Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 37

Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 37, Hvað er eitt fótbrot á móti fegurð kóngaliljunnar? LILJUR ÁGÚSTMÁNUÐUR er aðal- blómgunartíminn hjá liljum í ís- lenskum görðum. Það er ekki svo að skilja að liljurnar séu mest áberandi blómin í garðinum, til þess eru þær allt of lítið ræktaðar. Það er af sem áður var þegar eld- lilja óx í öðrum hverjum reykvísk- um garði, en hún hefur líklega verið ræktuð á Islandi í liðlega 100 ár. Liljur eru í huga margra sérstök há- tíðablóm. Þær hafa verið ræktaðar frá ómunatíð, en heima- lönd þeiira eru á norðurhveli jarðar, nokkrar eru upp- runnar í Mið- og Suður-Evrópu, en mun fleiri í Litlu- Asíu, á svæði Sovét- ríkjanna sálugu, A- Asíu og N-Ameriku, en alls munu til ná- lægt eitt hundrað tegundir lilja, auk ótal margra ræktunarafbrigða. Liljan var í miklum metum hjá Egyptum til forna. Til eru meira en 4.000 ára gamlar egypskar myndir, sem sýna liljuakur og fólk að uppskerustörfum. Hvort Grikk- ir kynntust liljuræktun gegnum Egypta eða Fönikíumenn, sem voru miklir sæfarar og kaupmenn á Miðjarðarhafi, skal ósagt látið, en til eru vasar frá Krít frá því 1600 f.Kr. með liljumunstri og Homer dásamar liljuna í kvæðum sínum. Liljan á að hafa skreytt musteri Salomons, en gyðingar kölluðu liljuna „susan“, sem end- urspeglast í kvenmannsheitinu Súsanna, sem táknar víst hin hreina, hin fagra. Rómverjar hrifust líka af þessu fagra blómi, en það var madonnu- liljan, eða Lilium candidum, sem vai’ ræktuð í löndunum umhverfis Miðjarðarhafið. Þeir kölluðu lilj- una Rós Júnó, en Júnó var þeirra æðsta gyðja. Rómverjar áttu stór- an þátt í útbreiðslu madonnulilj- unnar, því talið var að hún hefði mikinn lækningamátt og væri sér- staklega græðandi. Þannig dreifðist ma- donnuliljan með róm- verskum hersveitum hvert sem þær fóru og ílentist þar sem vaxt- arskilyrði voru hag- stæð. Rómverska skáldið Vergil gaf lilj- unni fylginafnið cand- idum, sem táknar hvítur og undir heit- inu hvíta liljan var lilj- an þekkt í Evrópu fram á 19. öld, þegar aðrar hvítar liljur urðu algengar. Ma- donnulilju-nafnið er því tiltölulega ungt að árum, en í kristinni trú varð þessi lilja tákn guðsmóð- ur. Tengsl Lil. candidum við Maríu mey má rekja til helgisagnar um upprisu hennar, sem er talin vera frá 2. öld. Þar segir, að þegar graf- ar Maríu guðsmóður var vitjað þremur dögum eftir dauða hennar, hafi líkami hennar verið horfinn en gröfin verið full af rósum og liljum. Liljan er því áberandi í kaþólskri kirkjulist. Trúin á lækningamátt lilju- blómsins er líklega upprunnin hjá Egyptum, en vitað er að úr blóm- unum var pressuð olía, sem var notuð í þeirra finustu smyrsl. Hinn frægi læknir Hippokrates, sem var uppi um 400 f.Kr. talar sérstaklega um egypska liljuolíu. Ti’úin á lækningamátt hvítu lilj- unnar og líklega liljublóma al- mennt fylgdi með hjá kristnum mönnum og hvíta liljan varð ásamt ýmsum öðrum lækningajurtum mikilvæg planta í jurtagörðum klaustranna. Það er sjálfsagt þannig sem liljuræktun hefur bor- ist til Norðurlanda. Til er jurtabók eftir danskan munk, sem hét Hin- rik hörpustrengur og lést 1244. Þar nefnir hann lilju, sem dugi mót hrukkum í andliti og margvíslegu smiti. Hér með lýsi ég eftir lilju- hrukkukremi, framleiðsla þess gæti sjálfsagt verið vænleg auka- búgrein og nægir viðskiptavinir. Á 16. öld voru ekki margar lilju- tegundir ræktaðar í Evrópu. Þó er vitað, að auk hvítu liljunnar eða madonnuliljunnar voru ræktaðar eldlilja og túrbanlilja. Þegar nýi heimurinn opnaðist fyrir Evrópubúum komust þeir í kynni við áður óþekkta flóru. Eins bárust margar jurtir frá Asíu. Sannkallað lilju-æði greip um sig á 19. öld og þá upphófst ræktun margra nýrra tegunda, eins og tíg- urlilju, gullbandalilju og kónga- lilju, sem eru vinsælar enn í dag. Fundur kóngaliljunnar Lil. regale varð sögulegur. Einn fræg- asti plöntusafnari Breta E.W. Wil- son fann hana í afskekktum kín- verskum fjalladal skömmu eftir aldamótin. Þar lét hann safna 7.000 laukum sem senda átti til Bandaríkjanna. Á einstigi út úr dalnum varð hann fyrir grjóthruni og fótbrotnaði illa. Það var svo sem nógu slæmt, en lest með múlösn- um varð að komast eftir stígnum í sömu andrá, svo Wilson var snúið hornrétt á einstigið og asnarnir stikuðu yfir hann. Eins og fyrir kraftaverk steig samt enginn asn- anna á hann, en haltur var Wilson til æviloka, en hann taldi kóngalilj- una fyllilega þess virði. Af þessum 7.000 kóngaliljulaukum eru allar kóngaliljur heimsins komnar. S.Ifl. BLOM VIKUMAR 440. þáttur llmsjón Sigríður lljarlar GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR MÖRKINNI 3 • SÍMI 588 0640 Til sölu mjög gott 107 fm SQ einingahús til flutnings Hentar vel sem t.d. íbúð- arhús, skrifstofuhúsnœði, aðstaða fyrir félagasam- tök o.fi. Uþplýsingar í síma 899 8850. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. ágúst 2000. 1. flokkur 1989: Nafnverð: InnLausnarverð: 500.000 kr. 1.337.996 kr. 50.000 kr. 133.800 kr. 5.000 kr. 13.380 kr. 1. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð: 500.000 kr. 1.181.286 kr. 50.000 kr. 118.129 kr. 5.000 kr. 11.813 kr. 2. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarveró: 1.000.000 kr. 2.373.490 kr. 100.000 kr. 237.349 kr. 10.000 kr. 23.735 kr. 2. flokkur 1991: Nafnverð: InnLausnarverð: 1.000.000 kr. 2.206.215 kr. 100.000 kr. 220.622 kr. 10.000 kr. 22.062 kr. 3. flokkur 1992: Nafnveró: InnLausnarverð: 5.000.000 kr. 9.736.076 kr. 1.000.000 kr. 1.947.215 kr. 100.000 kr. 194.722 kr. 10.000 kr. 19.472 kr. 2. flokkur 1993: Nafnveró: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 8.982.224 kr. 1.000.000 kr. 1.796.445 kr. 100.000 kr. 179.644 kr. 10.000 kr. 17.964 kr. 2. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.888.311 kr. 1.000.000 kr. 1.577.662 kr. 100.000 kr. 157.766 kr. 10.000 kr. 15.777 kr. 3. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarveró: 5.000.000 kr. 7.744.107 kr. 1.000.000 kr. 1.548.821 kr. 100.000 kr. 154.882 kr. 10.000 kr. 15.488 kr. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og veróbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf íbúðalánasjóður Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800 FUGLAHÚS Garðprýði fyrir garða og sumarhús. 10 mismundandi gerðir. PIPAR OG SAL Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 36 Þ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.