Morgunblaðið - 05.08.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 27
ERLENT
Utflutningsiðnaður í Bretlandi í vöru vegna styrkleika pundsins
Japönsk fyrirtæki
íliuga flutning
Irakar tóku
sjö njósn-
ara af lífí
ÍRÖSK stjórnvöld létu taka sjö
tölvufræðinga af lífí fyrir stuttu
vegna þess að þeir hefðu flutt
inn landið tölvukerfi sem átti að
nota til að senda upplýsingar til
Bandaríkjanna. Kemur þetta
fram í yfirlýsingu andstæðinga
ríkisstjórnar Saddams Huss-
eins, Iraksforseta, sem birt var
í gær. „Um miðjan júlí voru
mennirnir sjö teknir af lífi eftir
sýndarréttarhöld þar sem þeir
voru fundnir sekir um landráð,“
sagði í yfirlýsingunni. Stjórn-
völd höfðu áður gefið út leyfi
fyrir tölvubúnaðinum, en eftir
að upplýsingar, um að hann
ætti að nota til að stunda njósn-
ir fyrir Bandaríkin, bárust frá
einhverju Arabaríkjanna, voru
mennirnir handteknir.
Rússar yfír-
gefa Georgíu
RÚSSAR hófu brottflutning
hersveita og vopna sinna frá
Georgíu í gær samkvæmt áætl-
un sem kostuð er af Vestur-
löndum. í fyrstu lotu áætlunar-
innar voru þungavopn og eignir
rússneska hersins fjarlægðar
frá herstöðinni í Vaziani, um 20
km frá höfuðborginni Tibilisi.
Georgíustjórn telur brottflutn-
inginn vera einkar mikilvægan
og marka upphaf betri sam-
skipta við stjórnvöld í Moskvu
en þau hafa verið stirð að und-
anförnu, ekki síst vegna ásak-
ana stjórnvalda í Kreml um að
tsjetsjenskir skæruliðar noti
Georgíu sem bækistöðvar.
Bandaríkjastjórn greiðir að
mestu fýrir herflutningana og
hefur reitt 10 milljónir banda-
ríkjadala af hendi vegna þeirra.
Alaska Air-
lines kyrrset-
ur þotur sínar
FLUGFÉLAGIÐ Alaska Air-
lines hefur kyrrsett átján af
Boeing MD-80 farþegaþotum
sínum og munu þær gangast
undir gagngera rannsókn hið
fyrsta, samkvæmt upplýsing-
um fyrirtækisins í gær. Eru
vélarnar sömu gerðar og þotan
sem fórst undan ströndum
Mexíkó í janúar sl. með þeim
afleiðingum að 88 manns létust.
Talið er að gallaðir tjakkar í
þrýstibúnaði vélarinnar hafi
valdið slysinu og hafa forráða-
menn Alaska Airlines tekið þá
ákvörðun að láta rannsaka
þann búnað í öllum Boeing
MD-80 þotum sínum.
Stríðsfangi í
yfír hálfa öld
UNGVERSK stjórnvöld sögðu
í gær að þau væru að vinna að
því að tryggja endurkomu ung-
versks stríðsfanga sem enn
væri haldið í Rússlandi, meira
en fimmtíu árum eftir lok
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Andras Tamas er nú 75 ára að
aldri og segja ungverskir lækn-
ar sem náð hafa tali af mannin-
um að hann verði að komast til
heimalandsins sem fyrst enda
þjáist hann af illvígum sjúk-
dómi. Tamas var handtekinn af
sovéska hernum rétt fyrir
stríðslok og sendur til Sovét-
ríkjanna og gert að starfa í
fangabúðum. Nú dvelst hann á
geðsjúkrahúsi í Kotelnich, um
800 km austur af Moskvu.
Tdkýd. AFP.
JAPANSKI rafmagnstækjafram-
leiðandinn Matsushita varaði í gær
við því að svo gæti farið að fyrir-
tækið flytti þá framleiðslu sem
fram fer á vegum þess í Bretlandi
til annarra landa ef áframhald verð-
ur á háu gengi sterlingspundsins.
„Alþjóðleg iðnfyrirtæki kunna að
flytja sig frá Bretlandi ef pundið
heldur áfram að styrkjast," sagði
talsmaður Matsushita í gær. „í bili“
hyggist fyrirtækið þó ekki loka
verksmiðjum sínum í Bretlandi.
Framleiðsluvörur Matsushita eru
þekktar undir vörumerkjunum
Panasonic, Technics, National og
Quasar.
I Bretlandi eru Evrópuhöfuð-
stöðvar Matsushita, rannsóknar-
miðstöð og sjö verksmiðjur, alls
með yfir 5.000 starfsmenn. Um
þriðjungur framleiðslu Matsushita
fyrir Evrópumarkað fer fram í
Bretlandi.
Þótt talsmaður Matsushita var-
aði við afleiðingum hás gengis
pundsins vildi hann ekki veita Bret-
um neinar ráðleggingar um hvort
þeir ættu að taka upp evruna, sam-
eiginlegu Evrópumyntina. „Það er
erfitt fyrir fyrirtæki sem fjárfest
hafa í Bretlandi að halda áfram
framleiðslu þar, hvað sem evrumál-
inu h'ður,“ sagði hann.
Nissan áhyggjufullt
Áður hafa talsmenn annarra
stórra japanskra iðnfyrirtækja,
sem eiga verksmiðjur í Bretlandi,
lýst áhyggjum af neikvæðum áhrif-
um hins sterka punds á afkomuna.
Síðastliðinn mánudag átti Carlos
Ghosn, sem tók við forstjórastöðu
Nissan eftir að Renault keypti stór-
an hlut í þessum öðrum stærsta
bflaframleiðanda Japans, fund með
brezka forsætisráðherranum Tony
Blair vegna áhyggna af framtíð
brezku Nissan-verksmiðjanna.
Og talsmaður Toyota-verksmiðj-
anna sagði á fimmtudag að verið
væri að endurskoða hvort fram-
leiðsla yrði aukin í verksmiðjum
fyrirtækisins í Bretlandi. Um 80%
framleiðslunnar eru flutt út til
landa á „evrusvæðinu" á megin-
landi Evrópu og styrkleiki pundsins
mæli óneitanlega ekki með fram-
leiðsluaukningu, þótt verkmiðjurn-
ar geti afkastað miklu meiru.
■
19.950
Innifalið flug til Alicante 2 vikur,
Flugvallaskattar 2650 ekki innifaldir.
kr.
miðað við 2 fullorðnir og 2 böm 2-11 ára
ferðist saman.
Innifalið erflug gisting á Garden Choro.
Ef 2 saman 36.400 á mann.
Flugvailaskattar 2990 f fullorðinn og
2240 f börn ekki innifaldir.
Mallorca
1 vika í október
Innifalið erflug. gisting á Pil Lari Playa í
stúdío, miðað við að 2 ferðist saman
Flugvallaskattar 2650 ekki innifaldir
1 vika í september
Innifalið erflug. gisting 1 vika Ariadni
í tveggja manna herb. miðað við að
2 ferðist saman
Flugvallaskattar 3995 ekki innifaldir.
Umboösmcinn Plúsferón um nllt land Isafjörður • S: 456 5111 Höfn • S: 478 1000 Vestmannaeyjar • S: 481 1450 1040 Sauðárkrókur • S: 453 6262/896 8477 Egilsstaðir • S: 471 2000 Keflavík-S: 421 1353 Akureyri • S: 462 5000 Selfoss »S: 4821666 Grindavík' S: 426 8060
Akranes • S: 431 4884 Borgarnes • S: 437 Blönduós • S: 452 4168 Dalvík • S: 466 1405
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 * 108 Reykjavík og Hlíðasmára 15 • 200 Kópavogur Sími 535 2100 • Fax 535 2110 •Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is