skóla er kenndi
hemaðarverkfræði. Hann hlaut
majorstign 1941 og var seinna
gerður ofursti. Hann var sæmdur
Við systkinin viljum minnast
sæmdarhjónanna Þóru og Einars
Árnason. Við kynntumst þeim fyrst
rosknum hjónum, búin að koma
upp dætrum sínum, er þau komu til
íslands og dvöldu tvö sumur í húsi
foreldra okkar. Dillandi hlátur og
kímnigáfa Einars og Þóru var smit-
andi og lét engan í friði. Þau voru
., stolt af uppruna sínum og vildu fyr-
ir alla muni sjá og upplifa sem mest
af Islandi og sérstaklega stöðun-
um, sem þau voru ættuð frá, t.d.
fóru þau með foreldrum okkar
hringinn í kringum landið og var
mikið rætt um dvölina á Brekku í
Núpasveit N-Þingeyjarsýslu og á
Hallormsstað. Stuttu fyrir andlátið
rifjaði Einar upp vinnuferð með
föður okkar vestur að Álftamýri í
Arnarfirði þar sem sett var upp
glæsilegt hlið og trjám plantað.
Einari hafði förlast minnið síðustu
misserinn, en ferðin til Álftamýrar
var honum ógleymanleg , til þess
síðasta. Hann hló mikið, þegar
hann skýrði frá því hvað bændurn-
ir sem komu til þeirra pabba í
Álftamýri við Arnarfjörð hefðu illa
skilið það að hann kæmi frá Kan-
ada, því hann talaði íslenskuna
bara eins og þeir, svo hló hann,
f
Ástkær dóttir mín, systir, móðursystir og
mágkona,
JÓHANNA ÖGMUNDSDÓTTIR
kennari,
Háaleitisbraut 151,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mið-
vikudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Ögmundur Kristófersson,
Auðbjörg Ögmundsdóttir, Sigfús Guðmundsson,
Þórdís Sigfúsdóttir, Jökull Þór Ægisson,
Ögmundur Sigfússon.
t
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EYJÓLFUR JÓNSSON
frá Flateyri,
síðar búsettur á ísafirði,
andaðist á Sjúkrahúsi Isafjarðar miðviku-
daginn 2. ágúst.
Helga Hermundardóttir,
Guðrún Eyjólfsdóttir,
Jón Eyjólfsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR ÞÓRÐARSON,
Hverahlíð 23 b, Hveragerði,
áður til heimilis á Eyjabakka 28, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 3. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Wanda Þórðarson.
Fyrir sjálfboðavinnu var hann
sæmdur orðu, þegar sambandsrík-
ið Kanada var 125 ára. Þóra og
Einar greiddu veg íslenskra náms-
manna í Winnipeg á 6. og 7. ára-
tugnum af rausn, dvöldu margir á
heimili þeirra í langan tíma. Einar
var ritstjóri Lögbergs-Heims-
kringlu í 14 ár. Þóra og Einar gift-
ust 27. janúar 1940. Kjördætur
þeirra eru 1) Yvonne Leigh, f. 13.
janúar 1941, gift Edward Rose í
Winnipeg. Þeirra börn eru Kristi-
ana og Andrew. 2) Jan Elizabeth,
f. 13. janúar 1949, gift Barry
Krentz í Toronto. Þeirra börn eru
Darien, Cary og Aron.
hafði mikið gaman af. Á ritstjóra-
árum Einars við Islendingablaðið
Lögberg Heimskringlu var það
honum mikið og stórt áhyggjuefni
hvað lesendum blaðsins á íslensku
fór fækkandi í Kanada. Þetta er
bara þróunin sem enginn ræður
við, því miður, sagði Einar dapur í
bragði. Sem þakklætisvott fyrir
íbúðarlánið í þriðju ferð þeirra til
íslands buðu þau mér (Jóhönnu)
ásamt dóttur, sem þá var níu ára,
að dvelja hjá þeim í Winnipeg.
Þóra og Einar áttu góðan bíl og í
honum fórum við í sumarbústaðinn
að Falcon Lake, á íslendingaslóðir
við Winnipegvatn, Oak Point, þar
sem ömmubróðir okkar Kristinn
Peterson og kona hans Petrína
bjuggu ásamt syninum Hallgrími,
að ógleymdu ferðalaginu í þjóð-
garðana í Klettafjöllum Kanada,
Banff og Jasper. Við systkinin vilj-
um að leiðarlokum þakka góð kynni
og biðjum þeim Guðs blessunar.
Magnús og Jóhanna
Pétursbörn.
INGA
ÞORLEIFSDÓTTIR
urðsson og Jóni'na
Sigríður Jónsdóttir f Vík.
Börn Ingu og Gunnars eru:
Ragna Sigríður, f. 9. janúar 1931,
fyrri maður hennar var Eiríkur
Guðmundsson frá Þorgeirsstöðum,
f. 26. apríl 1927, d. 9. janúar 1985.
Börn þeirra eru: Aslaug Inga,
bóndi í Vík, f. 21. júh' 1950, sambýl-
ismaður Óskar Þorleifsson frá
Þykkvabæ í Landbroti; Guðmund-
ur Gunnar, bóndi á Starmýri, f. 4.
desember 1951, kona hans er Sig-
rún Snorradóttir frá Starmýri í
Álftafirði. Synir þeirra eru Einkur
P ÚTFARARÞJÓNUSTAN™
Viljum ekki þín viðskipti
eftir helgina.
Akið varlega. Spennið beltin.
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@utfarir.is
áN-:
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
utfararstjóri______________________dtfararstjóri
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
1 Sverrir
I Eimrsson
I útfararstjóri,
VLB** 896 8242
Sverrir
Olsctt
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sítni 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
og Arnar Jón. Seinni
maður Rögnu er Jón
Stefánsson, f. 12.
september 1919,
bóndi á Hlíð. Börn
þeirra eru: Kristín
Laufey, f. 21. júní
1963. Börn hennar
eru Harpa Dagbjört
Bjarnadóttir og Ein-
ar Birkir Bjarnason.
Svava Herdís, f.
11. janúar 1967, sam-
býlismaður hennar
er Jón Þór Sigur-
steinsson frá Borgar-
firði eystri. Synir
þeirra eru Magnús Smári og
Stefán Reynir.
Páll Ásgeir, f. 11. júlí 1968, son-
ur hans og Bjamveigar Steinunnar
Steinsdóttur er Valur Frcyr. Sam-
býliskona hans er Sólveig María
Hauksdóttir úr Grindavík og dóttir
þeiiTa er Inga Súley. Sveinn Þór, f.
2. desember 1935, bóndi í Vfk.
Utför Ingu fer fram frá Hafnar-
kirkju í Hornafirði, mánudaginn 7.
ágúst og hefst athöfnin klukkan
14. Jarðsett verður í Stafafells-
kirkjugarði í Lóni.
Hún Inga mín í Vík er látin, níutíu
og tveggja ára að aldri. Hún lést á
hjúkrunarheimili Skjólgarðs á Höfn
sl. mánudag. Þar dvaldi hún síðustu
æviárin við gott yfirlæti og umönnun,
eftir að hafa búið og dvalið öll sín full-
orðinsár í Vík. Fyrst með Gunnari
manni sínum, börnum og tengdasyni
og síðustu árin með Sveini syni sínum
og Áslaugu dótturdóttur sinni, sem
önnuðust hana af alúð eftir að heilsan
fór að gefa sig. í Vík famaðist henni
vel og féll sjaldan verk úr hendi. Ég
var svo heppinn að fá að vera í sveit í
Vík í mörg sumur og njóta góðvildar
hennar og hlýju. Sagt er að bragð sé
af þá bamið finnur og sannaðist það á
mér. En upphaf dvalar minnar í Vík
var að níu ára gamall kom ég með for-
eldrum mínum í fyrsta skiptið að Vík.
Allt fólkið á bænum var að hirða hey
af austurtúninu þegar okkur bar að
garði. Ekki hafði ég hitt þetta ágæta
frændfólk mitt fyrr, en í stuttu máli,
þá vildi ég vera eftir hjá því, í stað
þess að halda ferðalaginu áfram með
foreldrum mínum. Samdist þannig
milli mín og Gunnars heitins að ég
fengi að koma í sveit til þeirra næsta
sumar og urður þau fimm, hvert öðm
Blómabúðin
öaFðshom
v/ Possvogsklrkjugarð
Sími: 554 0500
ánægjulegra. Þaðan á ég mínar bestu
minningar og á Inga þar ómældan
hlut.
Þegar ég hugsa til baka þá minnist
ég konu sem var mikill dugnaðarfork-
ur, alltaf að sinna öðram og aldrei
heyrði ég hana byrsta sig við nokkurn
mann.
I Vík kynntist ég heimahjúkrun
eins og hún gerist best, en Inga ann-
aðist Sigríði tengdamóður sína af
mikilli ástúð og samviskusemi á með-
an hún lifði, en hún lést í hárri elli.
Mig langar að segja frá atviki sem
lýsir nægjusemi Ingu mjög vel. Fyrir
nokkmm ámm fótbrotnaði Inga
heima í Vík. Þessu fylgdi að kalla á
lækni frá Höfn, síðan sjúkrabíl og
sjúkraflugvél þurfti að fá frá Egils-
stöðum til að flytja hana á sjúkrahús í
Reykjavík. Við læknisskoðun all-
mörgum klukkustundum síðar, tók ég
eftir að Inga kveinkaði sér lítillega
þegar læknirinn hreyfði brotna fót-
inn. Hann spurði þá undrandi hvort
hún hefði ekki verið deyfð við verkj-
um, en svarið var eitthvað á þá leið, að
svo hefði nú ekki verið, enda ekki
ástæða tíl, nóg hefði nú verið haft fyr-
ir henni samt, með öllum þessum til-
færingum og því að ónáða alla þessa
mennútaf henni.
Inga var bókelsk kona og að lokn-
um löngum og ströngum vinnudegi,
þegar öllum hafði verið sinnt, eins og
kostur var, þá las hún bækur og kunni
hún heilu Ijóðabálkana utan að. Þann-
ig var einnig síðustu árin á Skjólgarði,
að hún sat daglangt við bóklestur og
gat enn flutt heilu Ijóðabálkana auk
annars fróðleiks frá fyrri tíma. Við
hjónin þökkum samverustundimar
með Ingu og vitum að hún vakir yfir
okkur öllum nú sem endranær.
Ásgeir Guðmundsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar
til blaðsins í bréfasíma 669 1115, eða á net-
fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt
er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Sérfræðingar
í bÍómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á borni Bcrgstaðastrætis,
sími 551 9090.