Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ
^40 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000
MINNINGAR
t
Okkar ástkæri sonur og bróðir,
HÓLMSTEINN A. ÞORSTEINSSON,
KANTATGATAN 28, Malmö,
Svíþjóð,
andaðist miðvikudaginn 15. nóvembersl.
Útförin auglýst síðar.
Þorsteinn S. Axelsson, Hólmfríður Þorarinsdóttir,
Axel Þ. Þorsteinsson,
Aðalheiður B. Þorsteinsdóttir.
t
Okkar ástkæri,
EINAR ÖRN BIRGIS,
er látinn.
Fjölskyldan og unnusta.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, fóst-
urföður, tengdaföður og afa,
PÉTURS GUÐNA EINARSSONAR,
Bolungarvík.
Helga Aspelund,
Hannes Pétursson, Sólveig Sveinbjörnsdóttir,
Arna Gísladóttir,
Einar Pétursson, Aníta Ólafsdóttir,
Hildur Elísabet Pétursdóttir, Svavar Þór Guðmundsson,
Harald Pétursson, Friðþóra Sigfúsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum,
sem sýnduð samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HALLDÓRS KJARTANSSONAR,
Hlíðarási 5,
Mosfellsbæ.
Kristín Vigdís Valdimarsdóttir,
Valdimar Páll Halldórsson, Laurie Anne Berg,
Bjarni Ingvar Halldórsson, Lóa Björk Óskarsdóttir,
Björk Halldórsdóttir,
Dögg Halldórsdóttir,
Emma Ashley Valdimarsdóttir.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við útför okkur ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
BJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR,
Kambi 4,
Patreksfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Fríða Valdimarsdóttir, Örn Sigfússon,
Kristján Jóhannsson, Jenný Óladóttir,
Sæmundur Jóhannsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alia þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
4'
'Cr
%
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
? sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
ÁRNI
GUÐMUNDSSON
+ Árni Guðmunds-
son var fæddur í
Vestmannaeyjum
25. júní 1926. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi að kvöldi
sunnudags 12. nóv-
ember síðastliðins.
Foreldrar Árna
voru hjónin á Eiðum
í Vestmannaeyjum,
Árný Magnea Stein-
unn Árnadóttir frá
Byggðarholti Vest-
mannaeyjum, f. 18.9.
1901 og Guðmundur
Eyjólfsson, sjómaður og síðar
starfsmaður Lifrarsamlags Vest-
mannaeyja, f. 24.11. 1900 að Iðu í
Biskupstungum. Árni var þriðja
af sex börnum foreldra sinna en
hin systkinin eru: Ólöf Stella, f.
29.7. 1923, húsmóðir í Kópavogi;
Sigurður, f. 14.1. 1925, netagerð-
armaður í Vestmannaeyjum og
síðar í Þorlákshöfn; Olafur, f.
26.10.1927, smíðakennari á Húsa-
vfk; Anton, f. 29.7. 1929, vélsmið-
ur í Reykjavík; Páll Valdemar
Karl, f. 13.10.1930, d. 15.4.1931.
Vegna alvarlegra veikinda for-
eldra sinna fór Árni
fjögurra ára gamall í
fóstur til frænku sinn-
ar Þuríðar Kapítólu
Jónsdóttur (Kap) frá
Hlíð í Vestmannaeyj-
um, f. 16.11. 1905 og
eiginmanns hennar
Jóns Þorleifssonar,
vörubílstjóra frá Mið-
húsum í Hvolhreppi,
Rang., f. 25.6. 1898.
Þar ólst Árni upp til
fullorðinsaldurs við
mikið ástríki sem
börn Árna einnig
nutu síðar, er þau
Kap og Jón gengu þeim í ömmu
og afa stað.
Árni kvæntist 1. nóvember 1947
Jónu Bergþóru Hannesdóttur frá
Hæli í Vestmannaeyjum, f. 27.
mars 1925. Foreldrar Jónu voru
hjónin á Hæli, Vilborg Guðlaugs-
dóttir frá Hallgeirsey í Landeyj-
um, f. 29.10. 1892 og Hannes
Hreinsson, fiskmatsmaður frá
Bryggjum í Landeyjum, f. 2.10.
1892. Börn Árna og Jónu eru: 1)
Steinar Vilberg, f. 16.8. 1946,
meinatæknir og löggiltur skjala-
þýðandi á Patreksfirði, kvæntur
Guðrúnu Norðfjörð, sérkennara,
f. 2.10. 1947. Börn þeirra eru:
Árni Bergþór, f. 26.3. 1973 og
Brynja, f. 15.5. 1980. 2) Þyri Kap,
f. 6.11. 1948, menntaskólakenn-
ari, búsett í Mosfellsbæ, gift
Trausta Leóssyni, byggingafræð-
ingi, f. 31.8. 1946. Börn þeirra eru
eru Silja, f. 27.2. 1974, Tumi, f.
26.7. 1975 og Sindri, f. 2.3. 1981.
3) Jón Atli, f. 19.7. 1959, sérfr. í
gigtlækningum í Wisconsin
Bandaríkjunum, kvæntur Salvöru
Jónsdóttur skipulagsfræðingi, f.
25.12. 1959. Börn þeirra eru
Magnús Hallur, f. 5.9. september
1987ogUna, f. 5.11. 1989.
Ámi lauk venjulegu barna- og
unglinganámi í Vestmannaeyjum
og síðar vélstjóraprófi. Hann fór
fýrst fimmtán ára gamall á sfld-
veiðar, eftir það átti sjórinn hug
hans allan. Meiri hluta starfsæv-
innar vann hann sem vélstjóri á
fiskiskipum frá Vestmannaeyjum
og síðar frá Reykjavík, eftir að
fjölskyldan flutti búferlum vegna
gossins. Eftir hartnær 40 ára sjó-
mennsku hvarf Árni til starfa í
landi, fyrst við smíðar hjá Kópa-
vogsbæ, þá störf á bensínstöðvum
OIís en síðustu árin, þar til hann
fór á eftirlaun, var hann húsvörð-
ur í Þinghólsskóla í Kópavogi.
Útför Árna verður gerð frá
Fossvogskirkju mánudaginn 20.
nóvember og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Svili minn Árni Guðmundsson,
fyrrverandi vélstjóri, síðast til heim-
ilis að Reynigrund 81, Kópavogi, er
látinn.
Ami er fæddur í Vestmannaeyj-
um, foreldrar hans vom Guðmundur
Eyjólfsson og Árný Ámadóttir frá
Eiðum en vegna erfíðra aðstæðna og
heilsuleysis þeirra, ólst hann upp hjá
fósturforeldrum, sæmdarhjónunum,
Kapitólu Jónsdóttur frá Hlíð í Vest-
mannaeyjum og Jóni Þorleifssyni,
bifreiðastjóra frá Miðhúsum í Hvol-
hreppi og ólu þau hann upp frá fjög-
urra ára aldri eins og hann væri
þeirra eigin sonur. Amma Árna í
móðurætt, Ólöf frá Byggðarholti, var
systir Jóns föður Kapitólu frá Hlíð.
Ami fór snemma til sjós. 15 ára
gamall fór hann til Siglufjarðar á síld
en starfaði samt lengst af hjá Ársæli
Sveinssyni, fyrst sem bílstjóri og síð-
ar eftir véistjóranám sem vélstjóri
m.a. á Isleifi 4.
23. janúar 1973 þegar gosið hófst í
Heimaey fluttist hann með fjöl-
skyldu sína eins og aðrir Eyjamenn
upp á land og settist að í Reykjavík,
þó svo að hugurinn hafi alltaf verið
bundinn heimaslóð og sjómennsku.
Það má geta þess að 10 árum áður
eða 1963 var Árni á sjó vestur af Eyj-
um, þegar hann veitti athygli ein-
hverjum óvenjulegum fnyk. Síðar sá
áhöfnin 20 til 30 metra háa reykja-
súlu stíga upp úr haffletinum í lítilli
fjarlægð frá þeim stað er þeir vora á
veiðum. Hann kallaði upp Vest-
mannaeyjaradíó og tilkynnti fyrir-
bærið en fékk þau svör að þetta væri
nú líklega ein af fiskisögum þeirra,
hann skyldi bara leggja sig aftur,
þeir kölluðu þó upp varðskip sem fór
á staðinn, öllum varð þá ljóst að gos
var hafið, sem síðar var nefnt Surts-
eyjargos. Eldgos hafa þannig verið
miklir örlagavaldar á ævihlaupi
hans.
Þó að Arni hafi ekki verið
langskólagenginn aflaði hann sér
mikils fróðleiks m.a. um sjávarútveg,
atvinnuvegi og sjómennsku í Vest-
mannaeyjum, sem hann kom á fram-
færi í Sjómannadagsblaðinu þar, svo
sem greinum um skipsskaða, frá-
sögn um síldveiðar á Sjöstjörnunni
árið 1942 með Ásmundi Friðrikssyni
frá Löndum og annað efni tengt
Vestmannaeyjum en hann var vel
ritfær og sögumaður góður.
Árni var glæsilegur á velli, þjark-
ur til vinnu, góður og aðgætinn vél-
stjóri og hreinlegur með afbrigðum
enda eftirsóttur starfsmaður. Hann
var lánsamur í einkalífi og naut mik-
ils barnaláns. Það var almannarómur
að þar færa glæsileg hjón, Árni og
brúður hans, Jóna B. Hannesdóttir
frá Hæli í Vestmannaeyjum, svo eft-
ir var tekið. Þau bjuggu lengst af að
Túngötu 24 þar sem Árni reisti að
mestu leyti sjálfur framtíðarheimili
þeirra, einstakt myndarheimili en
hann var hagur svo af bar og allt lék í
hendi hans hvort sem það vora smíð-
ar eða skriftir en hann hafði góða rit-
hönd. Síðustu ár ævi sinnar starfaði
hann sem húsvörður við Þinghóls-
skóla í Kópavogi þar sem handlagni
hans kom að góðum notum.
Fyrstu kynni okkar Árna vora
þegar leiðir okkar Ástu, systur Jónu,
sem seinna varð eiginkona mín, lágu
saman. Árni reyndist góður drengur
í hvívetna. Hann hafði ríka réttlætis-
kennd og var ætíð málsvari þeirra
sem skarðan hlut bára frá borði.
Aðstoð hans við Jónu í veikindum
hennar var aðdáunarverð og síðan
snerist þetta við þegar í ljós komu
hin alvarlegu veikindi hans sem
leiddu til andláts hans, en þá stóð
Jóna eins og klettur við hlið hans.
Þeir sem þekktu Árna finna skarð
fyrir skildi og sakna góðs drengs.
Ég og fjölskylda mín vottum Jónu,
börnum hennar, bamabörnum og
öðrum aðstandendum okkar innileg-
ustu samúð. Minningin um Áma
Guðmundsson mun ávallt vera okkur
kær.
Guðmundur Matthíasson.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takm-
arkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skíi-n-
amöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blómaskreytingar við öll tilefni
Opið til kl. 19 öll kvöld
Blómastofa
Fríðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.