Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 30

Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 30
30 SUNNUDAGUR13. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Hagfisks ehf. Morgunblaðið/Sverrir I ___________ SALA Á FISKIGEGN- UMSÍMA OGNETIÐ eftir Hildi Einarsdóttur ÞAÐ KANNAST eflaust margir við fyrirtækið Hagfisk ehf. þó svo að ekki hafi farið mikið fyrir því hingað til í auglýsingamiðlum landsins. Fyrirtækið er með heima- sölu á frystum sjávarafurðum til heimila um allt land auk þess að vera með þjónustu við veitingahús og mötuneyti. Ólafur er einn fárra íslendinga sem hafa rekið eigið fyrirtæki í Rússlandi og við byrjuðum á að spyrja hann nánar út í þá starfsemi. „Meginástæðan fyrir því að ég ákv- að að stofna mitt eigið fyrirtæki í Rússlandi þegar íslenskar sjávara- furðir hættu starfsemi þar var sú að ég var kominn með geysilega þekk- ingu á staðháttum og vildi nýta mér hana. Ég kunni líka vel við mig í landinu. Á Kamchatka býr mikið af góðu fólki en það er þó erfitt fyrir útlendinga að búa í Rússlandi vegna þess hvað staðhættir eru framandi. Eftir fall rúblunnar í árslok 1998 ákvað ég að leggja Bering Res- ources Company niður og flytja aft- ur heim til Islands. Það er mjög erf- itt fyrir útlendinga að reka fyrirtæki í Rússlandi. Regluveldi er mikið og allt aðrar viðskiptavenjur en tíðkast á vesturlöndum. Við heimkomuna ákvað ég að setjast að í Reykjavík. Ég tók mér í fyrstu gott frí en fór svo að leita mér að einhverju skemmtilegu að gera og rakst þá á þetta fyrirtæki, Hagfisk ehf., sem var til sölu. Mér leist vel á þá möguleika sem felast í þessari starfsemi svo ég sló til, en ég tók við fyrirtækinu í desember síðastliðnum." Sérhæfir sig í heimasölu á frystum fiski „Fyrirtækið Hagfiskur var stofn- að 3. febrúar árið 1993 og sérhæfir sig í heimasölu á frystum fiski. Fyr- irtækið þjónar nú sex þúsund heim- ilum hér á landi, bæði fjölskyldum og einstaklingum. Auk þess erum við með öfluga þjónustu við veit- ingahús og mötuneyti. Stærsti markhópur okkar er á höfuðborgar- svæðinu en einnig eigum við stóran hóp viðskiptavina á landsbyggðinni og erlendis. Starfsemi fyrirtækisins felst í því að hringt er í viðskipta- VIÐSKUTIAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ► Ólafur Magnússon, eigandi og framkvæmdastjóri Hag- fisks ehf., er fæddur 3. júlí árið 1952 í Reykjavík þar sem hann ólst upp. Hann nam skipatæknifræði við Tækniháskól- ann á Helsingjaeyri í Danmörku og útskrifaðist þaðan árið 1977. Að námi loknu dvaldi hann áfram í Danmörku og starfaði hjá ráðgjafarfyrirtækinu Dwinger Marineconsult AS. Jafnframt stundaði hann nám í rekstrarhagfræði við Verslunarháskólann í Kaupmannahöfn og lauk því árið 1981. Hann dvaldist í Danmörku til ársins 1983, þá flutti hann til Islands og hefur síðan verið viðloðandi sjávarútveg á ýmsan hátt. Meðal annars starfaði hann sem verkefna- stjóri íslenskra sjávarafurða hf. á Kamchatka í Rússlandi í tvö ár. Eftir að fslenskar sjávarafurðir hf. hættu þar starf- semi stofnaði hann ásamt eiginkonu sinni eigið fyrirtæki í sjávarútvegi, Bering Resources Company, sem þau ráku í önnur tvö ár og fluttu út rússneskan físk til Evrópu, Kóreu, Kína og Japan. Þá flutti Ólafur til íslands og festi kaup á fyrirtækinu íslenskum hagfíski ehf. sem eftir eigendaskipt- in heitir Hagfiskur ehf. Ólafur er kvæntur Tamöru Soutour- inu og á þijú börn, Ástu, Magnús og Bjarna. Morgunblaðið/Sverrir Sala á fiski frá Hagfiski ehf. fer fram eftir klukkan sex á kvöldin. vinina á fjögurra til sex vikna fresti eða viðskiptavinirnir hringja í fyrir- tækið þegar þeim hentar og panta fisk sem þeim er sendur um hæl beint heim að dyrum. Fyrirtækið Hagfiskur var í upp- hafi sett á laggirnar af tveim ung- um mönnum, þeim Gísla Böðvar- ssyni og Einari Guðjónssyni sem voru að Ijúka námi og höfðu enga atvinnu,“ segir Ólafur. „Annar þeirra hringdi í frænda sinn sem verkaði rækju og seldi þeim rækju og gengu þeir með hana í hús og seldu. Þetta gekk svo vel að þeir keyptu meiri rækju og tóku upp þá starfshætti að hringja í viðskipta- vinina og bjóða hana til sölu. Þá átt- uðu þeir sig á því að töluvert var spurt eftir öðnim fisktegundum eins og ýsu og humri. Þeir keyptu þessa vöru og afhentu hana við dyrnar. Fyrirtækið óx hratt og fljótlega fjölgaði starfsmönnum í fjóra. Síðan þá hefur margt gerst í sögu fyrirtækisins, vöraúrvalið hef- ur aukist og þjónustan er sífellt að verða betri,“ segir Ólafur. „Við er- um til dæmis búin að opna verslun á Netinu sem lofar góðu en slóð okk- ar er www.hagfiskur.is." Allur fískur frá okkur er beinhreinsaður og flakaður „Við leggjum áherslu á að vera með gott vöruúrval, en við erum með um tuttugu birgja sem sjá okk- ur fyrir vörum. Þetta er aðallega vara sem fer venjulega til útflutn- ings og gæðastigið er því hátt. Sem dæmi má taka að við erum með frystan fisk frá Útgerðarfélagi Ak- ureyrar, íslensk-frönsku eldhúsi á Akranesi og ekki má gleyma marin- eruðu silungsflökunum frá Grásíðu í Kelduhverfi ásamt mörgu öðru. AIls erum við með um fjörutíu vörun- úmer en það er takmarkað hvað hægt er að selja marga vöruflokka gegnum síma. AJlur fiskur frá okk- ur er beinhreinsaður og flakaður þannig að hann er tilbúinn til mat- reiðslu." Ólafur ræðir um þróun á pakkn- ingu á fiskinum og segir að sífellt sé verið að bjóða upp á minni og hent- ugri pakkningar þar sem magn í pakkningu hæfir máltíð þess sem kaupir auk þess sem bitastærðir þurfi að passa á diskinn. „Við bjóð- Okkar adalsam- keppni hefur reynst koma f rá áhöfnum fiskiskipa sem koma með f isk í land. Þetta er góð- ur fiskur sem er gefinn eða seldur mjög ódýrt um upp á pakkningar í ýmsum stærðum en algengast er að selja eins og tveggja kílóa pakkningar sem fer lítið fyrir og kúnninn getur stungið í frystinn hjá sér.“ Af hverju kaupir fólk fisk af Hag- fiski í stað þess að fara í næstu fisk- búð og kaupa ferskan fisk? „Megnið af viðskiptavinum okkar skiptir við okkur vegna áreiðanleika í gæðum og þjónustu ásamt því að verðið er ívið lægra en í verslunum fyrir betri vöru,“ segir Ólafur. „Sem dæmi um betri vöru má nefna að við bjóðum upp á stærri rækju og hörpudisk en hægt er að fá í versl- unum alla jafna. Við erum líka með vöru sem er ekki til í búðum eins og sjávarréttapaté frá Islensku- frönsku eldhúsi sem hefur hingað til eingöngu verið flutt út. Auk þess færum við fólkinu fiskinn heim að dyrum sem því finnst bæði orku- og tímasparandi." Tilbúinn á pönnuna, í pottinn eða á grillið „Við bjóðum viðskiptavinum okk- ar upp á leiðbeiningar um mat- reiðslu á fiskinum ef á þarf að halda en hjá okkur starfar matreiðslu- maður. Það er mikið hringt í okkur ef halda á veislur og beðið um góð ráð. Þannig reynum við að koma til móts við þarfir kúnnans. Það má taka það hér fram að okkar kúnnar hafa verið mjög tryggir okkur. En innanlandsmark- aður fyrir frystan fisk hefur farið vaxandi hér á landi vegna þægind- anna við að hafa fiskinn alltaf við hendina. Nútímamaðurinn hefur ekki tíma til að versla daglega og því er þetta annar markaður en fyr- ir ferskan fisk. Nú er frysti fiskur- inn eins og áður segir boðinn í pakkningum þar sem hann er til- búinn beint á pönnuna, í pottinn eða á grillið. Við höfum komið til móts við þessar kröfur hér hjá Hagfiski ehf. með breyttu vöruúrvali þar sem fiskurinn er seldur í bitum, roðlaus, beinlaus og jafnvel hálf- matreiddur. Því krafan er sú að þegar fólk kemur heim úr vinnunni og hefur náð í börnin á leikskólann verður að vera hægt að matreiða fiskinn á sama tíma og það tekur að sjóða kartöflurnar." Hringja í viðskiptavinina á 4-6 vikna fresti Hvernig getið þið boðið upp á lægra verð með þeirri þjónustu sem þið bjóðið upp á ? „Við kaupum vöruna tilbúna beint af framleiðendum svo það eina sem við þurfum að hafa hér er frystigeymsla til að geyma fiskinn í auk skrifstofu en við berum engan verslunarkostnað, þjónustan kemur í staðinn." Ólafur er spurður nánar út í það hvernig salan á fiskinum fer fram. „Eins og áður segir erum við með sex þúsund viðskiptavini sem hafa óskað eftir þjónustu okkar. Við hringjum í fólkið á fjögurra til sex vikna fresti og athugum hvort það vanti fisk. Hér er um að ræða fjöl- skyldufólk, einstaklinga, meðal þeirra er fólk sem býr í bústöðum fyrir aldraða og á kannski ekki auð- veldlega heimangengt. Hjá okkur er opið frá klukkan átta á morgnana til tíu á kvöldin, mánudaga til fimmtudaga. Auk þess erum við með þjónustu allan sólar- hringinn alla daga vikunnar fyrir veitingahúsin. Þegar við hringjum í fólkið erum við með ákveðinn vörul- ista sem við bjóðum upp á.“ „Hér starfa þrír starfsmenn á daginn við að þjónusta veitingahús og mötuneyti ásamt því að undirbúa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.