Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sinfóníuhljómsveit fslands vel tekið í Carnegie Hall í fyrrakvöld Morgunblaðið/Einar Falur Sinfóníuhljómsveit íslands leikur sinfóníu í E-dúr á sviði Carnegie Hall. Judith Ingólfsson leikur einleik á fiðlu í Konsert fyrir fiðlu og hljóm- sveit eftir Khatsatúnan. — „Eins og að vera inni í risastórum Stradivarius“ Hátt í 2000 manns hlýddu á Sinfóníuhljóm- ----7--------------------- sveit Islands á tónleikum í nafnkunnasta tónleikahúsi Bandaríkjanna, Carnegie Hall, í fyrrakvöld og hylltu hana ákaft að þeim loknum. Margrét Sveinbjörnsdóttir blaða- maður og Einar Falur Ingólfsson ljósmynd- ari voru meðal gesta og tóku púlsinn á hljómsveitinni fyrir og eftir tónleikana. Rico Saccani hljómsveitarstjóri bendir út í sal Carnegie Hall, á Atla Heimi Sveinsson tónskáld, að loknum flutn- ingi á verki hans Icerapp 2000 sem var upphafsverk tónleikanna. Hjónin Ágústa M. Jónsdóttir fiðluleikari og Bernharður Wilkinson að- stoðarhljómsveitarstjóri ásamt syni sínum Stefáni Jóni homleikara baksviðs í Carnegie Hall fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar. GREINA mátti mikla eftir- væntingu og spennu í loftinu þegar hljóðfæra- leikarar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar bjuggu sig undir að ganga af hóteli sínu á Manhattan yfir í Cárnegie Hall síðdegis á mánudag til þess að æfa fyrir tón- leika kvöldsins. Að baki voru fyrstu tvennir tónleikarnir í þriggja vikna ferð hljómsveitarinnar um Norður- Ameríku, í Winnipeg á fimmtu- dagskvöld og í New Brunswiek í New Jersey á laugardagskvöld. Á sunnudag hélt hljómsveitin hvíld- ardaginn heilagan og bjó sig undir átök mánudagskvöldsins í Carneg- ie Hall. „Það er mjög sérstakt að koma í þetta hús - það er eins og að koma í musteri tónlistarinnarsegir Bernharður Wilkinson aðstoðar- hljómsveitarstjóri þegar blaðamað- ur hittir hann í anddyri hótelsins skömmu áður en haldið er á æfing- una. Hann lýsir því hvemig er að ganga inn í Carnegie Hall og sjá þar upp um alla veggi myndir af fæmstu hljómsveitum og hljóm- sveitarstjórum heims. „Hér kom- um við frá íslandi til að spila í sama sal og öll þessi átrúnaðargoð okkar - og því ekki það? Við höfum nefnilega líka eitthvað að bjóða,“ segir hann stoltur. „Eg varð vitni að því á fyrstu tónleikunum í Winnipeg og New Brunswick að fólki líkaði það sem það fékk að heyra. Mér fannst mjög gaman að vera „incognito" úti í sal, eins og fluga á vegg og heyra fólk í kringum mig segja: „Þetta er bara dúndurband." Ég held að fólk hlakki mikið til að sýna hvað í því býr hér í kvöld og það verður gam- an að fá samanburð. Kannski gefur þetta forsmekkinn að því sem koma skal þegar við fáum tónlistar- hús á íslandi," segir hann og bætir við að þó að tónleikar kvöldsins eigi örugglega eftir að verða meðal hápunkta ferðarinnar þá sé margt eftir og ekki allt auðvelt. „Það á eftir að reyna á okkur og fólk tekur þetta mjög alvarlega.“ Sjálfur hefur Bernharður tvisvar sinnum leikið í Carnegie Hall, á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar þar í febrúar 1996 og einnig á tónleikum Blásarakvint- etts Reykjavíkur í einleikssalnum nokkru áður. Núna kveðst hann hins vegar vera á varamanna- bekknum, tilbúinn að hlaupa í skarðið ef aðalhljómsveitarstjór- inn, Rico Saccani, forfallast. Aftur á móti leika bæði eiginkona hans, Ágústa M. Jónsdóttir fiðluleikari, og sonur þeirra, Stefán Jón Bern- harðsson, með hljómsveitinni. Sá síðastnefndi er hornleikari, 21 árs og nýbyrjaður í sveitinni með for- eldrum sínum sem hafa verið í henni í tuttugu ár að sögn Ágústu. Svo hugsar hún sig um og segir: „Nei annars, það er víst orðið 21 ár. Ég man það þegar ég horfi á Stefán, því hann var eins mánaðar gamall þegar ég byrjaði í hljóm- sveitinni." Aðspurð hvernig henni þyki að sonurinn sé kominn með þeim í hljómsveitina segir hún það mjög gaman. „Hann er í mörg ár búinn að fylgja okkur á alla tónleika, svo þetta er mjög skemmtilegt fram- hald.“ „Ég fékk mitt tónleika- uppeldi í þessu húsi“ Hljómsveitin býr að því að hafa einu sinni áður stigið á svið þessa merka tónlistarhúss eða það er að minnsta kosti á þeim að heyra sem voru með í ferðinni 1996. Þannig segist Martial Nardeau flautuleik- ari vissulega vera svolítið spenntur „en það hjálpar að þetta er ekki í fyrsta sinn. Maður veit betur núna að hverju maður gengur," segir hann og gengur rösklega með stefnu á Carnegie Hall. Hópurinn gengur inn baksviðs og æfingin hefst stundvíslega klukkan sex. Einn af þeim sem hafa mætt tím- anlega og tyllir sér í gott sæti í áheyrendasalnum til að fylgjast með æfingunni er Jón Þórarinsson tónskáld; kominn alla leið frá ís- landi. „Ég fékk mitt tónleikaupp- eldi í þessu húsi,“ segir Jón en hann var við tónlistarnám vestan- hafs um miðjan fimmta áratuginn. Það leynir sér ekki að hljóm- burðurinn og aðstæður allar eru fyrsta flokks. „Þegar ég leit upp á æfingunni áðan sá ég bros á öðru hverju andliti," segir Bryndís Björgvinsdóttir sellóleikari í stuttu spjalli uppi í búningsherbergi að æfingunni lokinni. Þó að hún hafi verið í hljómsveitinni í níu ár er þetta í fyrsta sinn sem hún spilar í Carnegie Hall. Hún komst ekki með í ferðina 1996, því þá voru hún og maður hennar sem einnig er í hljómsveitinni, Brjánn Ingason fagottleikari, nýbúin að eignast barn og áttu því ekki heimangengt. „Það eina erfiða við þetta er að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.