Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 64
PÓSTURiNN
Einn heimur
- eitt dreifikerfi!
www.postur.is
www.varda.is
wv/w.landsbankí.is
.4
Alvöru þjónusta
fyrir aivöru fólk
Landsbankinn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJdMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Huldi lfkið með
hraunhellum
Varð sundurorða vegna fjármála
EINARI Erni Birgissyni og Atla
Helgasyni, sem játað hefur að hafa
orðið honum að bana, varð sundur-
orða vegna fjármála þar sem þeir
voru staddir í Öskjuhlíð miðvikudag-
inn 8. nóvember sl. skv. framburði
Atla, að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá lögreglunni í Kópavogi
síðdegis í gær.
Atli hefur játað að hafa orðið Ein-
ari að bana með því að veita honum
höfuðhögg með hamri um hádegisbil
þann dag.
Hann flutti síðan lík Einars Arnar
í farangursgeymslu bifreiðar sinnar
-^Út á Reykjanes þar sem hann kom
því fyrir í hraunsprungu. í yfírlýs-
ingu lögregiunnar í Kópavogi kemur
fram að Atli hafí hulið líkið með
hraunhellum.
Að kvöldi miðvikudagsins 15. nóv-
ember játaði Atli að hafa orðið Ein-
ari Erni að bana en hann hafði við
fyrstu yfirheyrslur lögreglu neitað
sakargiftum.
Þá um nóttina fann lögreglan lík
Einars í hraungjótu nokkra metra
frá vegslóða að malarnámu austan
við Grindavíkurveg, eftir tilvísan
Atla.
Kafarar úr sérsveit ríkislögreglu-
stjóra vinna nú að því að leita að
morðvopninu og muna sem tilheyrðu
Einari Emi en Atli kveðst hafa kast-
að þeim í sjó eftir að hafa unnið voða-
verkið.
Við húsleit á heimili Atla fundust
blóðblettir í peysu og skóm og við
rannsókn á bifreið hans fundust
einnig blóðblettir í farangursrými.
Blóðsýni hafa verið send til DNA-
rannsóknar í Noregi.
■ Blóð i DNA/4
„Islensk“ dekk
framleidd í Kína
ARCTIC TRIJCKS, dótturfyrirtæki
P. Samúelssonar ehf., hefur gert
samstarfssamning við bandaríska
fyrirtækið Alpha Tyre System um
framleiðslu ájeppadekkjum undir
merki Arctic Trucks. Dekkin verða
framleidd í Kína af þarlendu fyrir-
tæki sem er að hluta til í eigu Alpha
Tyre.
Samkomulag er um að framleidd
verði 5 þúsund dekk á þriggja ára
tímabili eftir forskrift og hönnun
Arctic Trucks og verður þetta í
fyrsta sinn sem framleidd eru sér-
hönnuð stór dekk til aksturs í snjó.
Ráðgert er að selja stóran hluta
framleiðslunnar í Bandaríkjunum.
Dekkin verða einvörðungu fram-
leidd í 35 tommu stærð.
Loftur Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Arctie Trucks, segir að gæð-
um stórra jeppadekkja sé almennt
ábótavant og það sem hafí ýtt fyrir-
tækinu út í eigin framleiðslu var
það að geta boðið viðskiptavinum
sinum upp á betri vöru.
■ Arctic/D2
Morgunblaðið/Þorkell
Siguijón Sigurðsson undirbýr hér borun við Svartsengi þar sem unnið
er nú við tvær holur sem eiga að tryggja rekstraröryggi.
Tvær holur
boraðar í
Svartsengi
HITAVEITA Suðurnesja er að
láta bora tvær holur í Svartsengi
vegna raforku- og vatnsfram-
leiðslu. Ekki er gert ráð fyrir við-
bótarframleiðslu heldur eru hol-
urnar boraðar til þess að tryggja
öryggi núverandi rekstrar, að
sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra
Hitaveitunnar.
Júlíus sagði að ekkert mætti út
af bera í orkuöflun fyrirtækisins
eins og nú væri málum háttað án
þess að það leiddi til fram-
leiðsluskerðingar. Verið væri því
að bora holu, sem gefa ætti jafn-
mikla orku og sú stærsta til þessa,
þannig að eftir það myndu þeir
þola að missa úr holu án þess að
það yrði til þess að skerða þyrfti
framleiðslu.
Július sagði að þessi hola yrði
16-1700 metra djúp en hin holan,
sem fyrirhugað væri að bora, yrði
dýpri. Bæði væri um vinnslu- og
rannsóknarholu að ræða og stefnt
væri að því að hún yrði 2.500
metra djúp, en öll líkön af svæð-
inu gerðu ráð fyrir að engan
varma væri að fínna undir 2.000
metrunum.
Hitaveita Suðurnesja framleið-
ir, auk heita vatnsins, 45 mega-
vött af raforku og hefur svo verið
síðastliðið ár.
Borun við Trölladyngju
Júlíus sagði að þá ætti fyrirtæk-
ið einnig aðild að fyrirhugaðri
borun við Trölladyngju, en það
væri samstarfsverkefni með
Kópavogi, Hafnarfírði, Garðabæ
og Bessastaðahreppi. Endanlegt
leyfi hefði hins vegar ekki enn
fengist fyrir boruninni og væri
beðið úrskurðar umhverfisráðu-
neytisins í þeim efnum.
-jBygging tónlistar- og ráðstefnuhuss auk hótels með 250 herbergjum
Stefnt að samkomulagi rík-
is og borgar fyrir árslok
STEFNT er að því að íyrir áramót
verði gengið frá samkomulagi ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar um bygg-
ingu tónlistar- og ráðstefnuhúss í
Reykjavík, að því er fram kom í
framsöguerindi Stefáns P. Eggerts-
%onar, verkefnisstjóra Tónlistar- og
ráðstefnuhúss í Reykjavík, á opnum
fundi borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í gær.
Þegar samkomulag liggur fyrir er
gert ráð fyrir að hafist verði handa
við markaðsrannsóknir á næsta ári
en unnið verði að hönnun og útboði á
árinu 2002. Gangi verkefnið að ósk-
um geti því verið lokið 2005 eða 2006.
Stefnt er að því að byggingin verði
boðin út sem einkaframkvæmd og í
máli Stefáns kom fram að stór al-
þjóðleg hótelkeðja hefur þegar sýnt
málinu áhuga, sem og innlendir fjár-
festar.
í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu er
gert ráð fyrir stórum tónleikasal fyr-
ir 1.500 áheyrendur. Hann yrði
byggður með sama hætti og nýlegir
tónleikasalir í Birmingham á Eng-
landi, Luzern í Sviss og Lahti í
Finnlandi en meðal samstarfsaðila
verkefnastjórnarinnar eru aðilar
sem unnið hafa að hönnun þeirra
sala. Einnig er gert ráð fyrir æfinga-
sal, sem einnig mætti nýta fyrir
smærri tónleika.
Þá verður í húsinu ráðstefnusalur
fyrir 500-750 manns, auk fjölda her-
bergja fyrir smærri fundi og ráð-
stefnur.
I fjögurra eða fimm stjörnu hóteli,
sem reist verður í tengslum við tón-
listar- og ráðstefnuhúsið á austur-
hluta hafnarsvæðisins í miðborginni,
er gert ráð fyrir 250 herbergjum,
120 sæta veitingasal og margs konar
annarri starfsemi.
I máli Stefáns kom fram að'gera
mætti ráð fyrir að um 250 þúsund
manns sæktu tónleika í húsið á ári og
66 þúsund manns sæktu þar ýmiss
konar ráðstefnur.
32 hús friðuð eða
vernduð við Laugaveg
í máli Ingu Jónu Þórðardóttur,
oddvita borgarstjórnarflokks sjálf-
stæðismanna, kom fram að 32 hús
við Laugaveg, þ.á m. öll sunnanverð
gatan milli Frakkastígs og Vitastígs,
væri friðuð að einhverju leyti. Þetta
væri ein forsenda þeirrar deiliskipu-
lagsvinnu sem nú stendur fyrir dyr-
um í tengslum við þróunaráætlun
miðborgarinnar.
Inga Jóna sagði að þessi stefna
mundi koma í veg fyrir að hægt yrði
að halda Laugaveginum áfram sem
helsta verslunarsvæði borgarinnar
og laða þar að nýja fjárfestingu í
verslun. Að óbreyttu héldi hrömun
Laugavegarins áfram meðan nýir
verslunarkjamar byggjast upp, t.d. í
Smáralind í Kópavogi.
Á fundinum gerði Bolli Kristins-
son, kaupmaður og fulltrúi í mið-
borgarstjóm, m.a. grein fyrir hug-
mynd um að Amarhóllinn yrði
grafinn út og komið þar fyrir um
1000 bflastæðum án þess að spilla
ásýnd hólsins eða styttu Ingólfs Árn-
arsonar.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi, lýsti hugmyndum um jarð-
göng frá Sóleyjargötu og undir Þing-
holtin.
■ Villjarðgöng/4
Síðasti
bókstafur í
einkanúmeri
jafngildir 5
BRÖGÐ eru að því að umráða-
menn ökutækja telji að fasta-
númer ökutækja segi til um hve-
nær færa eigi bifreiðar með
einkanúmeri til skoðunar. Þetta
er ekki rétt. I reglugerð um
skoðun ökutækja segir að hafi
ökutæki einkamerki með tölu-
staf sem síðasta staf á skráning-
ai-merki ræðst skoðunarmánuð-
ur af honum en bókstafir sem
síðasti stafur á skráningarmerki
jafngilda 5 sem síðasta tölustaf.
Lögreglan á Selfossi hefur
séð ástæðu til þess að benda bfl-
eigendum á þessa reglu en mis-
skilningurinn hefur orðið til
þess að margir hafa verið kærð-
ir fyrir að mæta ekki með öku-
tæki sín í skoðun.
Snjóflóð
á Tjörnesi
VETURINN gerði vart við sig víða á
fjallvegum ogþjóðvegum í fyrrinótt.
Vegurinn um Tjömes var ruddur í
gærmorgun en snjóflóð féll á veginn
skammt norðan Húsavíkur. Flóðið
var um 250 metrar á breidd og 1
metri á þykkt og lokaði umferð um
nesið.
Grundvöllur að góðri framtíð
Æskulínubók er verðtiyggður 36 mánaða reikningur
með hæstu vöxtum almennra reikninga bankans.
Forráðamenn barna geta þó bundið reikninginn
til lengri tíma, þannig að innstæðan verði laus til
útborgunar við ákveðinn atdur, t.d. 16 eða 18 ára.
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki